Morgunblaðið - 16.01.1999, Side 24
24 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Endurskoðuð verðbólguspá Seðlabankans
2,2% verðbólgu
spáð á árinu
SEÐLABANKI íslands hefur end-
urskoðað verðbólguspá sína fyrir
árið 1999 í ljósi nýjustu mælinga
vísitölu neysluverðs og upplýsinga
um þróun undirliggjandi stærða.
Seðlabankinn spáir nú 1,9%
verðbólgu milli ársmeðaltala 1998 og
1999 og 2,2% verðbólgu frá upphafí
til loka árs 1999.
Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,5% á milli þriðja og fjórða árs-
fjórðungs 1998, sem samsvarar 2,2%
verðbólgu á heilu ári. Spá Seðla-
bankans í október sl. gerði ráð fyrri
0,2% hækkun á milli ársfjórðung-
anna. Frávikið er innan tölfræði-
legra skekkjumarka.
Verðbólga síðasta árs mældist
1,7% milli ársmeðaltala og 1,3% yfir
árið. Milli ára var verðbólgan hin
sama og 1995 sem var sú næst
lægsta síðan 1959. Spá bankans í
október geri ráð fyrir 1,6% hækkun
milli ára og 0,6% hækkun yfir árið.
Meginforsendur endurskoðaðrar
spár gera ráð fyrir 3,7% hækkun um-
saminna launa í upphafi þessa árs,
um 2% launaskriði og 2,5% fram-
leiðniaukningu í ár og óbreyttu gengi
frá deginum í dag. Einnig er gert ráð
fyrir að innflutningsverðlag í erlendri
mynt lækki á fyiri hluta ársins en
snúist síðan til hækkunar á seinni
hluta þess. Að lokum er gert ráð fyrir
að hækkun markaðsverðs húsnæðis
umfram almenna verðlagsþróun
muni stuðla að meiri hækkun vísitölu
neysluverðs á þessu ári en ella, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu frá
Seðlabanka Islands.
I endurskoðaðri spá Seðlabankans
er gert ráð fyrir því að verðbólga
þessa árs verði 1,9%, mælt milli árs-
meðaltala, og 2,2% yfir árið. Þetta er
nokkur hækkun frá spá bankans í
október sl., en í henni var gert ráð
fyrir 1,3% hækkun milli árs-
meðaltala og 2% hækkun yfii- árið.
„Munar þar mest um meiri hækkan-
ir vísitölunnar á síðasta ársfjórðungi
1998 en spáð hafði verið. Mikill vöxt-
ur innlendrar eftirspurnar að undan-
fórnu og vaxandi spenna á vinnu-
markaði gætu stuðlað að meii’i
verðbólgu þegar líður á árið en hér
er spáð. A móti kemur að erlend
verðþróun kann að verða hagstæðari
en hér er reiknað með, sérstaklega á
fyrri hluta ársins,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Seðlabankanum.
Seðlabankinn hefur einnig metið
þróun raungengis krónunnar. Sam-
kvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið
1998 hækkaði raungengi á mæli-
kvarða hlutfallslegs verðlags um
1,5% á milli áranna 1997 og 1998, en
um 4,5% á mælikvarða hlutfallslegs
launakostnaðar á framleidda ein-
ingu. „Gangi verðlagsspá bankans
eftir og gefur óbreyttu gengi krón-
unnar frá því sem það er nú mun
raungengi krónunnar á mælikvarða
hlutfallslegs verðlags verða óbreytt
á þessu ári, en hækka um 0,7% á
mælikvarða hlutfallslegs launa-
kostnaðar á framleidda einingu," að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Seðlabankanum.
Vísitala neysluverðs hækkar um 0,6% frá fyrra mánuði
Breytingar á vísitölu neysluverðs
Mars 1997 = 100
Tölurísvigumvisatil
vægis einstakra Ik5a.
Frá des. 98 til jan. 99
01 Matur og óáfengar drykkjarvörur (17,3%)
011 Matur (15,2%)
012 Drykkjarvörur (2,1 %)
02 Áfengi og tóbak (3,4%)
03 Föt og skór (6,0%)
031 Föt (4,9%)
04 Húsnæði, hiti og rafmagn (17,9%)
042 Annað vegna húsnæðis (2,3%)
05 Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. (5,6%)
056 Ýmsar vörur og þjónusta (1,0%)
06 Heilsugæsla (3,2%)
07 Ferðir og flutningar (16,1 %)
072 Rekstur ökutækja (7,0%)
08 Póstur og sími (1,1 %)
09 Tómstundir og menning (13,7%)
10 Menntun(1,0%)
11 Hótel og veitingastaðir (5,3%)
12 Aðrar vörur og þjónusta (9,4%)
s
+2,6% |
+2,4% □
+3,7% | l
+0,3% |l
§§gf -2,7%
I | -3,2%
+0,7% D
+6,5% l
+0,3% |
+1,7% □
+1,5% □
0 -0,4%
□ -1,4%
Q -0,6%
+0,6% Q
+2,5% |
+0,2% |
+0,8% 0
VÍSITALA NEYSLUVERÐS í DES: 103,6 stig
+0,6% Q
2,6% verð-
bólga síð-
ustu þrjá
mánuði
VÍSITALA neysluverðs miðað við
verðlag í janúarbyrjun 1999 var
184,8 stig og hækkaði um 0,6% frá
fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs
án húsnæðis í janúar var 187,3 stig
og hækkaði um 0,5%. Vísitala
neysluverðs hefur hækkað um 0,7%
síðustu þrjá mánuði sem jafngildir
2,6% verðbólgu á ári.
í tilkynningu frá Hagstofu Is-
lands segir að verð á mat og drykkj-
arvöru hafi hækkað um 2,6%, sem
hafi leitt til 0,44% hækkunar vísitölu
neysluverðs. Þá varð 6,5% hækkun á
gjöldum vegna fasteigna sem olli
0,14% hækkun á vísitölunni. Helstu
lækkanir á vísitölu neysluverðs voru
á fötum og skóm um 2,7% sem
lækkaði vísitölu neysluverðs um
0,17% og lækkun á bensínverði um
3,3% sem lækkaði vísitölu neyslu-
verðs um 0,13%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um
1,3% og vísitala neysluverðs án
húsnæðis um 0,5%. I Morgunfrétt-
um viðskiptastofu Islandsbanka hf. í
gær segir að of snemmt sé að túlka
hækkun á vísitölunni sem vísbend-
ingu um verðbólgu, þrátt fyrir held-
ur meiri hækkun á innlendum hluta
vísitölunnar en vænst var. I Morg-
unkorni Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins hf. segir hins vegar að
breyting á vísitölu neysluverðs hafi
verið í aðalatriðum í samræmi við
spá bankans og að gera megi ráð
fyrir meiri verðbólgu en á því
síðasta. „Því er ástæða til að gera
ráð fyrir að verðbólga verði
2,5%-3% milli áranna 1998 og 1999,“
segir í Morgunkorni FBA.
Verðbólga í EES-ríkjum frá
nóvember 1997 til nóvember 1998,
mæld á samræmda vísitölu neyslu-
verðs var 1% að meðaltali. Minnst
verðbólga mældist í Svíþjóð, 0,1%, en
mest í Grikklandi, 3,9%. Á sama
tímabili var verðbólga á íslandi 0,7%
og 1,2% í helstu viðskiptalöndum.
Gjaldeyrisforðinn 29,6
milljarðar í desember
GJALDEYRISFORÐI Seðlabanka
íslands jókst um 600 milljónir
króna í desember á síðasta ári og
nam í lok mánaðarins 29,6 milljörð-
um króna, að því er kemur fram í
bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka
Islands. Á sama tímabili árið 1997
var gjaldeyrisforðinn 27,9 milljarð-
ar. Erlendar skammtímaskuldir
bankans voru 3,9 milljarðar í des-
ember á síðasta ári og lækkuðu lítil-
lega frá fyrra mánuði.
Bókfærð gjaldeyrisviðskipti
Seðlabankans voru jákvæð um 1,1
milljarð króna í desember, en bank-
inn átti gjaldeyrisviðskipti á inn-
lendum markaði fyrir 2,8 milljarða
króna í mánuðinum. Gengi íslensku
krónunnar mælt með vísitölu geng-
isskráningar hækkaði um 0,4% í
desember og um 0,7% frá ársbyrjun
til loka desember.
Heildareign Seðlabankans í
markaðsskráðum verðbréfum minn-
kaði í desember um 2,8 milljarða
króna miðað við markaðsverð og
nam í mánaðarlok 7,9 milljörðum
króna. Ríkisvíxlaeign minnkaði um
1,8 milljarða króna og ríkisbréfa-
eign minnkaði um 1 milljarð króna.
Eign bankans í markaðsskráðum
verðbréfum minnkaði um 7,9 millj-
arða á árinu.
Kröfur á innlánsstofnanir
hækkuðu um 6 milljarða í desember
en innstæður þeirra í bankanum
lækkuðu um 3 milljarða. Kröfur
Seðlabankans á aðrar fjármála-
stofnanir drógust saman um 1,3
milljarða, en innistæður þeirra í
bankanum jukust um 1,2 milljarða í
mánuðinum. Nettókröfur bankans á
ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu
um 6,8 milljarða króna í mánuðinum
og voru neikvæðar um 8,2 milljarða
í lok árs , segir í tilkynningu.
Grunnfé bankans nam 20,6 millj-
örðum króna í árslok.
GUÐNI Þórir Jóhannsson, Jóhann Þórisson og Kristrún Jónsdóttir,
eigendur Naustavogs ehf.
„Von okkar að
stækka og dafna“
Ný fískverkun stofnuð á Djúpavogi
NAUSTAVOGUR ehf., nýtt fisk-
verkunarfyrirtæki, var formlega
opnað á dögunum á Djúpavogi. Eig-
endur þess eru Jóhann Þórisson,
Kristrún Jónsdóttir og Guðni Þórir
Jóhannsson. Fyrirtækið er til húsa í
fyrrverandi húsnæði Mallands hf.,
sem flutt hefur í stærra húnæði.
Að sögn Jóhanns Þórissonar er
markmið þeirra að byrja á að salta
fisk, auk þess sem farið verði út í
meiri fullvinnslu ef vel gengur. „Við
fórum upphaflega af stað með þetta
fyrirtæki til að tryggja okkur at-
vinnu. Guðni Þórir á bátinn Haförn
NK 15 og við komum til með að
vinna af honum aflann. Þar sem lítill
kvóti er á bátnum og lélegt fiskverð
hér ákváðum við að auka afla-
verðmæti hans og réðumst því í
þessar framkvæmdir," sagði
Jóhann Þórisson.
Til að byrja með eru fjórir starfs-
menn við Naustavog, en fyrirhugað
er að kaupa fisk af mörkuðum í
framtíðinni. „Og er von okkar að
fyrirtækið stækki og dafni," segir
Jóhann.
Loðnuleiðangur Hafró
Töluvert magn af
loðnu fyrir austan
RANNSÓKNASKIP Hafrann-
sóknastofnunarinnar, Árni Frið-
riksson og Bjarni Sæmundsson,
eru nú við loðnurannsóknir undan
Austfjörðum en hafa lítið getað at-
hafnað sig vegna veðurs. Hjálmar
Vilhjálmsson, leiðangursstjóri, seg-
ir þó að svo virðist sem talsvert
magn af loðnu sé á miðunum.
Nokkur loðnuskip voru að veiðum
á svæðinu í fyrrinótt og fengu reyt-
ingsafla en vora öll á landleið í gær
vegna brælunnar.
„Við erum búnir að skoða svæðið
frá Reyðarfjarðardýpi, suður undir
Hvalbak og þar út af landgrunns-
kantinum. Það var töluvert að sjá
af loðnu með kantinum en einnig
var að sjá loðnudreif um það bil 25
mflur austur úr. Loðnan virðist
ekki ennþá vera komin suður í
hlýja sjóinn en okkur sýnist að hún
sé að færa sig hægt og bítandi suð-
ur eftir. En það er lítið hægt að
fullyrða um hve mikið er hér á
ferðinni ennþá, til þess höfum við
ekki skoðað nógu stórt svæði,“
sagði Hjálmar í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Hann sagði um að
ræða stóra og góða hrygningar-
loðnu en sagði að alla þessa þætti
ætti eftir að skoða betur þegar
veðrið gengur niður.
Enn góð sfldveiði
Sfldveiðar hafa gengið vel síð-
ustu vikur en fá skip eru þó enn við
veiðarnar. Húnaröst SF og Ant-
ares VE fengu góðan afla, um 700
tonn, um 20 mílur vestur úr Malar-
rifi á Snæfellsnesi í fyrrinótt. Þá
var Jóna Eðvalds SF í gær á leið til
Hornafjarðar með um 300 tonn af
sfld og Huginn VE rúm 400 tonn,
einnig á leið til Hornafjarðar.
Barentshafið
Loðnan veidd á ný
NORSK stjómvöld hafa ákveðið að
heimila veiðar á 48.000 tonnum af
loðnu í Barentshafi á þessu ári.
Loðnu má aðeins veiða til manneld-
is. Loðnuveiði hefur ekki verið
stunduð í Barentshafi síðan 1993,
en nú telja vísindamenn að stofn-
inn þoli veiði á ný.
Nótaskipin í Noregi fá frjálsan
aðgang að veiðunum, en smærri
bátar og togarar verða að hlíta tak-
mörkunum. 20 smærri bátar og 15
togarar fá leyfi og verða þeir
heppnu dregnir út úr hópi umsækj-
enda verði þeir fleiri en þetta.
Umsóknir og tilkynningar um
þátttöku í veiðunum þurfa að ber-
ast fyrir 25. janúai'. Norðmenn
geta því keppt við okkur á loðn-
umörkuðunum í Japan og Rúss-
landi á ný eftir langt hlé.