Morgunblaðið - 22.10.1998, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 27
alþjóð. Framkoma hennar, viðmót,
glæsileiki, gáfur og listfengi og lif-
andi áhugi hennar á fólki, högum
þess og kjörum, það hreif almenn-
ing í þessu landi. Hún vakti athygli
hvarvetna innanlands sem utan
fyrir fágun og persónutöfra. Hún
var afar fjölþættum gáfum gædd
og áhugasvið hennar vítt eins og
hér hefur komið fram. Listelsk var
hún og listfeng, frjór og skapandi
listamaður. Hún hafði mikinn
áhuga á að styrkja listsköpun ungs
fólks eins og öllu því sem verður til
að efla og styrkja hina ungu gegn
því sem eyðir og brýtur niður. Bar-
átta hennar gegn vímuefnum vakti
þjóðarathygli og það hve vel hún
sinnti hinum ýmsu samtökum í
þágu sjúkra. Guð blessi þau mál-
efni öll sem henni voru hugstæð og
hjartfólgin.
Fyrir um ári var hún slegin
skelfilegum sjúkdómi. Það var okk-
ur öllum reiðarslag sú fregn. Is-
land allt hafði eina sál og einn huga
í samstöðunni með henni og fjöl-
skyldu hennar í fyrirbænum og
bataóskum. Og eins og við höfðum
til þessa dáðst að henni í'vrir göfgi
og glæsimennsku í virðingarstöðu
hrifumst við af henni í því hlut-
skipti sem hún tókst nú á við. Guð-
rún Katrín var kvödd í hóp hins
hljóða hetjuhers, sem gengur um á
meðal okkar með lotningu, eins og
það beri boð frá konungi. En
leyndardómurinn sem það ber hef-
ur heiti sem vekur okkur hinum
ógn og ótta og við svo vanmegna og
óttaslegin gagnvart þessum ægi-
lega leyndardómi, við sem einatt
viljum forðast þjáninguna og sárs-
aukann og finnst sem það séu hin
æðstu gæði að flýja það, fela og
gleyma, við hljótum að undrast og
hrífast af þeim þroska og vexti hins
innra manns sem við verðum vitni
að meðal hinna þjáðu: Æðruleysi,
trúarstyrk og von andspænis of-
urefli.
Hvað vitum við um glímuna, um
átökin hið innra milli ótta og von-
ar? Hvað vitum við um kvöl end-
urtekinna rannsókna, læknismeð-
ferða? Hvað vitum við um biðina
löngu eftir niðurstöðu og fegin-
leikann við góðu fréttunum, von-
brigðin og angistina þegar þær
slæmu berast? Við vitum minnst
af því. En lífsþrótturinn sem við
verðum vitni að, æðruleysið og
kjarkurinn og umhyggjan verður
okkur undur og kraftaverk og
þannig kom Guðrún Katrín okkur
fyrir sjónir. Sú stilling og reisn
sem hún sýndi í stríðinu stranga
lét engan ósnortinn. Né heldur
samstaðan, sem eiginmaður henn-
ar sýndi henni, og fjölskyldan sem
umvafði hana til hinstu stundar.
Þetta allt var þeim, sem svipaða
harmabraut feta, og okkur öllum
ómetanleg fyrirmynd, styrkur og
uppörvun. Guð launi það og blessi.
Einlæg var virðing og tiltrú og
þakklæti Guðrúnar Katrínar og
fjölskyldu hennar í garð lækna og
hjúkrunarliðs sem annaðist hana
bæði hér heima og vestan hafs.
Hér skal í hennar nafni og fjöl-
skyldunnar þakka þeim öllum sem
lögðu fram hug og hönd til líknar
og hjálpar.
Svo lagðist hauströkkrið yfir og
hretið harða, hinsta. Voru bænirn-
ar allar til einskis? Trúin og vonin
fánýt? Nei, segir trúin og vonin og
kærleikurinn taka undir í dýpstu
sálar innum, og hlustaðu eftir því.
Engill Drottins kom. Stundin var
komin. Fæðingarhríðar á enda,
lausnin fengin. Engill Drottins
kom og tók sál hennar á arma sína
og bar inn í ljósið bjarta upprisu-
dagsins og lífsins eiMfa hjá Kristi.
„Ég mun sjá yður aftur,“ segir
Kristur um þá stund. „Ég mun sjá
yður aftur og hjarta yðar mun
fagna og enginn tekur fógnuð yðar
frá yður að eilífu.“ I þeirri trú og
von kveðjum við. I ljóma hennar er
þökkin tjáð og hvflan hinsta signd
og myndir minninganna. Og héðan
haldið veginn fram í bjartri von
endurfunda í frelsarans Jesú nafni.
Honum sé dýrð og þökk að eilífu.
Amen.
Innlausná spariskírteinum ríkissjóös 1993/2.Í1.D-S ár
1993 2.fl.D 5 ár
s%
s< k' • i 9 ....... vjád
Skiptu á skírteinum
10. október var lokagjalddagi á spariskírteinum ríkissjóðs
1993 2.Í1.D-5 ár. Eigendum þessara skírteina er boðið að.skipta yfir
í ný spariskírteini í markflokkum með daglegum markaðskjörum.
Þessi kjör eru í boði til föstudagsins 23. október.
Það borgar sig að tryggja sér áfram örugga ávöxtun og skipta strax
yfir í ný. Komdu með gömlu skírteinin í Lánasýslu ríkisins og við
aðstoðum á allan hátt við skiptin.
Örugg ákvörðun - Örugg ávöxtun!
Tryggðu þér ný spariskírteini í 1994/1 .fl.D-10 ár
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • sími: 562 6040 • fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: lanasysla@lanasysla.is