Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 68
68 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 I DAG MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Hjallakirkja Safnaðarstarf Fræðslukvöld í Hjallakirkju - Trú og siðfræði í Reykjvíkurprófastsdæmi eystra hafa verið flutt fræðsluerindi und- anfarin ár í kirkjum prófastsdæmis- ins um ýmis mál er snerta trú og siðferði. í nóvembermánuði verður flutt fyrlestraröð er ber yfirskrift- ina Siðfræði í nútímanum. Fyrsti íyrirlesturinn í þessari röð verður fluttur í Hjallakirkju í Kópa- vogi í kvöld kl. 20.30. Dr. Sigurjón Arni Eyjólfsson héraðsprestur flyt- ur erindi er nefnist Trú og Siðfræði. Þar fjallar Sigurjón um spurning- una „Hvers krefst Guð af mannin- um?“ Að erindinum loknu gefst tóm til umræðna yfír kaffibolla. Þátt- taka er ókeypis. Áskirkja. Öpið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 14-17. Biblíulestur kl. 20.30 í safnaðarheimili Áskirkju. Sóknarprestur kynnir og fræðir um spámennina í Gamla testament- inu. Bústaðakirkja. Foreldramorgnar kl. 10-12. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhugun, altaris- ganga. Léttur málsverður í safnað- arheimili eftir stundina. Æskulýðs- félagið Örk (yngri deild) kl. 20. Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17.1 auga stormsins, kyrrð, íhugun, bæn, lofsöngur og fræðsla. Kl. 19.30 innri íhugun, kl. 20.15 fræðsla, kl. 21 Taize-messa. Langholtskirkja. Opið hús fyrir for- eldra yngri barna kl. 10-12. Söng- stund kl. 11. Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Orgeltónlist frá kl. 12. Organisti Gunnar Gunnarsson. Léttur málsverður að stundinni lok- inni. Samvera eldri borgara kl. 14 í safnaðarheimilinu. Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Fræðslustundir fyrir almenning í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra eru 1 Hjallakirkju á fímmtudögum kl. 20.30 í nóvember. Erindið 5. nóv- ember flytur dr. Sigurjón Ámi Eyj- ólfsson og fjallar um trú og siðfræði, „Hvers krefst guð af manninum?". Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn á föstudögum kl. 10-12. Digraneskirkja. Mömmumorgnar kl. 10-12. Leikfimi aldraðra kl. 11.20. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Bænarefnum má koma til sókn- arprests eða kirkjuvarðar, einnig má setja bænarefni í bænakassa í anddyri kirkjunnar. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11- 12 ára kl. 16. Grafarvogskirkja. Mömmumorgnar kl. 10-12. Dagskráin í vetur verður fjölbreytt og boðið verður upp á áhugaverða fyrirlestra og skemmti- legar samverustundir. Kyrrðar- stundir í hádegi kl. 12. Fyrirbænir og altarisganga, léttur hádegisverður. Æskulýðsfélagið 10. bekkm- kl. 20-22. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16.30. Kópavogskirkja. Starf eldri borgara í dag kl. 14-16 í safnaðarheimilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Fyrirbænaefnum má koma til prests eða kirkjuvarðar. Fríkirkjan í Hafnarílrði. Opið hús fyrir 10-12 ára börn frá kl. 17-18.30 í safnaðarheimilinu, Linnetsstíg 6. Æskulýðsfundur kl. 20-22. Hafnarfjarðarkirkja. Mömmumorgnar kl. 10-12 í Vonar- höfn. ÁTN-starf fyrir 8-9 ára kl. 17- 18.30 í Vonarhöfn. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Víðistaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12 ára börn kl. 17-18.30. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 lof- gjörðarsamkoma. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 11 helgistund í Hraunbúðum. Öllum opin. Kl. 17 TTT, kirkjustarf 10-12 ára barna. Kl. 20.30 opið hús fyrir unglinga í KFUM og K húsinu. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin kl. 16-18. Starfsfólk verður á sama tíma í Kirkjulundi. Fermingarund- irbúningur kl. 14.30-15.55 í Kirkju- lundi. Kyrrðar- og fræðslustund í kirkjunni kl. 17.30. Umsjón: Sr. Sig- fús Baldvin Ingvason. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. VELVAKAMH Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Fyrirspurn til heilbrigðisráð- herra BEINBROT af völdum beinþynningar er mjög al- gengt og alvarlegt vanda- mál eldra fólþs, sérstak- lega kvenna. Ég hef heyrt að komið sér á markaðinn lyf sem geta sgornað við beinþynningu. Á Borgar- spítalanum er hægt að fá beinþéttnimælingu. Það kostar 4 þús. krónur og greiða tryggingarnar ekki neitt í því. Hver eru út- gjöld ríkisins á ári vegna beinbrota af völdum bein- þynningar sem hefði mátt koma í veg fyrir með svona beinþéttnimælingu? Og hver er hugsunin á bak við það að þetta sé einhver óþarfa lúxus að reyna að koma í veg fyrir þetta vandamál? Guðrún Jóhannsdóttir. Þ vottabj örninn ÉG verð að fá að tjá mig með nokkrum orðum um þvottabjörninn sem var búinn að lifa þá hörmung af að vera lokaður í gámi í 1 mánuð frá Kanada. Sú meðferð sem dýrið fékk er okkur til skammar, eins og alltaf ef dýr á í hlut. Þetta var svangt og hrætt dýr sem talaði með augunum. Það fyrsta sem hefði átt að gera var að kalla á dýra- lækni sem hefði getað skotið deyfilyfi í dýrið, sett það í búr og gefið því að drekka og éta, svo einfalt hefði það verið og senda það aftur til sinna heim- kynna. Það sem yfirdýralæknir- inn lét út úr sér í sjónvarp- inu var til skammar. Ef dýr bítur er þetta allt ann- að mál, þá er maðurinn sprautaður. Hvað kallast það annað en sóttkví þegar dýr er lokað eitt í gámi í heilan mánuð. Að kalla á lögreglu til að skjóta dýrið var ekki til sóma. Ef þetta hefði verið eitthvert vandamál, sem það var ekki, þá hefði verið mann- úðlegra að svæfa dýrið. Eins finnst mér að Dýra- verndunarfélag Reykjavík- ur og Dýraverndunarsam- band Islands mættu vera vakandi og starfandi líka, en ekki vera varasímsvari eða fax. Dýravinur, kt. 111043-2139. Tapað/fundið Gleraugu týndust GLERAUGU, sporöskju- löguð með bninyrjóttum spöngum, týndust í Þórs- höll við Nóatún, eða á leið- inni niður Brautarholt upp í Stórholt sl. laugardags- kvöld. Skilvís finnandi hafi samband í síma 562 5437, Emma. Dýrahald Grænn páfagaukur týndist í Hafnarfirði GRÆNN páfagaukur flaug út um glugga í Set- bergslandi sl. sunnudag. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 565 0848. Svargrá læða týndist SVARGRÁ læða týndist þriðjudaginn 27. október frá Háteigsvegi. Hún er ómerkt en þekkist á þvi að í hana vantar eina tönn. Þeh sem hafa orðið henn- ar varir hafi samband í slma 562 7435. Hamstrabúr óskast ÓSKA eftir gefins hamstrabúri, helst 2ja hæða, gylltu. Upplýsingar í síma 698 0072. Morgunblaðið /Kristinn VIÐ LÆKINN f HAFNARFIRÐI Ráðstefna á vegum VFÍ og TFÍ Virkjanir og umhverfi föstudaginn 6. nóvember kl. 13 -17 á Grand Hótel Ráðstefnustjóri verður Þorkell Helgason, orkumálastjóri Fjallað verður um vatnsaflsvirkjanir og umhverfismál í víðu samhengi og koma fyrirlesarar meðal annars frá stjórnsýslu, Náttúruvemd ríkisins, Ferðamálaráði, Landsvirkjun, Samtökum sveitarfélaga á Austurlandi og fleiri hagsmunaaðilum. Ráðstefnan er öllum opin. Ráðstefnugjald er kr. 5.000. Skráning fer fram á skrifstofu VFÍ og TFÍ í síma 568 8505 Víkverji skrifar... NÝ KYNSLÓÐ Pólverja er greinilega áhugasöm um allt sem lýtur að vestrænni samvinnu. Skrifari dvaldi nýlega í nokkra daga í Póllandi og af sam- tölum við ungt fólk þar í landi fór ekki á milli mála að Atlantshafs- bandalagið og Evrópusambandið voru þessu fólki ofarlega í huga. Margir höfðu áhuga á að mennta sig og komast til góðra starfa í Þýskalandi eða annars staðar í V- Evrópu. Þetta fólk var sér meðvit- að um að aukin menntun, tölvu- notkun og tungumálaþekking gátu verið lykillinn að betri framtíð fyr- ir þau og þjóð þeirra. Eldra fólkið virtist hugsa öðru vísi og margir hverjir einhvern veginn fast í ráð- stjóm og liðnu skipulagi. Þó nóg virðist vera af mat og vöruúrval sé talsvert í verslunum þá er gæðunum greinilega misjafn- lega skipt. Farartæki fólks voru gott dæmi um þetta, annars vegar þreyttir austur-evrópskir vagnar verulega komnir til ára sinna og hins vegar dýrustu kerrur Vestur- Evrópu. Áberandi var hversu al- gengt var að vegir og íþróttamann- virki væru úr sér gengin og illa við haldið. Það sem helst stendur þó eftir úr stuttri heimsókn er unga fólkið og viðhorf þess og hversu jákvæðir og gestrisnir Pólverjar virtust al- mennt vera. xxx ENN FÆR Morgunblaðið ábendingar vegna vinnubragða Ríkisútvarpsins vegna óski'áðra sjónvarpstækja. Á þriðjudag hafði lesandi samband við blaðið og sagðist vægast sagt orðinn þreytt- ur á ágangi og viðmóti fólks sem gengi þessara erinda RUV. Sagðist lesandinn hafa lent í því fjórum sinnum á síðustu 2-3 árum að barið hefði verið að dyrum og á ferðinni hefði verið fólk að grennslast fyrir um hvort ekki væri sjónvarp á heimilinu. Þegar svarið hefði verið neikvætt hefðu húsráðendur mátt hlusta á stóryrði aðkomumanna. Ekki vildi fólkið sitja undir slíku og gat heldur ekki liðið hótanir og orðbragðið sem notað var. Því var ákveðið að kvarta við innheimtudeildina. Þar tók ekki betra við og sagðist lesandinn velta því fyrir sér hvort sama fólkið hefði verið við eftirlitsstörfin og síðan tek- ið við kvörtunum á skrifstofunni. Ef þær vangaveltur hefðu við rök að styðjast sagðist lesandinn ekki sjá annað en um brot á góðri stjórn- sýslu væri að ræða. Að auki sagðist lesandinn oftar en einu sinni hafa fengið reikninga frá stofnuninni þó ekkert væri sjónvarpið á heimilinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.