Morgunblaðið - 05.11.1998, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
Stöðugleiki á markaði
fyrir kaldsjávarrækju
Árlegir samráðsfundir fulltrúa helstu framleiðenda
Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudiskframleið-
enda, segir útlit fyrir jafnvægi á mörkuðum fyrir kaldsjávarrækju á kom-
andi ári og litlar verðbreytingar. Utflytjendur og framleiðendur í rækju-
vinnslu við Norður-Atlantshaf hittast á samráðsfundum tvisvar á ári. Sam-
ráðsfundur var haldinn i lok september í Manehester á Englandi, þar sem
menn báru saman bækur sínar. Par voru mættir fulltrúar sölusamtaka og
framleiðenda frá Færeyjum, Noregi, íslandi og Grænlandi.
„Við reynum á þessum fundum 71.000 tonnum í ár. „Við teljum því
að meta stöðu okkar, vegum og
metum stærð markaðanna og áætl-
um hversu mikið verður framleitt á
okkar vegum á næstunni," segir
Pétur Bjarnason. Aðspurður um
framboð á kaldsjávarrækju segir
hann: „Framboð frá íslandi er að
minnka, framleiðsla á Grænlandi
stendur nokkuð í stað, en framboð
á rækju frá Kanada og Noregi er
að aukast. I heildina má þó segja
að framboð frá framleiðendunum
sé svipað því sem var í fyrra.“
Ef framleiðsla í Kanada er tekin
með í dæmið er framboð af pillaðri
kaldsjávarrækju rúmlega 68.000
tonn en reiknað er með því að eftir-
spurn á heimsmarkaði nemi um
ástæðu til þess að ætla að eðlilegt
jafnvægi verði á milli framboðs og
eftirspurnar á þessum mörkuðum
á næsta ári og litlar breytingar á
verði frá því sem nú er,“ bætir Pét-
ur við.
Ráðstefna um rækjumarkaði
Um 120 manns tóku þátt í ráð-
stefnunni Coldwater Prawn For:
um, sem var haldin í annað sinn í
Lundúnum dagana 8.-9. október
sl. Þar er stefnt saman framleið-
endum, út- og innflytjendum, sölu-
aðilum og eigendum veitingahúsa,
eða flestum þeim sem sýsla með
kaldsjávarrækju. Þar var farið yfir
alla helstu þætti í rækjuvinnslunní,
svo sem aflabrögð, framleiðslu og
markaði. Stofnað var til ráðstefn-
unnar að frumkvæði Félags
rækju- og hörpudiskframleiðenda.
Pétur segir ráðstefnuna hafa unnið
sér fastan sess og ráðgert sé að
halda hana í þriðja sinn eftir eitt til
tvö ár.
Verð á skelflettri rækju
árin 1986 til 1998
Vísitala 1986=100
Heimsframleiðsia af skelflettri rækju
árið 1998 - ásetluð í tonnum \Framleiðsla á islandi,
l— Grænlandi, i Noregi
t I og Færeyjum
FRAMBOÐ VZ///Z7ZJ í 68.6001
Morgunblaðið/KVM
SKIPSTJÓRINN Ómar Þorleifsson og Magnús Soffaníasson,
framkvæmdastjóri, í brúnni á Sigurborgu.
Nýr bátur til Grundarfjarðar
NÝR bátur, sem hefur bætzt í
skipaflota Grundfirðinga,
Sigurborg SH 12, kom til
Grundarfjaröar laugardaginn
31. október.
Báturinn, sem er í eigu
Soffaníasar Ceeilssonar hf. í
Grundarfirði, er keyptur frá
Hvammmstanga og hefur hann
918 tonna kvóta í þorskígildum
og er mældur rétt tæp 200 tonn.
Fimm manna áhöfn er á bátnum
og er skipstjóri Ómar Þor-
leifsson. Að sögn Sigurðar
Sigurbergssonar útgerðarstjóra
Soffaníasar Cecilssonar hf.
verður báturinn fyrst um sinn á
rækju fyrir norðan land.
Saga togaraút-
gerðar á Bretlandi
í BÓKINNI Trawling - The Rise
and Fall of the British Trawl Fish-
ery rekur Robb Robinson sögu tog-
araútgerðar Breta frá
upphafi hennar um síð-
ustu aldamót til loka
þorskastríðsins við Is-
lendinga árið 1976. Sú
saga er bundin borgun-
um tveimur við Humber-
ána, Grimsby og Hull,
órjúfanlegum böndum.
Um miðja þess öld
voru Grimsby og Hull
mestu útgerðarbæir ver-
aldar. Þaðan var siglt á
mið við íslands- og Nor-
egsstrendur, í Barents-
hafi og við Nýfundna-
land. Upphafið að enda-
lokunum nefnist
lokakafli bókarinnar og
KÁPA bókarinnar
Trawling - The Rise
and Fall of the British
Trawl Fishcry.
fjallar um þorskastríðin og samn-
ingu Hafréttarsáttmála Sameinuðu
þjóðanna. Þar segir Robinson frá því
hvernig ríkisstjórn Bretlands tapaði
þorskastríðunum, þrátt fyrir yfir-
burðastöðu á höfunum. A alþjóða-
vettvangi snerist álit manna á sveif
með málstað íslendinga og heima
fyrir gerðust kröfur um 200 mílna
landhelgi háværari. Staða þjóðanna
innan Atlantshafsbanda-
lagsins var Bretum
einnig óþægur ljár í
þúfu. Þegar þjóðirnar
sömdu að lokum um
fiskveiðiréttindi Breta i
íslenskri landhelgi var
ríkisstjórn Bretlands
sökuð um lítilþægni og
að standa ekki vörð um
hagsmuni útgerðarinnar
í Grimsby og Hull.
í bókinni er bágum
kjörum, löngum vinnu-
tíma og illum aðbúnaði
sjómanna og hafnar-
verkamanna vel lýst.
Einnig mannfórnunum í
skipsköðum, t.d. þegar
Súrefiiisvöriir
Karin
Herzog
• vinna gegn
öldrunareinkennum
• enduruppbyggja húði|ia
• viiina á appelsínuhúð
og sliti
• vinna á unglingabóluni
• viðhalda ferskleika
luíðarinnar
Ferskir vindar í
umhirðu húðar
Ráðgjöf og kynning
í Apótekinu Iðufeili
í dag kl. 14-18
Kynningarafsláttur
togaramir Lorella og Roderigo fór-
ust í aftakaveðri undan Vestfjörðum
í janúar 1955.
Höfundur bókarinnar, Robb Robinson,
er kominn af útgerðaimönnum í Huil.
Hann hefur ritað fjölmargar greinar um
sjávarútvegsmál og kennii- við Hull Col-
lege. Bókin a- gefin út af University of
Exeter Press.
VORURMEÐ
ÞESSU MERKI
MENGA MINNA
Norræna umhverfismerkið
hjálpar þér að velja þær vörur
sem skaða síður umhverfið.
Þannig færum viö verömæti
til komandi kynslóða.
UMHVERFISMERKISRÁÐ '//// ///
HOLLUSTUVERND RÍKISINS ý
Upplýsingar hjá Hollustuvernd ríksins
í síma 568 8848, heimasíöa: www.hollver.is