Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 5

Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 26. MAÍ 1999 B 5 SMÁÞJÓÐALEIKAR á leikunum stendur fram á laugar- dag. Sérstakir heiðursgestir við setningu leikanna voru Henney Wenzel, sem varð Ólympíumeistari í svigi kvenna 1964, og Xaver Frick, sem keppti í frjálsíþróttum á Ólymp- íuleikunum 1936, en hann er orðinn 94 ára gamall. Þau eru öll frá Li- echtenstein. Björn Bjamason, menntamálaráð- herra, og Ellert B. Schram, forseti íþrótta- og ólympíusambands Is- lands voru við setningarathöfnina. Keppendur á Smáþjóðaleikum Evrópu eru frá Islandi, Liechten- stein, San Marínó, Kýpur, Lúxem- borg, Möltu og Mónakó. Þetta eru allt þjóðir innan Evópu sem eru með minna en milljón íbúa. Fjölmennasta þjóðin er Kýpur með rúmlega 700 þúsund íbúa, en sú fámennasta er San Marínó með 24 þúsund íbúa, en Liechtenstein er litlu stærra, með 32 þúsund íbúa. Smáþjóðaleikamir vom fyrst haldnir í San Marínó 1985. Allar átta þjóðirnar hafa nú haldið leikana og því verða næstu Smáþjóðaleikar í San Marínó eftir tvö ár, árið 2001. íslenska íþróttafólkið hefur ávallt verið í fremstu röð og hefur unnið flest verðlaun allra þjóða, eða sam- tals 437 verðlaun á þessum átta leik- um. Veðrið í Liechtenstein hefur verið eins og best verður á kosið, 22 stiga hiti og léttskýjað. JUAN Antonio Samaranch, for- seti Alþjóða ólympíunefndar- innar, IOC, setti áttundu Smá- þjóðaleikana sem hófust á Þjóðarleikvanginum í Li- echtenstein í fyrra kvöld. ís- lendingar sendu 113 keppend- ur á leikana að þessu sinni. Jón Arnar Magnússon, tugþraut- arkappi, fór íyrir íslenska hópn- um og var fánaberi. Keppt verður í frjálsíþróttum, sundi, júdó, tennis, borðtennis, skotfimi og skvassi. Keppni hófst í gær og stehdur fram á laugardag. Tæplega þúsund keppendur er mættir til leiks og vom um 5.000 áhorfendur sem fylgdust með setnignunni á mánudagskvöld, sem var hin glæsilegasta. Skíðakappinn frá Liechtenstein Marko Buche, sem varð annar á heimsmeistaramótinu í stórsvigi í Vail í Colorado í vetur, tendraði eldinn sem mun loga meðan Malta fær leikana 2003 GUÐNÝ Einarsdóttir fagnar Silju Úlfarsdóttur eftir að Silja kom fyrst í mark í 100 m hlaupi. Guðný fékk gullið í greininni fyrir tveimur árum í Reykjavík, þá fimmtán ára. í gær var ákveðið á þingi Samtaka smáþjóðanna að ieik- arnir 2003 yrðu á Möltu. Tvær umsóknir bárust um þá leika, írá Möltu og Mónakó. Þar sem 75 ár verða þá frá því að Möltubúar sendu keppendur fyrst á Óiympiuleika var ákveðið að styðja umsókn þeirra. Mónakó sótti þá um að fá að halda leikana 2Ö07 og það var samþykkt. Ólympíu- nefnd Mónakó heldur það ár upp á 100 ára afmæli sitt. Næstu leikar verða í San Mar- ínó eftir tvö ár. Frjálsíþróttamenn voru á verðlaunapalli á fyrsta keppnisdeginum í Schaan Tvenn gullverðlaun ÍSLENDINGAR unnu tvenn gullverðlaun, ein silfur- og þrenn bronsverðlaun á fyrsta degi frjálsíþrótta í rigningu og þrumuveðri í Liechtenstein í gær. Júdómennirnir unnu auk þess til fernra gullverðlauna og eru íslendingar því með sex gullverðlaun eftir fyrsta keppnisdag og eru efstir á verð- launalistanum. Magnús Aron Hallgrímsson úr HSK sigraði í kringlukasti og Silja Úlfarsdóttir, FH, vann 100 metra hlaup kvenna nokkuð óvænt á hlaupabrautinni í Schaan. Jóhannes Már Marteinsson varð annar í 100 metra hlaupi og Reynir Logi Ólafsson þriðji, aðeins ■■■■■■ einum hundraðshluta Vaiur B. úr sekúndu á eftir Jó- Jánatansson hannesi. Bima skrifar Björnsdóttir varð þriðja í 800 metra hlaupi og Guðný Eyþórsdóttir þriðja í 100 metra hlaupi. Frekar leiðinlegar aðstæður voru á frjálsíþróttavellinum vegna bleytu og fáir áhorfendur. Stemmningin var því ekki mikil í kringum keppn- ina. Silja vann fyr.stu gullverðlaun dagsins á frjálsíþróttavellinum og kom það íslensku liðsmönnunum á óvart. Hún náði ekki góðu starti, sat aðeins eftir í startblokkunum en tók vel við sér eftir það og fór fram úr keppinautum sínum rétt áður en hún kom í markið. Magnús Aron öruggur Magnús Aron var öryggið upp- málað í kringlunni og tók forystu frá fyrsta kasti, sem var rúmlega 54 metrar. Hann lengdi sig síðan jafnt og þétt og kom lengsta kastið í fimmtu tilraun, 58,28 metrar. Eng- inn ógnaði sigri hans því sá sem kom næstur var með 51,67 metra. Kringlukastarinn efnilegi, Óðinn Björn Þorsteinsson, náði sér ekld alveg á strik á sínu fyrsta stórmóti, kastaði lengst 40,97 metra og varð neðstur. Hann á best 54,72 metra. Jóhannes Már Marteinsson og Reynir Logi Ólafsson voru báðir með betri tíma í undanrásum en í úrslitahlaupinu sjálfu. Jóhannes hljóp þá á 10,82 sek. en 10,85 í úr- slitum og Reynir Logi hljóp á 10,84 í undanrásum og 10,86 sek. í úrslit- um. Þess ber að geta að þegar úr- slitahlaupið fór fram rigndi meira. Sigurvegari var Anninos Makollides frá Kýpur á 10,61 sek. Birna Bjömsdóttir hljóp 800 metrana á 2,08,70 mín. Hún var að- eins 0,03 sek. á eftir stúlkunni sem varð í öðm sæti, en Christa Salt frá Lúxemborg sigraði á 2.6,90 mín. Unnsteinn Grétarsson varð fjórði í sínum riðli í undanrásum í 400 metra hlaupi á 54,60 sek. og komst áfram í úrslit, sem fram fara í dag. Loks varð Guðný Eyþórsdóttir fimmta í langstökki með 5,42 metra. Yfirburðir hjá Magnúsi Aroni MAGNÚS Aron Hallgrímsson var með nokkra yfirburði í kringlukastinu. „Ég er mjög ánægður með þennan árangur miðað við þær aðstæður sem vom hér. Eg er að stíga upp úr meiðslum því ég fér í uppskurð í janúar og er nú að koma veru- lega til. Hringurinn var blautur og því háll og keppendur áttu það til að renna í honum,“ sagði þessi efnilegi kastari sem kastaði lengst 58,28 metra. Þetta var fyrsta mót hans í ár og lofar árangur hans svo sannarlega góðu fyrir sumarið. Magnús keppti á Smáþjóða- leikunum á íslandi fyrir tveimur árum og kastaði þá kringlunni rúma 35 metra. „Ég er auðvitað ánægður með framfarirnar á milli Smáþjóðaleika. Ég veit að ég á mun meira inni. Eg hef ver- ið að kasta enn lengra á æfing- um. Ég hef kastað lengst 60,62 metra síðan í fyrra og ég var ekki langt frá því hér. Ég keppi í Svíþjóð um næstu helgi og í Evr- ópubikarmóti um miðjan júní.“ Hann segist stefna á lágmark- ið fyrir HM í sumar, en það er 62 metrar. „Ég tel mig eiga mjög góða möguleika á að ná því og það kæmi mér á óvart ef ég gerði það ekki. Þetta á aðeins eftir að smella saman og ég veit að það gerir það á næstu vikum eða dögum," sagði Magnús Aron. Óvænt hjá Silju SILJA Úlfarsdóttir úr FH gerði sér lítið íyrir og sigraði í 100 metra hlaupi kvenna á 12,09 sekúndum og varð fyrsti Islendingurinn til að vinna til gullverðlauna á nýja frjálsí- þróttavellinum í Lieehtenstein. Hún ætlaði ekki að keppa í hlaupinu þar sem hennar helstu greinar eru 200 og 400 metra hlaup. „Ég var beðin að vera með því það vantaði keppendui- í hlaupið, voru aðeins fjórar skráðar. Ég sló því til svo hlaupið myndi ekki falla niður og sigraði. Það var óvænt. Ég bætti fyrri árangur minn um 0,20 sekúndur. Ég átti ekki von á þessu,“ sagði Silja eftir hlaup- ið sem hún skeiðaði á 12,09 sek- úndum. Guðný Eyþórsdóttir, IR, sem sigraði í þessari grein á síðustu leikum á íslandi fyrir tveimur árum, varð þriðja á 12,37 sek. Stúlkumar voru fimm sem hófu keppni, en ein var dæmd úr leik venga þess að hún þjófstartaði tvisvar sinnum. í þriðja sinn sem ræst var af stað klikkaði tímatakan og stúlkurn- ar þurftu því að fara á ráslín- una í ijórða sinn. Silja var sein af stað en náði síðan keppinaut- um sínum og var nokkuð á und- an næstu. Silja, sem verður 18 ára síðar í sumar, hefur æft frjálsí- þróttirí fjögur ár hjá FH. „Ég byrjaði í frjálsum með því að taka þátt í skólahlaupi og vann. Þá buðu FH-ingar mér á æfing- ar hjá frjálsíþróttadeildinni. Ég var líka á fullu í handboltanum með FH en lagði handbolta- skóna á hilluna í fyrra. Ég hef meira gaman af frjálsum,“ sagði hún. Samaranch setli leikana í Liechtenstein

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.