Morgunblaðið - 22.10.1998, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 61
Athugasemd
við frétt
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Náms-
gagnastofnun:
„Vegna fréttar Ríkissjónvarpsins
18. október sl. þar sem staðhæft var
að námsefni til tölvukennslu í grunn-
skólum væri af skomum skammti
vill Námsgagnastofnun koma eftir-
farandi á framfæri.
Námsgagnastofnun hefur nú á
boðstólum 90 kennsluforrit í ýmsum
námsgreinum og stöðugt bætast
fleh-i við. Forritin er öll á íslensku
nema að sjálfsögðu þau sem ætluð
eru til tungumálakennslu. í ofan-
nefndri frétt mátti hins vegar sjá
nemendur vinna við forrit þar sem
allar valmyndir vora á ensku. Forait
þau sem gefin eru út af Námsgagna-
stofnun eru samin eða valin með til-
liti til þess að þau séu í samræmi við
kröfur íslenskrar námskrár og falli
vel að öðra efni sem notað er til
kennslu í grunnskólum. Hlutverk
Námsgagnastofnunar er að hafa á
boðstólum heildstætt námsefni þar
sem hver miðill er notaður til þess
sem hann hentar best. Því gefur
stofnunin út bækur, myndbönd,
hljómbönd, geisladiska og forrit, allt
eftir því hvað þjónar efninu best.
Framundan er átak í útgáfu
kennsluhugbúnaðar til að fylgja eftir
tillögum menntamálaráðuneytisins
sem fram koma í ritinu í krafti upp-
lýsinga.
Sem dæmi um nýjar útgáfur má
nefna að í næsta mánuði koma út
tveir nýir margmiðlunardiskar hjá
Námsgagnastofnun. Annar heitir
Leikskólinn, lærðu og leiktu og þjálf-
ar hann hæfileikana til að hlusta,
skilja, sjá, snerta, heyra og fínna.
Hinn er ætlaður til enskukennslu og
heitir The A-files.“
---------------
Staða kvenna í
háskólasam-
félaginu
ÞORGERÐUR Einarsdóttir verður
gestur á rabbfundi Rannsóknarstofu
í kvennafræðum fimmtudaginn 29.
október.
Kynntar verða niðurstöður könn-
unar á stöðu kvenna meðal fræði-
manna og háskólakennara á Norður-
löndum. Könnunin bendh- til þess að
jafnréttismálum miði hægt innan
háskólasamfélagsins og jafnvel hæg-
ar en annars staðar í þjóðfélaginu.
Könnunin sýnir ennfremur að við Is-
lendingar skipum okkur í hópinn
sem rekur lestina.
Rabbið er á vegum Rannsóknar-
stofu í kvennafræðum við Háskóla
Islands í stofu 201 í Odda kl. 12-13
og er öllum opið.
Súrefmsvörur
Kai'Én
Herzog
• vinna gegn
öldrunareinkennuin
• enduruppbyggja húðina
• vinna á appelsínulnið
og sliti
• vinna á uiigUngabóiuiii
• viðlialda ferskleika
lniðarinnar
Ferskir vindar í
umhirðu húðar
Ráðgjöf og kynning
í Apótekinu,
Smiðjuvegi,
í dag kl. 14-18
Kynriingarafsláttur
FRÉTTIR
Morgunblaðið/RAX
Myndverk afhent
Alþingi að gjöf
NÝLEGA var haldin í Reykjavík
ráðstefna um samvinnu
norrænna mannréttindastofnana
á Netinu. Mannréttindaskrifstofa
íslands hefur frá stofnun 1994
verið aðili að samstarfi norrænu
mannréttindastofnananna.
Árið 1995 samþykkti Norður-
landaráð að styrkja upplýsinga-
samstarf á sviði mannréttinda.
Með tilkomu Netsins hafa hug-
myndir fólks um slíka samvinnu
tekið algjörum stakkaskiptum.
Nú þegar 50 ár eru liðin frá
samþykkt Mannréttindayfirlýs-
ingar Sameinuðu þjóðanna telja
mannréttindastofnanirnar að
koma þurfí starfi sínu á fram-
færi á Netinu.
Olafur G. Einarsson, forseti
Alþingis, setti ráðstefnuna og
gerði grein fyrir framlagi
Alþingis til aukinna upplýsinga á
Netinu. Ragnar Aðalsteinsson,
formaður sjjórnar Mannréttinda-
skrifstofu íslands, og Klaus
Slavinsky, forstöðumaður upp-
lýsingadeildar Mannréttinda-
skrifstofu Danmerkur, færðu
Alþingi áritað verk danska
myndlistarmannsins Niels
Wittens sem hann málaði í tilefni
afmælis Mannréttindayfírlýsing-
arinnar.
Einstök tilboð sem gilda til 15. nóv.
Ferðatöskusett sem
flýgur út á niðurpökkuðu
verði!
Fjórar vandaðar töskur
fyrir fjölskyldur sem hafa mikið til að bera!
Verð kr. 9.795-
Tilboðsverð aðeins kr. 7.935-
Flugtaska á
„fríhafnarprís!”
Flugtaska með áfastri grind á hjólum.
Upplögð fyrir ferðaglaða!
Verð kr. 3.285-
Tilboðsverð aðeins kr.1.995-
r
Útsölustaðir:
Akranes Húsavík
Bókav. Andrésar Nielssonar Bókav, Þórarins Stefánssonar 1
Reykjavlk:
Bókabúðin Hlemmi
Drangey Laugavegi 58
Penninn Austurstræti
Penninn Kringlunni
Penninn Hallarmúla
Bókabúðin I Mjódd
Hafnarfjörður:
Bókabúð Böðvars
Penninn Strandgötu
Keflavík
Bókabúð Keflavíkur
Borgarnes
KB Vöruhús
Blönduós
Kaupfélag Húnvetninga
Sauðárkrókur
Skagfirðingabúð, Árlorgi
Akureyri
Bókval
Selfoss
K.Á. Selfossi
Egilsstaðir i
Kaupfélag Héraðsbúa ,
Isafjörður
Bókav. Jónasar Tómassonar 1
I
Vestmannaeyjar |
Bókabúðin Heiðarvegi
chhhr-í
%
Motmæla vínveitingum
á íþróttakappleikjum
„FRAMKVÆMDANEFND Stór-
stúku íslands, IOGT, mótmælir
harðlega þeirri ákvörðun borgaiyf-
irvalda að heimila vínveitingar í
íþróttahúsum og í tengslum við
íþróttakappleiki," segir í ályktun frá
framkvæmdanefndinni..
„Framkvæmdanefnd Stór-
stúkunnar hvetur ráðamenn veit-
ingaleyfa og forystumenn íþrótta-
hryefingarinnar að stemma stigu
við áfengisveitingum í íþróttahúsum
og telur að áfengi og íþróttir fari
alls ekki saman.
Framkvæmdanefndin styður ein-
dregið átak íþróttahreyfingarinanr
sem fjöldahreyfingar allra aldurs-
hópa með heilbrigðan lífsstíl að
markmiði.
Ennfremur samþykkti fram-
kvæmdanefndin að mótmæla nýleg-
um dómi þar sem áfengisauglýsing-
ar voru taldar heimilar. Fram-
kvæmdanefndin hvetur dómsmál-
aráðherra til að setja nýja reglu-
gerð sem tekur af öll tvímæli um
bann við áfengisauglýsingum."
Kringlukast í Kringlunni
KRINGLUKAST hófst í gær í
verslunum og flestum þjónustufyr-
irtækjum í Kringlunni. Á Kringlu-
kasti eru fyrirtækin í verslunar-
miðstöðinni með sérstök tilboð og
lögð er áhersla á að einungis sé
boðið upp á nýjar vörur þannig að
ekki er um útsölu að ræða, segir í
fréttatilkynningu.
Þar segir ennfremur: „í hveri'i
verslun eru nokkrar vörutegundir á
sérstöku tilboði eða einn eða tveir
vöraflokkar og gilda þessi tilboð
einungis á meðan Kringlukastið
stendur yfir. Algengast er að veitt-
ur sé 20-40% afsláttur af þeim vör-
um sem eru á tilboði en í sumum til-
vikum er afslátturinn enn meiri.
Kringlukastið stendur í fjóra
daga frá miðvikudegi til laugardags.
Afgreiðslutíma Kringlunnar var ný-
lega breytt. Nú er opið til kl. 18 á
laugardögum, til kl. 19 á föstudög-
umen til kl. 18.30 aðra virka daga.
Á 3. hæð í Norðurhúsi Kringlunn-
ar er barnagæsla. Barnagæslan er
opin virka daga frá kl. 14-18.30 og
laugardaga kl. 10-18.
Skíðaveisla
Heimsferða til
Austurríkis
Heimsferðir bjóða nú glæsilegt úr-
val skfðaferða til bestu skíðastaða
Austurríkis með beinu flugi til
Múnchen, vikulega frá 30. janúar
1999. Við höfum valið Zell am See
og Saalbach-Hinterglemm sem
okkar aðal áfangastaði. Þeir sam-
eina stórkostlegt úrval skíða-
brekkna við allra hæfi, afbragðs
gististaði og síðast en ekki síst
feiknarlega skemmtilegt mannlíf á
kvöldin, mikið úrval góðra veit-
inga- og skemmtistaða. Hér getur
þú valið um yfir 60 lyftur á hverju
svæði, snjóbrettasvæði og yftr 100
km af skíðagöngubrautum. Og að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjón-
ustu fararstjóra Heimsferða allan
tfmann.
Verð kr.
29.630
Flugsæti á mann til Miinchen m.v.
hjón með 2 böm, 2-11 ára.
Verð kr.
48.930
Flug, hótel og flugvallarskattar m.v.
hjón m. 2 börn, vika, 30. janúar,
Pinzgauer Hof.
Verð kr.
56.960
Flug, hótel og flugvallarskattur m.v.
2 í herbergi, 30. janúar.
20.000 kr.
afsláflur
(yrir fiölskylduna
5.000.- kr. afsláttur á
martn, fyrstu 200 sætin
Beinl
morgunflug
til Miinchen
Brottför kl. 8.30
á laugardögum
30.janúar
6. febrúar
13. febrúar
20. febrúar
27. febrúar
6. mars
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600. www.heimsferdir.is