Morgunblaðið - 22.10.1998, Page 68

Morgunblaðið - 22.10.1998, Page 68
- '68 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ______________FÓLK í FRÉTTUM Lifandi persónur mótaðar í leir A vefflim Norrænu barnamyndahátíðarinnar 1998 er staddur hér- lendis framleiðandinn Michael Rose frá fyrirtækinu Aardman Animations. Ddra Osk Halldórsdóttir hitti Rose í Regnboganum og spurði um stöðu hreyfimynda í dag og sögu fyrirtækisins. AARDMAN Animat- — ions er í röð fremstu hreyfimyndafyrir- tækja heimsins í dag, en stuttmyndir frá fyr- irtækinu hafa þrisvar hlotið Oskarsverðlaun. Michael Rose er fram- leiðandi hjá fyrirtæk- inu sem hefur höfuð- stöðvar sínar í Bristol á Englandi. Fyrirtækið var stofnað árið 1972 af Peter Lord og David Sproxton. Þeir hófu starfsemi sína þegar þeir voru enn í skóla og um þetta leyti hófu þeir hreyfimyndagerð í þrívídd þar sem leir- bníður voru í aðalhlut- verki. Fyi-st bjuggu þeir til persónuna Morph fyrir BBC- sjónvarpsstöðina og naut hún mikilla vin- sælda meðal barna. „Persónan Morph tal- aði ekki heldur tjáði sig með hljóðum og . hreyfingum,“ segir Michael, „en hann er samt eitt fyrsta dæmið um raunverulega per- sónusköpun í leir- brúðuhreyfimynda- gerð“. Auglýsingagerð fjár- magnaði myndirnar MichaelRose ískrar heimildamyndar um dýr í dýragarði. Sú mynd hlaut Oskarsverðlaunin sem besta hreyfimyndin 1990, og með gerð hennar var fvrirtækið komið inn á ákveðna braut þar sem aðalá- herslan var á heild- stæða vinnslu mynd- anna. Heildarmyndin aðalatriðið „Aðalatriðið hjá Aardman Animations skilning á þessu listformi, enda sé einn stjórnenda fyrirtækisins, Jef- frey Katzenberg, maðurinn á bak við endurreisn stóru teiknimynd- anna í Hollywood. Steven Spiel- berg og David Geffen sýndu verk- efninu einnig mikinn áhuga og að sögn Michael hefur samstarfið gengið mjög vel. „DreamWorks hefur ótrúlega markaðsstöðu og við sáum fyrir okkur möguleika á miklu meiri og betri dreifingu en nokkur okkar mynda hefur fengið. Einnig hafa þeir mjög mikla þekkingu á bæði markaðsmálum og teiknimynda- gerð sem við höfum notið góðs af,“ THE Wrong Trousers. Frá þessum upphafsárum hefur mikið vatn runnið til sjávar að sögn Michael. „Upp úr 1980 fór fyrirtækið að taka að sér æ fleiri auglýsingamyndir í þrívídd og not- aði þá hreyfimyndatæknina með brúðum úr leir, sem segja má að sé aðal fyrirtækisins. Hagnaðurinn - A- sem fékkst fvrir auglýsingagerð- ina var síðan notaður í gerð stuttra mynda, og þá var lögð áhersla á sterkari persónusköpun og að allt umhverfið væri sem best úr garði gert. Áherslan var á eldri áhorfenda- hóp með skemmtilegum samtölum persónanna og góðri persónusköp- un. Reynt var að gera leirbrúðurn- ar sem eðlilegastar, að þær gætu sýnt allan tilfinningaskalann í svip- brigðum og látæði. Ein af þessum fyrstu fimm mínútna myndum var kölluð Down and Out og er hún ein af flokki mynda sem saman gengu undir nafninu „Conversation Piec- es“ og voru sýndar á Channel 4 sjónvarpsstöðinni bresku." Þrenn Óskarsverðlaun Michael segir að Aardman Ani- mations hafi vaxið og þróast á átt- unda áratugnum, og ekki síst eftir að Nick Park gekk til liðs við þá árið 1984. „Nick hefur stórkost- lega hæfileika og að fá hann til fyrirtækisins var eins og himna- sending. Nick hefur ótrúlega næma athyglisgáfu og innsæi. Hann er maðurinn bak við i. Wallace & Gromit myndirnar sem hafa aflað fyrirtækinu virðingar og verðlauna, en sú fyrsta var Grand Day Out sem var tilnefnd til Oskarsverðlaunanna árið 1989.“ Meðfram vinnunni við Grand Day Out hafði Nick unnið að gerð fimm mínútna myndarinnar Creat- ure Comforts sem er í anda kóm- er ekki hreyfimyndin í sjálfu sér, þótt sú tækni sé notuð, heldur verða myndirnar að ganga upp að öllu leyti. Mikil vinna var lögð í lýsingu, hljóðsetningu og alla þá þætti sem verða að vera góðir til að myndir virki. Eftir gerð Creature Comforts var kominn áhugi á að gera lengri hreyfimyndir hjá fyrirtækinu, og ráðist var í gerð myndarinnar The Wrong Trousers. Myndin er 30 mínútna löng og vann Oskarsverð- laun árið 1993. Með þeirri mynd beindust augu Bandaríkjamanna að fyrirtækinu. Michael segir að fyrirtækið hafí ekki flýtt sér í samstarf við bandarísk fyrirtæki, því mikil áhersla var lögð á að listræn stjórnun myndanna væri hjá fyr- irtækinu sjálfu og því tóku menn sér tíma í að kanna hvaða mögu- leikar væru í boði. Á meðan var myndin Close Shave gerð og hal- aði hún inn þriðju Óskarsverð- launin árið 1995. Þar með var fyr- irtækið endanlega búið að koma sér í röð fremstu hreyfimyndafyr- irtækja heimsins. Samstarf við DreamWorks Fyrsta hreyfimynd Aardman Animations í fullri lengd er Chic- ken Run sem væntanleg er á markað árið 2000. Leikstjórar hennar eru Nick Park og Peter Lord og er hún unnin í samvinnu við bandaríska fyrirtækið Dr- eamWorks. Michael segir að ferli myndarinnar sé mun atvinnu- mannslegra en á fyrri myndunum að þvi leyti að núna sjái leikstjór- arnir ekki einnig um að vinna alla listrænu vinnuna, heldur séu u.þ.b. tíu listamenn í því starfi. Aðspurður hvers vegna Dr- eamWorks hafi orðið fyrir valinu segir Michael að þeir hafi mikinn segir Michael. Michael kveður stöðu hreyfi- mynda góða um þessar mundir. Hann bendir á að bandarískar myndir í fullri lengd, eins og Toy Story og núna síðast Antz, séu að gera það mjög gott vestanhafs, og Toy Story hafi verið ein söluhæsta myndin í Bandaríkjunum árið 1995. Ardman Animations beitir þó ekki tölvutækni eingöngu eins og tvær ofantaldar myndir. „Við höf- um notað meira hefðbundna tækni, þar sem leiksviðið er búið til og síðan tekin mynd ramma fyrir ramma. Ég tel að báðar aðferðirn- ar séu góðar, en henti mismunandi verkefnum. Til dæmis er hefðbundna að- ferðin að mínu mati betri fyrir persónusköpun. Það er hægt að stjórna svipbrigðum og leikræna þætti vinnslunnar betur en í tölvugerðum myndum. Hins veg- ar er alveg ljóst að margir mögu- leikar búa í tölvuvinnslunni. Til dæmis eru í myndinni Antz senur þar sem ótrúlegur fjöldi maura kemur fyrir. Fjölföldun persóna er lítið mál í tölvuvinnslu en nán- ast ómöguleg þegar unnið er með leiksvið upp á gamla mátann. Við hjá Aardman Animations höfum tekið upp meiri tölvuvinnslu á undanförnum árum, en þó vinnum við mest með hefðbundnu lagi.“ Að lokum er Michael spurður hvernig honum lítist á norræna hreyfimyndagerð. Hann segir að greinilega séu margir mjög hæfi- leikaríkir á því sviði og hann geti ekki séð annað en framtíðin sé björt á Norðurlöndunum í hreyfi- myndagerð eins og annars staðar. „Hreyfimyndagerð er dýr og tímafrek, en getur skilað sér mjög vel á lengri tíma. Ef menn horfa á málin í því ljósi er engu að kvíða.“ NORRÆNA BARNAMYNDAHÁTÍÐIN 22.10.98 Kl. SALUR 1 SALUR2 SALUR3 SALUR4 10.00 Sýning fyrir grunnskóia- nema Aligermaas eventyr (65) Nelvis og ánderne (29) Stuttmyndir II Tfanfaya (45) Drittunger (12) Damer (6) Digre daier (5) Avisbudet (5) Telefonterror (5) Operabarnet (7) ..och halva kun Jág er din krigare (95) gariket (6) 13.00 Jakten pá nyre- Kisten (13) Calleog Sýning fyrir steinen (92) Solan, Ludvik & Gurin med reverompa (80) Kristofíer (20) Urpo & Turpo part 7-13 (70) grunnskólanema 15.00 One night Stuttmyndir III Sýning fyrir Sairaan Kaunis with you (5) Selma och Johanna(91) Kysset som fik snöen til á smelte (21) Red Indian (45) Pissemaur (6) Heartattack (3) Tigerhjárta (14) Out of order (8) grunnskóla- nema Maailma (94) 17.15 Málstofa: „Why Nordic Animation?" i Norræna húsinu. Stjórnandi Gunnar Ström. 21.00 Umræður og spurningar til leikstjóra mynda dagsíns á Vegamótum. Létt tónlist á eftir. Norræna barnamyndahátíðin MYNDIR DAGSINS DAGSKRÁ Norrænu barnamyndahátíðarinnar er fjölbreytt í dag en hér verða aðeins taldar upp nokkrar af þeim myndum sem sýndar eru. Frá Noregi kemur myndin Jakten pá nyi-esteinen eða Nýrnasteinninn eltur. Leikstjóri er Vibeke Idsoe. Myndin er ævintýri sem segir frá litla drengnum Simon sem ferðast um í líkama afa síns í leit að því sem að gamla manninum amar. Selma och Johanna kemur frá Svíþjóð og leikstjóri er Ingela Magner. Þetta er vegamynd sem segir sögu vinkvennanna Selmu og Jóhönnu. Jó- hönnu er sagt að hún þurfi að taka upp bekk og sætta vinkonurnar sig ekki við það og strjúka að heiman til að bera mál hennar upp við Evrópu- dómstólinn í Strasbourg. Teiknimyndin Solan, Ludvik & Gurin med reverompa kemur frá Noregi, en myndin hefur hlotið mikla athygli í Évrópu, og er fyrsta teiknimyndin í fullri lengd sem Norðmenn gera. Leikstjóri er Nille Tystad. Myndin fjallar um álfinn Gurin sem býr hátt uppi í fjöllun- um og elskar að stríða öðrum. Hreyfimyndaserían Urpo & Tur- po kemur frá Finnlandi og leik- stjóri er Liisa Helminen. Þættir 7- 13 eru sýndir í dag en efni þeirra spannar vítt svið, en talsvert er stuðst við þemu úr víðþekktum æv- intýrum í þáttunum, eins og Rauð- hettu, Ævintýraeyjunni og fleirum. Frá Finnlandi kemur kvikmynd- in Sairaan Kannis Maailma, eða Brjálæðislega fallegur heimur. Leikstjóri er Jarmo Lampela og myndin fjallar um þrjá unglinga og ævintýrin sem þau lenda í eitt við- burðaríkt sumar. Frá Danmörku kemur heimildamyndin Aligermaas eventyr í leikstjórn Andra Lasmanis. Hún fylgir níu ára stúlkunni Aligermaas og lífi hennar á mongólsku sléttun- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.