Morgunblaðið - 22.10.1998, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Yfir sjö hundruð manns létust í
„olíuleiðsluvitinu“ í Nígeríu
Hundruð illa
haldin vegna
brunasára
*
Barn sem fannst í Osló
Foreldranna leitað
Ósló. Morgunblaðið.
EKKI hefur tekist að hafa uppi á
foreldrum hvítvoðungsins, sem
fannst í piastpoka fyrir utan íbúða-
blokk í Ósló á þriðjudagsmorgni.
Drengnum hafa hins vegar borist
margar gjafir á sjúkrahúsið þar
sem hann er nú og ófáir hafa boðist
til að ættleiða hann.
Ekkert amaði að baminu þegar
það fannst en ljóst er, að það var
borið út strax eftir fæðingu. Hafði
því hvorki verið þvegið né gengið
frá naflastrengnum.
Takist ekki að hafa uppi á móður
bamsins eða foreldrunum báðum
næstu daga munu bamavemdaryfir-
völd sjá um að koma því í fóstur, að
minnsta kosti til bráðabirgða. Blöð
og sjónvarp hafa ekki fengið leyfi til
að birta myndir af drengnum en það
verður hugsanlega gert í von um, að
móðirin segi þá frekar til sín.
Reuters
FLÓÐIN miklu í Bangladesh
kostuðu um 1.500 manns lífið og
milljónir manna misstu heimili
sitt. Nú eru þau um garð gengin
en sjónin, sem við blasir, er víða
skelfileg. Þar sem áður var
frjósamt akurlendi eru nú sand-
og aurflákar svo langt sem aug-
að eygir. Mun það ekki auðvelda
landsmönnum lffsbaráttuna auk
þess sem heita má, að stórflóð
séu orðin árviss í Iandinu.
Warri. Reuters.
HJÁLPARSTARFSFÓLK reyndi í
gær að lina þjáningar fólks sem
skaðbrenndist í „olíuleiðsluvítinu"
sem olli dauða að minnsta kosti 700
manns í Nígeríu á sunnudag. Var
fjölmennt lið hjálparstarfsmanna frá
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF), Rauða krossinum og Al-
þjóða heilbrigðisstofnuninni (WHO),
sem send voru sérstaklega til Níger-
íu vegna eldanna, til aðstoðar á
sjúkrahúsum í nágrenni Warri en
þar liggja enn hundruð illa særðra
Nigeríubúa.
Sagði Stella Goingf, yfirmaður
heilbrigðisdeildar UNICEF í Níger-
íu, að fólkinu stafaði nú mest hætta
af því að sýking kæmist í sár þeirra.
A mánudag og þriðjudag voru yfir
þrjú hundruð óþekkjanleg lík grafin
í jörðu nærri staðnum þar sem um
2000 íbúar þorpsins Apawor reyndu
á sunnudag að verða sér úti um
ókeypis eldsneyti, eftir að olíuleiðsla
hafði brostið, en urðu í staðinn fóm-
arlömb „olíuleiðsluvítis" þegar eldur
barst í olíuna með þeim afleiðingum
að stórbruni var leystur úr læðingi á
svipstundu.
Ættingjar margra þeirra sem
njóta aðhlynningar á sjúkrahúsum
vegna brunasára virðast óttast að
yfirvöld sæki þá til saka fyrir að
hafa gert tilraun til að tryggja sér
hluta af olíunni sem gaus úr olíu-
leiðslunni sem brast og hafa því
margir sjúklinganna haldið heim til
sín þótt fulltrúar sjúkrahúsanna
segi að heilsa þeirra sé í mörgum til-
fellum með þeim hætti að þeir ættu
að halda kyrru fyrir í sjúkrahúsun-
um. Halda fulltrúar Rauða krossins
og UNICEF því hins vegar fram að
fregnir í þessa veru séu töluvert
ýktar.
Lofar að greiða sjúkrahús-
reikninga slasaðra
Abdusalam Abubakar, leiðtogi
herforingjastjórnarinnar í Nígeríu,
sagðist á þriðjudag hafa fýrirskipað
rannsókn á tildrögum slyssins en
fulltrúar hins ríkisrekna olíufélags
kenndu skemmdarvörgum um eyði-
leggingu olíuleiðslunnar. Sögðu þeir
æ algengara að unnin væru
skemmdarverk á olíuleiðslunum
annaðhvort af þjófum eða íbúum
suðausturhluta Nígeríu, þar sem
mesta olíuna er að finna, sem telja
sig ekki hljóta eðlilegan skerf af auð-
æfunum sem dælt er úr jörðu þeirra.
Hét Abubakar því einnig, er hann
heimsótti vettvang hamfaranna, að
ríkið myndi greiða sjúkrareikninga
þeirra sem lifðu slysið af.
Timo Hakulinen, prófessor við farsóttadeild háskólans í Helsinki
FINNAR hafa góða reynslu af
gagnagrunnum á heilbrigðissviði en
brýnt er að eftirlit sé haft með notk-
un upplýsinganna, að sögn Timo
Hakulinens, prófessors við farsótta-
deild Helsinki-háskóla. Hann var
hér í heimsókn í boði Krabbameins-
félags Islands í hðinni viku.
Hakulinen er tölfræðingur að
mennt og annast m.a. kennslu nem-
enda í doktorsnámi auk þess að
stunda rannsóknir. Hann segir til-
lögur íslenskra stjómvalda að mið-
lægum gagnagrunni á heilbrigðis-
sviði víða hafa vakið athygh.
„Vandinn er meðal annars sá að
mjög erfitt er að halda upplýsing-
um í svo umfangsmiklum grunni
við og uppfæra þær jafnóðum. Það
er auðveldara þar sem um er að
ræða takmarkaðan grunn með
starfsliði sem helgar sig einu sviði
upplýsinga. Hjá finnsku krabba-
meinsskránni t.d. starfar sérhæft
fólk sem getur gefið vísindamönn-
um ráð um notkun slíkra gagna.
Við erum með marga gagna-
grunna í Finnlandi og þeir eru á
vissan hátt aðskildir. Um er að
ræða heilbrigðisgögn, ættfræði-
gögn og fleira en þess er gætt að
safna ekki of umfangsmiklum upp-
lýsingum um sjúkling í hvem
grunn. Við teljum betra að tengja
upplýsingar úr grunnum en að hafa
þær allar á einum stað.
Auk þess er auðveldara að fylgj-
ast með notkuninni og ábyrgðin á
örygginu er ekki öll hjá einum að-
ila.“
Að sögn Hakulinens eru helstu
bankamir yfir heilbrigðisupplýs-
ingar undir stjórn heilbrigðisráðu-
neytisins finnska og sérstakrar, op-
inberrar tölvugagnastofnunar sem
hefur á sinni könnu öryggi í tengsl-
um við heiibrigðis- og félagsvís-
indalegar rannsóknir. Sum gagna-
söfnin em notuð við stjómun, önn-
ur í vísindaskyni.
Þegar gögnin era notuð við vís-
indarannsóknir verður að leggja
fram umsókn til áðumefndrar
stofnunar og einnig til ráðuneytis-
Margþætt eftir-
lit með fínnskum
gagnagrunnum
Tölfræðiprófessorinn Timo Hakulinen leggur í samtali við
Kristján Jónsson áherslu á að öryggi í fínnskum gagnagrunn-
um sé tryggt með því að vandlega sé fylgst með því hver fái
þar upplýsingar, hvert markmiðið sé og hvað verði um upplýs-
ingarnar þegar búið sé að nota þær.
ins ef vísindamaður-
inn þarf að nota upp-
lýsingar úr stærsta
grunninum sem sam-
anstendur af Sjúkra-
skýrslum um aðgerðir
eða aðra aðhlynningu
á spítölum landsins.
Hægt að tengja
við kennitölur
„Sé um spítalagögn
að ræða verður siða-
nefnd spítalans einnig
að leggja blessun sína
yfir umsóknina. Hver
sjúkrastofnun fyrir
sig verður að sam-
þykkja umsókn um
notkun upplýsinga og yfir hverjum
grunni er stjómandi sem verður að
samþykkja umsóknina. Eftirlitið er
því margþætt," segir Hakulinen.
,Avallt þarf að tilgreina einstak-
iing, lækni eða einhvem annan,
sem er persónulega ábyrgur fyrir
notkun gagnanna og
verður að svara til
saka ef eitthvað fer
úrskeiðis. Ennfremur
er það hlutverk áður-
nefndrar eftirhts-
stofnunar að tryggja
að ekki sé um tví-
verknað að ræða í vís-
indalegum skilningi.
Ekkert er því til fyrir-
stöðu að fá gögn úr
fleiri en einum grunni
og tengja þau saman
ef umsóknin stenst
sett skilyrði. Geti vís-
indamaðurinn rök-
stutt að nauðsynlegt sé
að tengja gögnin við
kennitölur er hægt að leyfa slíkt.
Yfirleitt era upplýsingar, t.d. í
krabbameinsgranninum, tengdar
við kennitölur en sá sem fær að
nota upplýsingarnar kemst ekki í
beint samband við gagnagranninn
eða grannana heldur fær hann að-
eins þær afmörkuðu upplýsingar
sem hann hefur beinlínis beðið um.
Vísindamaður getur t.d. viljað
kanna tölfræðilega tíðni ákveðinn-
ar aðgerðar á stofnununum og þá
fær hann þær upplýsingar en ekki
skýrslu um aðgerðir á tilgreindum
einstaklingi. Umsóknin verði að
vera vandlega skilgreind og orðuð
þannig að ekkert fari á milli mála
um ástæðurnar. Þar er tekið fram
hve lengi umrædd gögn verði not-
uð og hvað verði um þau eftir að
búið er að fullnýta þau.
Ekki er um að ræða fyrirfram
samþykki sjúklings þegar veitt er
leyfi til að nota gögnin. í Finnlandi
er annars vegar notast við lög um
almenna vernd persónuupplýsinga
og nýrri lög um sérstaka vernd
heilbrigðisupplýsinga. Við teljum
að í grandvallaratriðum sé það svo
að sérhver borgari geti nú fengið
upplýsingar um það hvernig verið
sé að nota upplýsingar um hann.
Það hafa verið umræður um að
Timo Hakulinen
krefjast svonefnds upplýsts sam-
þykkis sjúklings áður en leyft sé að
nota gögnin. Reynslan af gagna-
grannunum hefur hins vegar verið
góð í Finnlandi og ég held að það
sé ástæðan fýrir því að ekki hefur
verið hreyfing í þessa átt. Almenn-
ingur veit að mikill árangur hefur
náðst með þessari tilhögun og er
því sáttur við hana.“
Hann segir að áratuga reynsla
bendi heldur ekki til þess að stjórn-
völd hafi misnotað aðstöðu sína til
að afla upplýsinga um einstaklinga
með aðstoð gagnagrunnanna.
Misnotkun í
hagnaðai-skyni
Að sögn Hakulinens er ekki
leyfilegt að umsækjandi veiti öðr-
um aðgang að upplýsingunum en
nefndir era í umsókninni eða selji
þær í hagnaðarskyni „og ég hef
ekki enn kynnst óheiðarlegum vís-
indamanni í Finnlandi“. Auk þess
sé tilgreint í lögum hve mörg ár
gögn megi vera í vörslu umrædds
vísindamanns.
Tryggingafyrirtæki hafi beðið
um upplýsingar en verið hafnað og
einkafýrirtæki fái ekki einu sinni
aðgang þótt sjúklingur hafi veitt
samþykki sitt. Tölvuvarnir eða eld-
veggir hafi reynst nægilega öflugir
til að koma í veg fyrir að tölvu-
þrjótar komist inn í grunnana.
Hakulinen segir að ekki sé í
finnskum lögum útilokað að vís-
indamaður geti fengið fjárhagslega
aðstoð og styrki hjá einkafyrir-
tækjum við rannsóknir sem bygg-
ist á upplýsingum úr gagnagrunn-
um. Hann er spurður hvort ekki sé
hugsanlegt að vísindamaður geti
búið til afrit af þeim upplýsingum
sem hann kemst yfir, komið sér
upp eigin upplýsingagrunni með
samkeyrslu við aðrar upplýsingar
og selt síðan gi-unninn á markaði.
Hann segir að það sé stranglega
bannað og tilgreind viðurlög við
slíku hátterni. „En fræðilega er
ekki hægt að útiloka að þetta geti
gerst“.