Morgunblaðið - 16.01.1999, Blaðsíða 45
MORGUNB LAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 45
UMRÆÐAN
2000. Sumum verður hugsað til
vöruafgreiðslukerfisins á nýja flug-
vellinum í Hong Kong í þessu sam-
bandi.
Nú hefur ríkisstjórnin sett sam-
an hóp embættismanna til að fjalla
um árþúsundlúsina, og talsmaður
hennar lagði áherslu á að hvert fyr-
irtæki fyrir sig réði fram úr
vandamálum sínum. Nú benda
þessi orð til þess að ríkið telji allt
vera komið í lag sínum megin
borðsins, eða að minnsta kosti að
það verði allt komið í lag að kvöldi
31. desember árið 1999.
Sú tímasetning er reyndar það
eina sem stendur nokkurn veginn
öruggt í allri umræðunni um
árþúsundlúsina. Hver sem vandinn
er, þarf hann að vera leystur fyrir
klukkan tólf það kvöld. Eða hvað?
Ég sé ekki betur en að það geti ver-
ið að einhver gömul forrit í vinnu-
tölvunni minni geti lent í ruglingi
þetta kvöld. Þau eru þó ekki svo
mikilvæg að ég sé mikið að garfa í
þessum hlutum. Reyndar get ég
komist í alls kyns hjálpartól til að
prófa þetta á Vefnum, og fólk er
hvatt til að hafa sig eftir þessum
hjálpartækjum. Fólk getur til
dæmis slegið inn stafina Y2K í Ya-
hoo! og fikrað sig síðan áfram.
Flest hjálpartæki fyrir heimatölvur
og smærri fyrirtæki era
annaðhvort ókeypis eða mjög ódýr.
Reyndar hefur verið bent á enn
ódýrari lausnir. Til dæmis mætti
taka upp annað tímatal. Sé notast
við íslamskt tímatal, svo dæmi sé
tekið, er árið 1419. Þá hefðum við
að minnsta kosti 81 ár til að ráðast
á vandann, eða bara velta honum
undan okkur. Kínverskt tímatal
kæmi einnig að gagni, en þá gæti
vandinn orðið tímabundnar skrár
(temporary files) sem enduðu á
.HUND eða .KOTT eða færa bara
þá leið. Oráðlegt er að taka upp
gyðinglegt tímatal. Þar er árið
5749, og áramót eru í september.
Þá myndi ekki einn árþúsunda-
vandi, heldur fjórir hellast yfir okk-
ur í einu.
Niðurstaða mín er að árþúsund-
vandinn sé enginn vandi fýrir flesta
Islendinga, enda muni þeir
skemmta sér áhyggjulítið á
gamlárskvöld 1999, en einhverjir
gangi þó stigana í stað þess að taka
lyftuna, rétt til öryggis. Nú er
augljóst að árþúsundlúsin bítur fast
í öll fjármálakerfi og kemur við
sögu í mörgum fleiri kerfum. Hönn-
uðir þessara kerfa hafa brugðist við
þessum vanda, og era að leysa
langtum stærri verkefni af hendi,
eins og upptöku evrósins.
Það er þó til lítils að tala af skyn-
semi um þetta við marga hér á
landi og annars staðar. Otrúlega
margt fólk er orðið harðákveðið í
því að boða einhvers konar hamfar-
ir að morgni 1. janúar árið 2000,
hvað sem tautar og raular. Nú veit
margt af þessu fólki lítið hvað er
svona merkilegt við þennan dag.
Hann er markverður fyrir það eitt í
tilverunni, að þann dag er talið að
Jesús hafi verið skírður, 1998 áram
fyrr. Þetta veit ég, af því að ég les
bæði Biblíuna og mannkynssöguna.
Hvers vegna Guð ætti að taka
reiðikast af því að sonur hans var
skírður 1998 árum fyrr er algerlega
handan skilnings míns. Margir
verða þó að búa til einhvers konar
hamfaraspá þennan dag og hafa
bitið það fast í sig að það hljóti að
verá árþúsundlúsin sem valdi þess-
um hamföram. Það er dæmi um að
maður bítur lús. Sárt bítur soltinn
maður.
Höfundur er upplýsingafræðingur
við Samvinnuháskólann á Bifröst.
Enski boltinn á Netinu
S' mbl.is
_ALUTAF= eiTTHXSAÐ NÝTT
Efþú kýst ekki fulltrúa þinn
þá kýs einhver annar fulltrúa sinn
sem fulltrúa þinn
Það sem skilur okkur að
gerir okkur sterkari sem heild.
Konur búa yfir verðmætri reynslu og þekkingu sem
f karlmönnum er ómögulegt að öðlast. Þessi
I. verðmæti, ólík sjónarmið og efnistök eru auðlind
I sem þjóðin hefur ekki borið gæfu til að nýta
i á lýðræðislegan hátt.
<3
j Alþingi er útvörður lýðræðisins í landinu.
í Aukinn hlutur kvenna í störfum þess
1 er íslensku þjóðinni í hag.
«8
“ Lýðræöið rúmar bæði kynin.
Ráðherraskipuð nefnd
til að auka hlut kvenna í stjórnmálum
giggí "