Morgunblaðið - 15.11.1998, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.11.1998, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ _ _ Reuters PALESTINSKAR konur sitja innan ura föggur sínar eftir aö Israelsher jafnaði hús þeirra, sem byggt var án tilskilinna leyfa, við jörðu. Vinnum að því að gera ranglætið sjáanlegt JEFF Helper er bandarísk- ur gyðingur sem fluttist til ísrael fyrir 25 árum. Hann hefur starfað með ísraelsk- um friðarhreyfingum um árabil en starfar nú með samtökum sem berjast gegn eyðileggingu palestínskra húsa. „ísraelskar frið- arhreyfingar hafa aldrei verið sterkar,“ segir hann. „Eftir Oslóar- samningana drógu þær sig enn meira í hlé og það er eins og þær hafi enn ekki áttað sig eftir að Net- anyahu komst til valda. Þær standa fyrir friðarsamkomum á nokkurra mánaða fresti en að öðru leyti er eins og þær viti ekld hvað þær eiga af sér að gera.“ Jeff segir máttleysi friðarhreyf- inganna hgfa orðið til þess að sam- tök gegn eyðileggingu palestínskra ✓ A undanförnum árum hafa ofbeldisfullar aðgerðir öfgasinnaðra heittrúarmanna oft- ar en ekki haft afdrifaríkar afleiðingar á --------a ——----------------------- deilu Israela og Palestínumanna. Minna hefur hins vegar farið fyrir þeim sem berj- ast friðsamlegri baráttu fyrir mannréttind- -------------------------r . . — ■■ -- um og afnámi hernáms Israela á Vestur- bakkanum. Sigrún Birna Birnisdóttir hitti tvo slíka menn og veitti því athygli að báðir leggja þeir áherslu á mikilvægi þess að umheimurinn beiti deiluaðila þrýstingi. húsa voru sofnuð fyrir einu og hálfu ári. „Við erum í raun fremur póli- tískur vinnuhópur en hefðbundin samtök,“ segir hann. „Erum að jafnaði fámennur hópur en getum safnað saman stærri hópi tii þess að takast á við ákveðin verkefni. Hefð- bundnar friðarhreyfingar mótmæla á friðsamlegan hátt en við byggjum starf okkar á aðgerðum sem oft mætti kalla borgaralega óhlýðni.“ Jeff segir samtökin leggja höfuð- áherslu á beinar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir að hús verði rifin. Þau leiti þó einnig annarra leiða til að ná því markmiði. Þannig komi þau t.d. palestínskum fjölskyldum, sem hafa fengið úrskurð um að hús þeirra skuli rifin, í tengsl við fjöl- skyldur bæði í ísrael og erlendis og útvegi fólki lista yfir þá sem hafa áhrif á ákvarðanatöku, þannig að það geti sett sig í samband við þá. Yfirleitt hús í íjar- lægum þorpuni Hann segir að yfirleitt sé um hús í fjarlægum þorpum að ræða sem hafi verið byggð án tilskilinna leyfa. Herinn leggi að jafnaði til atlögu snemma á morgnana eftir að karl- mennirnir eru farnir til vinnu. Hann umkringi þá húsið, reki fjölskyld- una út og hefjist síðan handa við að rífa það. „Jafnvel þó haft sé sam- band við okkur og við bregðumst fljótt við er afar ólíklegt að okkur takist að komast á staðinn í tíma,“ segii' hann. „I sumar varð hins veg- ar röð tilviljana til þess að til beinna átaka kom milli okkar og hersins. Við vorum að undirbúa mótmæla- fund í Ramallah þegar við heyrðum að verið væri að rífa hús í þorpi í ná- grenninu. Þetta var um eftirmiðdag sem er mjög óvenjulegt auk þess sem rúta, full af fólki á leið til mót- mælafundarins, var í nágrenninu. Við snérum rútunni til þorpsins og héldum sjálf af stað.“ Jeff kveðst hafa komið fyrstur á staðinn og segir að þar sem herinn sé ekki vanur því að hafa Israela á staðnum hafi hermennirnir ekki vit- að hvað þeir ættu við sig að gera. „Ég vissi að þeir myndu ekki skjóta mig svo ég gekk í gegn um varnar- línur hersins og tók mér stöðu með fjölskyldunni sem barðist gegn því að verða fjarlægð úr húsinu,“ segir hann. Rútan kom síðan á meðan átökin stóðu sem hæst og 40 ísrael- ar urðu vitni að blóðugri baráttu fjölskyldunnar og liðsmanna sam- takanna íyrir húsinu. Að auki voru fréttamenn CNN og CBS frétta- stofanna í rútunni þannig að mynd- um frá átökunum var sjónvarpað um allan heim. „Eftir að húsið var jafnað við jörðu héldum við barátt- unni áfram,“ segir Jeff. „Við feng- um 150 Israela til að koma og end- urbyggja húsið á þremur dögum. Herinn kom síðan og jafnaði það við jörðu á nýjan leik auk þess sem hann eyðilagði nú einnig garðinn og ólífutrén." Hann segist telja að þetta atvik hafi skipt sköpum. Það hafi vakið athygli heimsins á eyðileggingunni og orðið til þess að ísraelsk yfirvöld hafi nú tilkynnt breyttar vinnuregl- ur. Ákveðið hafi verið að láta 2300 hús á jaðarsvæðum á Vesturbakk- anum standa og samtökin líti á það sem áfangasigur þrátt fyrir að enn standi til að rífa ólöglegar bygging- ar í Austur-Jerúsalem og ósam- þykktar byggingar Bedúína. .Aðgerðir okkar miða fyrst og fremst að því að draga aðgerðir yf- irvalda fram í dagsljósið,“ segir hann. „Með því að gera ranglætið sjáanlegt munum við að lokum sigi'a kerfið. Við munum byggja húsið aft- ur og aftur. Við munum ekki hefja lagalegar deilur eða taka málið íyrir hæstarétt. Við lýsum því bara yfir Baráttan fyrir lýð- ræði varir að eilífu BASSEM Eid er palest- ínskur múslimi, sem er í forsvari fyrir palest- ínsku mannréttinda- samtökin Monitor. Hann er ríkisfangslaus eins og flestir Palestínumenn en hefur ísra- elsk persónuskilríki þar sem hann er búsettur í Austur-Jerúsalem. „Ég tel að ástandið í mannrétt- indamálum, eins og reyndar öllum öðrum málum, hafi versnað frá því Palestínumenn tóku við stjórn á Vesturbakkanum,“ segir hann. „Ég er ekki að segja að mannréttinda- brot Palestínumanna séu verri en brot ísraela eða að við vildum held- ur vera hemumin en það er mun sárara að þola mannréttindabrot okkar eigin manna en brot Israela. ísraelar eru óvinir okkar og maður býst við hörku frá óvini sínum á sama tíma og maður hefur ákveðnar væntingar til sinna eigin yfirvalda." Bassem segir einnig sárt að sjá hversu lík mannréttindabrot yfir- valda á palestínsku sjálfstjórnar- svæðunum séu mannréttindabrot- um Israela. Enda hafi komið í ljós að flestir þeir sem standi að pynt- ingum í palestínskum fangelsum hafi einhvern tíma verið pyntaðir af Israelum. „Monitor-samtökin voru stofnuð í desember árið 1996 til þess að fylgjast með mannréttindabrotum yfirvalda á palestínsku sjálfstjóm- arsvæðunum," segir hann. „A þeim tíma voru u.þ.b. 20 mannréttinda- samtök starfandi í Palestínu. Þau einblíndu hins vegar öll á mannrétt- indabrot Israela, útþenslu land- nemabyggða, eignarnám lands og eyðileggingu palestínskra húsa. Ekkert þeirra treysti sér til þess að takast á við mannréttindabrot palestínskra yfirvalda og því stofn- uðum við sarrítökin til þess að takast á við brot þeirra.“ Bassem segir það einnig hafa verið vandamál að öll þessi mann- réttindasamtök hafi tengst stjórn- málahreyfingum og því hafi gagn- rýni þeirra á mannréttindabrot Israela orðið hluti af þjóðernis- stefnu. „Fyrir okkur eru mannrétt- indi hins vegar algert grundvallar- atriði sem hefur ekkert með stjórn- málaskoðanir að gera,“ segir hann. „Við vinnum starf okkar af hlut- lægni og án allra tengsla við stjórn- málasamtök. Palestínsk yfirvöld kalla hins vegar alla gagnrýni róg- burð og gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að gera okkur og starf okkar tortryggilegt. Þetta Morgunblaðið/SBB BASSEM Eid á skrifstoíú sinni í Austur-Jerúsalem. hamlar allri starfsemi okkar sem íyrst og fremst byggir á upplýs- ingaöflun. Fólk óttast viðbrögð yfir- valda. Það óttast hefnd öryggis- sveitanna og hikar því við að veita okkur upplýsingar.“ Hann segir þetta þó vera að breytast. A undanförnum tveimur til þremur árum hafi samfélagið verið að missa traust sitt til yfir- valda. Fólk hafi misst vonina og sé því viljugi-a til að tala um mannrétt-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.