Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
IjjJJjjk
HÆST
ÁVÖXTUN
sambœrílegra sjóða
Skammtíma- Langtíma- Eignaskatt- Hlutabréfa- Séreignalíf-
sjóðir sjóðir frjálsir sjóðir sjóðir eyrissjóðir
Ávöjctun m.v 12 mánuði
Búnaðarbankinn Verðbréf
Samkeppnisaðilar *
Samanburður á ársnafnávöxtun sjóða Búnaðarbankans Verðbréfa og
sambœrilegra sjóða samkeppnisaðila á markaðnum síðustu tvö ár
miðað við 1. nóvember 1998.
Við hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum fögnum nú
tveggja ára afmæli okkar. Á þessum tveimur árum
höfum við náð hæstu ávöxtun sambærilegra sjóða á íslandi
og er það auðvitað besta afmælisgjöfin sem við getum gefið
viðskiptavinum okkar. Við höldum vitaskuld áfram á sömu
braut og munum einnig,kynna nýjar og arðvænlegar
fjárfestingarleiðir á næstunni. Hafðu samband og tryggðu
þér sneið af afmæliskökunni okkar!
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
- byggir á trausti
sími 525 6060 • netfang verdbref@bi.is
ERLENT
Mál Rons Davies veldur deilum um friðhelgi einkalífsins
Flokkar og Qölmiðlar í
standandi vandræðum
London. Reuters, The Daily Telegraph.
STJÓRN Verkamannaflokksins, for-
ystumenn Ihaldsflokksins og fjöl-
miðlar í Bretlandi virðast eiga í
mestu erfíðleikum með að gera upp
við sig hvernig taka eigi á máli Rons
Davies, fyrsta ráðherrans í stjórn
Tonys Blairs sem sagt hefur af sér
vegna hneykslismáls.
Mál Davies hefur valdið stjórninni
vandræðum frá því það komst í há-
mæli fyrir rúmri viku og henni hefur
ekki enn tekist að koma því af forsíð-
um bresku dagblaðanna. Davies,
sem fór með málefni Wales í stjórn-
inni, segist hafa verið rændur eftir
að hafa slegist í fór með ókunnum
manni þegar hann var á kvöldgöngu
í skemmtigarði í London, sem er
sagður fjölsóttur af hommum og eit-
urlyfjasölum. Hann kvaðst hafa
gerst sekur um ófyrirgefanlegt dóm-
greindarleysi en neitaði að upplýsa
hvers vegna hann fór í skemmtigarð-
inn. Hann vísaði því hins vegar á bug
að hann hefði verið að sækjast eftir
kynmökum eða eiturlyfjum.
Davies segist ekki hafa þekkt
manninn, sem hann hitti í skemmti-
garðinum, en lögreglan hefur þó
ekki enn hafnað vísbendingum um að
þeir hafi kynnst áður en þeir hittust í
garðinum. Lögreglan rannsakar nú
einnig orðróm meðal breskra stjóm-
málamanna um að reynt hafi verið
að kúga fé af Davies áður en hann
sagði af sér.
Lögreglan hefur handtekið alls
sex manns vegna ránsins. Einn hefur
þegar verið leiddui' fyrir rétt og fjór-
ir hafa verið leystir úr haldi gegn
tryggingu. Sjötti maðurinn var
handtekinn í fyrradag.
Deilan um atferli ráðherrans fyrr-
verandi magnaðist aftur á mánudag,
viku eftir afsögnina, þegar hann
ávarpaði þingið og gagnrýndi bresku
fjölmiðlana harðlega, sakaði þá um
að birta „kjaftasögur og lygar“ og
Peter Mandelson
skoraði á þá að virða friðhelgi einka-
lífsins.
Davies veitti einnig sjónvarpsvið-
tal þar sem fram kom að faðir hans
beitti hann ofbeldi í æsku en reiði
ráðherrans fyrrverandi beindist þó
einkum að „bullinu“ sem bresku
blöðin hafa birt um einkalíf hans.
BBC bannar umfjöllun um
einkalff Mandelsons
Ráðherrar, sem tengjast ekki máli
Davies, hafa einnig dregist inn í deil-
una. Matthew Parris, blaðamaður og
fyrrverandi þingmaður Ihaldsflokks-
ins, lét t.a.m. þau orð falla í umræðu-
þætti BBC-sjónvarpsins á dögunum
að Peter Mandelson, viðskipta- og
iðnaðarráðherra, væri „örugglega
hommi“ og fram kom að Chrís Smith
menningarmálaráðherra væri einnig
samkynhneigður. Smith viðurkenndi
samkynhneigð sína fyrir nokkrum
árum en Mandelson hefur tekið þá
afstöðu að kynhneigð sín sé mál sem
engum öðrum komi við. Sjálfur er
Parris samkynhneigður.
Stjómarformaður BBC og stjórn-
Ron Davies
andi þáttarins hafa sent Mandelson
afsökunarbeiðni vegna ummælanna.
Þau m-ðu einnig til þess að einn af
yfirmönnum BBC gaf fréttamönnum
fyrirmæli um að fjalla ekki um
einkalíf Mandelsons á öldum ljós-
vakans. Fréttamenn BBC urðu
ókvæða við þessi fyrirmæli og ráð-
herrann lýsti þeim sem yfirsjón af
hálfu yfirmannsins.
Mo Mowlam, sem fer með málefni
Norður-írlands í bresku stjórninni,
er sögð hafa orðið „öskureið“ þegar
henni var skýrt frá fyrirmælunum
áður en hún tók þátt í umræðuþætti
BBC á dögunum. Þingmenn íhalds-
flokksins hafa sakað BBC um að
reyna að kveða niður umræðu um
einkalíf Mandelsons og krafist svara
við því hvort fleiri stjórnmálamenn
njóti sérstakrar vemdar.
íhaldsmenn gagnrýna
skrif Tebbits
Umræðan um einkalíf Mandelsons
varð til þess að Tebbit lávarður, fyrr-
verandi formaður Ihaldsflokksins,
skrifaði bréf til birtingar í The Daily
Telegraph þar sem hann hélt því
fram að meina bæri hommum að
gegna mikilvægustu ráðherraemb-
ættunum, svo sem embætti innanrík-
isráðherra, þar sem þeir ættu ekki að
„vera í aðstöðu til að gera hver öðr-
um greiða“ og vísaði í þvi sambandi
til umræðu um stjómmálaþátttöku
frímúrara fyiir skömmu. Hann bætti
þó við að þetta ætti ekki við um emb-
ætti viðskipta- og iðnaðarráðherra.
Leiðtogar íhaldsflokksins gagn-
rýndu þessi skrif Tebbits, sem er fylg-
ismaður Margaret Thatcher, fyrrver-
andi forsætisráðherra. Talsmaður
flokksins sagði að Tebbit væri „úr
tengslum“ við nútímaleg viðhorf
flokksins. Fulltrúar Williams Hagues,
leiðtoga flokksins, lögðu einnig áherslu
á að hann væri algjörlega andvígur því
að banna hommum að gegna mikil-
vægum ráðherraembættum.
Fjölbreyttari fjöl-
skyldumyndir
London. Daily Telegraph.
KOMIN er fram ný ómsjá, sem
gefur verðandi mæðrum skýra
mynd af barninu, sem þær
bera undir belti. Var hún
kynnt á ráðstefnu fæðingar-
lækna 1 Edinborg um helgina.
Nýja ómsjáin, sem hefur
verið í þróun sl. fimm ár, á
eftir að hjálpa læknum við að
finna hugsanlega fósturgalla
og uppskurðir, sem stundum
eru gerðir á ófæddum börn-
um, verða miklu auðveldari
og hættuminni en nú er.
Með hjálp ómsjárinnar verð-
ur unnt að prenta út skýra
mynd af fóstrinu, til dæmis
andlitinu, og getur það orðið til
þess, að dómi sumra lækna, að
foreldrar bindist baminu sterk-
um tilfinningaböndum á meðan
það er enn í móðurkviði. Á hinn
bóginn er líka trúlegt, að
myndimar verði notaðar sem
vopn í baráttu þeirra, sem berj-
ast gegn fóstureyðingum.