Morgunblaðið - 22.10.1998, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.10.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 45 AÐSENDAR GREINAR margir pöntuðu sér rauðvín með matnum en einn úr hópnum hrópaði upp að hann vildi bara tvöfaldan asna með lambinu og gott ef annar svolgraði ekki vodka í kók. Kannsld sötra sannir karlmenn ekki léttvín, a.m.k. gáfust flestir upp á gutlinu eftir matinn og fengu sér eitthvað sterkara. Síðan upphófust þessi vanalegu vandræði sem allir þekkja; þeir sem missa stjórn á drykkjunni missa um leið stjórn á hegðun sinni og úr verður ástand sem getur sveiflast frá leiðindum til lífsháska. Ég er afar ánægður með það að vinur minn skuli ekki vera alkó- hólisti og hann geti nú notið þess að reka tunguna í rauðvínstár og horfast í augu við elskuna sína yfir kertaloga með snarkandi arineld og ljúfa tónlist í bakgrunni. Ég er líka sannfærður um að margir geti bætt drykkjusiði sína. Til eru kenningar um að ofdrykkja sé lært atferli sem hægt sé að aflæra, m.ö.o. það sé hægt að kenna fólki að fara betur með vín. Ekki þó alkóhólistum. Við verðum að gera greinarmun á sjúk- legri fíkn og slæmum ávana. Óæski- lega hegðun má bæta en vinur minn (og e.t.v. meginþorri þjóðarinnar) virðist telja það mjög eftirsóknar- vert að neyta áfengis, nánast nauð- synlegt. Þótt fráleitt kunni að virð- ast þá er til líf án áfengis og það líf er ekki litað af eymd og volæði, eft- irsjá eða öfund. Víst er erfitt að halda slíkum skoðunum fram í þjóðfélagi áfengis- tískunnar þar sem fullorðna fólkið, fyrirmynd æskunnar, blótar Bakkus opinberlega eða á laun, af áfergju, fíkn, vana, nautn, eða bara til að vera með. Mér finnst ég hins vegar hafa þær skyldur gagnvart börnum mínum og nemendum að benda á þá einföldu staðreynd að við eigum val og það geti líka haft marga kosti í för með sér að láta vínið eiga sig. Þessu viðhorfi mætti að skaðlausu hampa. Valfrelsið er til staðar. En frelsið er ekki taumleysi, það krefst sjálf- saga. Sá sem kemst að því að hann þarf ekki að nota áfengi er frjáls. Andstæðumar eru ekki þær að ann- aðhvort hangi maður edrú heima í fýlu eða drekki sig fullan og skemmti sér með félögunum. Það er ekki ein- ungis hægt að lifa án áfengis, það er líka hægt að skemmta sér án þess, meira að segja leikur einn að njóta matarins án þess að hafa rautt eða hvítt í staupi þótt Skapti hafí frekar mælt með víni en ropvatni með mat. Barnavagnar Rauðarárstíg 16, sími 561 0120. Ég á mér ósk um heill og ham- ingju æsku landsins til handa og að unglingarnir okkar átti sig á því að það er ekkert hallærislegt að lifa líf- inu allsgáður. Bakkus er hverfull vinur og það gerir lífíð á margan hátt þægilegra að láta hann eiga sig. Heilbrigt lífemi er eftirsóknar- vert, þar er ekki rúm fyrir vímuefni og vonandi skilur fólk, hvort sem það dreypir á víni eður ei, þann sjálfsagða rétt einstaklingsins að feta aðra slóð en fjöldinn. Við meg- um alveg neita sé okkur boðið vín og við eigum ekki að þurfa að sitja undir yfirheyrslurn eða áköfum þrýstingi. Nei, við höfum val og um- fram allt eigum við að styrkja æsk- una á fordómalausan hátt í því að velja sér heilbrigðan lífsstíl þar sem sjálfstæði, hófsemi, skynsemi og lífsgleði eru veigamikil áhersluat- riði. Þetta er viðhorf sem felur í sér raunverulegar forvarnir. Höfundur er íslenskukeimari og forvarnafulltníi í Menntaskólanum á Akureyri. Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Vettvangur fólks í fasteignaleit .mbl.is/fasteignir Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata Kópavogi NÝTTUÞÉR DREIFINGARSTYRK IHORGUNRIADSINS Innskot er auglýsinga- og kynningarefni sem er dreift með Morgunblaðinu. Með innskoti er hægt að ná til mikils fjölda fólks í einu á öruggan og hagkvæman hátt og nýta þannig dreifingarstyrk Morgunblaðsins um land allt. Efni af ýmsu tagi er hægt að stinga inn í blaðið og jafnframt er hægt að velja það dreifingarsvæði sem hentar hverju sinni. Morgunblaðið er mest lesna dagblað á íslandi og samkvæmt fjölmiðlakönnunum lesa 60% þjóðarinnar blaðið að meðaltali á hverjum degi og 71% íbúa höfuðborgarsvæðisins. Morgunblaðið er eina dagblaðið í Upplagseftirliti og samkvæmt síðustu mælingu er meðaltalssalan á dag 53.198 eintök. Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1111 og fáðu nánari upplýsingar um þá möguleika sem þér standa til boða með innskoti í Morgunblaðið. AUGLYSINGADEILD Símii 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is V-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.