Morgunblaðið - 16.01.1999, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.01.1999, Blaðsíða 29
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 29 ERLENT Leiðtogakjör Likud-flokksins fyrir kosningarnar í fsrael Landau ekki í fram- Netanyahu Jerúsalem. Reuters. UZI Landau, harðlínumaður í Likudflokknum í Israel, tilkynnti í gær, að hann hefði hætt við að bjóða sig fram gegn Benjamin Net- anyahu forsætisráðherra í for- mannskosningum í flokknum. Skoðanakannanir sýna, að Net- anyahu og Ehud Barak, leiðtogi Verkamannaflokksins, hafa jafn mildð fylgi meðal kjósenda en kosningar verða í Israel 17. maí. Formannskosningin í Likud- flokknum verður 25. þessa mánað- ar og ljóst virðist, að þá muni þeir takast á tveir, Netanyahu og Mos- he Arens, fyrrverandi varnar- málaráðherra. Landau, sem er formaður utanríkis- og varnar- málanefndar þingsins, telur, að Leiðtogar störu flokkanna með jafn mikið fylgi ákvörðun sín muni koma Arens vel en hann vildi þó ekki lýsa yfir stuðningi við hann. Kvaðst hann vera óánægður með, að Arens, sem er 73 ára gamall, skuli hafa gefíð í skyn, að hann ætlaði að hætta afskiptum af stjórnmálum yrði hann ekki kjörinn leiðtogi Likudflokksins. „Mér líkar það ekki þegar menn krefjast alls eða einskis,“ sagði hann. Skoðanakönnun, sem birt var sl. mánudag, sýndi, að í formanns- slagnum innan Likud fengi Net- anyahu 57% atkvæða, Arens 22% og Landau 7,5%. Þreyttur á Netanyahu Ai-ens, sem hefur ekki verið í stjómmálum frá 1992, átti á sínum tíma mestan þátt í frama Netanya- hus innan flokksins. Því kom það flatt upp á marga og ekki síst Net- anyahu þegar Arens ákvað að reyna að steypa sínum gamla skjól- stæðingi. Arens er hins vegar sagður vera orðinn mjög þreyttur á stjómarháttum Netanyahus og hann er alveg sérstaklega andsú- inn Wye-samkomulaginu, sem Net- anyahu gerði við Palestínumenn. Reuters Stendur Salinas- ættin á bak við morð? Reykjavík, Keflavík, Selfoss, Akureyri, og Egilsstaðir. TEGUND: 1,3 GL 3d 1,3 GL 4d 1,6 GLX 4d, ABS 1,6 GLX 4x4,4d, ABS 1,6 GLX WAGON, ABS WAGON 4x4, ABS VERÐ: 1.195.000 KR. 1.295.000 KR. 1.445.000 KR. 1.575.000 KR. 1.495.000 KR. 1.675.000 KR. RAUL Salinas de Gortari, bróðir fyrrverandi Mexíkóforseta, sést hér njóta lífsins á snekkju sinni með vinkonu í kjöltunni. Hann er ákærður fyrir að vera aðalmað- urinn á bak við morð sem framið var árið 1994 á José Francisco Ruiz Massieu, þáverandi aðalrit- ara mexíkóska stjórnarflokksins PRI. The New York Times skýrði frá því í gær, að Raul Salinas Lozano, höfuð hinnar áhrifa- miklu Salinas-fjölskyldu, hafi samþykkt morðið, að því er fram kæmi í hljóðupptöku af yfir- heyrslu yfír manni sem var dæmdur fyrir aðild að þessu um- talaðasta morðmáli síðustu ára í Mexíkó. Blaðið segist hafa fengið í hendur hljóðupptöku af yfir- heyrslu, þar sem Salinas Lozano, sem er 81 árs, er sagður hafa lagt blessun sína yfír áform um að ráða Massieu af dögum. Sal- inas Lozano er faðir Carlosar Salinas de Goi-tari, fyi-rverandi forseta Mexíkó, og ofangreinds Rauls Salinas de Gortari, meints aðalmanns að baki morðinu. Réttarhaldinu yfir honum á að ljtíka 22. janúar nk. Aðalverjandinn, Luengo Creel, sagði aðspurður í New York Times ekki geta tjáð sig um þetta þar sem dómur ætti senn að falla í málinu, en í bréfi sem hann sendi blaðinu og gert var opinbert í Mexíkóborg segir hann að frásögnin „eigi ekkert sameiginlegt með sannleikanum" og umrædd hljóðupptaka væri ekki meðal málsgagna í réttar- haldinu. Upptakan er af fyrstu lög- regluyfírheyrslunni yfir Jorge Rodriguez Gonzalez, sem síðar var dæmdur í 37 ára fangelsi fyr- ir aðild að morðinu. 0. ",is Varasamar strendur í Astralíu Canberra. Reuters. YFIRVÖLD í Ástralíu hafa áhyggjur af ástandinu á og við strendur landsins og hafa þau sérstaklega hvatt erlenda ferðamenn til að fara varlega. Astæðan er sú, að þar drukknar árlega fjöldi manns og nú þegar ástralska sumarið er hólfnað er tala látinna kom- in í 33. Á síðasta sumri drukknuðu 64 menn og hugsanlega verða þeir orðnir fleiri áður en þetta sumar er á enda. Eru þessi dauðaslys langflest í fjöl- mennasta ríkinu, Nýja Suður- Wales, en alls dnakkna um 300 manns í Ástralíu á heilu ári, í sjó, vötnum og ám. Jackie Kelly, íþróttaráð- herra Ástralíu, sagði í gær eftir viðræður við ráðherra í öðnim ríkjum landsins, að nauðsynlegt væri að bregðast við þessu með upplýsingaher- ferð, sem beint yrði sérstak- lega að ungu fólld og erlend- um ferðamönnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.