Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 05.11.1998, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1998 63 FRÉTTIR IMECALUX Hlíf skorar á YSÍ og VMSÍ VE RKAMANNAFÉ L AGIÐ HUf sendi frá sér eftirfarandi ályktun: „Fundur haldinn í Verkamanna- félaginu Hlíf fimmtudaginn 22. október 1998, telur að nú þegar verði fulltrúar VSI og verkalýðsfé- laga innan VMSÍ að koma saman og ræða launahækkanir til verka- fólks til samræmis við þær hækk- anir sem annað íslenskt launafólk hefur fengið. Verði ekki samið um hliðstæðar hækkanir á launatöxtum verkafólks situr það eftir eina ferð- ina enn á allof lágum launum með- an aðrar stéttir fá verulegar launa- hækkanir í sinn hlut. Náist ekki sanngjörn leiðrétting á launum verkafólks nú eða fljót- lega á næsta ári hlýtur að koma til alvarlegra átaka á vinnumarkaðin- um þegar núverandi kjarasamning- ar verkalýðsfélaganna renna út. Verkalýðsfélögin munu ekki una stöðugt auknu launamisrétti í land- inu. Þann launamun sem skapast hefur á yfirstandandi samnings- tímabili verkafólki í óhag verður að vinna upp með góðu eða illu. Döpur reynsla verkalýðsfélag- anna af tímalengd núverandi kjara- samninga verður þess valdandi að aldrei aftur verður gerður samn- ingur til lengri tíma en 10-12 mán- aða í senn nema í honum verði skýr ákvæði um opnun ef einhver annar launahópur fær meira í sinn hlut.“ Jafnframt var skorað á hafnfirsk bæjaryfirvöld að hefja nú þegar viðræður við félagið um hliðstæðar launahækkanir og samið hafi verið um við Starfsmannafélag Hafnar- fjarðar nýlega. Þá var því mótmælt að sjálfvirk- ar verðbætur hefðu hækkað leigu á íbúðarhúsnæði umfram samnings- bundnar launahækkanir og stjórn- völd vítt fýrir sinnuleysi í heilbrigð- ismálum launafólks. VINNINGSHAFAR í ratleik í nágrenni Hafnarfjarðar. Frá vinstri: Reynir Ingibjartsson, Karl Fr. Ingvarsson, Halldór Björnsson, Jóhann Bragi Hermannsson, ásamt formanni ferðamálanefndar Hafnarfjarðar Jólakort Blindra- félagsins komin út UM ÞESSAR mundir eru að koma út jólakort Blindrafélagsins sem seld eru til styrktar blindum og sjónskertum á Islandi. I ár er Blindrafélagið með tvennskonar kort til sölu, fyrirtækjakort og ein- staklingskort. Fyrirtækjum og stofnunum verð- ur boðið upp á jólakort með fallegri landslagsmynd. Ljósmyndin er tek- in á Þingvöllum af Freysteini G. Jónssyni. Fyrirtækjakortin er hægt að fá með erlendri jólakveðju, íslenskri jólakveðju og án texta. Einstaklingskortin eru seld þrettán saman í pakka. Vatnslita- myndir eftir Erlu Sigurðardóttur, af íslensku jólasveinunum þrettán, prýða kortin. Hverjum sveini fylgir jólasveinavísa eftir Jóhannes úr Kötlum. Blindrafélagið hefur um 60 ára skeið fyrst og fremst treyst á stuðning almennings og atvinnulífs við starfsemi sína. Félagið veitir í dag fjölþætta þjónustu á flestum sviðum, s.s. húsnæðis-, atvinnu-, fé- VATNSLITAMYND Erlu Sig- urðardóttur af Bjúgnakræki prýðir eitt af 13 jólasveinakort- um Blindrafélagsins í ár. Á kortinu er einnig viðeigandi vísa eftir Jóhannes úr Kötlum: Níundi var Bjúgnakrækir, brögðóttur og snar. Hann hentist upp í rjáfrin og hnuplaði þar. Á eldhúsbita sat hann í sóti og reyk og át þar hangið bjúga, sem engan sveik. lags- og fræðslumálum, auk þess að miðla upplýsingum og lesefni til blindra og sjónskertra. Bjóðum mjög hentuga fataskápa. Aðeins vönduð vara úr gæðastáli. Mjög gott verð! Þjónusta • l’ekktng • ráðgjof • Arattiga rnymla MECALUX - gæði fýrir gott verð . UMBOÐS- oa HEILDVERSLUN - SUNDABORG í • SlMI S68-3300 Helgu Ragnheiði Stefánsdóttur og Gaflaranum, sem er verndari leiks- ins. Á myndina vantar Auðun G. Guðmundsson. Thor Vilhjálmsson sendir nú frá sér sína fyrstu stóru skáldsögu í Vinningshafí í ratleik í nágrenni Hafnarfjarðar DREGIÐ hefur verið úr innsend- um lausnum í ratleik sem boðið var upp á í sumar í nágrenni Hafnar- fjarðar. Helga Ragnheiður Stefáns- dóttir, formaður ferðamálanefndar, afhenti fimm þátttakendum vinn- inga í Upplýsingamiðstöð ferða- manna fyrir skömmu. Þetta er þriðja sumarið í röð sem upplýsingamiðstöð ferðamanna stendur íyrir slíkum ratleik en Pét- ur Sigurðsson, útivistarmaður, er hugmyndasmiður leiksins. Allir sem skiluðu inn lausnum fá sent viðurkenningarskjal fyrir þátt- tökuna. frímerki í dag koma út ný jólafrímerki og frímerki tileinkað Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. ^(tfpmyrA. Fyrstadagsumslög fást stimpluð á pósthúsum um tand allt. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkjasötunni. Sími: 580 1052 Fax: 580 1059 Veffang: www.postur.is/postphit PÓSTURINN F .R ( M LR.KJ-A.S A..L.A.N. Pí^JHIL nærri áratug. Þetta er örlagasaga af uppgangi og falli glæstasta höfðingja Sturlungaaldar, Sturlu Sighvatssonar. Bók sem geymir dýrkeypta visku um vatdið og drambsemina, ofbeldið og kærleikann og þá hetjuhugsjón sem við höfum tekið í arf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.