Morgunblaðið - 22.10.1998, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Jost Stollmann gagnrýnir væntanlega ríkisstjórn SPD og Græningja
Segir Lafontaine hafa haft
miðjustefnu Schröders undir
Bonn. Reuters.
JOST Stollmann, sem hafnaði boði
um að taka við embætti efnahags-
málaráðherra í nýrri ríkisstjóm
Þýzkalands eftir að hafa beðið lægri
hlut í valdatogstreitu við Oskar
Lafontaine, formann Jafnaðar-
mannaflokksins SPD, gagnrýndi
hinn verðandi fjármálaráðherra
harkalega í blaðaviðtali í gær. Einnig
varð hinn nýi stjómarsáttmáli SPD
og Græningja fyrir mikilli gagnrýni
úr ýmsum áttum.
Stollmann sagði í viðtali við Stidd-
eutsche Zeitung að það eina sem
ræki Lafontaine áfram í stjórnmál-
um væri valdagræðgi. I hrópandi
mótsögn við fullyrðingar Gerhards
Schröders, sem ætlað er að taki
formlega við kanzlaraembættinu 27.
október, sagði Stollmann að metnað-
ur Schröders til að standa fyrir hina
„nýju miðju“ þýzkra stjórnmála
hefði þurft að láta í minni pokann
fyrir stefnu Lafontaines, sem sé
meira í ætt við hefðbundinn sósíal-
isma.
Stollmann, sem er
óflokksbundinn at-
hafnamaður og starfar í
tölvugeiranum, var teflt
fram af Schröder sem
ráðherraefni í kosn-
ingabaráttunni fyrir
þingkosningarnar í síð-
asta mánuði, ekki sízt
til að höfða til kjósenda
á hinni pólitísku núðju.
í viðtalinu gerði Stoll-
mann lítið úr hugmynd-
um Lafontaines um að-
gerðir til að hamla gegn
skaðlegum gengissveifl-
um milli helztu gjald-
miðla heims.
,Ásamt mörgum sérfræðingum tel
ég að þessar tillögur séu hreinasta
fjarstæða," sagði hann.
Schröder hefur reynt að gera sem
minnst úr því að Stollmann skyldi
óvænt falla úr leik með því að hafna
ráðherradómi sl. mánudag og segir
að stefna hinnar „nýju miðju“ lifi enn
góðu lífi. En Stollmann
sagði að málið varpaði
ljósi á þann hugmynda-
fræðilega klofning sem
sé innan SPD á milli
nútímalegra endurnýj-
unarsinna eins og
Schröders og hefðbund-
inna vinstrimanna á
borð við Lafontaine.
Efasemdir um
skattbreytingaáform
Stollmann sagði
einnig að þær breyting-
ar á skattkerfinu sem
SPD og Græningjai-
hafi samið um í stjórn-
arsáttmálanum myndu verka íþyngj-
andi fyrir lítil og meðalstór fyrir-
tæki, stoðvirki þýzks efnahags. Þær
myndu frekar vera til þess fallnar að
hindra frekar en ýta undir sköpun
nýrra starfa í því skyni að fækka at-
vinnulausum, sem nú eru yfir fjórar
milljónir í landinu.
Sex helztu stofnanir Þýzkalands,
sem gefa reglulega út efnahagsspár,
gefa skattbreytingaáformunum
heldur ekki háa einkunn. Þær
skattalækkanir sem fyrirhugaðar
væru dygðu ekki tii að ýta nægilega
undh' atvinnusköpun.
A þriðjudag sá Sehröder sig knú-
inn til að viðurkenna, að sennilega
þyrfti að gera meira fyrir lítil og
meðalstór fyrirtæki, en fulltrúar
Græningja andmæltu þessu tafar-
laust.
I forystugreinum þýzku dagblað-
anna bar einnig mikið á efasemdum
um að skattbreytingaáformin stæðu
undir væntingum. Jafnvel
vinstrisinnuð blöð, hliðholl hinu
nýja stjórnarsamstarfi, voru efins
um að þær aðgerðir sem boðaðar
væru í hinum „rauð-græna“ stjórn-
arsáttmála dygðu til að leysa þau
vandamál á efnahagssviðinu sem
brýnast væri að finna lausnir á, at-
vinnuleysisvandann þar fyrst og
fremst.
Stollmann
Reuters
'fTm VÍ
& " " s”’ ' t V '
f Wái #1
Fulltrúar
Kóreuríkja
ræðast við
FULLTRÚAR Norður- og Suður-
Kóreu settust að samningaborði í
Genf í gær í von um að ijúfa
þann vítahring, sem friðarvið-
ræður ríkjanna hafa verið í. Eiga
fulltrúar Kínverja og Bandaríkja-
manna einnig aðild að viðræðun-
um en fáir gera sér miklar vonir
um árangur. Strandar einkum á
þeirri kröfu N-Kóreustjómar, að
bandaríska herliðið í S-Kóreu,
37.000 manns, verði flutt burt en
um það eru sijórnvöld í S-Kóreu
og Bandaríkjunum ekki til við-
ræðu. Myndin var tekin við upp-
haf viðræðnanna í gær. Ystur til
vinstri er kim Gye Gwan, aðstoð-
arutanríkisráðherra N-Kóreu; þá
Charles Kartman sendiherra og
fulitrúi Bandaríkjasljórnar í
Kóreu; Qian Yongnian, sendi-
herra Kína, og Park Kun-woo,
sendiherra S-Kóreu.
Ný ríkisstjórn ftalíu, sú 56. eftir stríð, komin á laggirnar
Marxistar ráð-
herrar
sinn í
Róm. Reuters.
MASSIMO D’Alema, fyrrverandi
kommúnisti og núverandi leiðtogi
stærsta vinstriflokksins á ítalska
þinginu, tilkynnti í gær að hann hefði
myndað 56. ríkisstjóm Ítalíu frá lok-
um síðari heimsstyrjaldar. Þykir tíð-
indum sæta að meðal ráðherra í nýju
stjóminni em marxistar, í fyrsta
sinn í hálfa öld.
D’Alema sór í gær embættiseið
fyrir Osear Luigi Scalfaro forseta og
kynnti honum ráðherralista sinn.
Það eina sem þar með er eftir að
gera til að ganga frá stjómai'skipt-
um er að neðri deild Italíuþings sam-
þykki stjóm D’AIemas, sem tekur
við af stjórn Romanos Prodis sem
missti naumlega meirihluta sinn á
þinginu 9. október sl.
Brotið var blað í sögu ítalskra
stjómmála eftir stríð, sem einkennd-
i fyrsta
50 ár
ust í hálfa öld af því að kristilegir
demókratar héldu sovéthollum
kommúnistum frá völdum, með því
að Oliviero Diliberto og Katia
Bellillo urðu fyrstu marxistarnir til
að komast í ríkisstjórn frá því íyrsta
stjórn landsins eftir stríð var mynd-
uð, árið 1947.
„Við höfum beðið í hálfa öld eftir
þessu augnabliki," tjáði Diliberto
fréttamönnum.
Á ráðherralistanum er að finna
þrjá fyrrverandi forsætisráðherra,
sex konur og nokkra yngri menn.
Evrópumálaráðherrann, Enrico
Letta, er 32 ára.
Carlo Azeglio Ciampi, einn af
áhrifamestu mönnunum í Prodi-
stjórninni, heldur embætti sínu sem
fjárlagaráðherra, en hann er einn af
sjö ráðherrum sem halda stólum sín-
Reuters
MASSIMO D’Alema, nýr forsætisráðherra Ítalíu, brosir breitt í hópi
nýrra ráðherra í sljórn sinni, auk Oscars Luigis Scalfaros forseta (t.h.).
um. Vincenzo Visco verður áfram
fjármálaráðherra og Lamberto Dini
utanríkisráðherra.
Nýja stjórnin er einstök að því
leytinu, að í henni sitja bæði fyrrver-
andi kommúnistar og yfirlýstir
marxistar og félagar í miðflokknum
UDR, sem að nokkru leyti er arftaki
Kristilega demókrataflokksins, sem
leystur var upp.
Stefnt að staðfestingn
þings á morgun
Francesco Cossiga, sem gegndi
sem kristilegur demókrati embættum
forsætisráðherra og forseta og er
einn af mestu áhrifamönnum ítalskra
stjómmála síðustu ára, fagnaði
myndun D’Alema-stjómarinnar og
sagði hana skýrt merki um að nú væri
kalda stríðið á Italíu sannarlega liðið.
D’Alema kallaði nýju stjórnina til
fyrsta ríkisstjórnarfundarins strax
eftir embættiseiðinn. Hann hyggst
ávarpa neðri deild þingsins í dag í
því skyni að koma af stað því ferli
sem lýkur með atkvæðagreiðslu um
traustsyfirlýsingu á stjórnina. Sú at-
kvæðagreiðsla gæti jafnvel farið
fram strax á morgun, föstudag, en
þar með gæti D’Alema og aðrir ráð-
herrar tekið þátt í óformlegum leið-
togafundi Evrópusambandsins, sem
fram fer í Austurríki um helgina.
Heilsufar
Jeltsíns
„eðlilegt“
EINN af talsmönnum Borís
Jeltsín, forseta Rússlands,
sagði í gær, að hann væri við
eðlilega heilsu og vísaði á bug
fréttum um, að henni hefði
hrakað. Voru teknar röntgen-
myndir af Jeltsín á sjúkra-
húsi í Moskvu í gær en dr.
Rob Niven, breskur sérfræð-
ingur í brjóstholssjúkdómum,
segist furða sig á því sé það
rétt, að hann sé aðeins með
berkjukvef. Það komi illa
fram á slíkum myndum en
hins vegar geti þær sýnt
hvort um sé að ræða lungna-
bólgu eða krabbamein. Full-
trúar IMF, Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins, áttu í gær viðræð-
ur við rússneska embættis-
menn um heilsufarið í efna-
hagslífmu en þeir vilja ganga
úr skugga um, að rússneska
stjórnin vinni að því að lækka
útgjöld ríkisins og auka tekj-
urnar.
Vellukkað
Ariane-skot
EVRÓPSKA geimferðastofn-
unin skaut í gær á loft í
Frönsku Guiana nýrri Ariane-
5-eldflaug með eftirlíkingu af
fjarskiptahnetti um borð. Var
skotið fyrst og fremst til að
prófa eldflaugina, sem er af
þriðju kynslóð Ariane-eld-
flauga, og til að sýna fram á
getu hennar til að koma á
braut gervihnöttum. Var þessi
nýja eldflaugartegund fyrst
prófuð í júní 1996 en þá
sprakk flaugin skömmu eftir
flugtak. Betur gekk í október
í fyrra en þó ekki alveg áfalla-
laust en nú fór allt eins og
ætlað var.
Tyrkir og
Sýrlendingar
semja
TYRKIR og Sýrlendingar
hafa komist að samkomulagi í
deilunni um meintan stuðning
þeirra síðamefndu við
kúrdíska uppreisnarmenn í
Tyi'klandi. Stjórnin í Ankara
áskilur sér þó rétt til að beita
valdi verði ekki við samning-
inn staðið. Héldu Tyrkir því
fram, að Kúrdíski verka-
mannaflokkurinn væri með
bækistöðvar í Sýrlandi en
Sýrlendingar hafa nú ítrekað,
að hann sé ólöglegur í land-
inu.
Settust að í
sendiráði
Mexíkó
UM 10 grímuklæddir menn
lögðu undir sig sendiráð
Mexíkó í Ósló í gær og kröfð-
ust þess, að pólitískir fangar í
Chiapas-héraði yrðu látnir
lausir. Að sögn lögreglunnar
eru mennirnir félagar í
vinstrisinnuðum samtökum,
svokölluðum Blitz-hópi. Eru
þeir óvopnaðir og þeir fjórir
sendiráðsstarfsmenn, sem
voru fyrir í húsinu er þá bar
að garði, eru frjálsir ferða
sinna. Mótmælendumir neit-
uðu hins vegar að yfirgefa
húsið fyrr en orðið hefði verið
við kröfum þeirra.