Morgunblaðið - 16.01.1999, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ
►„ENGINN nema skugginn
veit,“ sagði hnefaleikakappinn
Mike Tyson á blaðamannafundi
á máuudag og vitnaði í gamal-
kunnan útvarpsmann í Banda-
ríkjunum.
Ollu gamni fylgir nokkur al-
vara og ef til vill hefur Tyson
hitt naglann á höfuðið í þessari
lýsingu á sjálfum sér. Þrátt fyrir
að her manns hafi haft atvinnu
af því að fylgjast með honum í
gegnum tíðina, hvort sem það
eru sálfræðingar, félagsfræðing-
ar eða fangaverðir, hefur eng-
um tekist að beina honum á
rétta braut. Og ef til vill vegna
þess að enginn nema skugginn
veit hið sanna eðli Tysons.
400 undirbúningslotur
Tyson undirbýr sig nú fyrir
bardaga við Suður-Afríkumann-
inn Francois Botha sem fram fer
á laugardag í beinni útsendingu
á Sýn. Það verður fyrsti bardagi
Tysons síðan hann var settur í
bann eftir að hafa bitið úr eyra
Evanders Holyfíeld í júní árið
1997. Á blaðamaimafundi í til-
efhi af bardaganum kom einnig
fram nýr þjálfari Tysons,
Tommy Brooks, sem sagði að
Tyson hefði farið í gegnum 400
lotur til að undirbúa sig fyrir
slaginn við Botha.
„Hnefaleikar snúast um end-
urtekningu, æfingu á æfingu of-
an,“ sagði Brooks. „Bráðum
verður hann aftur eins og gamli
góði Tyson.“ Brooks var áður
aðstoðarþjálfari Evanders
Holyfields og sagðist vera að
vinna að því að fá Tyson til að
stunda hnefaleika í staðinn fyrir
hausaveiðar.
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1999 69
FÓLK í FRÉTTUM
Mike Tyson keppir við Francois Botha í kvöid
ÞJÁLFARINN Tommy Brooks aðstoðar Tyson talar við blaðamenn fyrir slaginn við Tyson.
á æfingu á MGM hótelinu í Vegas.
Hnefaleikar en
ekki hausaveiðar
Tyson, sem er 32 ára, bar
Brooks vel söguna. „Það er góð
tilfínning að hafa heiðvirða
manneskju í horninu hjá sér.
Mér líður vel með honum. Við
náum vel saman.“
Tjái mig með likamanum
Tyson varð á sínum túna yngst-
ur til að ná heimsmeistaratign í
þungavigtarhnefaleikum. Síðan
þá hefur hann átt erfítt upp-
dráttar bæði í hringnum og
einkalífinu, meðal annars af-
plánað dóm fyrir nauðgun og
nýlega var hann ákærður fyrir
likamsárás. En hvað segir hann
sjálfur um upphaf ferilsins?
* „Ég var 21 árs. Ég var meist-
MIKE Tyson hefur undirbúið sig vel fyrir slaginn við Botha.
arinn. Ég hélt ég væri fullorð-
inn. Ég var barn. Peningamir
gáfu mér falska öryggiskennd.
Svo lengi lærir sem lifir.“
* Um Botha: „Ég hef ekkert að
segja við hann í orðum. Ég ætla
að tala við hann líkamlega. Ég
tjái mig með lfkamanum eins og
sagan sannar, bæði í hringnum
og utan hans,“ sagði hann og
hló.
* Aftur um Botha: „Hann er
hvítur. Hann getur ekki sigrað
mig.“
* „Evander Holyfield og Leimox
Lewis em afburða meistarar, en
þeir standa ekki Mike Tyson á
sporði. Ég gæti fyllt Madison
Square Garden með sjálfsfróun.
Þeir em meistaramir. Ég er
kóngurinn. [Ef| ég keppi sama
kvöld og þeir era þeir atvinnu-
lausir.“
* Um tilfinninguna að vera aftur
í hringnum: „Ég veit það ekki.
Ég bara ánægður með að vera
kominn aftur og að geta annast
fjölskylduna mína. [Hvfldin]
virðist ekki löng ... mig langar
bara að beijast. Ég vil bara beij-
ast.“
* „Mig langar til að beijast fjór-
um sinnum og hætta eftir það.
Ég vil eyða túna með bömunum
múium.“
* „Ég veit ekki hvort ég er upp á
mitt besta ... Við eigum öll
vandamál. Mín vandamál era
bara frammi fyrir öllum heimin-
um. Þið drekkið eða haldið
framhjá og enginn kemst að því,
enginn veit. Enginn nema
skugginn veit,“ sagði hann
draugalegri röddu og bætti svo
kaldhæðnislega við: „Heh, heh,
heh.“
L
ROBBIE Williams fékk sex tilnefningar til Brits-verðlaunanna.
Robbie Williams
aldrei vinsælli
►ROBBIE Williams, sem fyrir
nokkrum árum var kallaður ótukt-
ardrengur breskrar dægurtónlist-
ar, var tilnefndur til sex Brits-verð-
launa í gær. Williams hætti í hljóm-
sveitimii vinsæiu Take That árið
1995 og átti við drykkju- og eitur-
lyíjavandainál að stríða áður en
honum tókst að ná sér á strik sem
sólótónlistarmanni.
Hami var tilnefndur í sex flokk-
um fyrir verðlaunaathöfnina sem
fram fer í næsta mánuði og hafði
betur en stjörnuprýddur hópur
tónlistarmanna á borð við Ma-
donnu og George Michael. Tvær
smáskífur Williams og tvö mynd-
banda hans voru tilnefnd. Þá kem-
ur hann sterklega til greina fyrir
bestu breiðskífú og sem besti karl-
söngvari.
Þótt George Michael hafi verið
handtekinn fyrir ósæmilega hegð-
un á almenningssalerni í Los Ang-
eles í fyrra virðist það lítt hafa
skaðað tónlistarferil hans. Safn-
plata Michaels náði meiri sölu en
nokkur önnur safnplata í sögu
breskra vinsældalista á aðeins
einni viku og var Michael tilnefiid-
ur fyrir bestu bresku smáskífu og
besta breska myndband við lagið
„Outside“.
Breski tónlistariðnaðurinn, sem
telur 50 þúsund manns, naut 5%
söluaukningar á árinu 1998 og hef-
ur aldrei komið meira í kassann,
eða rúmir 200 milljarðar króna.
Breskir tónlistarunnendur kaupa
meira af breiðskúúm og smáskíf-
um ef miðað er við höfðatölu en
nokkur öimur þjóð í heiminum.
Madonna var tilnefnd sem besti
tónlistarmaður á alþjóðavettvangi
ásamt bandarísku söngkonunum
Sheryl Crow og Lauryn Hill.
Verðlaunaafhendingin fer fram í
Lundúnum 16. febrúar og hefur
hún oftar en ekki valdið fjaðrafoki.
í fyrra tæindi stjómleysinginn
Danbert Nobacon í sveitinni
Chumbawumba úr fullri ísfötu yfir
varaforsætisráðþerra Bretlands,
John Prescott. Árið þar áður sýndi
Jarvis Cocker, söngvari Pulp, á sér
óæðri endann í mótmælum á svið-
inu meðan Michael Jackson tróð
upp.
u og tíma
|a, hægt að
SflMSUNG
Samsung 5060
stafrænn þráðlaus sími
Endlng rafhlöðu i bið 55 klst., ending rafhlöðu I
tali 9 klst., þyngd handtækis 155 g, 10 stafa skjái
R-hnappur fyrir stafræna þjónustu, langdrægni
utanhúss 300 m, hægt að nota 6 símtól,
stillanlegur styrkur i hlust, endurval á síðustu
5 númerum,
10 númera
skammvais-
| um góða og ódýra síma
minni
DRS-TP-01EB
sími með '1®
númerabirti «S
3 Ifnu skjár, 6 númeH
skammvalsminni, 1
6 númera beinvals- '
minni, geymir síðustu
92 símanumer, sýnir
handfrjálst val, klukka,
hægt að loka fyrir
hljoðnema, stillanleg
hrinqitíðni, breytilegur
hljóostyrkur, tengi
fyrir höfuðheyrnartól.
Topper
borð- eða veg
Endurval á siðai
símanúmeri,
R-hnappur fyrir
stafræna þjonu:
sfmtal sett f bið
Smáratorg
HAGKAUP
r
Meira úrval - betri kaup