Morgunblaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 15.11.1998, Blaðsíða 48
^8 SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Hundalíf E Ljóska þah ial&& Om Bn r þai d skrifstof-S. gcunarv ! unnC G&bg —//V ^ - ver&í aZsioffar- ■forstjo'rc 'f/venxr YUmþader he/durðu ao K erfftb ao spá*. þab verúc /^þarsem ’egersd1-^ ( eini sem tcUar um, j þetta. Beruni okkur saman, „Rétt, rangt, ef til vill, hver veit, af hverju Ég veit ekki hvernig þú ferð að herra, og athugum hvort ekki? Vissulega, hvenær? Gerðu þau það? því, herra. við höfum sömu svörin ... Stundum, ég gerði það ekki. Hver, ég? Það Láttu aldrei vita hvaðan þú ert að var dimmt og allir voru orðnir svangir." koma, Magga ... BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Simi 569 1100 • Símbréf 569 1329 Illa kynntur! Frá Ástþóri Magnússyni: í FJÖLMIÐLUM hefur Ragnar Sverrisson, Kaupmannasamtökum Akureyrar, tilkynnt þjóðinni að Ast- þór Magnússon sé svo „illa kynnt- ur“ að ekki sé hægt að hafa sam- starf við Frið 2000 um söfnun jóla- pakka og flug til stríðshrjáðra barna. Eg bið Ragnar að skýra þessi ummæli. Mér hefur sýnst að flestir viti deili á mér. Lífshlaup mitt og hugsjónir voru ítarlega kynnt þjóðinni í forsetakosning- unum, m.a. með bók sem dreift var á öll heimili. Störf mín hafa vakið athygli víða og fyrir þau veitt verðlaun bæði í austri og vestri, síðast sl. september af grísku réttrúnaðar- kirkjunni að útnefningu UNESCO. Þá óska ýmsir samstarfs, t.d. leið- togaráðstefnan State of the World Forum sem bað mig að aðstoða við mótun aldamótaverkefnis og greiddi allan kostnað við vikudvöl mína í San Francsco um síðustu mánaðamót. Síðustu jól fylgdust milljónir sjónvarpsáhorfenda með för ís- lenska jólasveinsins til Bagdad sem fjallað var um í nær öllum fjölmiðl- um heims. Er það ekki einmitt ástæðan fyrir því að Kaupmanna- samtök Akureyi-ar hyggjast nota þetta verkefni, sem Friður 2000 hefur sinnt í fjögur ár, til að gera úr því auglýsingabrellu í þágu við- skipta á Akureyri. Ætlunin er að auglýsa fjölskylduferðir til Akur- eyrar með þeirri gulrót að krakk- arnir hafi með sér pakka fyrir bág- stadda í útlöndum. Rætt hefur verið við Bylgjuna og Stöð 2 um ýmsar útfærslur til að trekkja fólk til Akureyrar með pakkana. Staðreyndin er hinsvegar sú að Norðurpóllinn er að afbaka jólaboð- skap okkar með hræsni. Þeir hafa h'tinn áhuga á stríðshrjáðu börnun- um, en eru aðeins að nota sér fjöl- miðlaathyglina verslun sinni til framdráttar. Þau vantar svo gjör- samlega skilning á því hvað stríðs- hrjáð böm ganga í gegnum, að óvið- eigandi þykir að jólasveinninn segi „Hættið að drepa börnin mín“, sem voru skilaboðin til þjóða heims um síðustu jól. Síðan hafa um 50.000 börn látist þar, meiri fjöldi en öll börn á Islandi. Yfirmaður mannúð- arhjálpar Sameinuðu þjóðanna hef- ur nú tekið tekið undir yfirlýsingar Friðar 2000 og hætt störfum í mót- mælaskyni við þann tvískinnungs- hátt sem viðhefst hjá SÞ í írak. Friður 2000 telur mjög óviðeigandi ef jólagjöfum er safnað á svo póli- tískum forsendum, að ekki megi deila á ríkisstjórnir er stuðla að því að þúsundir barna falla í valinn um jólin. Slíkt er umbúðalaust hræsni! Friður 2000 fer ekki i manngreinar- álit þegar barist er fýrir réttindum og öi-yggi barna. Friður 2000 mót- mælir stuðningi íslands við þjóðar- morðið í írak. Friður 2000 þegir ekki um hörmungar barnanna þótt mótmælin séu óþægileg fyrir fram- sóknarmenn eða önnur stjórnmála- öfl hér á landi eða annars staðar. Ef norðanmenn ætla að henda jólapökkum í stríðshrjáð börn eins og verið sé að stinga karmellum í munn óþekkra krakka, þá fordæmir Friður 2000 slíka afbökun á hug- mynd sinni um friðarflug íslenska jólasveinsins. Ef við getum ekki staðið við hliðina á þessum börnum og tekið þeirra málstað eigum við lítið erindi með jólapakkana. Kostnaður við Norðurpóhnn er á annan tug milljóna. Samkeppni leiðir til aukins kostnaðar við að ná í þá pakka sem við höfum á undanfómum árum safnað með lágmarks tilkostn- aði. Nær væri að kaupa 200.000 mat- arskammta, t.d. með því að senda þurkaðan fisk til Súdan. Friður 2000 telur fáranlegt að koma á samkeppni um mál sem þessi. Við viljum að landsmenn sameinist um jólapakka- flugið, en ekki sé verið að senda jafn- vel tvær hálftómar vélar með pakka. Við furðum okkur á því að Hjálpar- stofnun kirkjunnar stuðh að þessari vitleysu með samstarfi við Norður- póhnn á ofangreindum forsendum. Það er til lítils að senda á heimili landsins söftiunarbauka fyrir hungruð börn ef úr hinum vasanum milljónum er sóað í tóma vitleysu. Við ítrekum beiðni okkar um sam- starf. Ef við Islendingar getum ekki sameinast í hjálparstarfinu hvernig getum við fengið bænheyrslu á Norð- urpólnum um frið á jörðu? ÁSTÞÓR MAGNÚSSON, Stofnandi Friðar 2000. Ástþór Magnússon Hjálp í neyð Frá Kristjáni Árnasyni, Skálá: ÞAÐ hefur varla farið fram hjá neinum hvílíkar hörmungar hafa dunið yfir íbúa í nokkrum ríkjum Mið-Ameríku og hve mikið ríður á skjótri og markvissri hjálp. En flestir yppta bara öxlum, „aumingja fólkið“, en þar með er málið af- greitt. Það eru ekki til peningar, það þurfa allir að nota sína peninga! En ég skal segja ykkur að það eru til nógir peningar og ég skal meira að segja benda á hvar þeir eru. Stór hluti þjóðarinnar fer eitthvað út að skemmta sér um helgar. Ef að þeir allflestir slepptu því að fara út eina helgi, en leggðu inn hjá Rauða krossinum álíka upphæð og þeir mundu annars hafa eytt í venjulega helgarskemmtun er ég viss um, að það yrði talsverð upphæð og enginn fyndi fyrir því, nema ef til vill minni timburmenn. Eg skora hér með á landa mína að taka þetta til athugunar! Það er svo annað og stærra mál, að þeir milljarðar, sem Bandaríkja- menn leggja í sitt vopnaskak við Persaflóa mundu nægja til að fæða alla nauðstadda á hamfarasvæðinu og flytja til þeirra nauðsynjar. En ég ætla mér ekki þá dul að ná eyr- um Sams frænda. KRISTJÁN ÁRNASON, Skálá, Sléttuhlíð, Skagafirði. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskiiur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.