Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Með breskum brag
Bretinn Julian Lloyd Webber verður ein-
leikari í Sellókonsert Edwards Elgars á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands í
Háskólabíói í kvöld. Orri Páll Ormarsson
tók hann tali en kórinn Vox Feminae
kemur einnig fram á tónleikunum.
Morgunblaðið/Kristinn
JULIAN Lloyd Webber á æfingu með Sinfóníuhljónisveit Is-
lands. Hann er bróðir söngleikjahöfundarins kunna,
Andrews Lloyds Webbers.
AÐ VERÐUR breskur bragur á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar Islands í
kvöld. Flutt verða verk eftir tvö af
dáðustu tónskáldum Breta, Edward
Elgar og Gustav Holst, og sellóleikarinn Juli-
an Lloyd Webber, einn sá fremsti í heiminum
í dag, mun leika einleik.
Edward Elgar skrifaði sellókonsert sinn í
skugga fyrri heimsstyrjaldar - lauk við hann
árið 1919 - og þykir hann með því besta sem
tónskáldið sendi frá sér. Varð konsertinn
jafnframt síðasta stóra verk Elgars því eftir
að hann missti eiginkonu sína ári síðar lét
hann að mestu af tónsmíðum.
Að áliti Julians Lloyds Webbers er verkið
ein af perlum sellóbókmenntanna - frábærlega
skrifað fyrir hljóðfærið. „Sellóið fær að njóta
sín til fulls í þessu verki, hljómsveitin skyggir
aldrei á það. Verkið er líka afar persónulegt og
án efa eitt af mínum uppáhaldsverkum - ég er
alltaf að finna eitthvað nýtt í því.“
Lloyd Webber kveðst oft vera beðinn um
að flytja Sellókonsert Elgars, líkt og á tón-
leikunum nú, og önnur verk sem fallnir meist-
arar skrifuðu fyrir hljóðfærið. Hann er þó
ekki síður þekktur fyrir tryggð sína við
tónskáld tuttugustu aldarinnar og hefur
frumflutt á sjötta tug tónverka á ferlinum.
„Nú er það svo að sellóbókmenntimar em
ekkert sérstaklega miklar að vöxtum. Pess
vegna gegna nýjar tónsmíðar svo veigamiklu
hlutverki. Ég hef því alla tíð gefið mér góðan
tíma til að kynna mér það nýjasta hverju sinni
og fjölmörg tónverk hafa verið skrifuð fyrir
mig.“
Framtíðin Iiggur í nýsköpun
Og áfram heldur sellóleikarinn, í víðara
samhengi: „Ég er þess sinnis að framtíð sí-
gildrar tónlistar liggi í nýsköpun - samningu
nýrra tónverka. Tónlistin er í eðli sínu lifandi
fyrirbæri, ekki safngripur,
þannig getur hún aldrei þrif-
ist. Ekki svo að skilja að
gleyma eigi gömlu meistur-
unum, síðui' en svo, en þeir
mega aftur á móti ekki
standa nútímatónskáldum
fyrir þrifum. Að mínu mati er
best að blanda þessu saman,
gömlu og nýju. Svo framar-
lega sem tónlist er góð á hún
rétt á sér!“
Lloyd Webber segir hag
sellósins hafa vænkast veru-
lega á þessari öld, fá einleiks-
verk hafi verið til um síðustu
aldamót en úr því hafi flest
helstu tónskáld aldarinnar
bætt. „Sellóið hefur svo sann-
arlega haslað sér völl sem
einleikshljóðfæri. Nú keppast
menn við að skrifa fyrir
hljóðfærið, og fyrir vikið er af
miklu meiru að taka nú en áð-
ur. Sellóbókmenntimar eru
stöðugt að þrútna."
Julian Lloyd Webber
stundaði nám við Royal
Academy of Music í Lundún-
um og síðar hjá sellósnillingnum Pierre Fo-
umier. Hann hefur starfað sem einleikari í 27
ár, eða frá því hann var tvítugur, og ferðast
vítt og breitt um heiminn. Þar fyrir utan kem-
ur hann annað veifið fram með kammerhóp-
um, auk þess sem hann hefur gegnt prófess-
orsstöðu við Guildhall School of Music and
Drama í tvo áratugi.
Lloyd Webber er af miklu tónlistarfólki
kominn. Móðir hans var píanókennari og faðir
hans organisti og tónskáld. Þá er bróðir hans í
hópi fremstu söngleikjahöfunda aldarinnar,
Andrew Lloyd Webber.
„Tónlistin var snar þáttur í uppeldi okkar
bræðranna og ekki skrýtið að við skyldum
leggja hana fyrir okkur. Auðvitað höfðu for-
eldrar okkar mest áhrif á okkur en tónlist-
arfólk sem dvaldist á heimilinu í lengri eða
skemmri tíma lagði líka sitt af mörkum.
Andrew, sem er þremur árum eldri en ég, fékk
snemma áhuga á tónsmíðum og sýningum og
því lá beint við að hann legði út á braut söng-
leiksins. Ég hef alltaf verið meira túlkandi
listamaður, flutningur er mitt fag.“
Faðir þeirra bræðra lagði, sem fyrr segir,
stund á tónsmíðar en gaf þá iðju upp á bátinn
á sjötta áratugnum, þar sem verk hans virtust
ekki höfða til almennings. „Eftir það talaði
hann lítið um tónsmíðar sínar og það var ekki
fyrr en eftir að hann dó, árið 1982, að ég fékk
tækifæri til að skoða þær að einhverju ráði.
Komst ég þá að raun um að þær væru margar
hverjar mjög góðar. Hef ég reynt að halda
þeim á lofti og fyrr á þessu ári komu út þrjár
geislaplötur með verkum fóður míns. Lítil
reynsla er komin á útgáfuna en fyrstu
viðbrögð hafa verið góð. Verkin hafa vakið at-
hygli."
Þegar Lloyd Webber er spurður hvort
blýanturinn og nótnaheftið hafi aldrei höfðað
til hans brosir hann og hristir höfuðið. „Ekki
get ég sagt það. Um dagana hef ég aðeins
samið eitt tónverk, svo heitið geti, vögguvísu
handa syni mínum, enda hefur metnaður minn
legið á öðru sviði. Tónsmíðar verða að spretta
af þörf, ástríðu, og hana hef ég ekki haft. Þó er
ég ekki frá því að einhver þörf sé farin að
krauma í mér í seinni tíð, þannig að maður
ætti aldrei að segja aldrei."
Þar sem náttúran ríkir
Lloyd Webber kveðst hlakka mikið til að
leika með Sinfóníuhljómsveit Islands, hann
hafi heyrt hennar getið að góðu einu og
geislaplötur hennar séu í háum gæðaflokki.
Þó þetta sé í fyrsta sinn sem sellóleikarinn
kemur fram hér á landi hefur hann sótt okkur
heim áður, árið 1981. „Þá kom ég hingað í
vikufrí, tók mér bílaleigubíl og ók vítt og breitt
um landið. Mig hafði lengi langað að gera þetta
enda hefur ísland alltaf heillað mig. Það er
eitthvað við staði þar sem náttúran ríkir!“
Annir koma í veg fyrir að Lloyd Webber
geti skoðað sig um að ráði að þessu sinni en
hann fer utan strax í fyrramálið. Dag einn
hyggst hann þó snúa aftur sem ferðamaður og
skoða það sem hann fór á mis við síðast. „Því
lofa ég!“
Hitt verkið sem flutt verður á tónleikunum
er Pláneturnar eftir Gustav Holst. Verkið var
frumflutt árið 1920 og markaði sá flutningur
tímamót á ferli Holst. Plánetunum var geysi-
vel tekið og hafa æ síðan notið mikilla
vinsælda. Þykja Pláneturnar eitt af glæsileg-
ustu hljómsveitarverkum aldarinnar.
Kórinn Vox Feminae mun taka þátt í flutn-
ingi Plánetanna. Hann var stofnaður árið 1993
og hefur haldið fjölda tónleika hér heima og
erlendis. Aðalstjórnandi og þjálfari kórsins er
Margrét Pálmadóttir.
Hljómsveitarstjóri kvöldsins verður Rico
Saccani, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar
íslands.
Landslag, þrívíddarljós-
myndir og tannlæknatryllir
BJARGEY Ólafsdóttir vinnur á skemmtilegan hátt með kvikmyndir
og Hollywood-bransann á sýningu sinni.
MYJVDLIST
IVýlistasafnið
BLÖNDUÐ TÆKNI
BRJARGEY ÓLAFSDÓTTIR,
NATHALIE VAN DER BURG
OG A. WILENIUS
Opið 14 til 18. Sýningin stendur
til 8. nóvember.
Á EFRI hæðum Nýlistasafnsins
sýna nú þrír listamenn frá jafn-
mörgum löndum, Bjargey Ólafs-
dóttir frá íslandi, Nathalie van den
Burg frá Hollandi og A. Wilenius
frá Finnlandi. Það er ekki aðeins að
bakgrunnur þeirra þriggja sé ólík-
ur, heldur eru verk þeirra einnig
næsta ólík og öll nálgun þeirra við
listina að því er virðist. Bjargey
sýnir í Bjarta sal og Svarta sal á
miðhæð safnsins. I Bjarta salnum
sýnir hún ljósmyndir en í myrkrinu
í Svarta sal vídeóband sem er lítil
bíómynd, framleidd og leikin í anda
Hollywood-tryllanna, með flóknu
ástarsambandi í söguþræðinum,
sjúklegum ástríðum og morði.
Ljósmyndirnar tengjast einnig
Hoilywood-stemmningunni og bera
keim af stjörnubransanum kringum
bíómyndirnar. Þær minna á
myndröðina sem Cindy Sherman
vann í anda kvikmyndanna þar sem
hún líkir eftir ljósmyndunum sem
notaðar eru til kynningar á kvik-
myndum - þær sem maður sá áður
undir gleri í kössum utan á bíóhús-
unum. Framlag Bjargeyjar er i
raun meira í ætt við kvikmynda-
gerð en myndlist, þótt það sé á eng-
an hátt henni til vansa. Óhjákvæmi-
lega veltir maður því samt fyrir sér
hvernig samhengi hlutanna sé
háttað, hvernig eins konar tilraun á
sviði kvikmyndagerðar komi út
þegar hún er sett fram í myndlist-
arsamhengi eða sem myndlist. Þeir
sem fylgjast með þróun myndlistar-
innar þekkja vel að á síðustu árum
hafa ólíklegustu hlutir verið settir
fram sem myndlist og í ólíklegasta
samhengi. Allt er það eðlilegt fram-
hald af þeim pælingum sem mynd-
listarmenn hafa staðið í frá því
snemma á öldinni og enginn kippir
sér lengur upp við að sjá til að
mynda muni úr byggingarvöru-
verslun á myndlistarsýningum.
Kvikmyndalistin er hins vegar svo
nærri myndiistinni að það myndast
öðruvísi spenna þegar henni er
beitt svo kinnroðalaust á myndlist-
arsýningu, tilvísanirnar verða
tvíræðari og upplifunin öll meira
spennandi.
Nathalie van der Burg veltir í
SÚM-sal fyrir sér eðli ljómyndar-
innar og hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að hún sé fyrst og fremst
bara pappírsörk. Að því gefnu tek-
ur hún ljósmyndir og brýtur þær
saman í þrívíð form - eins konar
ljósmyndaorigamí. Þetta er athygl-
isverð tilraun og verkin eru falleg
og umhugsunarverð, en þó er eins
og hugmyndin nái ekki aiveg í
gegn. Við getum auðveldlega
neitað að horfa á ljósmynd - eða
þess vegna málverk, teikningu eða
höggmynd - sem eftirmynd ein-
hvers og ákveðið að umgangast
hana í staðinn sem hvern annan
hlut, eða sem hverja aðra pappír-
sörk. Tilraunir af þessu tagi hafa
verið gerðar með málverk og ýmiss
konar aðrar myndir frá því
snemma á öldinni og menn hafa
lengi áttað sig á að allar myndir
eru að þessu leyti tvíræðar - þær
eru hlutir eins og hvað annað en
eru jafnframt „myndir af‘ ein-
hverjum öðrum hlut. Hugmynda-
fræðin að baki þessum verkum
Nathalie van der Burg er þannig
vel þekkt og ekki á neinn hátt
nýstárleg. En verk hennar standa
hins vegar fyliilega undir sér þótt
við gerum ekki þá kröfu að þau séu
að opinbera okkur einhvern nýjan
heimspekilegan sannleik. Þau eru
einfaidlega falleg og bera vott um
næmt formskyn og góða tilfinningu
fyrir samhengi myndar og forma.
Framlag Finnans Wileniusar eru
athyglisverðar útfærslur á landslagi
og veðri og á sýningunni setur hann
hugmyndir sínar fram í þremur
mismunandi útfærslum: Sem tvívíða
mynd á vegg, sem skúlptúr eða
módel, og sem myndband. Vegg-
myndirnar eru ótrúlega heillandi í
einfaldleik sínum. Við fyrstu sýn
virðist aðeins vera um að ræða hvíta
gljáandi ferninga en þegar betur er
að gáð sést mannvera einhvers
staðar djúpt inni í myndinni. Áhrifin
eru nákvæmlega eins og þegar
gengið er í blindbyl og maður sér
einhverjum bregða fyrir í fjarska.
Sýnin er horfin á augnabliki og
NATHALIE van der Burg brýt-
ur ljósmyndir saman svo úr
verða þrívíð form.
maður veit ekki alveg fyrir vist
hvort hún er aðeins blekking.
Myndbandið er önnur útfærsla á
sömu hugmynd, en þar sér maður
fólk ganga framhjá í fjarska á heiði
þar sem engin greinileg kennileiti
er að sjá. Fólkið er aðeins eins og
skuggar sem líða framhjá og hverfa
svo. Það er skýjað og skyggni frem-
ur slæmt svo maður er ekki fullkom-
lega viss um hvað það er sem maður
sér, allt er eins og í móðu. Verkin
fanga ákaflega vel náttúruupplifun
norðui'slóðanna og áhorfandinn skil-
ur það sem Grikkirnir gömlu lýstu,
að himinn og sjór rennar saman og
verða að einni móðu, vatn, jörð og
loft blandast, frumefnin renna sam-
an og venjulegar skilgreiningar gilda
ekki lengur.
Jón Proppé