Morgunblaðið - 05.11.1998, Page 57

Morgunblaðið - 05.11.1998, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 5 7 í við hlið í kaffisamsæti, þegar einn af fyrrverandi samstarfsmönnum Eiríks hjá Vegagerðinni lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þá var Eirík hinn hressasti og sagðist hafa náð sér af þeim veikindum, sem hrjáð höfðu hann fyrr á þessu ári. Eirík hóf störf hjá Vegagerðinni 1961 og tók þá við forstöðu véla- deildar hennar. A þeim tíma var Vegagerðin einn allra stærsti eig- andi véla í landinu. í vélaflota hennar voru stórir bílar og jarð- vinnuvélar af öllum gerðum, auk sérhæfðra vegagerðartækja. Á þessum tíma var lítið um jarð- vinnuverktaka og Vegagerðin ann- aðist sjálf mest af framkvæmdum á þessu sviði, ýmist með eigin tækj- um eða hún réð til sín vélar frá búnaðar- og ræktunarfélögum eða öðrum eigendum tækja, sem gjarn- an voru þá einyrkjar. Véladeildinni fylgdi þá einnig rekstur nokkurra verkstæða vítt um landið, en á þessum tíma var viðhald vélanna krefjandi verkefni og ekki alltaf auðhlaupið að því að útvega varahluti. Þurfti oft að hafa uppi miklar og skjótar útveganir á þeim eða jafnvel smíða þá. Kom sér þá vel að hafa góð sambönd bæði innanlands og utan. Áður en Eirík kom til Vegagerð- arinnar hafði hann starfað hjá Vélanefnd ríkisins, sem á árunum eftir heimsstyrjöldina hafði með höndum umtalsverða vélaútgerð. Þar á eftir fór hann til Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO), og síðan til Bún- aðarsambands Eyjafjarðar. Hann þekkti því vel til vélareksturs þeg- ar hann hóf að vinna hjá Vegagerð- inni. Eirík reyndist mjög ötull í starfi sínu. Hann og samstarfsmenn hans á véladeildinni lögðu sig alla fram um að leysa þau vandamál fljótt og vel, sem upp komu vegna bilana og óhappa í vélarekstrinum. Þurfti þá oft mikillar útsjónarsemi við og vinnutíminn vildi teygjast fram á kvöldin, þegar eitthvað lá við. Aldrei taldi Eirík slíkt eftir, heldur var farsæl lausn höfð að leiðarljósi. Eirík naut þess einnig við útvegun varahluta, að hann var góður mála- maður og ræktaði sambönd sín við Norðurlöndin, sem og hinn ensku- mælandi heim. Mörg mál leystust þannig með skjótari hætti en ella hefði verið. Á áttunda og níunda áratugnum fóru umsvif Vegagerðarinnar minnkandi í vélarekstri, og um- hverfi hans breyttist jafnframt. Verktakar efldust og verkefni í vegagerð voru boðin út í sívaxandi mæli. Mátti merkja það hjá Eirík og reyndar fleiri starfsmönnum véladeildarinnar, að þeir söknuðu með nokkrum hætti hins fyrri tíma, þegar atið og stressið var meira. Á sjöunda áratugnum keyptum við nokkrir starfsmenn Vegagerð- arinnar saman jörð og áttum hana í hálfan annan áratug. Var Eirík einn í þeim hópi. Þar var smám saman komið upp frumstæðri að- stöðu til dvalar að sumrinu. Sú að- staða var fljótt mikið notuð af okk- ur og fjölskyldum okkar, og staður- inn naut mikillar hylli og þá ekki síst ungu kynslóðarinnar. Þar kynntist ég Þórunni, hinni traustu og góðu konu Eiríks, og dætrum þeirra tveim, Margréti og Þóru. Þarna var dvalið við leik og störf, en þetta leiddi einnig til meiri samgangs eigendanna allt ár- ið en títt er um samstarfsmenn. Var skipst á heimsóknum að vetr- inum og var jafnan gott að koma á hið myndarlega heimili þeirra Þór- unnar og Eiríks, þar sem rausn og höfðingsskapur réðu ríkjum. Skjótt skipast veður í lofti og nú er Eirík svo skyndilega hrifinn á brott. Við þau tímamót vil ég þakka honum fyrir langt og gott sam- starf, sem stóð í meira en aldar- þriðjung. Undir þær þakkir taka fjölmargir samstarfsmenn Eiríks hjá Vegagerðinni. Þórunni, dætrum þeirra Eiríks og fjölskyldum þeirra færi ég sam- úðarkveðjur mínar og minna. Megi tíminn sefa söknuð þeirra. Helgi Hallgrímsson. + Guðmunda Jó- hannsdóttir fæddist í Reykjavík 18. sept. 1920. Hún lést á Landspíta- lunum 22. október siðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Kristín Guðnadóttir, f. 22. apríl 1891, d. 8. júní 1942, _og Jó- hann Kr. Ólafsson, húsa- og brúar- smiður, f. 24. okt. 1883, d. 22. júní 1967. Heimili þeirra var í Reykjavík að und- anskildum sjö árum sem þau bjuggu á Selfossi. Þau eignuð- ust átta börn og lifa þrjú þeirra Guðmundu systur sína, en þau eru: Guðni, f. 24. sept. 1913, búsettur á Akranesi; Ein- ar Magnús, f. 2. mars 1928, bú- settur í Reykjavík, og Margrét Ragna, f. 8. ágúst 1929, sem býr í Mosfellsbæ. Látin eru Guðmundur, f. 18. febr. 1912, d. 30. jan. 1974; María, f. 6. febr. 1915, d. 3. febr. 1989; Ólafur, f. 13. des. 1922, d. 28. júní 1996, og Hrefna, f. 31. okt. 1932, d. 3. ágúst 1988. Guðmunda stundaði margs konar þjónustustörf frá unga aldri. Hún giftist Sigurþóri Sigurðssyni árið 1940, en þau slitu samvistir. Hún átti heimili Það er liðin hálf öld síðan ég sá Mundu mágkonu mína fyrst og man ég enn hve mér leið vel í návist henn- ar. Hún var afar þægileg í viðmóti, glaðsinna og skemmtileg og átti gott með að blanda geði við fólk. Smávax- in var hún og fíngerð kona, en ákaf- lega atorkusöm, dugleg, vandvirk en fljótvirk og undraðist ég oft hve miklu hún afkastaði, þegar hún stóð fyiir stóru heimili í Óddgeirshólum, en á því skeiði í lífshlaupi hennai- kynntist ég henni best. Það var hennar gæfa að gerast bústýra með drengina sína hjáþeim bræðrum, Óiafí og Jóhanni Árna- sonum í Oddgeirshólum, sem þá bjuggu þar með aldraðri móður sinni, Elínu Steindórsdóttur Briem. Henni leið strax vel á því góða heimili og bar hún í hvívetna hag þess fyrir brjósti frá fyrstu tíð. Hún virti og dáði húsmóðurina, sem átti eftir að verða tengdamóðir hennar, og ég held að það hafi verið gagn- kvæmt. Hún var sístarfandi og eignaðist góða vini í sveitinni sinni. Fljótlega fór hún að taka til sín sumarbörn úr hópi systkinabarna sinna og urðu dætur mínar, Mar- grét og Kristín, þeirrar gæfu að- njótandi sumar efth- sumar. Þótt barnahópurinn væri stundum stór, hafði heimilisfólkið einstakt lag á að stjórna honum og jafnframt að gefa þeim tíma til leikja, fara í fótbolta eða á hestbak o.s.frv. og voru bræð- urnir þá oft þátttakendur. Mér skilst að með breyttum bú- skaparháttum heyri það til liðinni tíð að koma börnum til sumardvalar í sveit. Er það stór skaði fyrir uppvax- andi æskufólk, þar sem fátt er þroskavænlegra fyrir það en að kynnast lífsháttum og störfum á góðu og reglusömu menningarheim- ili eins og Oddgeirshólaheimilinu. Eftir farsæla starfsævi brugðu þau hjón búi og fluttu heimili sitt til Selfoss og bjuggu þar síðasta rúma áratuginn. Að Olafi látnum uppfyllti Heiðar óskir stjúpfóður síns og flutti til móður sinnar til að vera henni styrkur. Nú að leiðarlokum þökkum við Einar Mundu fyrir alla velvild í okk- ar garð og barna okkar. Við stöndum í ævarandi þakkarskuld við Odd- geirshólaheimilið fyrir það veganesti sem það lét dætrum okkar í té út í lífið. Við biðjum Mundu blessunar guðs á nýi'ri vegferð og sendum börnum hennar og ástvinum öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigríður G. Jóhannsdóttir. á Akranesi um nokkurt skeið og eignaðist hún þá tvo syni með Ragn- ari Björnssyni. Þeir eru: 1) Hörður verkfræðingur, f. 14. maí 1949, kvæntur Guðrúnu Margréti Jónsdótt- ur verkfræðingi, f. 13. ág. 1963. Þau eru búsett í Dan- mörku. Börn þeirra eru Una, f. 14. febr. 1989, og Ragnar, f. 26. júní 1990. Dótt- ir Harðar frá fyrra hjónabandi er Drífa, f. 28. júní 1977, sem stundar þar nám í meinatækni. 2) Heiðar, f. 27. jan 1953, mat- sveinn. Hann er ókvæntur og barnlaus og býr á Selfossi. Ár- ið 1957 gerðist Munda ráðs- kona hjá bræðrunum Olafi og Jóhanni Árnasonum í Odd- geirshólum í Flóa. Hún giftist Olafi, f. 23. maí 1915, d. 19. maí 1996, og eignuðust þau eina dóttur, Kristínu, f. 24. febr. 1962, garðyrkjukonu, sem býr og starfar að Sólheim- um í Grímsnesi ásamt manni sínum Kristjáni Jónssyni tré- smið og tveim börnum, Eyrúnu Briem og Hákoni Fannari. Utför Guðmundu fór fram í kyrrþey frá Selfosskirkju laugardaginn 31. okt. Mig langar með nokkrum orðum að minnast fóðursystur minnar Guð- mundu Jóhannsdóttur og eigin- manns hennar Olafs Árnasonar frá Oddgeirshólum. Sem barn kynntist ég fólkinu í Oddgeirshólum i Flóa. Þá bjuggu þar þrír bræður, Ólafur, Guðmundur og Jóhann og fjölskyldur þeh’ra. I gamla bænum bjuggu Óli og Jói og Munda frænka mín var þá ráðskona þeirra. I nýja bænum bjuggu Gummi og Ilse og börn þeirra. Verkaskipt- ing var ákveðin. Óli sá um kýrnar, Gummi um féð og Jói var á vertíð á veturna. Konurnar sáu um heimilis- störfin. Og heimilin voru stór. Full- orðnir, eigin börn og sumai’börnin, auk allra gesta. En allh’ hjálpuðust að við daglegan rekstur. Ég átti því láni að fagna að vera „Oddgeirshólabarn". Þá á ég ekki bara við börnin frá Oddgeirshólum, heldur ekki síður okkur sumarbörn- in sem fengum að koma í sveitina á sumrin. Við biðum eftir að skólanum lyki, svo við kæmumst í sauðburðinn. Það var alltaf jafn spennandi með lömbin. Og þessi litlu gi’ey, sem komu stundum inn í eldhús til Mundu, fengu ullarteppi um sig og þornuðu og hitnuðu í volgum bökun- arofninum. Ég man eftir að ég sat stundum framan við opinn ofninn og sá líf færast í þessi litlu ósjálfbjai’ga lömb. En þau bröltu smátt og smátt á fætur og komust út aftur. Það var ekki mikið sagt, en ég lærði að lífið er mikils virði. Á stóru heimili verður að vera röð og regla og Munda stóð fyrir því. Að koma öllum á fætur á morgnana, sjá um mat og drykk meira og minna allan daginn og að sjá um að allir kæmust í bólið á kvöldin. Það hefur ekki verið auðvelt verk. Heimabakað kaffibrauð var alltaf til og rúgbrauð- ið hennar Mundu var alveg sérstak- lega gott. Best þó með heimareykt- um laxi. Hjá henni lærði ég líka að búa til flatkökur. Þetta með sælgæti var líka ákveðinn punktur. Börn í sumardvöl hafa sum með sér sæl- gæti og önnur ekki. Hjá Mundu voru ákveðnar reglur um það að allt nammi fór í einn pott og síðan skipL um við börnin því á milli okkar eftir hádegismatinn á hverjum degi. Þetta var „skammturinn". Ekkert rifrildi, allir fengu það sama. Lífið var í fóstum skorðum, en þó breytilegt. Kýmar voru alltaf á sama stað. Mjólkaðai’ kvölds og morgna. Við krakkarnir vorum vakin um klukkan átta og þá voru mjaltir að mestu búnar. Bara eftir að ganga frá og hleypa út. Ég sá venjulega um að gefa hænunum og hreinsa hjá þeim. Síðai’ fól Óli mér að hreinsa mjalta- vélarnar sem þurfti að gera sérstak- lega öðru hverju. Þetta þurfti að gera vel og ég var mjög stolt yfu’ að mér var falið þetta verk. Eftir sauðþurðinn þurfti að rýja ærnar og marka lömbin áður en rek- ið var á fjall. Síðan tók heyskapurinn við megnið af sumrinu. Ti’aktorar og heyvinnslutæki léttu vinnuna en ég lærði þrátt fyrir það að binda bagga og að drekka kaffi á engjunum. Frá því heyskap lauk beið maður efth’ réttunum. Skeiðaréttir, það voru bestu réttir í heimi. Nesti og hlý fót. Snemma í rúmið, en við sofn- uðum aldrei seinna eii þá. Spenning- ui’inn í algleymingi. Það var farið á tveim bílum, jeppa og vörubíl. Hluti af okkur krökkunum sat aftan á vörubílspallinum og hossaðist þar og hristist eldsnemma morguns í myrkrinu. En ekki hefðum við viljað missa af því fyrir nokkurn hlut. Állt féð sem fyllti réttina. Hestai’nir utan við. Bændur með pela á lofti og söngurinn fór vaxandi þegar líða fór á daginn. En sumardvölin var ekki bara vinna. Óli og Jói voru oft til í tuskið að „slást“ við okkur krakkana og gera okkur „rúmrusk“ á kvöldin. Og ekki má gleyma hestunum. í Odd- geirshólum voru til og eru enn af- bragðs hestar. Við krakkarnir feng- um oft að sækja hestana og fara í reiðtúra. Á rigningardögum lágum við inni og lásum. í bókahillunum kenndi ýmissa grasa og háaloftið var eins og gamall fjársjóður fyrir krakka sem gleyptu í sig allt sem stóð á prenti. Ég man að ég las allt frá „Arabahöfðingjanum" til „Vesal- inganna". Ég man vel eftir því þegar ég fór heim eftir fyrstu sumardvölina. Pabbi og mamma komu og náðu í mig. Þann dag kallaði Óli á okkur eitt og eitt. Við fengum sumarkaupið okkai’. Ég fékk 500 krónur. Ég hef aldrei verið eins stolt af neinum launum sem ég hef fengið. Óla hitti ég seinast á Landspítal- anum nokkrum vikum áðui’ en hann dó. Hann var enn samur við sig. Léttur í skapi, skarpur í kollinum og spurði athugull um mína hagi og mína fjölskyldu. Mundu hitti ég sein- ast fyrir ári. Lítil og grönn eins og fuglsungi, en ákveðin eins og venju- lega og krafturinn geislaði af henni. Eftir því sem ég hef orðið eldri hef ég kunnað betur og betur að meta dvöl mina í Oddgeirshólum og kynni mín af Oddgeirshólafólkinu. Og það kemur oft fyi-ir núna að ég minnist löngu liðinna atburða, bæði gleði og sorgar. Eg vil að lokum þakka Mundu og Óla samveruna og allt sem þau gáfu mér. Innilegustu samúðarkveðjur til Kristínar, Heiðars og Harðar og fjöl- skyldna þeirra og til Jóa, sem nú er einn eftir úr gamla bænum. Mig langai’ að lokum að vitna til ljóðs Stephans G. Stephanssonai’, Við verkalok: Er sólskins hlíðar sveipast aftanskugga um sumarkvöld og máninn hengir hátt í greinar trjánna sinn hálfa skjöld, er kveldkul andsvalt aftur kæla tekur mitt enni sveitt og eftir dagsverk friðnum nætur fagnar hvert fjörmagn þreytt, - En þegar hinzt er allur dagur úti og upp gerð skil, og hvað sem kaupið veröld kann að virða, sem vann eg til, - í slíkri ró eg kysi mér að kveða eins klökkvan brag og rétta heimi að síðstu sáttarhendi um sólarlag. Margrét Einarsdóttir, Lundi, Svíþjóð. Mig langar í örfáum orðum að minnast hennar Mundu móðursystur minnar í Oddgeirshólum, sem átti svo stóran þátt í lífi okkar systkina. Á kveðjustundu koma upp í hugann margai’ góðai’ minningai’ úr sveitinni sem gáfu svo mikið. Okkar samskipti hófust sumarið 1970 þegar við syst- m’nar komum þangað í okkar fyrstu sumai’dvöl aðeins sex og sjö ára gamlar og titluðum okkur kaupakon- ur. En að taka okkur svona ungar í GUÐMUNDA JÓHANNSDÓTTIR „kaupavinnu“ gerði Munda í greiða- skyni við móður mína, sem var ein með okkur þrjú systkinin. Seinna fylgdi bróðir okkar með, aðeins fjög- un-a ára gamall. Eitt er víst að okk- ur líkaði vistin vel hjá Mundu og átt- * um þar okkar annað heimili á upp- vaxtarárunum. Það var eins og að hljóta stóran happdrættisvinning að komast í sum- ardvöl að Oddgeirshólum, en þar bjuggu félagsbúi þeir bræður Ólafur, Guðmundur og Jóhann. í efri bænum bjuggu Guðmundur og fjölskylda, en í gamla bænum voru saman í heimili Jóhann og hjónin Ólafur og Munda, ásamt dótturinni Stínu. Við systkinin tókum slíku ástfóstrí við þetta heim- ili, að sumrin urðu ekki bai’a eitt eða tvö, heldur ellefu. Öll jóla- og páska- frí og flestar helgar voru nýttar til austurferða. Stína, dóttfrin á bænum, var sem systfr okkar og fús að deila öllu með okkur. Heiðai’ sonur Mundu lagði líka sitt af mörkum. Það var allt sem heillaði, skepnmTiar, lífið og störfin í sveitinni. Én helst af öllu var það mannlífið á bænum. Er það þeim öllum að þakka sem þar bjuggu, en mest þó natni Mundu og Óla við okk- ur systkinin. Sumarannir á þeim tíma voru miklar, enda búið stórt hjá þeim bræðrum. Allir lögðust á eitt og var vinnudagurinn oft langur. Með árun- um var svo komið að við systur vild- um ekki af neinu missa og tókum þátt í öllu af lífi og sál. Þau hjónin höfðu einstakt lag á að laða unga fólkið til verks og kenna handbrögð- in. Sérsvið Mundu í þeim efnum var heimilishaldið. Hún vann öll sín verk af miklu skipulagi og hraða. Heimili hennai’ bar vitni um snyrtimennsku og útsjónarsemi við nýtni í matar- gerð og öllu því sem sneri að rekstri heimilisins. Munda var lítil og grönn en bjó yfir ótrúlegum dugnaði og orku. Ósérhlífni hennar og kapp hreif mann með. Hún var alltaf létt í skapi og fann yfirleitt lausn á öllum málum hjá okkur börnunum. Hún kenndi okkur handavinnu af ýmsu tagi og ’ var óþreytandi að hvetja okkur áfram þótt eitthvað hefði misfarist og gat hún lagað allt sem virtist í augum okkar óþolinmóðra stelpnanna hrein- lega ónýtt. Á kvöldin las hún fram- haldssögu af innlifun fyrir okkur og valdi bókmenntirnar af kostgæfni. Það voru fleiri en við systkinin sem nutum velvildar og gestrisni þefrra hjóna. Sumardvalarbörnin voru mörg gegnum árin og gesta- koma mikil. Það var oft þéttskipað við matarborðið og á svefnloftinu. Allir voru velkomnir og kunni Munda þá list að töfra fram mat og bakkelsi með leifturhraða. Búrið virtist ótæmandi. Mjólkurbílstjórinn, sæðingarmaðurinn og allir sem áttu _ leið um litu inn, tylltu sér á litla eld- húsbekkinn og þáðu kaffisopa með örlitlu spjalli. Spilamennska var eitt þeirra áhugamála sem voru mikið stunduð á heimilinu og fylgdi henni oft gleði og hlátrasköll. Þar var ekki undan- komu auðið ef vantaði mann við borðið. Þar sátu allfr jafnir við borð, ungir sem aldnfr, og var reynt að kenna manni að taka tapi og sigri af æðruleysi. Mesta afþreying Mundu og ánægja að loknum löngum vinnudegi var að fara í garðinn sinn, þar sem hún af eigin rammleik og dugnaði kom upp grænmetisgarði í fúamýri fyrir neðan bæjarhólinn. Það var náttúrulega afrek út af fyrír sig, en að fá síðan væna uppskeru af hinum ýmsu tegundum grænmetis þegar líða tók á sumarið var annað afrek. I sauðburðinum var hún ómissandi þegar illa gekk. Var hún þá fljót að bregðast við með vaskafatið og sápuna út í fjárhús. Með sinni smáu hendi gat hún oftast togað út líf. Ef lömb voru köld og líflítil tók Munda þau inn í eldhús og hlúði að þeim. Mai’gt ungviðið endui’heimti líf í eld- húsi Mundu. Nú hefur Munda kvatt þennan heim og er horfin á vit annai’rar ver- aldai’, þar sem sjálfsagt verða ljúfir endurfundir hennar við horfna ást- vini. Hún var ekki feimin að tala um þau vistaskipti sem hennai’ biðu í ell- inni við hrakandi heilsu. Hún taldi þetta eðlilegan gang lífsins, enda þess fullviss að sín biði nýtt líf. Elsku Munda, hafðu mínar innilegustu þakkir fyrir allt. Kristín Sverrisdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.