Morgunblaðið - 06.10.1999, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Nemendur Menntaskólans við Sund fluttu tónlist á 30 ára afmælishátíð skólans.
Menntaskólinn við Sund 30 ára
MENNTASKÓLINN við Sund á 30 ára afmæli nú í
haust. Af því tilefni var haldin afmælishátíð í skól-
anum um helgina og söfnuðust þar saman bæði nú-
verandi og fyrrverandi nemendur og kennarar.
Haldnar voru sýningar á myndum og munum frá
fyrri árum skólans og við opnun hátíðarinnar fluttu
Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Kristinn
Már Ársælsson, ármaður skólafélagsins, og Halla
Kjartansdóttir kennari ávörp.
Dagskrá stóð yfir allan daginn og fluttu nemend-
ur leikþætti og tónlist. Leiklistarfélagið Thalía
flutti einþáttunginn Kirsubeijasystur eftir Tsjekov
og skólakórinn söng undir stjórn Áslaugar Berg-
steinsdóttur.
Evrópsk átaksvika gegn tóbaki
Lögleg en
banvæn
neysluvara
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur
spáð því að af þeim sem búa nú í
Evrópu muni að minnsta kosti 100
milljónir deyja af völdum tóbaks
ef ekki dregur úr neyslu þess. Þá
er sýnt að u.þ.b. þrjár milljónir
manna deyi árlega í heiminum
vegna afleiðinga af notkun tóbaks,
að tóbak valdi 20% allra dauðs-
falla í Evrópu, 40% allra ótíma-
bærra dauðsfalla á Vesturlöndum
og að 350-400 Islendingar deyja
árlega af völdum beinna og
óbeinna reykinga.
Ofangi-eindar upplýsingar
koma fram í bæklingnum Tóbak:
Heimildasafn um tóbak sem er
notaður meðal annars til að upp-
lýsa um skaðsemi tóbaks í yfir-
standandi átaksviku gegn tóbaki.
Átján lönd innan Evrópusam-
bandsins og á evrópska efnahags-
svæðinu standa fyrir herferðinni
sem ber heitið „Evrópa gegn
reykingum“. Meginmarkmið
átaksins, er að hvetja ungt fólk til
að hætta að reykja og koma á
framfæri upplýsingum um hvert
fólk, sem ákveðið hefur að hætta,
getur leitað eftir ráðleggingum og
stuðningi.
Hérlendis standa sameiginlega
að verkefninu heilbrigðisráðu-
neytið, Krabbameinsfélagið og
Tóbaksvarnarnefnd en Samfés
(Samtök félagsmiðstöðva) hafa
aðstoðað við dreifingu gagna til
félagsmiðstöðva landsins.
Átakið felst einkum í dreifingu
upplýsinga eftir ýmsum leiðum.
Þar á meðal er hægt að nálgast
upplýsingar og margs konar fróð-
leik á Netinu, m.a. á heimasíðu
Tóbaksvarnarnefndar (www.reyk-
laus.is) og Krabbameinsfélagsins
(www.krabb.is).
Samfylk-
ingin verð-
ur í Þórs-
hamri
RANNVEIG Guðmundsdóttir,
formaður þingflokks Samfylk-
ingarinnar, kveðst í samtali við
Morgunblaðið hafa orðið íyrii-
vonbrigðum með þá ákvörðun
forseta Alþingis, Halldórs
Blöndals, að verða ekki við
þeirri ósk þingflokks Samfylk-
ingaiinnar um að fá starfsað-
stöðu í Alþingishúsinu. Þess í
stað er útlit fyrir að Samfylk-
ingin verði með aðstöðu í Þórs-
hamarshúsi við Templarasund
vegna þess að þingflokksher-
bergi það sem Álþýðuflokkur-
inn hafði áður til umráða er
ekki nægjanlega stórt fyrir
Samfylkinguna.
„Ég verð að viðurkenna að
ég átti svo sem ekki von á
neinu en samt finn ég til von-
brigða því það hefði verið svo
glæsilegt hjá nýjum forseta
Alþingis að taka á þessum mál-
um af reisn. Það var ekki
gert.“
Rannveig segir að í ná-
grannalöndunum sé sá háttur
hafður á að stjórn þingsins vísi
þingflokkum til vinnuaðstöðu
miðað við stærð þeirra.
Þingflokkar flytja
sig um set
„Ef breytingar verða á stærð
þingflokka verða þeir að flytja
sig um set yfír í önnur húsa-
kynni sem betur falla að stærð
þeirra," segir hún og bendir á
að í Alþingishúsinu séu tvö stór
og um það bil jafnstór vinnu-
herbergi sem ætluð séu þing-
flokkum. í öðru þeirra sé tutt-
ugu og sex manna þingflokkur
sjálfstæðismanna en í hinu tólf
manna þingflokkur framsókn-
armanna. „Síðan eru önnur
minni en jafnstór herbergi og í
þeim hafa nú aðsetur sautján
manna þingflokkur Samfylk-
ingarinnar og sex manna þing-
flokkur vinstri grænna. Það sjá
það allir að þetta er ekki mjög
góð skipting."
Samningur um fjárveitingar til kennslu í Háskóla Islands
Framlög’ til kennslu auk-
in um nær 250 milljónir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Geir Haarde (jármálaráðherra, Björn Bjarnason menntamálaráðherra og Páll Skúlason, rekt-
or Háskóla íslands, undirrituðu í gær samning milli menntamálaráðuneytisins og Háskóla Is-
lands um fjárveitingar til kennslu.
ÁRLEG fjárframlög ríkisins til kennslu í Há-
skóla Islands verða aukin um 246 milljónir og
verða samskipti ríkisstjórnarinnar og Háskól-
ans nú í fastari skorðum. Þetta tryggir samn-
ingur milli menntamálaráðuneytisins og Há-
skóla Islands um kennslu og fjárhagsleg sam-
skipti sem Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra, Páll Skúlason, rektor Háskóla íslands,
og Geir Haarde fjármálaráðherra undirrituðu
í gær.
Unnið hefur verið að samningi þessum í rúm
fjögur ár og tekur hann til fjárveitinga til
reksturs Háskóla Islands vegna kennslu. Er
tilgangur hans að tryggja rekstrargrundvöll
Háskólans þannig að hann sé svipaður og hjá
sænskum og dönskum háskólum með sam-
bærileg hlutverk, enda eigi skólinn að full-
nægja sömu kröfum og þeir viðmiðunarskólar.
Aukin framlög til kennslu
í Háskóla Islands
Með samningnum gefur menntamálaráð-
herra út reglur um fjárveitingar til háskóla
sem byggjast á því að ríkissjóður greiðir há-
skólanum ákveðna upphæð, svokallað nem-
endaframlag, með hverjum nemanda sem
stundar nám til viðurkenndra námsloka. Nem-
endaframlögum er skipt í sjö flokka eftir
námsgreinum með tilliti til kostnaðar við
kennslu hverrar greinar og eru þau á bilinu
267.000 til 1.477.000 krónur á ári fyrir hvern
nemanda. Menntamálaráðuneytið gengur á
næstu vikum til samninga við aðra skóla á há-
skólastigi um fjárveitingar á grundvelli þess-
ara reglna.
Áætlað er að framlög vegna kennslu í Há-
skóla íslands hækki um 246 milljónir á verð-
lagi fjárlaga 1999. Skólinn mun annast kennslu
að hámarki 4.300 nemendaígilda, en eitt nem-
endaígildi samanber einn nemanda í fullu
námi, sem eru 30 einingar á ári. Til saman-
burðar voru 3.880 nemendaígildi við nám í Há-
skólanum skólaárið 1997 til 1998.
Mikilvægt að fjárhagsleg samskipti
séu samningsbundin
Páll Skúlason sagði við undirritun samn-
ingsins að með honum væri kominn nýr grunn-
ur að fjárveitingum til Háskóla íslands. Nú
væru þær innan ákveðins ramma sem væri
mikilvægt því þá væri hægt að tryggja og
skipuleggja starf skólans til nokkurra ára í
senn.
Geir Haarde sagði að aukin framlög til
kennslu í háskólanum væru í samræmi við
stefnu ríkisstjórnarinnar um að leggja áherslu
á skóla og menntamál. Einnig væri samning-
urinn í samræmi við stefnu hennar um að
koma fjárveitingum af þessu tagi í fastar
skorður með því að samningsbinda þær, svo
hægt væri að skipuleggja starf fram í tímann.
Björn Bjarnason menntamálaráðherra tók
einnig fram að mikilvægt væri að búið væri að
samningsbinda fjárveitingar til háskólans.
Hann nefndi líka að þetta væri ekki samningur
um einhliða viðbótarútgjöld ríkisins, því há-
skólinn kæmi til móts við aukna fjárveitingu
með ýmsum leiðum til að bæta skólastarfið.
Viðræður um samning vegna
fjárveitinga til rannsókna
Samhliða undirritun þessa samnings um
fjárveitingar til kennslu, undirrituðu mennta-
málaráðherra og háskólarektor yfirlýsingu
þess efnis að viðræður væru hafnar um fjár-
veitingu til rannsóknarþáttarins í starfi há-
skólans. í yfirlýsingunni kemur fram að aðilar
hennar séu sammála um að í faglegu starfi há-
skólans séu rannsóknir ekki síður mikilvægur
þáttur en kennsla. Á þeirri forsendu muni þeir
beita sér fyrir gerð sérstaks samnings um
rannsóknir við háskólann, í tengslum við und-
irbúning fjárlaga fyrir árið 2001.