Morgunblaðið - 22.10.1998, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 37
Á hvaða leið
ert þú?
Á HVAÐA leið ert þú? „Á hrað-
ferð gegn um lífið“ gæti verið svar
okkar margra, sem í borginni bú-
um. Meira að segja börnin eiga svo
annasamt líf í borgarsamfélaginu,
að tóm fyrir köllun þeirra, hinn
frjálsa leik, virðist þverrandi. Úr
einu í annað þjótum við - en sjaldn-
ast fjölskyldan saman. Og hvert er
markmiðið með önnum okkar? „Að
lifa af‘, segir einhver, eða kannski
„að eiga gott líf‘. En í hverju felst
þá hið góða líf?
Lífið í kirkjunni
Kirkjan í borginni býður svar við
lífsgæðaspurningunni í önnum
dagsins. Fjölskyldunni er boðið að
koma og eiga innihaldsríka stund
saman á sunnudagsmorgnum.
Safnaðarheimilin standa opin for-
eldrum með ung böm sín virku
dagana, þar sem næring gefst í
Kirkjan á erindi við
þig, segir María
—^-----------------------------
Agústsdóttir, og þú átt
erindi við kirkjuna.
samtali og samveru. Börn á ýmsum
aldri eiga athvarf í kirkjum borgai'-
innar einhvern dag vikunnar til að
leika sér og uppbyggjast í um-
hvei'fi, sem ekki ýtir undir sam-
keppni, heldur leyfir hverjum ein-
staklingi að njóta sín. Unglingarnir
era sömuleiðis boðnir velkomnir í
kirkjur og safnaðarheimili, þar
sem fram fer heilbrigt starf og um-
fram allt skemmtilegt. Kirkjan fer
einnig út til móts við þau ung-
menni, sem sækja niður í bæ um
helgar, með það að markmiði að
bæta menningu miðbæjarins undir
merkjum Krists.
Er kirkjan
fyrir fullorðna?
Öll emm við sammála um að
nesta börnin okkar og unglingana
sem best fyrir framtíðina. Sagt er,
að við foreldrar eigum hvað stærst-
an þátt í að skapa fortíð komandi
kynslóðar. Kirkjan hefur síðustu
áratugina lagt sitt af mörkum til að
móta heilsteyptan æskulýð. Mikil-
vægt er, að við höldum okkar striki
þar og leggjum enn meiri áherslu á
foreldra- og fjölskyldustarf, sam-
fara því sem þegar er gert.
Mörgum fullorðnum finnst sjálf-
sagt, að kirkjan sinni barna- og
æskulýðsstarfi og leiða glaðir börn-
in til kirkju. Það er vel. En hefur
kirkjan eitthvað að færa hinum
fullorðnu? Hvað með þau, sem ekki
eru fjölskyldufólk? Hvað með
námsmanninn á „hótel mömmu“?
Hvað með framakonuna í flottu
dragtinni? Hvað með miðstéttar-
hjónin, sem komið hafa börnunum
á legg? Og hvað með öryrkjann,
sem enginn vill vita af? Á þetta fólk
Úrval af töskum
Háaleitisbraut 58-60, sími 581 3525
erindi í kirkju? Á kirkjan erindi við
þau?
Næring
og samfélag
Auðvitað á kirkjan á erindi við
þig, hverjar sem aðstæður þínar
eru - og þú við hana. Vikan í borg-
arkirkjunni byrjar með fræðslu á
sunnudagsmorgnum, síðan er
messað bæði fyrir og eftir hádegi
og loks að kvöldinu
með öðru sniði. Hvert
sunnudagskvöld mán-
aðai'ins er boðið til
messu í einhverri
kirkju borgarinnar þar
sem nafni Guðs er
sungið lof með lagi nú-
tímans, jazz-, popp-
eða gospeltónlist. Þar,
í húsi Guðs, rofna múr-
arnir, sem við full-
orðna fólkið erum svo
iðin við að byggja upp.
Þar er fæðslu og
græðslu að finna.
Sameiginleg upp-
bygging á sér einnig
stað á hjónanámskeið-
um og samverutn fyrir syrgjendur.
Starf með öldruðum er bæði virka
daga og á laugardögum, leikfimi,
söngur, skoðunarferð-
ir og samfélag. Þá er
líka víða opið hús fyrir
alla aldurshópa í safn-
aðarheimilum, þar
sem boðið er upp á
kaffi og uppbyggilegar
umræður. Tónlistarlíf
er víðast hvar fjöl-
breytt og mikið, allt
frá „Krúttakór“
yngstu barnanna að
„Litla kór“ aldraðra,
svo nokkuð sé nefnt.
Kyrrðarstundir í há-
degi eru alla virka
daga vikunnar í ein-
hverri kirkjunni með
næringu fyrir sál og
líkama. Að kvöldinu gefst svo kost-
ur á samræðu og samfélagi í biblíu-
lestrum, bænahópum og fræðslu-
stundum hér og þar um borgina.
Þá eru að kvöldinu fyrirbænamess-
ur, lofgjörðarstundir og kvöldsöng-
ur með Taizé-lagi. þar er miðlað
kyiTð og endurnæringu inn í anna-
samt, en þó oft einmanalegt líf nú-
tímamannsins.
Allt þetta er orðið til vegna þess
að Guð á stefnumót við okkur, hvar
sem við erum stödd á lífsleiðinni.
Jesús Kristur á erindi við mig og
við þig, erindi um fögnuð og heil-
steypt líf. Hvort sem annirnar eru
að fara með þig eða tómleikinn og
tilgangsleysið, þá er hann þar,
reiðubúinn að mæta þér. Kannaðu
dagskrána í þinni kirkju, því kirkj-
an er fyrir alla - alla daga. Líka þig
á þinni leið.
Höfundur er héraðsprestur í
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.
^Columbia
» kfgjL BiATHLETIC Sports>vcar Company*
YMMGSR
SALA
á eldri vetrar- og heilsársfatnaöi
■
■sf
afsláttur
Alvöru gallar
úr,,Omni-Tech,,
öndunarefni á
hlægilegu verði
SYNISHORN
- SEUUM
SYNISHORN MEÐ MIKLUM
AFSLÆTTI - AÐEINS
1 STYKKIAF HVERJU
\
ALLUR ELDRI
|5 RUSSELL
■m ATHLETIC
FATNAÐUR
50%
afsláttur
Ath. full búð af nýjum og spennandi vörum
REYSTI ,
•sportvöRunus
Fosshálsi 1 - S. 577-5858
María
Ágústsdóttir