Morgunblaðið - 22.10.1998, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 22.10.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 53 EINAR SIGURJÓNSSON + Einar Sigur- jónsson fæddist í Vestmannaeyjum 7. janúar 1920. Hann lést í Sjúkra- húsi Vestmannaeyja 14. október síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum 20. október. Það má segja að Seljaland hafi verið fjölbýlishús þess tíma, en það er mikill fjöldi fólks sem hefur búið að Seljalandi um lengri eða skemmri tíma. Fjölskylda Einars fluttist að Hólum og síðar að Höfðabrekku, en að því kom að faðir Einars fór að byggja við Vestmannabraut. Einar byrjaði 9 ára í skóla, en höfnin, bátar og sjósókn átti hug hans allan svo að við lá að lær- dómurinn sæti á hakanum. Einar skráði hjá sér nöfn bátanna og var með yfir hundrað á skrá hjá sér. Æskufélagar Einars voru Bergur og Karl Vilmundarsynir, Óskar í Hólum og Ólafur Erlendsson. A sumrin var verið í íþróttum í Brimhólalautinni og í Dalnum en þegar Einar var milli 10 og 12 ára var hann farinn að reyna fyrir sér með færi. Einar fór ekki í unglinganám þrátt fyrir hvatningu frá Þor- steini Þ. Víglundssyni. Honum fannst vera þörf fyrir sig við sjáv- arsíðuna og þegar hann var 13 til 14 ára gerðist hann netamaður á Lundanum, en Einar hafði farið á námskeið hjá Jóni föður Reykdals netagerðarmeistara. Seinna tóku þeir félagar Óskar í Hólum að sér saman bátana Lunda og Happa- sæl, Einar með netin og Óskar í aðgerðina. A þessum tíma voru notuð hampnet sem entust illa, en það þurfti að fella 2 til 3 hundruð net fyrir hvorn bát. Tveimur árum seinna fór Einar til sjós með Jóni í Mandal á Mýrdælingi með dragnót að vori til. Þegar hér var komið fór Einar á mótoristaskóla og að því loknu gerðist hann beitumaður og 2. mótoristi hjá Þorgeiri Jóelssyni frá Sælundi á Lundanum. Einar var 10-11 ár til sjós, þar af 4 ár með Þorgeiri, sem fyrr er nefndur. Einar var með fiskimannapróf. Það var ríkt í Einari að komast í einhver ævintýri og komst hann þá á síld með Ai’manni Friðriks- syni á Isleifí og síðar með Óskari Gíslasyni á Garðari, sem vélstjóri, Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyi'ir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, fóstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útfór hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna sldlafrests. síðar Skógafoss. Þetta var á sfld og fiskaðist vel eða um 14.000 mál. Þess skal getið að Garðar var norskbyggður furu- bátur 60-70 tonn, svajgur og lekur. A síldinni kynntist Einar eftirlifandi konu sinni, Hrefnu Sigurðardóttur frá Siglufírði, en móðir hennar, Ólöf As- grímsdóttir, var ætt- uð úr Fljótum, en fað- ir hennar, Sigurður Sigurðsson, var ættaður frá Ólafs- firði. Hugur Einars stóð til þess að komast í útgerð. Svo fór að hann keypti Snorra goða af Gunnari Ólafssyni við þriðja mann. Báturinn fékk nafnið Sigurfari. Að vísu var vélin talin ónýt, en þrátt fyrir það gekk vel, m.a. fengu þeir félagar það verkefni að þjónusta setuliðið í Hvalfirði og vélin hékk saman. í desember 1943 gengu þau Hr- efna og Einar í hjónaband, en þau byrjuðu að búa í einu herbergi í húsi foreldra hans, en 1945 byrja þau að byggja við Heiðarveg, við litla hrifningu krakkanna í hverf- inu. Þarna voru sleðabrautirnar okkar á Mangatúninu. A þessum tíma vildu margir flytja frá Eyjum og svo fór að meðeigendur Einars fluttu báðir burt. Þá gekk eitthvert Reykja- víkurfár yfir byggðina. Þeir félag- ar vildu fá Einar með. Einar var tregur til og enn síður vildi Hr- efna flytja. Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri lagðist gegn því að þau flyttu og þau fluttu ekki neitt. Nú gerðist það að Óskar Ólafs- son kom inn í útgerðina með Ein- ari og er skemmst frá því að segja að þeirra samstarf varð farsælt og stóð yfír 20 ár. Einar fór að verka aflann, en það kunni hann vel, enda hafði hann lært af föður sínum, sem kunni að verka hágæða vöru. 14. apríl 1951 sökk Sigurfari skammt frá Eyjum. Nú voru góð ráð dýr því að það var ekki hlaup- ið að því að útvega bát. Allt skammtað og leyfi þurfti fyrir öllu, en Jóhann Þ. Jósepsson þingmaður gekk í málið og 14. ágúst var allt klappað og klárt að fara til Danmerkur til að sækja nýjan Sigurfara. 14. september var byrjað á reknetum. Það var ríkt í Einari að prófa eitthvað nýtt og færa út kvíarnar, en það var tekið dræmt í það í bankanum og sagt að hér væri nóg af frystihúsum á heljar- þröminni. Svo kemur að því að ísfélag Vestmannaeyja komst í þrot og bankinn tók þeim fagnandi sem vildu spreyta sig á að koma því á lappirnar. 8 útgerðir með 10 báta ábyrgðust kr. 150 þúsund á bát, en skuldirnar urðu nú að 3 millj- ónum, því bankinn hafði ekki skýrt rétt frá stöðunni meðan ver- ið var að hengja Isfélagið á nýja eigendur. I Eyjum hefur það ævinlega viðgengist að menn hafa gengið í öll verk þegar þörf krefur, en það vantaði framkvæmdastjóra og eini maðurinn sem var á lausu var Einar Sigurjónsson. Hann skellti sér í framkvæmdastjórastólinn með enga menntun eða reynslu til að sinna svo ábyrgðarmiklu starfi. Hann kunni að vísu að verka salt- fisk, en lítið á frystingu, en það kom ekki að sök. Sigurjón Auð- unsson sá um það mál. ísfélagið var afskaplega illa í stakk búið að taka við öllum þeim fiski, sem þessir bátar báru að landi auk Austfjarðabáta, en það er skemmst frá því að segja að nú fór í hönd mikill uppgangstími hjá ísfélaginu undir forystu Einars. Flökunai'vélar voru' keyptar og hús voru byggð, sem yrði of langt að tíunda hér. Þegar fór að líða að því að Ein- ar myndi draga sig í hlé var hann ákveðinn í að vera í 30 ár, en svo vildi til að hann lenti á spítala og var sagt upp á meðan hann var að jafna sig. Þetta mislíkaði honum, en átti eftir að verða sáttur við sinn hlut síðar. Nú fór hann að stunda sund og göngur og svo átti hann „hobby“, en það var að smíða líkön af bát- unum sem hann hafði átt og gert út. Svo horfði hann á sjónvarp og tók nokkurn þátt í starfi eldri borgara. Nú er hann Einar, gamli góði sundfélaginn, horfinn og snaginn hans auður í búningsklefanum. Nú mætir manni ekki lengur hans hlýja viðmót, en aldrei var hann svo upptekinn að hann mætti ekki vera að því að kinka kolli, veifa eða kasta á mann kveðju. Það var nú ekki hávaðinn í honum Einari, en hann komst það sem hann ætl- aði sér. Það sást best á hraðri uppbyggingu Isfélags Vest- mannaeyja undir hans forystu. Ég vil að lokum senda Hrefnu, Óskari, Ólafi og öðrum aðstand- endum samúðarkveðjur. Bjarni Jónasson. Einar var Vestmannaeyingur, fæddur þar og uppalinn og bjó þar alla sína ævi. Hann hóf ungur störf við sjómennsku og var lengi vélstjóri á bátum frá Eyjum. Hann hafði sérstakan áhuga á vél- um og öllu sem viðkom vélbúnaði, hugsaði mikið um þau mál og hafði á þeim yfirgripsmikla þekk- ingu. Einar hóf snemma þátttöku í útgerð og eignaðist með fleirum vélbátinn Sigurfara VE. Hann stóð fyrir saltfískverkun af bátn- um og jafnframt vann hann við þurrkhúsið hér í Vestmannaeyj- um. En starfa Einars hér í Vest- mannaeyjum verður fyrst og fremst minnst fyrir afskipti hans af málefnum Isfélags Vestmanna- eyja hf., sem hefur áratugum saman verið eitt af lykiifyrirtækj- um í atvinnulífi Eyjamanna. Einar tók sæti í stjórn Isfélags- ins árið 1956 og varð þá jafnframt framkvæmdastjóri þess. Árin þar á undan hafði starfsemin verið í lægð en þetta breyttist verulega með Einari og félögum hans. Þeir rifu félagið upp, útveguðu nýjar vélar, bætti húsakost og juku framleiðsluna verulega. í höndum Einars varð Isfélagið fljótlega eitthvert best rekna frystihús á landinu. Einar var vakinn og sofinn fyrir velferð Isfélagsins, hvað betur mætti fara í rekstrinum og hvað hægt væri að bæta. Það var ekki hávaði eða læti í Einari en hann fylgdi hlutunum eftir af skynsemi og þekkingu á aðstæðum og þær lausnir, sem hann kom með voru raunhæfar og skiluðu árangri. Einar var forstjóri ísfélagsins í rúmlega 30 ár og lét af störfum árið 1987. Eins og alltaf í sjávar- útvegi, hafa skipst á skin og skúr- ir en þegar litið er yfir þetta 30 ára tímabil í 95 ára sögu Isfélags- ins, má segja að það sé það far- sælasta í sögu þess. Einar verður öllum eftirminni- legur sem kynntust honum, hann var fróður, vildi kynna sér hlutina vel og tók ekkert gefið, sem við hann var sagt heldur vildi mynda sér skoðanir á því sjálfur. Hann var duglegur og vildi þeim mönn- um vel sem unnu hjá ísfélaginu og hag þeirra sem bestan. Að leiðarlokum sendi ég fyrir mína hönd og ísfélagsins eftirlif- andi eiginkonu, Hrefnu, og ætt- ingjum Einars innilegar samúðar- kveðjur og bið þeim guðs blessun- ar. Sigurður Einarsson. GRÍMA ÓLAFSDÓTTIR + Gríma Ólafs- dóttir fæddist að Brú í Biskups- tungum 18. janúar 1924. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 13. október síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Vilborg Loftsdóttir, frá Stóra-Kollabæ Fljótshlíð, f. 8.8. 1894, d. 16.4. 1966 og Ólafur Guðna- son frá Brú í Bisk- upstungum, f. 23.6. 1887, d. 18.9. 1965. Gríma var þriðja í röðinni af sjö systrum. Systur hennar voru: 1) Aldís (Iátin), 2) Sigurlaug Halla. 3) Sigríður (látin). 4) Þórdís Erla. 5) Þóra Björk. 6) Hulda. Gríma var tvígift. Hún eignaðist þrjá syni, þeir eru: Ólafur Jakobs- son, f. 17.9. 1947, giftur Sæ- björgu Guðbjartsdóttur, f. 2.8. 1946. Synir Sæbjargar eru: Pétur Fannar Hreinsson, f. 23.5. 1965 og Helgi Sævar Hreinsson, f. 12.10. 1966. Pétur Fannar er giftur Kristbjörgu Sveinsdóttur f. 21.5. 1965 og eiga þau þrjú börn, Hrein, f. 1.5. 1985, Sæþór Ólaf, f. 3.8. 1988 og Aðalheiði Maggý, f. 10.9. 1994. Helgi Sævar á tvö börn, þau eru Sæ- björg, f. 20.11. 1986 og Sara Líf, f. 4.9. 1994. Annar sonur Grímu er Sigurður Ársælsson, f. 5.12. 1950 hann er giftur Önnu Dóru Guð- inundsdóttur, f. 5.12. 1952 og eiga þau tvö börn, Al- dísi, f. 17.8. 1973 og Brynjar, f. 2.6. 1978. Aldís á eina dóttur, Önnu Dóru, f. 9.12. 1996. Dóttir Sigurðar, Hlín, f. 27.12. 1974. Yngsti sonur Grímu er Róbert G. Róberts- son, f. 14.10. 1964, sambýlis- maður Árni Kristinn Einarsson, f. 1.3. 1959. Sonur Árna, Hákon Örn, f. 5.6. 1986. Gríma fluttist sem barn með foreldrum sínum til Reykjavík- ur þar hóf hún snemma störf, var í vist og starfaði við fisk- vinnslu. Alla sína starfsævi þótti Gríma hörkudugleg og starfaði hún bæði til sjós og lands. Lengst af stundaði hún framreiðslustörf og starfaði Iengi í Þjóðleikhúskjallaranum. Gríma var lengi kokkur á sand- dæluskipinu Sandey. Utför Grímu fór fram í kyrr- þey, að ósk hinnar látnu. Elsku mamma mín. Þá er stóra stundin runnin upp, stund sem þú varst farin að þrá svo ósköp mikið. En það er svo skrítið í þessu lííl að þó maður telji sig undir það búinn að sjá á eftir manneskju sem stend- ur manni svo nálægt, þá er maður það bara alls ekki þegar að því loks kemur. Síðastliðna daga hafa rifjast upp fyrir mér liðnu stundirnar sem við áttum saman, bæði góðar og slæmar. En þegar upp er staðið eru góðu stundimar fleiri. Minnist ég nú helst allra veislnanna sem haldnar voru á stórhátíðum, sérstaklega jóla og áramóta. Undirbúningurinn hófst 1 október ár hvert. Það þurfti að þrífa allt og alla, búa til sfldarrétt- ina, rauðbeðm- og svínasultuna, sem þið pabbi gerðuð saman. Smáköku- deildin var alveg okkar, þar naust þú þín. Meðan á öllu þessu stóð voru jólalögin sungin, að sjálfsögðu. Þegar andlát móður minnar bar að, hringdi ég í eina af hennar bestu vinkonum. Byrjaði hún þá að rifja upp allar gleðistundirnar sem þær deildu saman. Margar þeirra man ég meira að segja. Mamma þín ætl- aði eitt sinn að kenna mér að taka slátur, en ég lærði aðeins að sauma vambir. Mamma gat aldrei farið eft- ir neinum uppskriftum, allt eftir til- finningunni. Er það eitt af mörgu sem ég hef lært af mömmu. Mamma var í mínum huga ósérhlíf-in og yfir- leitt gleðimanneskja og stutt í hlát- urinn. Og var svo fram á síðustu stundu. Henni er sennilega best lýst í vís- um sem ein af vinkonum hennar færði hennar að gjöf. Gríma góð, er gullið fljóð. Granna gleður sína. Megi æ á hennar slóð gefa gæfu frna. Hún er glöð á góðri stund af gæðum gefur hald og sprund. Fari ég á hennar fund fæ ég ávallt gleðistund. (Vava sumarið 67) Mamma var mér ávallt innan handar, hvort sem það var með ráð- gjöf eða á annan hátt. Mun ég ávallt minnast hennar fyrir það að hafa hvatt mig og stutt til að taka þátt í lífinu af fullum krafti og bera mína ábyrgð. Veit ég að margir aðrir geta sagt það sama um hana. Elsku mamma mín, á kveðju- stund hafðu þökk fyrir allt sem þú varst mér og mínum. Þinn sonur Róbert. Kæra frænka. Þótt ljóst hafi verið í nokkurn tíma að hverju stefndi brá mér þegar ég fékk tíðindin að þú værir látin, en þá var ég stödd erlendis. Ég hafði verið hjá þér tveimur dögum áður og þá sem ávallt tókst þú vel á móti okkur og fagnaðir sérstaklega Höllu Björk dóttur minni. Þegar litið er til baka er margs að minnast. Þú sem ein af „systr- unum sex“ komst sterkt inn í líf mitt. Þið systurnar voruð alltaf mjög samhentar og höfðu mikið samband, enda var oft eins og ég ætti sex mömmur og fjölda systk- ina þar sem systkinabörnin voru. Nú eruð þið tvær fallnar frá sem er stórt skarð í systrahópinn. Ég ætla ekki að rekja æviferil þinn, en þú reyndir margt og áttir þínar gleði- og erfiðleikastundir. Það sem einkenndi þig alla tíð var mik- ill dugnaður og kraftur. Ein af fyrstu æskuminningum mínum eru jóla- og áramótaboðin hjá þér og fjölskyldu þinni. Þá var alltaf glatt á hjalla, farið í leiki, sungið og skemmt sér og veislu- borðið svignaði undan kræsingum. Þó að boðin hafi tekið á sig breytta mynd þegar börnin þín og við systkinabörnin uxum úr grasi var alltaf gaman að koma í matarboð til þín og þau voru ófá. Þér var sérstaklega lagið að töfra fram veisluborð og þér fannst aldrei taka því að halda matarboð nema kæmu minnst 10-15 manns. Það sem er efst í huga mínum núna eru tengslin milli þín og dótt- ur minnar. Þú tókst miklu ástfóstri við hana og var hrifningin gagn- kvæm. Þegar þú bjóst hjá Dúu systur þinni síðasta árið þá var það alltaf fyrsta verk Höllu Bjarkar þegar hún kom í heimsókr. að fara inn í herbergið til þín til að heilsa upp á þig og leika við þig. Ef þú hafðir ekki orku til að leika við hana fannst henni gott að kúra upp í hjá þér. Ég mun seint gleyma því að þegar við komum heim eftir fimm daga fjarveru fyrr á þessu ári og þú og mamma höfðuð búið hjá okkur á meðan til að passa Höllu Björk að þú hafðir kennt henni 10-15 bókstafi. Mér hefði ekki hugkvæmst að byrja að kenna henni það strax, enda hún bara tveggja og hálfs árs. Þú munt alltaf eiga sess í hjarta okkar og eitt er alveg á hreinu hjá þeirri litlu að G er stafurinn hennar Grímu. Vilborg Lofts.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.