Morgunblaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Hversdagspopp Morgunblaðið/Þorkell Á Húsmæðragarðinum, plötu Nýdanskrar, er vandað popp að fínna að mati gagnrýnanda. Tannhjól ýmissa gerða og stærða TOJVLIST Geisladiskur Húsmæðragarðurinn Húsmæðragarðurinn, plata hljóm- sveitarinnar Nýdanskrar. Nýdanskir eru Jón Ólafsson, Stefán Hjörleifs- son, Ólafur Hólm og Björn Jörundur Friðbjörnsson. Björn semur öll lögin nema þrjú, Jón Ólafsson á tvö og Ólafur Hólm eitt lag. Upptökur og hljóðblöndun annaðist Ken Thomas. Umslag hannaði Anna Júlía Frið- börnsdöttir. Skífan gefur út. HLJÓMSVEITIN Nýdönsk er ekki alls ókunn landsmönnum, í ár eru liðin tíu ár frá því hún gaf fyrst út og er ekki enn búin að gefa upp öndina því nýlega kom út geisla- diskurinn Húsmæðragarðurinn eft- ir nokkurt hlé sveitarinnar. Daníel Agúst, fyrrverandi söngvari sveitar- innar, hefur yfirgefið hana enda upptekinn við störf í fjöllistahópn- um Gus Gus en Björn Jörundur Friðbjörnsson hefur tekið við hljóð- nemanum í stað hans, að öðru leyti er meðlimaskipan sú sama og nær allan feril Nýdanskrar. Diskinn prýða tíu lög, öll eftir meðlimi sveitarinnar, flest reyndar feftir Björn Jörund, popp, oft rólegt og ómþýtt og því ekki ólíkt því sem sveitin gerði áður á ferli sínum. Ekki er beinlínis hægt að segja að Nýdönsk hafi staðið í stað, hljómur- inn er nýr og að sumu leyti laga- smíðamar en þó er líkt og Hús- mæðragarðurinn sé beint framhald og fyrirsjáanlegt frekar en þróun á fyrri verkum sveitarinnar. Geisladiskurinn hefst á sínu besta lagi , Hei þú, „grúvi“ sem sýnir Nýdanska upp á sitt besta, pottþétt >útsetning styður góða laglínu og lof- ar góðu um framhaldið. Annað lag- ið, „Pú ert svo“, gefur betri mynd af Húsmæðragarðinum, tónlistin dregur mjög dám af Nýdanskrar- poppi fyrri tíma og gæti í raun allt eins hafa verið á einni af fyrri plöt- um sveitarinnar, þetta á svo við um mikið af framhaldinu sem er miður. Þrátt fyrir að hljómurinn sé að mörgu leyti nýr þá er tónlistin sú sama á margan hátt. Kannski er ekki við öðru að búast þegar hljómsveit sem á sér svo langa sögu kemur saman á ný en að hún sé sjálfri sér lík. Einnig er nokkur eftirsjá að Daníel Ágústi fyrrverandi söngvara sveitarinnar, rödd Björns Jörundar er skemmti- leg en þó aðeins í hófi, gróf röddin verður þreytandi við mikla hlustun og veik rödd Jóns Ólafssonar gefur litla tilbreytingu. Hins vegar er ekki að sjá að lagasmíðum sveitar- innar hafi farið aftur þrátt fyrir brotthvarf Daníels, gallinn er sá að þær hafa ekki þróast. Þrátt fyrir að votti fyrir slíku t.d. í lögunum Hei þú og Húsmæðragarðinum er það alls ekki nógu oft. Textagerð er einnig frekar lík gömlum viðfangsefnum Nýdanskr- ar, hversdagsleg málefni eru Birni Jörundi kær, en hann semur megn- ið af textum geisladisksins, textar eins og Hei þú og óskilamunir eru ágætir til síns brúks en vekja hlust- andann ekki til mikillar umhugsun- ar, textinn við titillag plötunnar er lélegur, og spillir laginu nokkuð, „Maður útí glugga / maður úti búð / kona útí glugga / krakkar undir súð“. Umslagið er afar vel gert og því miður sjást svo fagmannlega unnin umslög allt of sjaldan. Hins vegar á það lítið eða ekkert skylt við við- fangsefni plötunnar, sem þarf reyndar alls ekki að vera ókostur í sjálfu sér. Hljóðvinnsla er einnig fyrsta flokks enda ekki við öðru að búast frá svo gamalreyndri hljóm- sveit auk þess sem Jón Ólafsson hefur fyrir löngu getið sér gott orð fyrir upptökustjórn. Nýdönsk hefur ávallt sent frá sér vandað popp og svo er einnig í þetts sinn en þó er eins og metnaðinn vanti í þetta sinn, metnað til að gera ferska plötu í stað þess að gera enn eina Nýdanskrar-poppplötuna, sú plata hefur komið út áður. Gísli Árnason TOJVLIST Geisladiskur LHOOQ Fyrsta breiðskífa þrieykisins Lhooq, samnefnd því. Sveitina skipa Pétur Hallgrímsson gítarleikari, Jóhann Jó- hannsson hljómborðsleikari og Sara Guðmundsdóttir söngkona. Lög eftir þá Jóhann og Pétur. Þeim til aðstoðar í nokkrum lögum eru meðal annarra Guðni Finnsson bassaleikari, Ólafur Björn Ólafsson trommuleikari og Pét- ur Grétarsson sem leikur á marimba og víbrafón. 42,10 mín. Echo gefur út, Japís dreifír hér á landi. SUMAR plötur eru fljótteknar, við fyrstu hlustun greinast þær sundur í frumþætti og án tvímæla. Aðrar eru flóknari, þær hljóma dægilega við fyrstu hlustun og aðra, en það er ekki fyrr en búið er að hlusta oft að þær láta undan og inn- viðirnir koma i ljós. Plata Lhooq er einmitt þeiirar gerðar sem sýnir á sér nýja hlið við hverja hlustun, plata sem hægt er að sökkva sér í til að veiða upp hugmynd- ir og velta á alla kanta. Mest hafa lög- in Bogus og Losing Hand verið leikin í útvarpi, en þau eru langt í frá bestu lögin, nefni sem dæmi Missile, sem er hreint frábært lag, Take Me Away, Darkness, sem er fyrirmyndar popp- lag, More to Life og BEM. Eini galli plötunnar, ef galla skyldi kalla, er að hún er of fáguð, of miklum tíma hefur verið varið í fægja og slípa svo hvergi er misfellu að finna. Á köflum eru út- setningamar þannig of yfirvegaðar og hljóð fúll meinlaus, til að mynda Call- ing Me þar sem beitt og gróf hljóð koðna niður í meinleysishljóma í stað þess að fá að njóta sín. Það er reyndar gamli hippinn Steve Hillage við stjómvölinn með þeim Lhooq-liðum og kannski honum um að kenna að einhveiju leyti. Sara Guðmundsdóttir syngur geysi vel á plötunni og hefur á valdi sínu ólíkar stemmningar og túlkun- armáta eins og má til að mynda heyra í Take Me Away, þar sem hún er örlítið lífsþreytt og beisk, en í næsta lagi á eftir bregður hún fyrir sig upphafinni seiðandi ungæðislegri rödd. Segja má að hún sé stjama þessarar plötu, að minnsta kosti á yf- irborðinu því þegar kafað er undir Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir SARA Guðmundsdóttir á útgáfutónleikum Lhooq í Loftkastalanum. slétt og fellt yfirborðið kemur í ljós fjölskrúðugur vélbúnaður; safn tann- hjóla ýmissa gerða og stærða sem miða tónlistinni markvisst framávið af óstöðvandi þunga og seigju. Sá þáttur skrifast á þá Jóhann og Pétur. Textar eru almennt mjög góðir og sumar linur eftirminnilegar, en aðrir uppskrúfaðir í lærdómi sínum og sið- fágun. Frumraun Lhooq er framúrskar- andi plata, áheyrileg og gefandi, og mun eflaust skipa sér á bás með bestu skífum ársins. Árni Matthíasson DÚKKURNAR eru kallaðar gælunöfnum stelpnanna, eða Fína kryddið, Hræðslukryddið, Barnakryddið og íþróttakryddið. Kryddaðar NU eru það tuskudúkkurnar! Söluvarningur sem framleidd- ur hefur verið í tengslum við Kryddpíurnar nálgast nú him- inháar stæður. Þó finnst sum- tuskudúkkur um ástæða til að bæta í safnið og það nýjasta á markaðnum eru kryddtuskudúkkurnar og komu þær á markaðinn í Bandarikjunum f vikunni. Dion í frí um árabil eftir aldamótin CELINE Dion hefur átt gífur- legum vinsældum að fagna upp á síðkastið og hafa plötur hennar selst í tugum milljónum eintaka. Rene Angelil, eiginmaður hennar og umboðsmaður, segir að popp- stjarnan muni taka sér nokkurra ára hvíld eftir aldamótin 2000. Hann sagði í viðtali við kanadíska sjónvarpsstöð að hann og Dion væru að skipuleggja tón- leika í Montreal við aldahvörfin og eftir það myndi hún taka sér hvfld. Dion mun þó ljúka tón- leikaferð sinni um heiminn áður en að hvíldinni kemur svo hún geti lifað „venjulegu lífi“, að sögn Angelil. Á rólegu nótunum Morgunblaðið/J úlíus Sveinn Hauksson. TOJVLIST Geisladiskur SÓLFINGUR Sólfíngur, geisladiskur Sveins Há. Söngur: Sigurður Ingvars- son, Rannvá Olsen og Sveinn Hauksson. Hljóðfæraleikur: Sveinn Há, Jóhann Ásmundsson, Jón Ólafsson, Þórir Úlfarsson, Þorsteinn Gunnarsson, Jóhann Hjörleifsson, Eyþór Arnalds, Dan Cassidy, Þórir Lárusson og Eggert Pálsson. Diskurinn var hljóðritaður í Hljóðrita, Stöðinni og Sultardropanum á árunum 1993-1998. Upptökumenn voru Þórir Úlfarsson, Axel Einarsson og Sveinn Ilauksson. Sultar- dropinn gefur út. SÓLFINGUR er ekki fyrsta útgáfa Sveins Há, það er þó orðið nokkuð langt síðan síðast heyrðist í honum en geisladiskurinn hefur verið í vinnslu síðan 1993. Á honum eru tíu lög, öll eftir Svein utan eitt. Líklega flokkast tónlist Sveins sem gítarpopp, öll einkennast lögin af gítarleik Sveins og rólegum stemmningum, órafmögnuð hljóð- færi eru nær einráð á Sólfingrum, fiðla, selló, flygill og órafmagnaður gítarleikur sjá til þess að hlustand- inn æsist ekki um of. Hljóðfæraleikur er allur afbragð enda hefur Sveinn fengið valin- kunna menn sér til aðstoðar, næg- ir þar að nefna Dan Cassidy fiðlu- leikara, Jón Ólafsson sem leikur á hljómborð og flygil og Eyþór Arn- alds sem leikur á selló. Fyrstu lög geisladisksins hljóma einkum vel, lögin Sólfingur, Dvergurinn og Kertaljós í vindi eru öll kraftmikil og vel flutt, gítarleikur Sveins er áberandi, svo og „latin“-skotin hrynjandi sem vekur áhuga hlust- andans. Fagmannlegar útsetning- ar og góður hljómur hjálpa einnig. Þegar lengra líður á hlustun fara lögin því miður að gerast æ eins- leitari og rólegri, jafnvel svo jaðr- ar á stundum við að verða niður- drepandi, slíkt er þó smekksatriði að sjálfsögðu. Ber þá einkum að nefna lagið Hernámið, tilbreyting- arlaust hjakk sem líður fyrir slak- an texta og túlkun hans, gítarleik- ur liggur mun betur fyrir Sveini en söngur. Textar geisladisksins eru hins vegar almennt nokkuð vel smíðað- ir, vel er farið með íslenskuna og sérstaklega er textinn Móðir ágætur þótt ekki sé yrkisefnið það frumlegasta sem heyrst hefur. Meðferð textanna er einnig góð, söngur Sigurðar Ingvarssonar og Rannváar Ólsen falla vel að tónlistinni og textunum, þau eru bæði prýðis söngvarar og hafa tilfinningu fyrir tónlist- inni. Umslag geisladisksins er smekklega unnið, leggur áherslu á gítarleik Sveins, myndin á framhlið bæklings- ins er samsett af rafgítar og blóðrauðu sólarlagi, sem er mjög í stíl við innihald disks- ins, hógvær en oft litlaus und- irleikur skapar bakgrunn fyrir söng og svo gítarleikinn. Helsta lýti umslagsins eru ótrúlega margar stafsetning- arvillur í svo blaðsíðufáum bæklingi, engin vanþörf hefði verið á prófarkalestri áður en hann fór í prentun. Sveinn er frambærilegur gítar- leikari, ber oft uppi geisladiskinn og bjargar honum frá því að verða of einsleitur. Meiri vinnu hefði þó mátt leggja í önnur hljóðfæri og út- setningar þeirra, helst er það fiðlu- leikur Dan Cassidy sem sker sig úr. Ekki er það svo að hljóðfæra- leikararnir standi sig illa sjálfir, það fer tónlistinni einfaldlega illa að allur hljóðfæraleikur sé borinn uppi af einu hljóðfæri, betur hefði verið ef samspil hefði verið meira og fyrir vikið hefði Sólfingur orðið heilsteyptari og líflegri afurð og þ.a.1. áheyrilegri. Gísli Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.