Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristj án
Aldur fíkniefna-
neytenda lækkar
Jón Arnar
tekur þátt í
þemaviku
ÍÞRÓTTIR og heilsa eru mál
málanna á þemaviku sem nú
stendur yfír í Glerárskóla á
Akureyri. Nemendur og kennar-
ar líta þá upp frá hefðbundnu
námi og leggja sérstaka áherslu
á íþróttir og heilsu. I gær fengu
nemendur skólans góðan gest í
heimsókn alla leið frá Sauðár-
króki en þar var á ferðinni tug-
þrautarkappinn Jón Arnar
Magnússon.
Jón Arnar settist niður með
nemendum í íþróttasal Glerár-
skóla og ræddi við þá um ýmis
mál, m.a. hversu mikið gott
mataræði og góður svefn hefðu
að segja fyrir heilsuna. Jón Arn-
ar hvatti krakkana til að borða
hafragraut í morgunmat og að
taka lýsi en sú hvatning féll nú í
misjafnlega góðan jarðveg hjá
krökkunum. Sjálfur sagðist Jón
Amar hafa verið alinn upp við
að borða allan mat sem var lagð-
ur á borð á hans heimili og það
hafí örugglega komið sér vel
fyrir sig.
Einnig kom Jón Arnar inn á
tölvunotkun, sjónvarpsgláp og
nauðsyn góðrar hreyfingar.
Hann sagði að í sínu ungdæmi
hefðu ekki verið sjónvarpsút-
sendingar á fímmtudögum og
ekki í júlímánuði og þá hafí
heldur ekki verið myndbands-
tæki á hveiju heimili. Þetta
fannst krökkunum að hlytu að
hafa verið erfíðar tímar en Jón
Arnar sagði að það hefði ekki
verið erfítt að fínna sér eitthvað
að gera.
Eftir að hafa spjallað við nem-
endur fékk hann þá til að taka
með sér létta æfíngu á gólfínu í
salnum.
DANÍEL Snorrason, lögreglufull-
trúi hjá rannsóknardeild lögregl-
unnar á Akureyri, segir að fíkni-
efnaneysla fari vaxandi í bænum
og að aldur neytenda fari lækk-
andi. „Við erum að hafa afskipti af
sífellt fleiri unglingum á aldrinum
14-16 ára. í flestum tilfellum er um
að ræða hassneyslu en einnig virð-
ist sem neysla amfetamíns sé að
aukast mikið.“
Daníel sagði að neysla am-
fetamíns væri frekar á meðal eldri
neytenda en einnig væra sögu-
sagnir í gangi um daglega neyslu á
hassi hjá nokkrum 15-16 ára ung-
lingum. „Við höfum verið að vinna í
fíkniefnamálum í nánast hverri
viku og taka fíkniefnasendingar úr
Reykjavík. Staðan er því engan
veginn nógu góð.“
Foreldrar séu vel á verði
Árið 1994 komu upp 10 fíkniefna-
mál á Akureyri og árið eftir voni
slík mál 20. Árið 1996 fjölgaði fíkni-
efnamálum um helming en þá komu
upp 40 slík mál og jafnmörg á síð-
asta ári. Það sem af er þessu ári
hafa komið upp rétt tæplega 40 mál
og það síðasta er frá síðustu helgi.
Áð mati Daníels er nauðsynlegt
að foreldrar og forráðamenn í bæn-
um séu vel á verði og opnir fyrir
samstarfi við lögregluna. Vanda-
málið sé ekki eingöngu lögreglunn-
ar heldur allra og engar líkur á að
árangur náist nema fólk taki hönd-
um saman. Daníel vill hvetja fólk
sem býr yfir einhverjum upplýs-
ingum að hafa samband við lög-
regluna. Þá er lögreglan með upp-
lýsingasíma sem hægt er að
hringja í án þess að gefa upp nafn
og er símanúmerið 462 1881.
Körfuknattleiks-
deild Þórs
Happdrættis-
miði gildir
á leik
AKUREYRINGAR hafa síðustu
daga verið að fá inn um lúguna hjá
sér happdrættismiða frá
Körfuknattleiksdeild Þórs. Dregið
verður í happdrættinu á morgun,
föstudaginn 6. nóvember. Greiddur
happdrættismiði gildir sem að-
göngumiði á leik Þórs og Vals í
DHL-deildinni en sá leikur fer fram
um kvöldið.
Körfuboltadeildin hefur á að
skipa ungu liði en er styrkt með
nokki'um mönnum með reynslu.
---------------
Djasstríó Ómars
á Pollinum
DJASSTRÍÓ Ómars Einarssonar
heldur tónleika á veitingastaðnum
Við Pollinn í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 5. nóvember. Tónleikarnir
hefjast kl. 22.
Tríóið leikur þekkt djasslög, ný
og gömul, en það skipa þeir Ömar
Einarsson, gítarleikari, Stefán Ing-
ólfsson, bassaleikari, og Karl Peter-
sen, trommuleikari.
Aðgangseyrir er 500 krónur.
------♦-♦-♦----
V erkmenntaskólinn
Ráðstefna um
stöðu og- framtíð
RÁÐSTEFNA um stöðu og framtíð
Verkmenntaskólans á Akureyri
verður haldin í Giyfjunni, sal skól-
ans í dag, fimmtudag frá kl. 9 til 16.
Markmiðið með ráðstefnunni er
að draga fram og skerpa þau mark-
mið sem mótað hafa starf Verk-
menntaskólans á Akureyri og finna
að hvaða leyti ástæða er til að setja
ný eða breytt markmið með starfinu.
TILKYNNING UM ÚTBOÐ OG SKRÁNINGU
HLUTABRÉFA Á VERÐBRÉFAÞINGI ÍSLANDS
HLUTABRÉFASJÓÐUR NORÐURLANDS HF.
Útgefandi: Hlutabréfasjóður Norðurlands hf., kennitala 601191-2379,
Skipagötu 9, 600 Akureyri.
Nafnverð hlutabréfa: Nýtt hlutafé að nafnverði að lágmarki 10.000.000 og að hámarki
184.500.000 króna.
Gengi hlutabréfanna: Sölugengi bréfanna er í upphafí 2,18. Á útboðstímanum verður
gengi sjóðsins reiknað út daglega og munu söluaðilar veita
upplýsingar um gengi hverju sinni.
Sölutími bréfanna er 9. nóvember 1998 til 9. maí 1999. Þó áskilur
félagið sér rétt til framlengingar sölutímabils, enda sé þá heimild til
hlutafjáraukningar ekki fullnýtt, að fengnu leyfi Verðbréfaþings
íslands.
Kaupþing Norðurlands hf., Skipagötu 9, 600 Akureyri,
sími 460 4700, fax 460 4717.
Áður útgefin hlutabréf Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. eru skráð á
Verðbréfaþingi íslands, að nafnverði 315.500.000. VÞÍ hefur
samþykkt að skrá þau bréf, sem seld verða í þessu útboði, enda hafí
skilyrðum skráningar verið fullnægt. Niðurstaða útboðsins verður
birt í viðskiptakerfí VÞÍ ásamt upplýsingum um endanlega
dagsetningu skráningar. Þess er vænst að skráning verði í byrjun
júní 1999, ef ekki kemur til framlengingar á útboði þessu.
Umsjon með útboði: Kaupþing Norðurlands hf., Skipagötu 9, 600 Akureyri,
sími 460 4700, fax 460 4717.
Skráningarlýsing og önnur gögn um Hlutabréfasjóð Norðurlands liggja
frammi hjá Kaupþingi Norðurlands hf. og Kaupþingi hf.
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Sölutími:
Aðalsöluaðili:
Skráning:
Atvinnubílstjórar áhyggjufullir
Lausaganga
hrossa veldur
erfíðleikum
ATVINNUBÍLSTJÓRAR sem aka
milli Norðurlands og Reykjavíkur
hafa átt í hinu mesta basli undan-
farnar vikur vegna lausagöngu
hrossa. Að sögn Ragnars Karlsson-
ar, bílstjóra á Akureyri, er ástandið
sérstaklega slæmt í Húnavatns-
sýslu. Hann sagði nokkur óhöpp
hafa hlotist af lausagöngu hrossa og
oft hafi mátt litlu muna.
„Bílstjórar eru mjög óhressir
með að ekkert skuli gert í þessum
málum annað en banna okkur að
nota sérstök ljós sem oft hafa bjarg-
að okkur bílstjórum frá því að keyra
á skepnur. Þegar ekið er á skepnur
er ábyrgðin alltaf bílstjórans, sama
hvort svæðið sem ekið er um er girt
eða ekki. Og þessa dagana eru girð-
ingar víða á kafi í snjó,“ sagði Ragn-
ar.
AKSJON
5. nóvember, fímmtudagur
12.00ÞSkjáfréttir
18.15Þ-Kortér Fréttaþáttur í
samvinnu við Dag. Endursýnd-
ur kl. 18.45, 19.15, 19.45, 20.15
og 20.45.
21.00Þ-Áttatíu og eitthvað
Sígild tónlistarmyndbönd.
www.mbl.is
Fulllestaður flutningabíll frá
Akureyri fór út af veginum og valt
vestan við Garðsgil í Norðurárdal í
Skagafirði sl. sunnudag. Flutninga-
bíllinn skemmdist nokkuð en bíl-
stjóri og farþegi sluppu ómeiddir.
Óhappið varð er verið var að reka
eitt hross á bíl á veginum þar sem
flutningabíllinn kom yfir blindhæð
og við að koma í veg fyrir árekstur
fór fiutningabíllinn útaf á öfugum
vegarhelmingi og valt.
Þá skemmdist sendibíll sem
Ragnar ók við Stórhól í Húnavatns-
sýslu í síðustu viku. Ragnar lenti
þar í hrossahóp og er hann reyndi
að koma í veg fyrir að lenda á stóð-
inu á veginum, snerist bíllinn með
þeim afleiðingum að kerra sem
hann var með skall á bílnum og olli
skemmdum.
Fæðing
breytist í sorg
SIGRÍÐUR Sía Jónsdóttir, ljósmóð-
ir og lektor við Háskólann á Akur-
eyri, heldur fyrirlestur sem hún
nefnir: „Þegar fæðing breytist í
sorg“ á fundi Samhygðar, samtaka
um sorg og sorgarviðbrögð á Akur-
eyri og nágrenni í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 5. nóvember. Fyrirlest-
urinn verður fluttur í Safnaðarheim-
ili Akureyrarkirkju og hefst kl. 20.
Allir eru velkomnir.