Morgunblaðið - 15.11.1998, Page 37

Morgunblaðið - 15.11.1998, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 37 MINNINGAR STANLEY KIERNAN sameiginlega uppáhalds lið. Svo fórum við stundum í Ölver saman en við sögðum engum frá því. Afi minn gat verið stríðinn og má segja að jafn stutt hafi verið hjá honum í stríðnina og hláturinn. Honum fannst gaman að gagnrýna og efast um getu alþingismanna en ég veit að það var meira gert til að stríða ömmu heldur en hitt. Öði-u hvoru sagði hann mér hversu mikinn leiða hann væri kominn með á Islandi og hvað hann langaði mikið út tii Englands. Hann blótaði veðurfarinu hér og lýsti fyrir mér græna grasinu hin- um megin hafsins. Oftar en ekki lét hann af verða og ferðaðist til ætt- ingja sinna í Englandi, dvaldi þar í mánaðartíma en var svo kominn aftur heim til Islands. Oftast var hann feginn að vera kominn heim. Hann var nefnilega hrifinn af Is- landi, bjó hér meirihlutann af ævi sinni og átti hér flesta vini sína og fjölskyldu. Mér hlotnaðist sá heiður að fá að búa í kjallaranum heima hjá afa mínum og ömmu í eitt ár. Þeim kynnum sem tókust með okkur þremur á þessu ári sem ég bjó hjá þeim mun ég búa að alla mína ævi. Afi minn varð vinur minn og amma mín vinkona mín. Eg hélt mikið upp á afa minn og hann gaf mér óendanlega margt sem ég mun alltaf varðveita innra með mér. Hann kenndi mér þolinmæði og hann hvatti mig til dáða. Hann lýsti stolti sínu yfir því sem ég gerði rétt og rökræddi það við mig sem hon- um fannst betur mega fara. Hann gaf mér trú á sjálfan mig og veitti mér gleði í hjarta. Hann var sterk- ur karakter og vissi nákvæmlega hvað hann vildi. Hann hefði ekki viljað að ég skrifaði væmna minn- ingargrein um sig. Hann var St- anley Kiernan og hann var yfir alla gagnrýni hafinn. Afi minn var, merkilegasti maður sem ég hef kynnst. Kjartan Orn Sigurðsson. Elsku afi. Við þökkum þér þær fjölmörgu ánægjustundir sem við áttum saman. Minningar um ótal hluti koma nú í hugann og það er erfitt að trúa því að þú skulir ekki sitja lengur í stólnum þínum eða við tölvuna. Það var svo gaman að koma og gefa þér stóran rembings- koss. Fallega brosið þitt og hlátur- inn kom öllum í gott skap. Aldrei munum við gleyma laugardags- morgnunum með þér í Kolaportinu og Kringlunni eða ævintýraheimin- um í bílskúrnum. Þú varst svo mik- ill félagi, við lékum okkur með járnbrautarlestina, þú hlustaðir á okkur og það var svo gaman að hlusta á sögumar þínar frá því þú varst strákur í Englandi, úr stríð- inu, frá tívolíinu og úr sælgætis- gerðinni. Ef þú vissir hversu oft við höfum sagt vinum okkar: Afi okkar fann upp ... og afi okkar er ..., já, þú varst og ert sannkallaður galdra- karl í huga okkar, sem þekktir og kunnir hina ótrúlegustu hluti. Elsku afi, við vitum nú að þér líður vel og við munum gæta minn- inganna vel. Við biðjum góðan Guð að styrkja elsku ömmu í missi sín- um. Sigurður Jens, Andri Stanley og Hrefna Marín. V Sölusýning + Stanley Kiernan fæddist við Kempster Street í Manchester 18. jan- úar 1915. Hann lést á hjartadeild Sjúkrahúss Reykja- víkur 7. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hans voru James Kiernan og Ethel Kiernan. Hann á einn hálf- bróður samfeðra, Dennis Kiernan, sem býr í Salford, útborg Manchester. Hinn 18. maí 1946 kvæntist Stanley Kiernan eftirlifandi konu sinni, Maren Níelsdóttur Kiernan, f. 16. janúar 1922, og eignuðust þau sex börn. Þau eru: Edward læknir, búsettur á Akureyri, Erla arkitekt, búsett í London, Elsa kennari og lista- maður, búsett í Penzance í Suð- ur-Englandi, Stella hjúkrunar- fræðingur, búsett í Garðabæ, Jóhann innanhússarkitekt, bú- settur í Reykjavík, og Victor, markaðs- fulltrúi, búsettur í Kópavogi. Barna- börn eru orðin sautján og eitt barnabarnabarn. Stanley lauk skyldunámi en fór snemma að vinna og lagði m.a. stund á nám í sælgætis- iðnaði. Hann gekk í breska herinn og gegndi herþjónustu til stríðsloka, aðal- lega í Austurlönd- um nær. Stanley bjó á íslandi frá 1946 og starfaði aðallega við sælgætisiðnað og ráðgjöf, lengst af við eigin rekstur Efna- blöndunnar hf. og Sælgætis- gerðarinnar Amor hf. Utför Stanleys Kiernans fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, mánudaginn 16. nóv- ember, og hefst. athöfnin klukk- an 15. Allt er þrungið af þrá til að unna, þúsundir óska stíga frá jörð, upp yfir landsins grjótköldu grunna grösin sig rétta, svo hátt sem þau kunna. Ljósið heldur um lifið vörð. (Einar Ben.) Kæri Stanley. Þessu varð ekki breytt, dagskráin var tæmd og þér duldist ekki hvað í vændum var. Það var komið að leiðarlokum hjá þér. Ég mun aldrei gleyma því hvernig við kynntumst. Þú varst húsbóndi á þínu heimili, en varst samt ekki alveg viss um hvernig þú ættir að taka þessum unga síð- hærða og skeggjaða manni sem var farinn að gera sig heimkominn hjá Stellu, yngstu dóttur þinni. Þetta fékk ég að heyra í notalega eldhús- króknum hjá Maren svo ég herti upp hugann, gekk inn í stofu til þín og það veit víst allt heimilisfólkið hvemig framhaldið varð. Við urðum strax góðir félagar, vinir án aldurs- munar sem gátum talað um hvað sem var, vissum allt manna best, sá- um siðleysi og vandræða kommún- ista í öðrum hverjum manni og gerðum endalaust grín að öllu í kringum okkur. Ótakmarkaður og óbeislaður fjöldi nýrra viðskipta- tækifæra sem gæfi okkur ómælan- legan ágóða, að sjálfsögðu framhjá skattayfirvöldum, voru skemmtileg- ir dagdraumar sem fáir skildu nema við. Einlægni og trúmennska og lát- leysi kom víða fram og hvergi mátt- ir þú aumt sjá eða hallað á nokkurn. Það er ómetanlegt að hafa fengið að kynnast þér og forgöngu þinni í hin- um ýmsu viðskiptatækifærum, list- rænum hæfileikum, m.a. í hönnum auglýsinga og umbúðamerkinga auk hinnar frábæru og högu handar til allra hluta. Framsýni þín og hug- sjón var ótrúleg og öll tækni lá sem opin bók fyrir þér. Seint gleymi ég ferðinni okkar þegar þú keyptir tölvuna forðum. Innan tveggja daga varstu farinn að vinna í teikniforrit- um og eigin ævisöguskráning vel á veg komin. Það voru góðar stundir sem ég átti með þér á morgnana þegar ég kom með blaðið til þín og við horfðum á erlendu fréttirnar, þú skráðir gengi á hlutabréfunum, heims- og landsmálin voru krufin og þú hafðir vaxandi áhyggjur af 2000- vanda fyrirtækja. Það er svo margs að minnast þessi ár sem ég hefi fengið að njóta nærveru þinnar. Hvort sem það var í ferðalaginu okkar um Suður- og Austurland, í herberginu þínu, bílt- úrar um Reykjavík og nágrenni eða bara berjaferðin núna í haust, alltaf áttir þú góðar sögur, geislaðir af frásagnargleði og sást skemmtilegu hliðina á öilu. Já, skemmtilega enska kímnin allt fram til síðustu stundar þegar þú baðst mig á hjartadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur um að útvega þér nýtt heimilisfang. Þá vafðist mér tunga um tönn og mig setti hljóðan. Því miður, kæri Stanley. Það voru örlögin en ekki ég sem sáu um það að verða við þessari beiðni þinni. Það varð aðeins einn afi, afi Stan, sem börnin mín fengu að kynnast og minningin um hann mun þeim og mér aldrei gleymast og megi hann hvíla í friði. Elsku Maren, ég bið algóðan Guð að styrkja þig og vemda. Að leika upp æskunnai- ævintýr með áranna reynslu, sem var svo dýr, er lífið í ódáins-líki. Ég gref allt hið liðna í gleðinnar skaut, ég gjöri mér veginn að rósabraut og heiminn að himnaríki. (Einar Ben.) Sigurður Jónasson. Ég er glaður. Ég er glaður yfír því að lífið hafi verið svona gott við mig að leyfa mér að kynnast þeim stórmerkilega manni sem afi minn var. Ég er stoltur. Ég er stoltur yf- ir því að hafa átt hann sem afa. Ég man fyrst eftir afa mínum þegar ég var mjög ungur og hann lék við mig í sófanum í stofunni. Ég man eftir honum fara snemma á fætur, snemma að sofa og ég man eftir honum drekka melrose-te. Nú era tæp tuttuguogfjögur ár síðan við kynntumst fyrst í þessu lífi og í tuttuguogfjögur ár höfum við verið vinir. Hann er búinn að vera kenn- arinn minn og ég að sama skapi nemandinn. Námið var lífið. Afi kenndi mér að vera sterkur, vera hafinn yfir alla gagnrýni og gera það sem hann fékk ekki tækifæri til að gera, „Athafnamaður" er orð sem lýsir afa vel. Hann las mikið og vai' alltaf að fá nýjar hugmyndir og átti auðvelt með að tileinka sér nýjungar. Hann var uppfinninga- maður og þúsundþjalasmiður og lýsa leikföngin mín þegar ég var lítill því vel. Hann var vellesinn og vissi um allt. Hann hlustaði mikið á tónlist og var hrifinn af Björk, lýsir það vel hversu auðvelt hann átti með að tileinka sér nýjungar. Fyrir hann var J>að að læra á tölvu ekk- ert mál. I huganum gat hann allt og ef líkaminn hefði leyft honum það hefði hann farið í heimsreisur, stofnað ný fyrirtæki og haldið áfram að klífa tindana í kringum sig. Honum fannst gaman að safna hlutum og sá verðgildi í öllu, ef hluturinn var verðlaus þá skyldi hann bara eiga hann þangað til hann yrði einhvers virði. Þannig var afi minn, þannig sá ég afa minn. En afi minn var líka annað og miklu meira. Hann var faðir sex barna og er eitt þeirra móðir mín. Hann var líka hermaður og guð veit hvað hann hefur mátt ganga í gegnum. Og guð veit líka hvað hann á stoltan afastrák. Þegar ég var lítill og enn þann dag í dag segi ég vinum mínum sögur af afa mín- um sem era fullar af hugrekki, stolti og lotningu. Og vinir mínir hlusta, því allir geta hlustað á ein- hvern segja frá einhverjum sem var þeim svo mikils virði. Afi var mikill fótboltaunnandi og við eydd- um oft laugardögum saman. Enski boltinn var okkar sameiginlega áhugamál og Manch. United okkar J 10% staðgreiðslu- afsláttur i E ; RAÐGREIBSLUR á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum á Grand Hótel, Reykjavík. HOTEt REYKJAVIK í dag, sunnudaginn 15. nóv. frá kl. 13-19

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.