Morgunblaðið - 22.10.1998, Page 76

Morgunblaðið - 22.10.1998, Page 76
SS.Lausnir Nýherja fyrir Lotus Notes Premíum Partnor www.nyhBrji.is Það besta úr báðum heimum! unix og NT = hp OPINKERFIHF m HEWLETT PACKARD MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Samevrópsk rannsókn Einelti og ofbeldi í skólum kannað BANDALAG íslenskra sérskóla- nema, Iðnnemasamband íslands og Félag framhaldsskólanema eru þátttakendur í alþjóðlegu rannsókn- arverkefni um félagslegt umhverfi í skólum á framhaldsskólastigi. I rannsókninni felst meðal annars rannsókn á orsökum ofbeldis og ein- eltis, og hefur Menntaskólinn í Kópavogi verið valinn til þátttöku í rannsókninni. Stefnt er að því að gera könnun með það að markmiði að greina fé- lagslega stöðu nemenda á Islandi í dag, kanna hvaða vandamál eru til staðar og hvaða tillögur nemendur hafa til úrbóta. í því felst meðal annars að kanna hvað veldur ofbeldi og einelti. Orsaka ofbeldis og eineltis Ieitað Að sögn Jóhanns Kristins Jó- hannessonar, ritara Bandalags ís- lenskra sérskólanema og umsjónar- manns verkefnisins, er verkefnið unnið á vegum evrópsku náms- mannasamtakanna Obissu, og er ís- land eitt fimm tilraunalanda í rann- sókninni, en önnur lönd eru Dan- mörk, Noregur, Spánn og Austur- ríki. Fyrsti samráðsfundur um framvindu verkefnisins þar sem fulltrúar allra landa verða viðstadd- ir, verður haldinn 11. desember nk. í Danmörku. Að sögn Jóhanns hefur ekki áður farið fram rannsókn á ofbeldi og einelti í skólum á framhaldsskóla- stigi á Islandi. Segir hann jafnframt að Menntaskólinn í Kópavogi hafi verið valinn til þátttöku í verkefninu þar sem hann sé menntaskóli sem býður upp á iðnnám. Morgunblaðið/Golli Niðurstöður olíuleitarsérfræðings norska fyrirtækisins Statoil Telur 12% líkur á olíu eða gasi í setlögum nyrðra SÉ RFRÆÐINGUR norska olíufé- lagsins Statoil í olíuleit telur að að minnsta kosti 12% líkur séu á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni í setlögunum norðan við landið en tel- ur jafnframt litlar líkur á að mögu- leikarnir veki áhuga stórra alþjóð- legra olíufélaga. Leggur hann til að gerðar verði frekari rannsóknir á svæðinu og telur ekki útilokað að með því verði hægt að endurskoða þetta mat til hækkunar. Við boranir og jarðhitarannsóknir íslenskra vísindamanna, meðal annars í Oxarfirði, hefur fundist vottur af gasi eða olíu. Vitað er að 3-4 kílómetra þykk setlög eru fyrir norðan Öxar- fjörð, Skjálfandaflóa og Byjaijörð. Nýlegar rannsóknir Orkustofnunar staðfesta að gasið er olíugas en ekki mýrargas eins og einnig gat verið. Að tillögu Guðmundar Hallvarðs- sonar og fleiri alþingismanna ályktaði Alþingi að fela iðnaðarráðherra að setja á fót starfshóp til að meta möguleika á olíuvinnslu hér á landi. Formaður starfshópsins, Sveinbjöm Bjömsson, fyrrverandi háskólarekt- or, segh' að íslendingar eigi mögu- leika á olíuleit á þremur svæðum. Nefnir hann fyrst setlögin við norðurströndina, þá við Jan Mayen samkvæmt samningum sem á sínum tíma voru gerðir við Norðmenn og í þriðja lagi hugsanleg ítök á Hatton- Rockall svæðinu. Norðmenn hafa gert rannsóknir við Jan Mayen en olíufélögin hafa lítinn áhuga sýnt því svæði enn sem komið er en Svein- björn telur að sá áhugi geti vaknað síðar. Ekki nóg til að vekja áhuga Sveinbjöm segir greinilegt að möguleikar séu á að olía finnist í set- lögunum norðan við landið. Starfs- hópurinn ákvað að fá óháðan sér- fræðing til að fara yfir þau gögn sem íslenskir vísindamenn hafa safnað um málið og til verksins var fenginn breskur starfsmaður norska olíufé- lagsins Statoil, yfirmaður olíuleitar þess félags á hafsvæðinu í kringum Bretland og við Færeyjar. í skýrslu Bretans kemur fram að þokkalegar líkur eru taldar á að olía eða gas geti myndast á svæðinu, miðlungslíkur á að olían geti safnast upp í berginu en minni líkur á að bergið geti geymt hana. Síðasttalda atriðið helgast af því að hugsanleg olía er á virku jarðskjálftasvæði. Að þessu öllu metnu telur hann 12% líkur á að olía eða gas finnist á svæðinu og það sé verulega miklu minni líkur en olíufélög þurfi til þess að hefja olíuleit. Telur hann að allt að helmingslíkur þurfi til að vekja áhuga stórra alþjóðlegra olíufélaga. Bretinn lagði tO að gerðar yrðu við- bótarrannsóknir til að treysta mat sitt og taldi ekki útilokað að við þær myndu reiknaðar líkur á olíu aukast, ekki síst ef einhver ummerki fyndust um olíu eða gas á hafsbotninum. Telur Sveinbjörn að þessar rann- sóknir þurfi ekki að vera dýrar en með þeim sé hugsanlegt að fá lítið ol- íufélag til samstarfs um frekari rannsóknir, í þeirri von að stórt félag fái síðar áhuga. Olíustai'fshópurinn hefur skýrt iðnaðan'áðherra frá þessum niðurstöðum með formleg- um hætti og bíður ákvai'ðana hans. Sveitarfélögin í Öxai-firði og ná- grenni og fleiri aðilar undirbúa bor- un rannsóknarholu á háhitasvæðinu í Öxarfirði. Borunin er hönnuð með jarðhitarannsóknir í huga en þó mið- ast undirbúningur við að hægt verði að bregðast við hugsanlegum gas- þrýstingi. Skuggarnir lengjast HAUSTLITIR náttúrunnar hafa náð hámarki þetta árið og falla síðustu laufblöðin til jarðar þessa dagana. Sólargangur styttist með hverjum deginum og skuggarnir lengjast. Haustbirtan sem fylgir lægri sól getur verið einstaklega falleg, eins og ljósmyndari Morg- unblaðsins fangar svo skemmti- lega á þessari mynd. Verslunin Sautján Ekki með í Smáralind TÍSKUVERSLUNIN Sautján hefur ásamt systurverslunum dregið sig út úr samningaviðræðum við verslunar- miðstöðina Smáralind sem verið er að reisa í Kópavogi. í gær gengu eigendur Sautján frá samningi við Eignarhaldsfélag Kringlunnar, um langtímaleigu á 700 fermetra rými á annarri hæð Kringl- unnar. Sautján er nú í um 300 fer- metra húsnæði í Kringlunni og með flutningnum tvöfaldar hún því versl- unarrými sitt þar og vel það. ■ Tvöfaldar verslunarrýmið/Cl Morgunblaðið/Kristján Steypt í snjoíjuki Akureyri. Morgunblaðið. FRAMKVÆMDIR við byggingu stórhýsis á lóðinni sunnan Bún- aðarbankans í miðbæ Akureyrar eru komnar í fullan gang. I hús- inu verður rými fyrir verslanir, skrifstofur og íbúðir. Starfsmenn SS Byggis voru í steypuvinnu í grunni nýbyggingarinnar í gær og létu snjókomuna ekki hafa nein áhrif á vinnu sína. ------------------ Farsíminn fannst í seinni leit BIRGIR Leó Ólafsson á Selfossi týndi farsíma sínum við leitir á Landmannaafrétti 20. september síðastliðinn. Tveimur vikum seinna fann Sigurjón Eiríksson farsímann við eftirleitir í úfnu landi í Valafelli og reyndist enn vera rafmagn á raf- hlöðum hans. Birgir Leó hafði gert sér ferð til að leita símans skömmu efth' að hann uppgötvaði að hann hefði týnt honum við leitir. Þá fannst hvorki tangur né tetur af símanum enda mjög erfitt að leita á svæðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.