Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 39 LISTIR SVERRIR Pálsson, fyrrverandi skólastjóri á Akureyri, hefur ný- lega gefið út ljóðabókina Töðu- gjöld. Flest eru ljóðin frumsamin, en þó eru fáein þýdd úr erlendum tungumálum. Þetta er önnur ljóða- bók höfundar, en hin fyrri, Slægj- ur, kom út árið 1994 og er löngu uppseld. Auk ljóðabókanna liggja eftir Sverri nokkrar lausamáls- bækur, einkum um söguleg efni, svo og þýðingar. „Heiti bókanna gefa það eflaust tO kynna að ég er mikið náttúru- barn og á miklar rætur í sveitinni," sagði Sverrir, sem fæddur er og alinn upp á Suðurbrekkunni á Akureyri og hefur aldrei átt heim- ilisfesti annars staðar. Unglingur var hann í sveit á Mýri í Bárðar- dal. Þær slóðir eru honum mjög kærar og í bókinni er kvæðaflokk- ur um þær. „Við Ellen kona mín förum þangað pílagrímsferð á hverju sumri,“ sagði Sverrir. Hann fékk eitt sinn haustgimbur upp í kaup sitt í sveitinni og skilaði hún tveimur lömbum, en þar með lauk búskap Sverris, sem helgaði sig síðar störfum að skólamálum. Þau hjónin hafa þó síðustu 12 ár haft á leigu reit við Stokkahlaðir í Eyja- fjarðarsveit þar sem þau stunda skógrækt á tveimur hekturum lands. „Þetta er ekki aðeins unaðs- reitur, heldur einnig líkamsrækt- arstöð," sagði Sverrir. Ljóðin í bókinni hefur Sverrir að mestu ort eftir að hann gaf fyrri ljóðabók sína út eða eftir 1994. Þýðingu á Þýskri messu við tónlist eftir Schubert gerði hann þó árið 1982, en hann sagðist lengi hafa fengist dálítið við þýðingar þótt lít- ið hafi birst opinberlega. Ymissa grasa kennir í bókinni. Auk kvæðaflokksins „Sunnan við byggð í Bárðardal" og þýðinga má þar finna söguleg kvæði, hugleiðingar af ýmsu tagi, náttúrulýsingar, trú- arljóð, kveðjur og gamankvæði. „Kveðskapur hefur lengi loðað við mig“ „Kveðskapur hefur lengi loðað við mig,“ sagði Sverrir. „Eg hafði ekki tíma til að sinna honum að marki fyrr en ég hætti störf- um mínum við skólann. Þá fór ég að ráða tíma mínum betur sjátfur og gat þá farið að fást við ýmislegt það sem mig hafði lengi langað að gera.“ Sverrir sagði yrkisefnin koma að sér, „þau kvikna, leita á mig og láta mig ekki í friði fyrr en ég er bú- inn að gera þeim skil“. Sverrir yrkir að mestu undir bragarháttum, hefðbundið, það sagði hann vera þann hátt sem hann kysi helst, en hann væri þó enginn einstrengingsmaður, gæti ef svo bæri undir brugðið fyrir sig frjálslegra formi. „Oftast þykir mér efninu ekki fullgert fyrr en ég hef búið því það ytra snið sem mér þykir best við hæfi og ég kann vandaðast. Ef ég er sáttur við ár- angurinn þá skiptir mig engu þótt öðrum finnist eitthvað annað. Eg geri enga kröfu til þess að öllum finnist þetta vera réttu tökin. Það verður hver að leita þess forms sem honum fellur best til að tjá hugsun sína og hugsýn þannig að hún komist til skila til annarra," sagði Sverr- ir. „Mannlegt mál er ekki aðeins tæki til að flytja hugsun eða vit- neskju frá einum manni til annars, ein- um stað til annars eða einum tíma til annars. Það er jafnframt efni- viður í listaverk, vand- aðan og góðan texta. Islensk tunga hefur á öllum öldum verið - og er enn - úrvalssmíða- Sverrir viður, þjál, skýr, fjöl- Pálsson breytileg og öllum til- tæk sem beita vilja tálguhnífnum. Vitanlega fer það líka eftir smiðnum, hvernig fer um smíðina, en ekki er við tunguna að sakast, ef miður tekst til,“ sagði Sverrir að lokum. EYÐIBYLIÐ Túnið gamla hylur nú þykkur sinuþófi, þó er ær á beit, leitar inn í skuggann í skældu kofahrófi, skíni sól of heit. Mosavaxinn bátur hér grotnar nú í nausti, næstum orðinn flak, Sólarbreyskja vorsins og hregg á svölu hausti herða fúans tak. Útihurðin þrútin og urgar hátt við karmi, ískrar ryðguð löm. Eldur löngu dauður í bæjarhússins barmi, bær á heljarþröm. Fiskiflugan hringsólar ein um borð og bekki, blá í morgunsól. Enginn sporar gólfið, og síminn svarar samt er brak í stól. ekki, Bráðum úrsvalt haustið með regn á glugga rúður ryðst um burst og þök, síðan kemur vetur og blæs í langan lúður, lokar hverri vök. Myrkur grúfir yfir. Það miskunn engum sýnir, magnar óttans völd. Starir þöglum augum og inn um gluggann rýnir ásýnd fól og köld. Strandlengjan fram til 2001 ÁKVEÐIÐ hefur verið að fram- lengja sýningu Myndhöggvarafé- lagsins í Reykjavík, Strandlengj- una, til 1. janúar 2001. Sýningin var opnuð snemma á liðnu sumri, en þá var komið fyrir útilistaverk- um eftir 24 myndhöggvara með- fram göngustígnum frá Sörlaskjóli í vestri að Fossvogsbotni í austri. Bi'ynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari, sem á sæti í sýn- ingarnefnd, segir að aðsókn að sýningunni hafi verið gífurlega mikil og undirtektir rnjög jákvæð- ar. Ekki gátu þó allir séð verkin í friði og voru nokkur þeirra skemmd í sumar. Nú hafa sex þeirra verið fjarlægö. Tvö þeirra eru gerónýt, að sögn Brynhildar, tvö borgar sig ekki að gera við og tvö munu ekki standast veturinn en verða að öllum líkindum sett upp aftur næsta sumar. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins STÖKKBRETTI fyrir lúna fugla eftir Jóninu Guðnadóttur, eitt verk- anna á Strandlengjunni, sýningu Myndhöggvarafélagsins i Reykjavík. IC|'dy&' jy ’*' Veruleg verðlækkun á fæðubótarefnum • •, VERÐDÆMI Mikið úrval af æfingatækjum fyrir heimili, stofnanir, fyrirtæki og æfingastöðvar Hlaupabrautir þrekhjól þrekstigar æfingastöðvar handlóð o.fl. Twinlap Aminofuel liquid 16 oz kr. 1.250,-! ■ Twinlap Aminofuel liquid 32 oz kr. 1.990,-; met-RX, 20 bréf kr. 4.190,-J Designer protein 908 gr. kr. 3.990,-! Weider Megamass 4000 - 4kg.kr. 3.990,-; EAS Phosphagen HP 900 gr. kr. 2.590,-* EAS Myoplex Plus 20 bréf kr. 4.790,-! Metaform Creatine 400 gr. kr. 2.990,^ Metaform 20 bréf kr. 4.190,-! QnO/n kynningaraislánur af American ÖU /0 bodybuilding fæðuaukum! velkomin í stærstu æfingatækjaverslun landsins HREYSTI —sportvöKunus Fosshálsi 1 - S. 577-5858 Ráðgjöfá staðnum HREYSTI . sportvónunus Fosshálsi 1 - S. 577-5858
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.