Morgunblaðið - 22.10.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 25
því næst marseruðu fánaberandi
skátar út af torginu.
Erlendu þjóðhöfðingjarnir héldu
til Bessastaða þar sem þeir þáðu
hádegisverð í boði forsetans, en er-
lendir sendimenn héldu til móttöku
í Ráðherrabústaðnum í Tjarnar-
götu að lokinni útfórinni.
Flestar opinberar stofnanir voru
lokaðar fyrir hádegi í gær vegna
útfararinnar og fánar blöktu í hálfa
stöng um allt land.
Margir blómakransar
bárust
Fjöldi blómakransa barst forset-
anum og fjölskyldu hans. Meðal
þeirra sem sendu krans var ríkis-
stjórn Islands, Alþingi Islendinga,
Margrét Danadrottning og Henrik
prins, Karl XVI Gústaf konungur
Svíþjóðar, Haraldur V Noregskon-
ungur, Martti og Eeva Ahtisaari
forsetahjón Finnlands, Bill Clinton
forseti Bandaríkjanna, ríkisstjórn
Danmerkur, ríkisstjórn Noregs,
ríkisstjóm Svíþjóðai', landsstjórn
Færeyja, forsætisnefnd danska
þingsins, Háskóli Islands, stúdent-
ar við Háskóla Islands, nemendur í
MR, Póstmannafélag íslands,
Náttúrufræðistofnun Islands,
Minjar og saga, Kristnihátíðar-
nefnd, Kirkja Jesú Krists hinna
síðari daga heilögu, Islendingafé-
lagið í Seattle, Islendingafélagið í
Utah, miðstjórn og þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
bandalagið. Eftir útförina vom
kransamir fluttur úr Hallgríms-
kirkju í Bessastaðakirkju.
, Morgunblaðið/Ásdís
MARGRET II Danadrottning, Hinrik prins, Karl XVI Gústaf Svíakonungur, Haraldur V Noregskonungur, Martti Ahtisaari, forseti Finnlands, og
Eeva Ahtisaari vottuðu forsetafrúnni virðingu sína.
Móttaka
á Bessa-
stöðum
PJÓÐHÖFÐINGJAR Norður-
landa fóru til Bessastaða að
lokinni útför Guðrúnar Katrín-
ar Þorbergsdóttur þai- sem
framreiddur var hádegisverður
í boði forseta íslands. Við-
staddir voru m.a. ráðherrar í
ríkisstjórn Islands og nánasta
fjölskylda Guðrúnar Katrínar.
Sendiherrum og öðrum full-
trúum erlendra ríkja, sem vom
viðstaddir útfórina, var boðið
til móttöku í Ráðherrabústaðn-
um við Tjarnargötu eftir útfór-
ina. Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti fslands, bauð þeim síð-
an til Bessastaða eftir að hann
hafði kvatt norrænu þjóðhöfð-
ingjana.
Síðdegis bauð forseti íslands
vinum, samstarfsmönnum og
ýmsum samferðamönnum Guð-
rúnar Katrínar til Bessastaða.
Norrænir
þjóðhöfðingjar
við utíorma
ÞJÓÐHÖFÐINGJAR Norður-
landanna vom viðstaddir útför
Guðrúnar Katrínar Þorbergs-
dóttur forsetafrúar. Þeir fóru
af landi brott síðdegis í gær
eftir að hafa vottað Ólafi Ragn-
ari Grímssyni og fjölskyldu
hans samúð sína í boði á Bessa-
stöðum.
Flugvél Karls XVI Gústafs
Svíakonungs lenti á Keflavík-
urflugvelli á tíunda tímanum í
gær. Skömmu síðar lenti flug-
vél Margrétar II Danadrottn-
ingar og Hinriks prins. Flugvél
Haraldar V Noregskonungs
lenti á Reykjavíkurflugvelli
rétt fyrir kl. 10. Martti Ahtisa-
ari, forseti Finnlands, og Eeva
Ahtisaai'i, komu til landsins í
fyrrakvöld. Þjóðhöfðingjarnir
héldu allir af landi brott síð-
degis í gær eftir að hafa setið
hádegisverðarboð forseta ís-
lands og ríkisstjórnarinnar á
Bessastöðum.
Morgunblaðið/Kristinn
LÖGREGLUMENN frá Reykjavík báru kistuna úr kirkju. Forsetinn og fjölskykla hans fylgdu á eftir.
m '' '
m ttn Rjjt mmmmm
Islensk
tónlist
flutt í
kirkjunni
EINGÖNGU íslensk tónlist var
flutt við útför Guðrúnar Katrínar
Þorbergsdóttur forsetafrúar líkt
og við athöfnina á Keflavíkur-
flugvelli sl. laugardag þegar
kista hennar var flutt heim frá
Seattle í Bandarikjum. Tveir kór-
ar sungu í kirkjunni, Vox fem-
inae undir stjórn Margrétar J.
Pálmadóttur og Schoja cantorum
undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Loftur
Erlingsson sungu einsöng. Um
orgelleik sá Hörður Áskelsson
organisti í Hallgrímskirkju.
Tveir kórar
sungfu
Fyrir athöfnina var fluttur
sálmforleikur um sálm sem
aldrei var sunginn eftir Jón Nor-
dal. Schola cantorum flutti
„Heyr, himna smiður“ eftir Kol-
bein Tumason við lag Þorkels
Sigurbjörnssonar. Vox feminae
flutti „Maístjörnuna" eftir Hall-
dór Kiljan Laxness við lag Jóns
Ásgeirssonar.
Loftur Erlingsson söng lagið
„Þó þú langförull legðir“ eftir
Stephan G. Stephansson við lag
Sigvalda Kaldalóns. Söfuðurinn
söng „Víst ertu, Jesú, kóngur
klár“ eftir Hallgrím Pétursson
við lag Páls Isólfssonar. Sigrún
Hjálmtýsdóttir söng „Sjá, dagar
koma, ár og aldir líða“ eftir Da-
víð Stefánsson við lag Sigurðar
Þórðarsonar. Schola cantorum
flutti „Vertu, Guð faðir, faðir
minn“ eftir Hallgrím Pétursson
við lag Jakobs Tryggvasonar.
Eftir moldun söng söfnuður-
inn jarðarfararsálminn „Allt
eins og blómstrið eina“ eftir
Hallgrím Pétursson. Að síðustu
var þjóðsöngur Matthíasar
Jochumsonar og Sveinbjörns
Sveinbjörnssonar fiuttur. Eftir-
spil var „Lamb Guðs“ úr orgel-
verkinu „Dýrð Krists" eftir
Jónas Tómasson.