Morgunblaðið - 05.11.1998, Page 41

Morgunblaðið - 05.11.1998, Page 41
40 FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 41 STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FIIAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SIGUR DEMOKRATA ÞRÁTT fyrir að Repúblikanaflokkurinn haldi meirihluta sínum í jafnt fulltrúadeild sem öldungadeild Bandaríkja- þings eru það demókratar sem hafa ástæðu til að fagna sigri í kjölfar þingkosninganna á þriðjudag. Demókratar bættu við sig þingsætum í fulltrúadeildinni og hlutföllin í öldungadeildinni eru óbreytt. Að auki hrepptu demókratar ríkisstjóraembættið í Kaliforníu í fyrsta skipti í sextán ár, en það er eitthvert mikilvægasta pólitíska embætt- ið í Bandaríkjunum. Þar við bætist að þeir héldu stöðu sinni í mörgum ríkjum, þar sem þeim hafði verið spáð ósigri, og staða þeirra styrktist til muna í Suðurríkjunum, þrátt fyrir sigur Jebs Bush í ríkisstjórakosningunum á Flórída. Það hefur verið pólitískt lögmál í Bandaríkjunum, að sá flokkur sem fer með forsetaembættið tapar fylgi í þingkosn- ingum, þegar ekki er kosið um embætti forseta. Er þetta í fyrsta skipti frá árinu 1934, að flokkurinn sem ræður Hvíta húsinu bætir við sig fylgi í þingkosningum á milli forseta- kosninga. Þetta er ekki síður markvert í ljósi þess að fátt annað hefur komist að í pólitískri umræðu í Bandaríkjunum á þessu ári en samband Bill Clintons við Monicu Lewinsky og rannsókn saksóknarans Kenneths Starrs á forsetanum. Talið var víst framan af ári að demókrötum yrði refsað í kosningunum vegna Lewinsky-málsins og að repúblikanar myndu styrkja stöðu sína á þinginu verulega. Repúblikanar reyndu að nýta sér málið til hins ýtrasta pólitískt og keyrðu í gegnum fulltrúadeildina ákvörðun um að hefja þingrannsókn á forsetanum með það að markmiði að komast að niðurstöðu um það, hvort ástæða væri til að höfða mál til embættismissis á hendur honum. Einungis eitt dæmi er um slíka rannsókn á þessari öld og lyktaði henni með afsögn Richards Nixons. Hvað eftir annað hafa kannanir hins vegar sýnt að þau sjónarmið er ráða ríkjum í þingílokki repúblikana í Lewin- sky-málinu eru á skjön við skoðanir kjósenda. Svo virðist sem flestir Bandaríkjamenn telji Lewinsky-málið of léttvægt til að það kalli á umræður um afsögn forsetans. Flestir kjósend- ur segjast ánægðir með störf forsetans þótt þeir fordæmi framferði hans í einkalífinu og upp til hópa virðist fólk vera búið að fá sig fullsatt á umræðum um málið. Efnahagur Bandaríkjanna stendur jafnframt í blóma, sem styrkir stöðu forsetans, og sú afstaða demókrata að leggja áherslu á mál er tengjast beinum hagsmunum kjósenda, s.s. menntamál, í stað þess að vera í vörn fyrir Clinton, virðist hafa skilað sér. Repúblikanar virðast hins vegar hafa treyst alfarið á að óánægja með forsetann myndi skila þeim sigri og vanræktu að móta einhvern raunverulegan stefnugrundvöll fyrir kosn- ingarnar. Þingyfirheyrslur vegna Lewinsky-málsins munu eftir sem áður hefjast síðar í mánuðinum en þessa stundina eru það lík- lega repúblikanar sem hafa meiri áhyggjur af þeim en demókratar. Það verður erfitt að túlka vilja bandarísku þjóð- arinnar sem svo að hún hafi veitt repúblikönum umboð til að keyra málið áfram af fullum krafti þó svo að þeir hafi til þess þingmeirihluta. Þeir geta ekki snúið við blaðinu en eiga erfitt með að halda áfram. Að auki má búast við að innan flokksins komi upp kröfur um að stokkað verði upp í forystuliði flokks- ins á þingi. Niðurstaða kosninganna virðist því sú, að sá flokkur sem er í minnihluta á þinginu hefur fengið aukið sjálfstraust en sá er hélt meirihluta sínum er í sárum. HONDURAS ÞÆR fréttir er berast af náttúruhamförunum í Mið-Amer- íku eru skelfilegar. Svo virðist sem tugir þúsunda hafi lát- ið lífið í flóðum og aurskriðum af völdum fellibylsins Mitch og milljónir hafa misst heimili sín. Eflaust munu líða dagar og vikur áður en hægt verður að meta afleiðingar hamfaranna til fulls. Það liggur hins vegar þegar fyrir að nokkrar þjóðir Mið- Ameríku eru í sárum, ekki síst Hondúras þar sem stór hluti landsins er nú undir vatni. Ríki Mið-Ameríku hafa orðið að þola mikinn mótbyr á síðustu árum, jafnt efnahagslegan sem pólitískan. Rétt í þann mund er þau virtust vera farin að rétta úr kútnum skella þessar hamfarir yfir. Mannslíf verða aldrei bætt og það mun taka mörg ár og kosta mikið fé að byggja það upp á ný er eyðilagst hefur á undanförnum dögum. Heimsbyggðinni ber skylda til að rétta þessum þjóðum hjálparhönd. íslendingar eru þar engin undantekning. Við þekkjum vel hversu miskunnarlaus náttúran getur verið og hversu mikilvægur stuðningur og hlýhugur annarra þjóða er á slíkum stundum. Islenska þjóðin, ríkið, og einstaklingar jafnt sem líknarsamtök verða að leggja sitt af mörkum til að aðstoða íbúa Mið-Ameríku, ekki síst íbúana í Hondúras. Og sú hjálp þarf að berast sem fyrst. Samkomulag sjö helztu iðnríkja heims um aðgerðir gegn alþjóðlefflim efnahagssamdrætti Öndinni varpað léttar á fjármálamörkuðum Ráðamenn sjö helztu iðnríkja heims kynntu fyrir helgina áætlun sem þeir komust að sam- komulagi um með það að markmiði að hindra frekari útbreiðslu hinnar alþjóðlegu fjár- málakreppu sem menn hafa haft áhyggjur af að gæti jafnvel leitt til alls- herjar heimskreppu. Kauphallarviðskipti tóku kipp við þessi tíðindi, og að sögn Auðuns Arnórs- sonar eru vonir bundnar við að þær aðgerðir sem boðaðar eru í áætluninni hjálpi meðal annars til að afstýra efnahagshruni í Brasilíu. Verðbréfamiðlarar og aðr- ir sem hafa dagleg af- skipti af fjármálamörk- uðum heimsins hafa und- anfama daga varpað öndinni léttar eftir að G7-hópurinn svokallaði, samtök sjö helztu iðnríkja heims, kom sér saman um áætlun og aðgerðir til að hamla gegn meinum hins alþjóðlega fjármálakerfis. Að vísu er áætlunin sjálf - sem er innihaldsrík að hugmyndum en fáorð- ari um framkvæmdaleg smáatriði - ekki sjálf álitin marka straumhvörf, þar sem uppsveiflan á mörkuðunum var þegar farin af stað áður en áætl- unin kom til. Mikilvægi hennar felst hins vegar ekki sízt í því, að hún gefur fjárfestum greinilegt merki um það hve mikið G7-hópurinn lætur sig ástandið varða. En „einungis hugrakkur maður mjmdi lýsa því yfir að heimsfjár- málakreppa ársins 1998 væri liðin hjá,“ skrifar Finnnchú Times. Fjár- málasérfræðingar segja að til lengri tíma litið beri enn á kvíða og ugg um framhaldið. Nýjasta „bjartsýniskast" kauphaliarfjárfesta þykir ekki sann- færandi merki um að samdráttarskeið undanfarinna mánaða sé endanlega á enda, samkvæmt upplýsingum Reuters. Mikilvægt skref Gordon Brovvn, fjármálaráðherra Bretlands, kynnti G7-samkomulagið á blaðamannafundi í Lundúnum á föstudag, en Bretar fara með forsæti í samtökunum um þessar mundir. Hann sagði áætiunina „mikilvægt skref fram á við,“ í þá átt að koma böndum á ólguna í fjármálakeríl heimsins. I G7-hópnum eru, auk Bretlands, Bandaríkin, Japan, Þýzkaland, Frakk- land, Italía og Kanada. Eddie George, aðal- bankastjóri Englands- banka, seðlabanka Bret- lands, var upplitsdjarfur á biaðamannafundinum. „Það eru vís- bendingar um að ástandið hafi batnað allverulega á undanförnum vikum,“ sagði hann og bætti við að hættunni á allsherjarlánsfjárkreppu í heiminum hefði að líkindum verið bægt frá. Svo virðist sem kauphallarfjárfest- Til merkis um hve mikið G7- ríkin eru til- búin að gera Reuters MIKIÐ hefur reynt á taugar brasilískra verðbréfamiðlara að undanfornu, hér í kauphöllinni í Sao Paulo, en sú al- þjóðlega aðstoð sem brasilískt fjánnálakerfi á nú von á ætti að hjálpa þeim til að taka gleði sína á ný. til að njóta góðs af hinum nýju neyð- arlánum sjóðsins. Áætlunin „mun greinilega hjáipa til við að byggja upp traust á næsta jarð- skjálftasvæði, sem er Brasilía, og varnir realsins [brasilíska gjaldmiðils- ins],“ sagði John Ryding, sérfræðing- ur verðbréfafyrirtækisins Bear Ste- arns í New York. Sumir sérfræðingar efast hins veg- ar um að lánsfé frá IMF muni eitt og sér geta læknað ástandið í Brasilíu. „Ef til raunverulegrar fjármagns- flóttabylgju kemur þá er 30 milljarða dollara neyðarlánapakki til lands af stærðargi’áðu Brasilíu hvorki fugl né fiskur," sagði Richard Portes, for- stöðumaður efnahagsmálarannsókna- stofnunarinnar Center for Economic Policy Research í Lundúnum. Samdráttur verri en verðbólga Til viðbótar við hina krepputak- markandi aðgerðaáætlun ítrekaði G7- hópurinn jafnframt þá skoðun, sem samþykkt var á fundi fjármálaráð- herra og seðlabankastjóra hópsins í byrjun október, um að í samdrætti fælist ekki minni voði fyrir efnahags- kerfi heimsins en hættunni á aukinni verðbólgu. Þessi samþykkt gaf vonum manna byr um að enn frekari vaxta; lækkanir kunni að vera á næsta leiti. I því sambandi beinist athyglin einkum að Englandsbanka, en peningamála- nefnd stjórnar hans kemur saman í þessari viku og samsvarandi nefnd bankastjórnar bandaríska seðlabank- ans fundar hinn 17. þessa mánaðar. Uppsveiflan í kauphöllum ___________ Bandaríkjanna hófst eins og kunnugt er þegar banda- ríski seðlabankinn ákvað óvænt að lækka vexti, og það í tvígang. í samþykktum G7-fund- —1 ■ arins í síðustu viku segir að samtökin vilji koma á eins konar „hegðunarreglum“ í hinu alþjóðlega fjármálakerfi, sem næði líka til ákvarðana um peningamálastefnu. En ákvarðanir um vaxtastig eru í iðnríkj- unum í höndum óháðra seðlabanka- stjórna. Og undanfarna áratugi hafa GORDON Brown, fjármálaráðlierra Bretlands (t.h.), seni um þessar mundir fer með forsæti í samtökum sjö helztu iðuríkja heims, og Eddie George, bankastjóri Englandsbanka, kynntu fyrir helgina áform samtak- anna um aðgerðir til varnar heimskreppu. ar séu sammála George. Á síðustu vikum hefur gengi hlutabréfa í New York og öðrum helztu kauphöllum heims hækkað um 15%. En áhyggjur efasemdamanna um að kreppuhættan sé liðin hjá byggjast ekki sízt á því, að ástand heimshag- kerfisins kunni að vera verra í raun en það endurspeglast á fjármála- möi'kuðum þessa stundina, að stjórn- endur seðlabanka iðnríkjanna kunni að verða mikium mun varfærnari en ________ stjórnmálamenn í því að grípa til hagvaxtarhvetjandi aðgerða, og að áætlun G7- hópsins sé ekki nógu vel frágengin og því of snemmt að byggja á henni. Áætlunin er þó að minnsta kosti almennt álitin heillavænleg tilraun til að draga úr áhættunni á jiví að til nýrra koil- steypa komi í viðkvæmum hagkerfum á borð við Brasilíu, sem hefur þurft að berjast í bökkum undanfarið. „Afstaða mín var mjög neikvæð, en nú er ég að verða allbjartsýnn, með fyrirvörum,“ sagði James McKay, hagfræðingur með Evrópumarkaðinn að sérsviði hjá ástralska samveldis- bankanum (Commonwealth Bank of Australia). „Þetta er mjög greinilega skref í rétta átt.“ 90 milljarðar dollara í sérsjóð IMF Kjarnaatriði í G7-áætluninni er að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, IMF, er falið það hlutverk að sinna neyðarlán- veitingum til landa sem virðast stefna í að verða neyðartilfelli. Hugsunin er sú að hagkerfúm sem ienda í erfið- leikum sé hjálpað fyrr í því skyni að afstýra hruni og hindra keðjuverk- andi áhrif af slíku, í stað þess að bregðast við afleiðingum þess háttar hruns eftir á. I þessum tilgangi er ætlunin að G7-ríkin ieggi neyðai'lána- sjóði IMF til 90 milljarða Bandaríkja- dollara til viðbótar. Búizt er við að Brasilíumenn nái í þessari viku samkomulagi við IMF um efnahagslega endurreisnaráætl- un, og að Brasilía verði fyi'sta landið Áhrif áhættu spákaup- mennsku í brennidepli þessir seðlabankastjórar talið sig fyrst og fremst skuldbundna því tak- marki að halda verðlagi sem stöðug- ustu. Kauphallarspekingar hafa viss- ar áhyggjur af því, að víða muni seðla- bankastjórar - einkum í Evrópu - láta stýrast að meira leyti af áhyggj- um af langtímaverðbólgustigi en jiví að fara eftir ályktun ráðamanna G7 um að aðgerðir gegn efnahagssam- drætti ættu að njóta forgangs fram yfir verðbólguvarnir. „Hinh- raunverulegu efnahagsörð- ugleikar heimsins eru mjög alvarlegir og efnahagur hans er enn að dragast saman. Hinn alþjóðlegi framleiðslu- iðnaður er í ki-eppu," sagði Giles Keating, sérfræðingur hjá Credit Su- isse First Boston í Lundúnum. Eitt dæmið um alvarlegar afieiðingar verðhjöðnunar sagði Keating að væru spár um að hagvöxtur á Bretlandi yrði á næsta ári lægri en hann hefur verið í hálfa öld, þar með talið tímabil þegar efnahagur landsins var sannar- iega í kreppu. Á þriðjudag flutti Gordon Brown árlega fjárlagastefnuræðu sína og lýsti í henni mun meiri bjartsýni á brezkan efnahag; hann myndi sleppa við kreppu þrátt fyrir samdráttinn á alþjóðavettvangi. Sagðist Brown gera ráð fyrir um 1% hagvexti í Bretlandi á næsta ári en eftir það myndi hann taka vel við sér. Hann spáði 2,5% hag- vexti á árunum 2000-2001, sem er mun bjartsýnni spá en óháðir efna- hagsmálasérfræðingar hafa treyst sér til að setja fram. í Bandaríkjunum eru síðustu hag- vaxtartölur hærri en menn höfðu þor- að að vona. En sérfræðingar benda á að þessar tölur, sem ná yfir þriðja ársfjórðung þessa árs, gæfu að vissu leyti ranga mynd þar sem í þeim væri ekki tekið tillit til neyzlusamdráttar í Bandaríkjunum í október. Hömlur á spákaupmennsku og meira gegnsæi G7-áætlunin er, samkvæmt mati Financial Times, í raun dagskrá sem ætlað er að hindra alþjóðlegar fjár- málakreppur í framtíðinni. Hún sé ör- ugglega til bóta, en hvorki hún né aðrar áætlanir sem fram hafa komið bjóða upp á neina allsherjarlausn. Þær tillögur áætlunarinnar sem hugsaðar eru sem langtímalausn beinast einkum að tvennu. I fyi’sta lagi hinu mikia misræmi sem er á milli þeirrar tiltölulega litlu áhættu sem þeir taka sem leggja fé sitt í spá- kaupmennskusjóði vestrænna fjár- málastofnana, og hinnar miklu áhættu sem þetta fé getur orsakað einkum í fjármálakerfi ríkja sem skemmra eru komin á leiðinni inn í hið alþjóðavædda hagkerfi iðnríkj- anna. Sérstaklega er hér átt við svo- kallaða „limgerðissjóði“ (hedge funds), sem eru spákaupmennsku- sjóðir í hæsta áhættuflokki og hafa orðið umdeildir einkum í kjölfar fjár- málakreppunnar í Suðaustur-Asíu. Hitt atriðið, sem er tengt hinu fyrra, er sá vandi sem felst í ógegn- sæi bókhalds alþjóðlegi'a stórfyrir- tækja og hagtalna sumra ríkja. Þetta ógegnsæi gerði það að verkum að vestrænar stofnanir áttu erfiðara með að gera sér gi’ein fyrir því hve alvarlegt ástandið væri orðið í við- komandi ríkjum og hve mikla áhættu lánardrottnar og fjárfestar væru í raun að taka - unz það var orðið um seinan að afstýra stórkostlegum skakkaföllum. Meginmarkmið G7 í þessu samhengi er gegnsæi. Alþjóðlegt eftirlit með bókhaldi fyi-irtækja og fjármálastofn- ana og strangari reglur um banka- starfsemi eni meðal þess sem koma skal. Einnig nær þetta til þess að bæta skuli löggjöf um fjár- og skattamál í _________ kreppuríkjunum, og IMF skuli hafa eftirlit með henni í þeim tilgangi að stuðla að öguðum vinnubrögðum við samantekt hagtalna. G7 er ennfremur í mun ..... að tryggja að einkareknir bankar og aðrar fjármála- stofnanir axli stærri hluta byrðanna þegar þörf er á opinberum stuðningi við fjármálakerfi einhvers ríkis. Þessu, auk bættra skiptareglna, er ætlað að þvinga lánastofnanir til að meta áhættu í ungum hagkerfum með ábyrgari hætti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Geta læknar huns- að gagnagrunninn? ✓ Stjórn siðfræðiráðs Læknafélags Islands hyggst beina því til lækna að þeir taki ekki þátt í gerð miðlægs gagnagrunns á heilbrigð- issviði. Páll Þórhallsson athugaði hvort gagnagrunnsfrumvarpið heimilaði slíkt. IVIKUNNI var gerð opinber umsögn stjórnar Siðfræðiráðs Læknafélags íslands um fmm- varp til laga um gagnagi-unn á heilbrigðissviði. Stjórnin telur að frumvarpið stríði gegn lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og regl- um Evrópuráðsins um lífsiðfræði. I niðurlagi umsagnarinnar segir: „Stjórn Siðfræðiráðs telur að um- ræða um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði sé skammt á veg komin og fjölmörgum spurningum ósvarað varðandi öryggi persónuupp- lýsinga. Stjórnin leggst því eindregið gegn frumvarpinu sem hér er til um- fjöllunar, og mun beina því til ís- lenskra lækna að þeir taki ekki þátt í gerð slíks gnmns.“ Rétt er að taka fram að siðfræðiráðið talar sem slíkt ekki fyrir munn félagsins en er til ráðgjafar í siðferðilegum efnum. Til- mæli af þessu tagi voru ekki rædd á nýafstöðnum aðalfundi Læknafélags íslands. Samkvæmt frumvarpi heilbrigðis- ráðherra verður gagnagrunnurinn þannig til að í hann eru fengnar upp- lýsingar, sem unnar eru úr sjúkra- skrám: „Að fengnu samþykki heil- brigðisstofnana eða sjálfstætt starf- a ndi heilbrigðisstarfsmanna er rekstrarieyfíshafa heimilt að fá upp- lýsingar, sem unnar eru úr sjúkra- skrám, til fíutnings í gagnagrunn á heilbrigðissviði. Heilbrigðisstofnanir skuiu hafa samráð við læknaráð og faglega stjórnendur viðkomandi stofnunar áður en gengið er til samn- inga við rekstrarleyfíshafa. (1. mgr. 7. gr. frv.)“ Umsagnarréttur Samkvæmt þessu ákvæði er ljóst að gögn geta ekki farið í grunninn nema heilbrigðisstofnanir eða sjálf- stætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn samþykki. Sjálfstætt starfandi lækn- ar hafa því neitunarvald. En hvað með þá lækna sem eru starfsmenn hjá heilbrigðisstofnunum? Sam- kvæmt frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir að samþykki þeirra þurfi til. Eingöngu er um það að ræða að heil- brigðisstofnun skuli hafa samráð við læknaráð og faglega stjórnendur við- komandi stofnunar áður en gengið er til samninga. í því felst umsagnar- réttur viðkomandi aðila en ekki neit- unarvald. Þá er það spurningin hvort leiða megi af öðrum ákvæðum laga rétt lækna til að hafna því að upplýsingar úr sjúkraskrám fari inn í gagna- gi-unninn. I 2. gr. reglugerðar nr. 227/1991 um sjúkraskrár og skýrslu- gerð varðandi heilbrigðismál segir að öllum læknum sé skylt að halda sjúkraskrá um hvern einstakling sem þeir taka til greiningar og meðferðar. I reglugerðinni er nákvæmlega rakið hvað eigi að skrá. Þessi skylda er fyr- iivaralaus, sbr. til hliðsjónar hæsta- réttardóm frá 1990 (H 1990.1364), þar sem ákært var m.a. fyrir van- rækslu á færslu slíkra skráa og skýrslna um læknisverk. I lögum er ekki skýrt kveðið á um það hver eigi sjúkraskrár, enda má halda því fram að þær geti ekki lotið eignarrétti í venjulegum skilningi, ekki frekar en skrár sem geyma per- sónuupplýsingar yfirleitt. I 1. mgr. 14. gi'. laga um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 segir einungis að sjúkraski'á skuli varðveita á heilbrigðisstofnun þar sem hún er færð eða hjá lækni eða öðrum heilbrigðisstarfsmanni sem hana færir á eigin starfstofu. Af þessu má draga þá ályktun að það sé helst heilbrigðisstofnunin sjálf sem hafi yfir sjúkraskránni að segja eða sjálfstætt starfandi læknir ef því er að skipta. Akvæði frumvarpsins eru því í samræmi við þessa skipan. Eftir að upplýsingarnar hafa ver- ið skráðar er lækni þá heimilt að koma í veg fyrir að upplýsingarnar fari lengra? Á lækni hvílir þagnar- skylda (15. gr. læknalaga nr. 53/1988 og 12. gr. laga um réttindi sjúklinga nr. 74/1997). Hún er þó ekki án undantekninga. Frá henni ber að víkja ef lög bjóða annað (2. mgr. 15. gr. læknalaga og 1. mgr. 13. gr. laga um réttindi sjúklinga). Eins má nefna að lækni er heimilt að veita öði'um heilbrigðisstéttum upplýsingar þegar um er að ræða rannsóknir og meðferð sjúklinga, sbr. 5. mgr. 15. gr. læknalaga. Ef frumvarpið yrði að lögum óbreytt væri lækni, sem ekki starfaði sjálf- stætt, samkvæmt þessu skylt að heimila að upplýsingar úr sjúkra- skrám færu í gagnagrunninn jafnvel þótt hann teldi það stríða gegn þagnarskyldu sinni. Árekstur skyldna Samkvæmt upplýsingum frá Guð- mundi Björnssyni, formanni Lækna- félags Islands, eru félagsmenn tæp- lega eitt þúsund. Ætla má að tvö til þrjú hundruð læknar séu sjálfstætt starfandi að hluta eða öllu leyti. Þessir geta því hafnað samstarfi við rekstrarleyfíshafa. Hinir, sem starfa hjá heilbrigðisstofnunum, hafa ekki rétt til þess gangi frumvarpið óbreytt eftir. Guðmundur segir að ráðuneytinu hafi verið bent á þann galla á frumvarpinu að réttur lækna væri ekki nægilega ríkur en þar hefði verið talað fyrir daufum eyr- um. Oskýr ákvæði gætu skapað vanda því læknar kynnu að lenda í þeirri stöðu að það rækjust á mikil- vægar starfs- og siðferðisskyldur er snertu trúnað við sjúklinga og hins vegar löghlýðnin. Guðmundur segir að læknar muni auðvitað fai'a að lög- um. Hins vegar væri hætta á að menn skráðu ekki það sem þeir ættu að skrá til að verja sjúklinga sína. Læknar litu nefnilega á sig sem hagsmunagæslumenn skjólstæðinga sinna. Þótt erfitt kunni að reynast að hrinda frumvarpinu í framkvæmd í andstöðu við lækna er samkvæmt þessu ljóst að þeir sem starfa inni á heilbrigðisstofnunum, en þar er upp- lýsingauppsprettan mest, geta lögum samkvæmt hvorki neitað að skrá upplýsingar né hindrað að upplýsing- ar úr sjúkraskrám fari inn í gagna- grunninn. Þetta er sagt með þeim fyriivara að gagnagrunnsfrumvarpið teldist standast ákvæði stjórnar- skrárinnar um friðhelgi einkalífs en um það eru skiptar skoðanir. Flestir myndu sjálfsagt hafa tilhneigingu, uns annað kemur í ljós, til að taka í því efni mest mark á áliti Lagastofn- unar Háskóla Islands, sem taldi frumvarpið standast að þessu leyti. Eins er rétt að benda á að ef stór hópur lækna þráaðist við og byggði það á siðareglum sínum væri ákaf- lega erfitt og sársaukafullt fyrir þjóðfélagið allt að beita þá viðurlög-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.