Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FLJÓTIÐ stjórnlausa fellur niður veggi Gerhart-
Hauptmann-Schule að utanverðu.
SKÓLASTOFA Gerhart-Hauptmann-Schule, á Documenta 9 í Kassel, 1992,
sem hluti af skipan Rebeccu Horn Máninn, barnið og fljótið stjórnlausa.
Valkyrja eða
nútímanorn
REBECCA Horn klórar báða veggi samtfmis. Úr kvikmyndinni Berlin Exercises, frá 1974-75.
MYIVDLIST
Gallerí
BLÖNDUÐ TÆKNI
REBECCA HORN
MIKIÐ hefur verið rætt og ritað
um þýska myndlist á undanfórnum
áratugum, einkum eftir að ný-ex-
pressjónisminn ruddi brautina fyrir
heila kynslóð listmálara sem týnst
hafði á 7. og 8. áratugnum, en fékk
svo snögglega uppreisn æru um
1980. Allt í einu hlotnaðist heilli legío
af þýskum listamönnum af stríðsára-
kynslóðinni heimsfrægð eftir nær-
fellt tveggja áratuga baráttu við
sinnuleysið.
En þó svo Georg Baselitz, A.R.
Penck, Markus Liipertz og Jörg
Immendorff, svo aðeins örfáir séu
nefndir, hafí lagt undh- sig heiminn á
öndverðum 9. áratugnum með
tröllauknum málverkum sínum og
hrjúfum höggmyndum hafa þeir
mátt hopa allnokkuð í seinni tíð fyrir
gustmiklum valkyrjum á borð við
Rebeccu Hom (f. 1944), Rosemarie
Trockel (f. 1952), Katharinu Fritsch
(f. 1956) og Mariu Eichhorn (f. 1962).
Þessar fjórar starfssystur eru dæmi-
gerðar fyrir kvenlegt andsvar við því
sem kalla mætti yfirdrifna jötnalist
starfsbræðra þeirra. Um leið hafa
þær opnað spánnýja leið fyrir konur,
sem svo lengi hafa talið sig standa í
skugga kollega sinna af karlkyni.
Gegn hráum, frumstæðum og
þunglamalegum tjáningarmáta karl-
anna fjögurra tefldu valkyrjurnar
fínlegri, fágaðri og úthugsuðri tækni.
Rebecca Horn - sú elsta þeirra og
þar af leiðandi sjálfkjörið viðfangs-
efni þessa greinarstúfs - er svo víð-
feðm að hún er í senn myndlistar-
maður, ljóðskáld og kvikmyndagerð-
arkona. Buster’s Bedroom, frá 1990,
með Geraldine Chaplin og Donald
Sutherland í aðalhlutverkum, hlaut
einróma lof gagnrýnenda þegar hún
var frumsýnd í tengslum við stórsýn-
inguna „Metropolis" í Berlín sama
ár. I’ar minntist listakonan Busters
Keatons, meistara þöglu myndanna
og eins af helstu áhrifavöldunum í
stílmótun hennar.
Myndin gerist einmitt á og kring-
um heilsuhælið „Nirvana House“,
suður af Santa Barbara í Kaliforníu.
í ævisögu Busters Keatons kemur
einmitt fram að leikarinn hafi dvalið
á slíku hæli vegna krónískrar
drykkjusýki, og jafnvel orðið að dúsa
þar í spennitreyju líkt og Micha
Morgan - leikin af Amöndu Ooms -
ein aðalsöguhetjan í mynd Horn.
Keaton tókst að flýja af hælinu með
aðstoð hjúkrunarkonu sem hann síð-
ar kvæntist.
Það sem Horn á sameiginlegt með
Keaton er brennandi áhugi á vélbún-
aði og vélrænu atferli. Spænski leik-
stjórinn Luis Bunuel benti á það í
skrifum sínum um Keaton að þessi
spaugilega alvarlegi meistari þöglu
myndanna næði fullkomnum véltakti
í myndum sínum og umgengist
meira að segja sjálfan sig og um-
hverfíð með óborganlegum, vélræn-
um hætti. Sem nútímaleg norn, með
öll nýjustu vélabrögð á hreinu, var
það einmitt eitt af megineinkennum
Rebeccu Horn hvernig hún fram-
lengdi líkamann í fjölmörgum gjörn-
ingum sínum á 7. og 8. áratugnum
eins og væri hún vélmenni eða gang-
andi vélvirki.
Þessar áherslur eru nú fyrir löngu
komnar út fyrir svið gjörninganna
og yfir í þann heim sem sumir kalla
innsetningu - installation - en ég kýs
einfaldlega að kalla skipan. Þar hik-
ar Rebecca Horn ekki við að um-
turna heilu sölunum með „töfra-
sprota" sínum, eins og hún gerði til
dæmis í Kassel, árið 1992, á 9.
Documenta-sýningunni þar í borg.
Gautaborg. Morgunblaðið.
SÆNSK-íslenska félagið í Gauta-
borg hélt upp á að 50 ár eru
liðin frá stofnun þess, laugar-
daginn 24 október s.l. Frá há-
degi var opið hús með hátíðar-
dagskrá í húsnæði félagsins við
Linnégötu 21 og bauð félagið
ásamt Landssambandi íslendinga
gestum sínum upp á veitingar.
Þá heiðraði Jenna Jensdóttir fé-
lagið með komu sinni og sögum.
Hún las upp úr nýútkominni bók
sjnni Svipur daganna og sagan
Ásta Sólilja var flutt af þrem
röddum, með Þorbjörgu Karls-
dóttur, bókasafnsfræðingi og
Bjarneyju Gunnarsdóttur, í hlut-
verki móður og dóttur, ásamt
höfundinum sem sögumanni.
Heimafólk sá um önnur skemmti-
atriði síðdegis, meðal annars
sungu félagar úr íslenska kórn-
um í Gautaborg, eða Víkinga-
sveitin svonefnda.
Peter Hallberg prófessor og
þýðandi var einn af stofnendum
Sænsk-islenska félagsins árið
1948 og fyrsti formaður þess.
Seinna tók Magnús Gíslaon þjóð-
háttafræðingur og skólastjóri
Norræna lýðháskólans í Kungalv
við formennskunni og siðan
Verkið hét Der Mond, das Kind, und
der anarchistische FluB - Máninn,
barnið og fljótið stjórnlausa - og
byggði eins og flest önnur verk lista-
konunnar á hrífandi og tilfínninga-
þrungnu ljóði sem hún samdi í
Barcelona fyrr um árið og heitir E1
rio de la luna, eða „Mánafljótið".
I einni skólastofu Gerhart-Haupt-
mann-Schule, í miðri Kassel, sneri
Horn öllu við svo púlt og bekkir
nemenda héngu á hvolfi niður úr
ekkja hans Britta Gíslason. Að
sögn Ingvars Gunnarssonar, ann-
ars ritsljóra Islandspósts, blaðs
Landsambands íslendinga í Sví-
þjóð, mun blaðið senda út afmæl-
isrit með sögulegu efni áður en
árið er úti.
I ýmsum ræðum var dregin
upp mynd af félagsstarfi Islend-
inga í borginni, annars vegar því
sem fer fram á vegum Sænsk-ís-
lenska félagsins, svo sem út-
varpssendingar úr eigin stúdfói
einu sinni í viku, undir stjórn
Gfsla Hjaltasonar ásamt fleiri,
starfsemi eldri og yngri borgara
í húsnæðinu ofl. Og hinsvegar
starfscmi fslenska safnaðarins f
Gautaborg svo og íslenska kórs-
ins, en seinasta afrek hans var
átta daga söngferðalag um ís-
land f sumar sem leið. Kristinn
Jóhannesson, lektor í íslenskum
fræðum, sem sljómar kórnum
ásamt Tuula Johannesson, er
loftinu. Plastslöngur og blýpípur
fléttuðu sig eins og tágar úr blek-
byttum, umvöfðu borð og stóla og
héngu svo annaðhvort yfir trektum
og flöskum á gólfi stofunnar ellegar
undu sig eins og vafningsjurtir niður
útveggi skólans. Ur þeim lak blek og
kvikasilfur eins og blóð. Hvort var
þetta táknmynd um frjálsan anda
sem skólastofunni tekst ekki að
kæfa, eða dæmisaga um það hvernig
kerfið sýgur blóðið úr nemendum?
einnig formaður sóknarnefndar.
Hann sagði frá starfí safnaðarins
sem var stofnaður fyrir nokkrum
ámm þegar komið var á fót
prestsembætti í sambandi við líf-
færaflutninga á íslendingum sem
framkvæmdir voru við Sahl-
grenska sjúkrahúsið. Eftir að líf-
færaflutningarnir vom færðir til
Kaupmannahafnar hefur séra
Birgir Ásgeirsson sjúkrahús-
prestur þar, einnig þjónað Sví-
þjóð, en hann hefur nú tekið við
embætti sendiráðsprests í Kaup-
mannahöfn. Verða því íslending-
ar í Svíþjóð að una við óvígða
predikara í haustmyrkrinu en
það stendur vonandi til bóta með
hækkandi sól.
Hápunktur kvölddagskrárinn-
ar var þegar rithöfundar ofan af
ísiandi birtust og heiðruðu af-
mælisbamið og félaga þess nær
og fjær með því að lesa úr verk-
um sínum. Þar voru á ferðinni
Því ljóstar Rebecca Horn ekki
upp. Hún lætur sér nægja að snúa
innhverfunni út, eins og de Sade
markgreifi manaði Marat að gera í
leikriti Peters Weiss, og fá okkur til
að hugleiða ólgandi tilfinningaspilið
sem hún ber á borð fyrir okkur.
Meir en nokkur þýskur málari er
þessi hugmyndaríka galdrakind
sannur arftaki expressjónískrar
tjáningar.
Halldór Björn Runólfsson
Árni Bergmann, Hallgrímur
Helgason, Jenna Jensdóttir,
Matthías Johannessen og Ólafur
Gunnarsson. Að af slíkri heim-
sókn gat orðið mun Anna Einars-
dóttir framkvæmdasljóri fyrir
hönd íslenskra útgefenda á bóka-
stefnunni, sem þá stóð yfir, hafa
átt drjúgan þátt í, og hún var
einnig gestur félagsins það
kvöld.
„Það var mjög skemmtilegt að
hlusta á höfundana og að geta
boðið upp á íslenska menningu,"
sagði núverandi formaður
félagsins Einar Guðbjartsson,
þegar fréttaritari sló á þráðinn í
vikunni. „Menningarkvöld em
nokkuð stopul hjá okkur, meira
en ár síðan haldið var bók-
menntakvöld, þá með ljóðskáld-
um búsettum í Gautaborg og
Lundi. Þetta var góð afmælis-
gjöf. Og dagurinn vel heppnaður
í heild, hátíðardagskránni lauk á
tólfta tímanum. Að félagið hafi
starfað í fimmtíu ár hlýtur að
tákna að það sé mikils virði fyrir
íslendinga og Islandsvini á staðn-
um. Þetta em áhugasamtök, og
aldurinn segir meira en mörg
orð.“
Sænsk-íslenska
félagið fimmtíu ára