Morgunblaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ HÁRLOS? GANGIÐ í KLÚBBINN! ________FÓLK í FRÉTTUM Brecht á erindi Regency Crown-hárlosklúbb- urinn býður auðveldustu og ódýrustu leiðina að nýjustu meðferðunum við hárlosi, sem viðurkenndar eru af læknum. Inntökugjald er ekkert og þegar þú hefúr skráð þig í klúbbinn færðu reglidega nýjar tiltækar upplýsingar um nýjustu meðferðir og eftii við hárlosi - án þess að borga krónu. Engin kvöð er á því að kaupa vörur frá okkur og þú getur hætt sem meðlimur hvenær sem er. - Allar nýjustu meðferðir og efni við hárlosi ' - Hagkvæmustu verð - Ókeypis nýjar upplýsingar reglulega^^- j'yrir - Ókeypis aðild karía og konur GANGIÐ í KLÚBBINN í DAG ÓKEYPIS - HRINGIÐ EÐA SENDIÐ UMSÓKN NÚNAl REGENCY CROWN HAIR CLINICS, 80 Parliament Streett, Ramsey, Isle of Man, British Isles IM8 ÍAQ Sími: +44 1624 817456. Fax: +44 1624 817458. Netfang: regency-crown@advsys.co.uk Góðfúslega skráið mig í Regency Crown-hárlosklúbbinn og sendið mér fyrsta ókeypis upplýsingapakkann minn. Mér skilst að allar upplýsingar sem veittar eru nú og framvegis séu ókeypis, að ég sé ekki skuldbundin(n) til að kaupa neitt og að ég geti hætt aðild að klúbbnum hvenær sem er. NAFN:______________________________Hr./Frú/Frk.:_________ ' HEIMILISFANG:___________________________________________ LAND: Regency Crown hárlosklúbburinn Söngkonan Sif Ragn- hildardóttir lætur hendur standa fram úr ermum. Fyrst sló Marlene Dietrich í gegn, síðan gríska sýn- ingin og nú heiðrar hún Bertolt Brecht á hund- rað ára afmæli hans. Hildur Loftsddttir leit inn í Iðnó. VERIÐ ER að leggja síðustu hönd á undirbúning næstu sýningar Brecht-dagskrárinnar, og Sif ætlar að rifja upp nokkur lög eftir veik- indi. Elín Edda Árnadóttir búninga- og leikmyndahönnuður þeytist fram og aftur um sviðið með leikhluti á meðan tónlistarmennirnir Karl 01- geirsson og Arni Scheving koma sér fyrir í rólegheitunum og tæpa á lag- inu um Makka hníf (Mack the Kni- fe). Leikstjórinn Helga Jónsdóttir segir til um staðsetningar á sviðinu og svo byrjar Sigurður Skúlason leikari í hlutverki Brechts að segja frá. Breyskleiki manneskjunnar Litríkar persónur koma og fara syngjandi um örlög sín og líðan í næmri túlkun söngkonunnar Sifjar. Blaðamaður fær hana til að setjast niður á eftir og segja frá því hvern- ig hugmyndin að sýningunni kvikn- aði. „Eg hef lengi haft mikið dálæti á JÓLABLAÐAUKI Jólamatur, gjafir ogföndur Auglýsendur athugið! Bókið auglýsingar í tíma þar sem uppselt hefur verið í jólablaðauka fýrri ára. Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 þriðjudaginn 17. nóvember. Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn auglýsingadeildar í síma 569 I I 11. AUGLYSINGADEILD Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn SIF Ragnhildardóttir söngkona er með hátíðarsýningu í Iðnó í tilefni af 100 ára afmæli Bertolts Brecht. Brecht og fékk fyrir nokkrum árum hugmynd að sýningu sem yrði söng- dagskrá fyrst og fremst en ekki leikverk. Ég valdi lögin sem eru eft- ir Weill, Hanns og Eisler og Por- steinn Gylfason þýddi ljóðin. Leik- handritið samdi hann ásamt Þor- steini Þorsteinssyni, og það er skrif- að út frá lagavalinu til að varpa frekara ljósi á ljóðin, aðdraganda þeirra og sögu. Breeht var barn síns tíma og lýsir vel í leikritum sínum, og þó sérstaklega ljóðunum, samtíma sín- um og tíðar- anda. Ljóðin eiga eigi að síður erindi til okkar í dag, því þau fjalla um manneskj- una og breyskleika hennar. Brecht var snillingur í að lýsa hversdagslífi fólks af öllum þjóðfélagsstigum - samskiptum þess og örlögum. Með leikritum sínu vildi hann sýna fram á að þótt heimurinn sé samur við sig, eins og hann orðaði það, þá sé hann breytinga þui’fi og breytanleg- ur.“ Ograndi og heillandi - Hvnð heillar söngkonuna við lögin? „Það er söguform ljóðanna. Ball- aðan er svo skemmtileg! Hin epíska ballaða setur atburðarásina á svið og þar er að finna heilu orðaskiptin, sem eru að sjálfsögðu löguð að hætti ljóðsins. Þetta kallar á talsöng sem mér finnst afar spennandi söngform fyrir mig, mína söngrödd og minn stfl. Þetta form er oft erfitt og því ögi-andi og heillandi ef vel tekst til. En oft er bailaðan líka bara lítið sögukorn, einfóld frásögn áf atburðum líðandi stundar. Upp- runa ballöðunnar er að finna hjá götusöngvurum sem fluttu vísur um ýmsa atburði líðandi stundar og oft á tíðum ógnvekjandi atburði eins og morð og aðra glæpi. Ballaðan um Makka hníf er gott dæmi um það.“ Erfið og löng leið - Hlustaðir þú á marga aðra söngvara syngja þessi lög? „Já, ég hlustaði á marga söngv- ara. Oft er talað um Brecht-söngv- ara, og margir hafa ákveðnar hug- myndir um hvernig eigi að túlka og syngja ljóðin hans. Frægastar eru vafa- laust þær Gisela May ogLotte , Lenya en þær eru gjörólíkar, sem og karl- söngvai’am- ir Ekkehard Schall og Torsten Föllinger sem ég hef mikið dálæti á. Þýska kabarettsöngkonan Ute Lemper er þó sú sem mér finnst hvað skemmti- legust því hún er svo óútreiknanleg. Hún nýtir sér allan tilfinningaskal- ann og gerir það snilldarlega vel. Það kom mér á óvart að heyra Brecht sunginn af óperusöngkon- um. Þar tekst Theresu Stratas bet- ur en hinum að ljá textanum við- kvæmni og blíðu án þess að verða væmin. Að lokum fann ég minn eigin stíl, en það var býsna erfið og löng leið. Styrkur minn sem söngkona felst í túlkun þeirra ljóða sem ég flyt hverju sinni og því þarf ég að skilja innihald þeirra vel. Brecht er erfið- asta viðfangsefnið mitt hingað til og ögrunin felst í því að vita ekki fyiir- fram hvernig þetta gæti hugsanlega orðið ef verður þá nokkuð úr því. Þorsteinarnir tveir opnuðu mér skilning á efninu og án þeirra hefði ég sjálfsagt guggnað á þessu. Dag- skráin er hins vegar komin upp á svið í Iðnó og næsta sýning er á fimmtudagskvöld kl. 20.30,“ segir hin brosandi og hlýja Sif að lokum. Morgunblaðið/Jón Svavarsson FAGNAÐARLÆTI á frumsýningu; Sig- urður Skúlason, Þorsteinn Þorsteinsson, Þorsteinn Gylfason, Árni Scheving, Karl Olgeirsson og Sif. vlár^ífr Eja mánaða námskeið í kvikmyndagerð c. 18. janúar -13. mars Innritun stendur yfir í síma 588 E7Sa & 89G 05G0 www. islandia.is/kvikmyndaskoli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.