Morgunblaðið - 22.10.1998, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
SVAR TIL FORMANNS
MS-FÉLAGS ÍSLANDS
VIÐTAL sem birtist
fyrir nokkru við mig í
DV hefur vakið upp
hörð viðbrögð for-
svarsmanna MS-sjúk-
linga. Eg er ekki undr-
andi á því. Nauðsyn-
legt er að ég skýri
nokkuð hvað ég var í
rauninni að segja.
Fyrirsagnir og áhersl-
ur í viðtalinu eru ekki
frá mér og þeim hefði
ég vafalaust reynt að
breyta ef viðtalið hefði
verið borið undir mig
áður en það var birt.
Það sem ég var í raun
að reyna að segja var
einfaldlega þetta: Mitt í allri um-
ræðunni um niðurskurð í heilbrigð-
isþjónustunni og tilraunum stjórn-
valda til að „þvinga“ stjórnendur
. — heilhrip-ðisstnfnana til hagræðing-
ar, sést mönnum oft mjög yfír
hversu gæði íslensku heilbrigðis-
þjónustunnar eru mikil og hve Is-
lendingar bregðast skjótt við nýj-
ungum. A ýmsum sviðum ganga Is-
lendingar lengra en þjóðirnar í
kringum okkur. Nær allar þjóðir
Evrópu freista þess að halda kostn-
aði við heilbrigðisþjónustu í skefj-
um. Frá hinum ríku frændum okk-
ar, Norðmönnum, sem sumir segja
að verði búnir að greiða allar er-
lendar skuldir sínar innan fárra
ára, berast fréttir af löngum biðlist-
íyrir sjúkrahús, að
staðallinn væri eitt
slíkt tæki á hverja
milljón íbúa. Nú eru
tvö í landinu og um-
ræða um að kaupa það
þriðja enda biðlisti eftir
að komast í bæði hin.
Auðvitað hefur orðið
mikil þróun í þessum
málum en spurningin
vakir um hversu mikið
skuli ráðast í af dýrum
rannsóknum.
I lok síðasta árs tók-
um við ABBA-tækið í
notkun, tæki sem veld-
ur þáttaskilum í með-
ferð og lækningu á
brjóstakrabbameini. Þá var aðeins
eitt slíkt tæki í notkun á Norður-
löndum, svo fljót vorum við til með
góðri hjálp velunnara Landspítal-
ans.
Þá komum við að þeim orðum
mínum sem sárindi hafa vakið.
Stöðugt koma ný tæki og ný lyf á
í heilbrigðiskerfinu
geta ýmsar ákvarðanir
orkað tvímælis, segir
Guðmundur G. Þórar-
insson, ekki sízt þegar
kemur að rannsóknum,
Guðmundur
G. Þórarinsson
-n
Fyrir nokkru urðu verulegar um-
ræður um biðlista eftir hjartaað-
gerðum, einkum eftir hjartaþræð-
ingum og kransæðavíkkunum.
Samanburður milli landa leiddi í
ljós að Islendingar gera mun meira
af þessum aðgerðum en nágranna-
þjóðh'nar. Nýjar tölur koma seint
fram en þær nýjustu sem ég hafði
voru frá 1995 og ýmislegt bendir til
að staðan hafí orðið okkur hagstæð-
ari síðan. Samkvæmt þessum tölum
er tíðni kransæðavíkkana 4,3 sinn-
um meiri hér en í Danmörku, 3,6
sinnum meiri en í Finnlandi, 2,3
sinnum meiri en í Svíþjóð og við
gerum 80% fleiri slíkar aðgerðir en
Norðmenn.
Sjálfsagt vekja þessar tölur
margar spurningar. Hjartalæknar
okkar benda á að dánartíðni hér á
landi af völdum hjartasjúkdóma sé
lág og í þessu efni stöndum við vel
miðað við nágrannalöndin. Þetta
staðfestir þá skoðun okkar að heil-
brigðisþjónusta á Islandi er með
því besta sem þekkist.
I virtu læknatímariti birtist ný-
lega ritstjórnargrein þar sem fjall-
að er um árangur hjartaþræðinga
og þeirri spurningu varpað fram í
alvöru hvort Bandaríkjamenn geri
of mikið á þessu sviði. Þar er bent á
ð Bandaríkjamenn geri tvöfalt
eiri hjartaþræðingar en t.d.
Kanadamenn og það virðist ekki
hafa áhrif á tíðni dauðsfalla.
I þessu sambandi má nefna að ný
hjarta- og æðarannsóknastofa á
Landspítala, þar sem saman fara
rannsóknir og aðgerðir, er með því
besta sem þekkist í heiminum. Mér
er tjáð að ekki sé vitað um neina
slíka aðstöðu sem sé betri.
Erlendir sérfræðingar sem hing-
að hafa komið og íslenskir læknar
sem utan hafa farið segja okkur að
óvíða í heiminum sé aðstaða á
skurðstofum og gjörgæsla betri en
á Landspítalanum. Annað dæmi
sem ég nefndi var tækjakaup. Þrátt
fyrir of lítið fé til tækjakaupa eru
þó dæmi um annað. Þegar við
keyptum segulómtækið á Landspít-
alanum, tækið var reyndar gjöf rík-
isstjómarinnar á aftnæli sjúkra-
hússins, var okkur sagt af norræn-
' um ráðgjöfum varðandi tælgakaup
tækjakaupum og
lyfjakaupum.
markaðinn og velja þarf hvað
kaupa skal. Ný lyf og nýjungar í
tækjabúnaði eru mjög dýr. Þróun-
artími er langur og fjárfestingar að
baki miklar. Stundum er uppi
ágreiningur um gagnsemi nýrra
tækja og lyfja. Ekkert þjóðfélag
hefur efni á að greiða öll ný lyf íyrir
alla sjúklinga sem vilja fá þau, því
þarf að velja og hafna.
Það sem ég var að reyna að segja
var að Islendingar hafa oft á tíðum
gengið lengra en nágrannaþjóðirn-
ar í kaupum á nýjum lyfjum í von
um að hjálpa og lækna. Á alþjóðleg-
um ráðstefnum ræða menn eðlilega
mikið um þennan þátt í meðferð og
kostnaði heilbrigðisstofnana. Oft
eru nefnd ný lyf gegn krabbameini
og eyðni og inn í þessa umræðu
koma ný lyf gegn MS-sjúkdómnum.
Því er oft haldið fram í mín eyru að
ný dýr lyf gegn krabbameini hafi
ekki skilað betri árangri en eldri lyf
og ódýrari. Menn hafi einfaldlega
elt vonina langt með ærnum kostn-
aði. Svipað má segja um fleiri lyf.
Því koma löndin sér upp sjálfstæð-
um nefndum sem freista þess að
taka skynsamlegar ákvarðanir um
hvaða ný lyf skuli kaupa, hver ný
skref skuli stíga hverju sinni. Hér
er um tvennt að ræða. Annars veg-
ar eru menn ekki vissir um árangur
lyfjanna og hins vegar er oft um
gríðarlegan kostnað að ræða.
Þegar ég greip GSM símann mitt
í önnum dagsins og svaraði blaða-
manninum var áherslan í mínum
huga þessi: Við ræðum um niður-
skurð og þrengingar í heilbrigðis-
kerfínu en á ýmsum sviðum teygj-
um við okkur langt og lengra en
aðrar þjóðir, okkur ríkari, telja sér
fært.
Evrópulöndin hafa farið mun
hægar en við t.d. í greiðslum fyrir
þetta nýja MS-lyf. Samkvæmt mín-
um upplýsingum völdu Danir í byrj-
un 17 sjúklinga sem fengu þetta lyf.
Við völdum fljótlega um 80. Norð-
menn fóru enn hægar í sakirnar en
líklega hafa þeir veitt heimildir til
greiðslu á lyfinu nú, þó hvergi nærri
í sama mæli og við. Mér er tjáð að
t.d. Bretar greiði ekki þetta lyf fyrir
sjúklinga. Mér er tjáð að fá Evrópu-
lönd hafi gengið jafn langt og Is-
lendingar í þessu máli.
Enn verða menn að hafa í huga í
hvaða samhengi orð mín falla. Þrátt
fyrir alla umræðuna um niðurskurð
og sparnað erum við að ganga
lengra á ýmsum sviðum en ná-
grannalöndin.
Varðandi kostnað vegna nýrra
lyfja lét ég þau orð falla að árs-
skammtur af þessu lyfi gæti kostað
um 2 mkr. Þessu hefðu auðvitað
þurft að fylgja nánari skýringar.
Samkvæmt mínum upplýsingum
kostaði ársskammtur um 1 m kr áð-
ur en afgreiðslan hófst á Landspít-
alanum. Eg var hins vegar með það
í huga að mér er tjáð að nauðsyn-
legt sé að tvöfalda skammtinn til
þess að ná betri árangri. Þannig er
talan til komin sem ég lét mér um
munn fara. Réttilega kom fram hjá
formanni MS-félags íslands að
kostnaðurinn er nú eftir að Land-
spítalinn fór að annast afgreiðslu
lyfsins um 700 þ.kr. Það getur þýtt
að eftir tvöfóldun skammtsins verð-
ur kostnaður innan við 1,5 mkr.
Formaður lætur að því liggja að
Landspítalinn fái mikinn hluta af
smásöluálagningunni. Hið rétta er
að Landspítalinn fær 1500 kr fyrir
afgreiðslu lyfjaskammts, þ.e. fýrir
þjónustu, lagerhald, fjárfestingu í
birgðum, rýmun o.s.frv. Hygg ég
að það sé talsvert undir kostnaði
spítalans af þessari þjónustu en
ekki er ástæða til að ræða það hér.
Þegar þetta lyf var fyrst keypt
leit ég svo á að um tilraunalyf væri
að ræða. Hygg ég að ráða megi af
viðbrögðum annarra þjóða að sú
hafi verið ástæðan fyrir því hve
hægt þær hafa farið í sakirnar.
Margir telja að ný lyf séu í eðli sínu
tilraunalyf fyrstu árin vegna óvissu
um áhrif verkana og aukaverkana.
Sérfræðingar segja mér hins vegar
að meðferð með þessu lyfi lofi í
mörgum tilvikum góðu. Það er von
mín að það reynist rétt og vissulega
er þetta lyf sólargeisli í baráttu við
erfiðan sjúkdóm.
Þau mál sem hér um ræðir eru
viðkvæm. Eg tel að það hafi verið
ógætilegt hjá mér að nefna sérstak-
lega þetta lyf í hópi þeirra nýju
lyfja sem lyfjanefndir fjalla um.
Áhersla mín var hins vegar á því að
við erum að bregðast fijótar við en
margar aðrar þjóðir, en eftir því
góða er ekki tekið í allri umræðunni
um niðurskurð. Fár bregður hinu
betra ef veit hið verra. Orð mín
hafa valdið hrapallegum misskiln-
ingi ef menn líta á þau sem árás á
MS-sjúklinga. Ekkert er mér fjær.
Hafi menn skilið orð mín á þann
veg biðst ég afsökunar á að hafa
orðað hugsun mína ónákvæmt.
Orð um bruðl eru ekki frá mér
komin. Þau eru blaðamannsins. Það
kemur beint fram í viðtalinu að ég
tek ekki undir það orð. Skrifað
stendur: Allt orkar tvímælis þá
gert er. I heilbrigðiskerfinu geta
ýmsar ákvarðanir orkað tvímælis,
ekki síst þegar kemur að rannsókn-
um, tækja- og lyfjakaupum. Ein-
hvers staðar las ég að Svíar telja að
bara það hvort blóðþrýstilyfjum er
beitt við neðri mörk 90 eða 95 muni
um 400 m kr á ári hjá þeim.
Að lokum færi ég MS-félaginu og
skjólstæðingum þess mínar bestu
kveðjur og óskir um árangur í
þeirra erfiðu baráttu. Á Landspítal-
anum eru uppi áform um að efla
taugadeildina, fjölga sérfræðing-
um. Vonandi njóta Ms-sjúklingar
þess í framtíðinni.
Höfundur er formaður stjrírnar-
nefndar Rfkisspftala.
BRIDS
Umsjón Arnór (I.
Ilagnarssnn
Magnús E. íslandsmeist-
ari í þriðja sinn
ÍSLANDSMEISTARI í ein-
menningi 1998 varð Magnús E.
Magnússon með 1948 stig eftir
mjög jafna og spennandi keppni.
Röð efstu manna:
2. Kristján Blöndal 1920
3. Brynjar Jónsson 1886
4. Kristinn Kristinsson 1870
5. Eria Sigurjónsdóttir 1866
Þetta er í þriðja sinn sem Magn-
ús verður Islandsmeistari í ein-
menningi.
Meistaraflokkur
Því miður varð ekki næg þátt-
taka í fyrirhugaðri mótaröð á veg-
um BSI fyrir okkar sterkustu spil-
ara. Mótaröðinni hefur því verið af-
lýst.
Félag eldri borgara í Kópavogi
Það spiluðu 28 pör þriðjudaginn 13.
okt og röð efstu para varð þessi:
N/S
Pórarinn Amas. - Þorleifur Pórarinss. 391
AsthOdur Sigurgíslad. - Lárus Amórss. 387
Eysteinn Einarss. - Láms Hermannss. 365
A/V
Bent Jónss. - Valdimar Láruss. 378
Stígur Herlufsen - Guðm. Guðmundss. 354
þngiríður Jónsd. - Jóhanna Gunnlaugsd. 349
Á föstudag þann 16. spiluðu 26 pör
og þá urðu úrslitin þessi:
N/S
Stígur Herlufsen - Guðm. Guðmundss. 363
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 353
Hörður Davíðss. - Einar Einarss. 347
A/V
Magnús Halldórss. - VOhjálmur Sigurðss. 363
Einar Markúss. - Steindór Árnas. 348
Ernst Backman - Jón Andréss. 342
Bridsdeild FEB
Fimmtudaginn 8. október spil-
uðu 28 pör Mitchell-tvímenning í
Ásgarði, Glæsibæ. Efstu pör voru:
N-S
Olafur Ingvarsson - Rafn Kristjánsson 384
Oddur Halldórsson - Haukur Guðmundsson 350
Fróði Pálsson - Þórarinn Arnason 328
A-V
Halldór Kristinsson - Sigurður Kristjánsson 371
Hannes Ingibergsson - Anton Sigurðsson 369
Kristinn Gíslason - Margrét Jakobsdóttir 369
Láras Hermannsson - Eysteinn Einarsson 349
Meðalskor var 312.
Mánudaginn 12. október spiluðu
einnig 30 pör Mitchell-tvímenning.
Árangur efstu para.
N-S
Lárus Hermannsson - Eysteinn Einarsson 524
Eyjólfúr Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson476
Sæmundur Bjömsson - Magnús Halldórsson 438
A-V
Rafn Kristjánsson - Júlíus Guðmundsson 530
Sigurleifur Guðjónsson - Oliver Kristófersson476
Ingibjörg Stefánsdóttir - Þorsteinn Davíðsson475
Meðalskor var 420.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
ÞRIÐJA og síðasta umferðin í
minningarmóti Kristmundar Þor-
steinssonar og Þórarins Andrews-
sonar var spiluð mánudaginn 19.
október. Hæstu skor það kvöld
náðu eftirtalin pör.
N-S
Olafur Ingimundarson - Sverrir Jónsson 262
Friðþjófur Einarss. - Guðbrandur Sigurbergss.250
Njáll G. Sigurðsson - Bjami Oli Sigursveinss. 230
A-V
Ásgeir Ásbjörnsson - Dröfn Guðmundsd. 240
Björn Höskuldsson - Sigrún Arnórsdóttir 239
Guðm
Svo sem sjá má var keppnin
mjög spennandi og ekki síður í N-S
riðlinum þótt lokastaðan gefi annað
til kynna en þar skiptust 3 pör á
um að hafa forystuna.
Ekki var keppnin um efsta sætið
í heildina minna spennandi og
mátti keppnisstjóri prísa sig sælan
að þurfa ekki að leggja út í flókinn
útreikning til úrskurðar um sæti.
En heildarúrslitin urðu þessi:
Njáll G. Sigurðss. - Bjarni Oli Sigursveinss. 721
Friðþjófur Einarss. - Guðbrandur Sigurbergss.720
Ásgeir Ásbjömsson - Dröfn Guðmundsdóttir 717
Gísli Hafliðason - Jón Gíslason 684
Guðmundur Magnúss. - Ólafur Þór Jóhannss. 682
Næsta mánudagskvöld, 26. októ-
ber, hefst svo aðaltvímenningur fé-
lagsins, sem spilaður verður með
Barometersniði og mun standa í 4
kvöld.
Spilamennska hefst kl. 9.30 og er
spilað í Hraunholti, Dalshrauni 15.
Bridsfélag Austurlands
Austurlandsmót í hraðsveita-
keppni fór fram á Seyðisfirði 17.
október sl. með þátttöku 10 sveita.
Efstar urðu:
Herðir, BF 951
Hótel Bláfell, B. Suðurfj. 874
Sveit KHM, BF 849
Hjörtur Unnarss., B. Seyðisf. 824
Magnús Guðmundss., B. Seyðisf. 818
Austurlandsmót í einmenningi
fór fram daginn eftir með þátttöku
20 spilara:
Efstir urðu:
Einar Guðmundss., B. Seyðisf. 267
Vilhelm Adolfsson, B. Seyðisf. 258
Jóhanna Gíslad., BRE 256
Pálmi Kristmannsson, BF 249
Svavar Björnsson, BRE 247
Bridsfélagið Muninn,
Sandgerði
Nú er lokið þriggja kvölda
Butler-tvímenningi með sigri Hall-
dórs Aspar/Magnúsar Magnússon-
ar og Sigurjóns Jónssonar. Keppn-
in var ansi jöfn og sveiflur urðu hjá
nokkrum pörum. Urslit urðu eftir-
farandi:
Sigurjón Jónsson - Halldór Aspar/
Magnús Magnússon 187
Ævar Jónasson - Jón Gíslason 186
Trausti Þórðarson - Ingimar Sumarliðason 184
Heiðar Sigurjónsson - Vignir
Sigursveinsson/Randver Ragnarsson 180
Sigurður Albertsson - Jóhann Benediktsson 173
Sl. miðvikudag, 21. október, var
spilaður eins kvölds tvímenningur,
vanir/óvanir.
Bridsfélag Suðurnesja
Gunnlaugur Sævarsson og Karl G.
Karlsson sigruðu í hausttvímenn-
ingnum, sem lauk sl. mánudags-
kvöld. Þeir áttu hæstu skorina í 3
kvöld af fjórum en lokastaðan varð
þessi:
Karl Karlsson - Gunnlaugur sævarsson 68
Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson 57
Garðar Garðarsson - Heiðar Sigurjónsson 47
Svala Pálsd. - Guðjón Svavar Jenssen 23
Meðalþáttakan var 12 pör og
meðalskor 0.
Næst hefst sveitakeppni. Spilað
er í félagsheimilinu á Mánagrund á
mánudagskvöldum og hefst spila-
mennskan kl. 19.45.
Bridsfélag Hreyfils
Ragnar Björnsson og Daníel Hall-
dórsson sigruðu í hausttvímenningi
félagsins sem nýlega er lokið. 36
pör tóku þátt í mótinu og varð
lokastaða efstu para þessi:
Ragnar Björnsson - Daníel Halldórsson 962
Friðbjörn Guðmundss. - Björn Stefánss. 945
Gísli Tryggvason - Leifur Kristjánsson 916
Skafti Björnsson - Jón Sigtryggsson 905
BirgirJýjaransson - Arni Kristjánsson 896
Flosi Ólafsson - Sigurður Ólafsson 878
Þá er aðalsveitakeppni vetrarins
hafín með þátttöku 14 sveita.
Tveim leikjum er lokið og er sveit
Sigurðar Seingrímssonar í forystu
með 41 stig. Sveit Önnu G. Nielsen
er önnur með 40 og Vinirnir eru
með 39.
Spilað er á mánudagskvöldum í
Hreyfilshúsinu.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks í fasteignaleit
.mbl.is/fasteignir