Morgunblaðið - 22.10.1998, Page 51

Morgunblaðið - 22.10.1998, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 51 AÐSENDAR GREINAR Vill þjóðin hvalveiðar? f MORGUNBLAÐSGREIN Ein- ars K. Guðfinnssonar laugardaginn 3. október lýsir þingmaðurinn þeirri skoðun sinni að hefja skuli hvalveiðar hér við land við fyrsta tækifæri í samræmi við ummæli aðalritara Sameinuðu þjóðanna við hæstvirtan utanríkisráðherra í fyrri viku, þ.e. að þjóðir heimsins ættu að hafa óskorað vald til að nýta auðlindir sínar með sjálfbærum hætti. Einar K. Guðfinnsson og fleiri þingmenn hafa ítrekað lagt til að hval- veiðar skuh hefja hér við land án tillits til þeirra aðstæðna sem við fslendingar höfum sjálf- h' komið okkur í, þ.e. að standa utan þein-a alþjóðlegu stofn- ana sem um hvalveiðar og sölu af- urða af veiðunum fjalla. Síðastliðið vor fluttu nokkrir þing- menn tillögu um að hvalveiðar yrðu hafnar nú þegar á þessu sumri. í greinargerð sem fylgdi þingsálykt- unartillögunni er vísað í texta Alþjóðahvalveiðiráðsins, viðauka þar sem segir: „Hvalveiðar í atvinnu- skyni skulu leyfðar á hvalastofnum, sem eru í jafnvægi, og þær skulu stundaðar í samræmi við tillögur vís- indanefndarinnar." Ég tel, eins og fram kemur í texta Alþjóðahvalveiðiráðsins, að veiðarn- ar verði að vera undir eftirliti Alþjóðahvalveiðiráðsins og með samþykki vísindanefndar þess. NAMMCO er ekki alþjóðleg stofn- un og því ekki rétt að vísa í ályktanir ráðsins þegar rætt er um að hefja skuli hvalveiðar. I áðurnefndri greinargerð þing- manna er fullyrt að þjóðin og alþing- ismenn vilji hvalveiðar, samanber skoðanakannanir á liðnum árum. Hætt er við að þegar spurt er hvort viðkom- andi sé hlynntur hval- veiðum eða ekki heyri margir spuminguna: „Ertu maður eða mús?“ Ef spuringin væri sett fram á þann hátt hvort hefja eigi hval- veiðar í trássi við alþjóðalög og þrátt fyr- ir að ekki sé hægt að selja afurðimar (sam- anber niðurstöðu stjómvalda í Noregi) tel ég að niðurstaðan verði allt önnur. Það sama yrði upp á ten- ingnum ef spurt yrði hvort hefja ætti hval- veiðar þrátt fyrir að þær hefðu neikvæð áhrif á efnahagslífið. Réttur fullvalda þjóðar Ég er alfarið samþykkur þeirri skoðun að íslendingar eigi að hafa fullt og óskorað vald til að nýta náttúraauðlindir sjávarins með sjálf- Hvalaskoðun, segir Ásbjörn Björgvinsson, hefur umtalsverð áhrif á íslenskt efnahagslíf. bærum hætti. Staðreyndin er þó sú, að ef íslendingar ætla að hefja hval- veiðar verður það að gerast með alþjóðlegri samvinnu og í sátt við helstu viðskiptaríki okkar og alþjóðastofnanir. Þannig er heimur- inn í dag. Þjóðir heims hafa tak- markað fullveldi sitt með alþjóða- samningum til góða fyrir heildina. Má í því sambandi minna á þær kvaðir sem EES setur okkur. í áðurnefndri greinargerð er sagt að ekki hafi verið sýnt fram á að hvalveiðar geti haft neikvæð áhrif á útflutningsgreinamar eða ferðaþjónustu. Vísað er í ummæli Birgis Þorkelssonar, fulltrúa Ferðamálaráðs, frá árinu 1991 þar sem hann telur hvalveiðar jafnvel geta haft jákvæð áhrif á ferðaþjónustuna! Árið 1997 sendi Ferðamálaráð ís- lands frá sér ályktun um að ráðið væri á móti hvalveiðum. Á sama ári gerði Ferðamálaráð skoðanakönnun meðal erlendra ferðamanna um af- stöðu þeirra til hugsanlegra hval- veiða Islendinga. Niðurstaðan kom fáum á óvart þegar hún var birt 8. janúar síðastliðinn. 53% erlendra ferðamanna vom á þeirri skoðun að hvalveiðar hefðu frekar eða mjög neikvæð áhrif á ákvörðun þeirra um að velja Island sem sumarleyfisstað. Þá er vísað í reynslu Norðmanna vegna hvalveiða og sagt að hvalveið- ar Norðmanna gæfu ekki tilefni til þess að reynslan yrði önnur hér- lendis. • Noregur mótmælti hvalveiði- banninu á sínum tíma. • Noregur er fullgildur meðlimur í Alþjóðahvalveiðiráðinu. • Fiskur er aðeins lítill hluti út- flutningstekna Norðmanna. • Ferðamenn sem koma til Noregs eru yfir 2 milljónir. • Við mótmæltum ekki hvalveiði- banninu á sínum tíma. • Island á ekki aðild að Alþjóða- hvalveiðiráðinu. Ásbjörn Björgvinsson 'J-j'íJjA-AA Allir haustlaukar með 50% afslætti á meðan birgðir endast *Emt er Éasgt að Mtjetniður íiamdauhana • Verðmætustu útflutningsafurðir okkar em að stómm hluta merktar „Icelandic" fiskafurðir. • Fjöldi erlendra ferðamanna sem hingað kemur er um 200.000. Þá má og benda á yfirlýsingar stærstu fisksölusamtaka okkar um að hvalveiðar komi til með að hafa neikvæð áhrif á sölu fiskafurða í helstu viðskiptalöndum okkar. Mikilvæg atvinnugrein Hvalveiðar höfðu vissulega jákvæð áhrif á atvinnulíf íslendinga þegar þær stóðu sem hæst. Grund- völlur þess að hægt sé að hefja hval- veiðar að nýju hér við land hlýtur að miðast við efnahagslegar forsendur. Það þjónar litlum tilgangi að hefja hvalveiðar ef ekki er hægt að selja afurðirnar. Ég bendi á að hvalastofnamir við landið em nýttir. Nýtingin er nú bundin við hvalaskoðun, sem er ört vaxandi atvinnugrein bæði hérlend- is og erlendis. A þessu ári hafa tólf fyrirtæki víðsvegar á landinu boðið ferðamönnum upp á hvalaskoðunar- ferðir. 1 sumar hafa rúmlega 30.000 ferðamenn farið í hvalaskoðunar- ferðir hér við land. Hvalaskoðun er því atvinnugrein sem verður að taka með í reikninginn þegar hag- kvæmni hvalveiða er metin. Marg- feldisáhrif ferðaþjónustugreina em mikil og því hefur hvalaskoðun um-*—* talsverð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Niðurstaða Niðurstaða mín er sú, að hversu ósátt sem við kunnum að vera við stefnu Alþjóðahvalveiðiráðsins réttlætir það á engan hátt ákvörðun okkar um að hefja hvalveiðar með einhliða ákvörðun. Alþjóðahval- veiðiráðið er eina alþjóðlega viður- kennda stofnunin sem um hvalveið- ar fjallar. Því verða íslensk stjórn- völd íyrst að gera upp við sig hvort ganga eigi í ráðið áður en ákvörðut^_ um hvalveiðar verður tekin. Þingnefnd undir forystu Árna R. Amasonar vann að skoðun á mögu- leikum þess að hefja hvalveiðar á síðasta ári. Ein af tillögum þing- nefndarinnar var, að ti-yggt sé, „að alþjóðlega viðurkennt eftirht sé með veiðunum og að veiðamar verði hafnar í samráði og sátt við helstu viðskiptalönd okkar“. Að þessu ber að vinna og hver veit þá hvenær við hefjum hvalveiðar að nýju? Höfundur er forstöðumaður Hvala- miðstöðvarinnar á Húsavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.