Morgunblaðið - 22.10.1998, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.10.1998, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 35 Byggðastefnu í stað veiðileyfagjalds FYRIR rúmum þremur mánuðum var tekin ákvörðun á auka- landsfundi Alþýðu- bandalagsins um sam- eiginlegt framboð með Alþýðuflokki og Kvennalista íyrir næstu Alþingiskosn- ingar. Sú ákvörðun leiddi þegar í stað til úrsagna úr Alþýðu- bandalaginu og allstór hópur yfirgaf flokkinn, þar á meðal tveir al- þingismenn hans og sá þriðji batt enda á sam- starf við hann. Þetta varð dapurleg niður- staða og ég leyni því ekki að ég taldi ekki farsælt að kljúfa Alþýðu- bandalagið til þess að taka upp samstarf við Alþýðufiokkinn. Einn flokkur í stað samstarfs Akvörðun aukalandsfundarins um sameiginlegt framboð án þess að málefnagrundvöllur lægi fyrir leiddi af sér að eðlisbreyting varð á umræðunni um samfylkingu stjórnarandstöðuflokkanna, í stað þess að vera samstarf flokkanna til sóknar í næstu Alþingiskosningum varð markmiðið að sameiginlegt framboð leiddi til stofnunar nýs flokks í stað hinna þriggja og klofningur í Alþýðubandalagi og Kvennalista var skil- greindur sem fórnar- kostnaður sem yi’ði að reiða fram nú en myndi skila sér í góð- um kosningaúrslitum í þamæstu Alþingis- kosningum árið 2003 undir fána hins nýja flokks. Mikill ágreiningur er um þessa ákvörðun innan Alþýðubanda- lagsins og ljóst að hún mun sundra liðsveit flokksmanna og kjósenda umfram það sem nú þegar hefur komið fram. Ég hef ekki viljað lýsa yfír stuðningi við framboðið af þessum sökum en ákvað að bíða þess að fyrir lægi málefnalegur grundvöll- ur framboðsins og gerði mér vonir um að þar væri að finna betrumbætur sem gæfu færi á að fylkja liðinu saman á nýjan leik. Nú liggur sá grundvöllur fyrir í öllum meginatriðum eftir að mál- Alvarlegast, segir Kristinn H. Gunnarsson, er þó viðhorfið til byggðamála. efnaskrá flokkanna var kynnt á dögunum og því hægt að taka af- stöðu til málsins á þeim forsendum. Þar er að finna ýmis góð fyrirheit en alla efnahagslega undirstöðu vantar í stefnuna og ef henni yrði hrint í framkvæmd leiddi hún til óstöðugleika og verðbólgu. Þar er um of haldið í gildandi reglur um þátttöku sjúklinga í lyfjakostnaði og kostnað við heilbrigðisþjónustu og fráleitt er að mínu mati að huga að aðild að Evrópusambandinu. 10.000 manns suður? Þörfín er hvað mest á djarfhuga og róttækum aðgerðum til þess að styrkja byggð um landið og stöðva fólksflutningana suður. Árlega flytjast um 2.000 manns suður af landsbyggðinni með tilheyrandi þjóðfélagslegum kostnaði og erfið- leikum fjölda manna.I stað skiln- ings og stuðnings á þessu vanda- Kristinn H. Gunnarsson sama og erfiða úriausnarefni er meginbaráttumál sameiginlega framboðsins að efna til sérstakrar skattlagningar um milljarða króna árlega á aðalatvinnuveg lands- byggðarinnar, sjávarútveginn. Þennan skatt munu sjómenn og aðrir launamenn í atvinnugreininni að lokum greiða með lægri launum sínum. Þessi viðhorf styð ég ekki og hef ítrekað gert kröfu um að þeim verði breytt. Ljóst er nú að ekki verður orðið við þeim kröfum, þvert á móti er það járnsleginn vilji forystumanna Alþýðuflokks og Kvennahsta að halda óbreyttu striki og afla drjúgra tekna með þessum hætti. Þessi stefna mun ekki verða landsbyggðinni til gagns, heldur mun hún^ frekar auka á strauminn suður. A næsta kjörtímabili gætu 10.000 manns flutt suður umfram þá sem flytja út á land með þessai’i stefnu. Nýir skattar af þessu tagi efla ekki byggð á Vestfjörðum. Ég treysti mér ekki til þess að standa að framboði á þessum grundvelli og mun ekki styðja sam- eiginlegt framboð Alþýðubanda- lags, Alþýðuflokks og Kvennalista. í aðdraganda næstu Alþingis- kosninga munu þingflokkar þeirra flokka sem standa að sameiginlegu framboði af augljósum ástæðum leitast við að samræma afstöðu sína og þeir þingmenn sem hyggja á endurkjör verða að miða mál- flutning sinn við það. I sumum mál- um, svo sem varðandi veiðileyfa- gjald í sjávarútvegi, mun ég óhjá- kvæmilega lenda í andstöðu við þá sem fylgja sameiginlegu framboði. Ég tel ekki rétt að efna til slíkra árekstra og trufla málflutning sam- fylkingarinnar innan frá. Ég tel eðlilegast að stíga úr röðum þeirr- ar fylkingar og tala fyrir mínum sjónarmiðum á eigin forsendum, enda hef ég fullan hug á því að leggja störf mín og áherslur í dóm kjósenda í næstu Alþingiskosning- um. Að vandlega athugðu máli hef ég ákveðið að segja mig úr þing- flokki Alþýðubandalagsins og í framhaldi af því úr Alþýðubanda- laginu. Ég vil fæi'a samstarfs- mönnum mínum innan þingflokks- ins og Alþýðubandalagsins þakkir fyrir samstarfið á undanförnum ár- um og árna þeim velfarnaðar á þeim vettvangi sem þeir velja sér og læt í ljós þá ósk að störf þeirra megi verða landi og þjóð til heilla. Höfimdur er alþingismaður. "slim-line" dömubuxur frá gardeur Uáuntv tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 5611680 KOMDU FLJOTT E F ÞU VILT SPARA ÞÚSUNDIR kaup Nú er tími til að spara! fyrir 12 manns, 2 hitastig (55/65 gráður) vatnsöryggi, 4 þvottakerfi Verð áður kr. 49.900. . VJ w Verð nú kr. 34.900.- Þú sparar kr. A 15.000 Þellipurrharl Verð nú kr. 39.900.- Þúspararkr. _ 13.000 Þéttiþurrkari ' (notar ekki barka) Tekur 6 kg. af þvotti, 2 hitastillingar, 120 min. klukka krumpuvörn, veltir í báöar áttir, stáltromla. Þvottavél 1200 sn. Þú sparar kr. J 15.000- 1200 sn. þvottavél. Tekur 5 kg. og er búin öllu því besta sem þrýöir góða þvottavél. M.a. innb.vigt sem styrir vatnsmagni eftir þvottamagni, ullarvöggu, flýtiþvottakerfi o.fl. o.fl Wð erum i eæsta husi v/ð VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR lieimsendngaitojónusta þjónusta vögeröarþijónusta RflFTffKMPERHUN ÍSLflNDS Ff - AN NO 1 929 - Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.