Morgunblaðið - 06.10.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 11
FRÉTTIR
Þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs kynna þingmál sín
Leggja fram frumvarp um
dreifða eignaraðild að bönkum
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Frá blaðamannafundi þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Alþingi í gær.
UMHVERFISMÁL, byggðamál og opinber
þjónusta og einkarekstur eru meðal þeirra mála
sem þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs telur mikilvægt að komi sem fyrst til
umræðu á yfirstandandi löggjafarþingi. Þetta
kom m.a. fram á blaðamannafundi þingflokksins
sem haldinn var í gær en þá voru kynnt þau þing-
mál sem þingmenn flokksins hafa lagt fram á Al-
þingi í þessari viku.
„Við lítum á byggðavandann og byggðaröskun-
ina [...] eitt alvarlegasta vandamál sem steðjar að
íslensku samfélagi um þessar mundir,“ sagði Ög-
mundur Jónasson, formaður þingflokksins, á
fundinum í gær og kynnti um leið þingsályktun-
artillögu þingmanna Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs um sérstakar aðgerðir í byggða-
málum. Meginefni tillögunnar er að Alþingi
álykti að fela ríkisstjóminni að verja um fjórum
til fimm milljörðum króna til sérstakra aðgerða í
byggðamálum á næstu fjórum árum. Er í tillög-
unni m.a. gert ráð fyrir því að ríkisstjórnin verji
árlega, á næstu fjórum árum, þúsund milljónum
króna til jarðgangagerðar, fyrst á Austurlandi og
síðan á Norðurlandi og Vestfjörðum.
Þingmenn flokksins skýrðu auk þess frá því að
þeir hefðu lagt fram á Alþingi þingsályktunartil-
lögu um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar
Fljótsdalsvirkjunar. Er það í fjórða sinn sem til-
lagan er lögð fram á Alþingi, en hún var fyrst
flutt þar vorið 1998. Þá kynnti Þuríður Backman,
varaformaður þingflokksins, tillögu til þingsá-
lyktunar um stofnun Snæfellsþjóðgarðs, en með
henni er lagt til að Alþingi álykti að fela um-
hverfisráðherra að beita sér fyrir stofnun Snæ-
fellsþjóðgarðs, sem taki til Snæfells og öræfanna
umhverfis að meðtöldum Eyjabökkum og Jök-
ulsá í Fljótsdal að mörkum heimalanda jarða í
Norðurdal. „Það sem brennur mest á okkur nú
þessa dagana og vikurnai- eru umhverfis- og
virkjanamálin og við teljum brýnt að fá þá um-
ræðu inn á þingið á næstu dögum,“ sagði Ög-
mundur m.a. við þetta tækifæri.
Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður og
formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns fram-
boðs, kynnti frumvarp sitt og Ögmundar Jónas-
sonar um dreifða eignaraðild að viðskiptabönkum
og lánastofnunum en í því er m.a. lögð til sú
breyting á lögum um viðskiptabanka og spari-
sjóði að einstökum aðOum, öðrum en ríkissjóði,
og skyldum og/eða fjárhagslega tengdum aðUum
verði óheimUt að eiga meira en 8% hlutafjár í við-
skiptabanka. „Við teljum að með því að setja inn
slíkt hámark megi tryggja það að eignaraðUdin
verði sæmUega dreifð. Ög við viljum að sjálf-
sögðu að þetta mál verði tekið tU umfjöUunar á
Alþingi með hraði. Tæpast standast rök tU ann-
ars vegna þess að þessi mál eru á fullri ferð af
hálfu ríkisstjórnarinnar," sagði Steingrímur.
Getíð verði um vísindasiðanefnd í lögum
Fleiri þingmál Vinstrihreyfingarinnar voru
kynnt á blaðamannafundinum í gær, svo sem
frumvarp tU laga um breytingu á lögum um rétt-
indi sjúklinga. Er með frumvarpinu lagt til að
sett verði í lög um réttindi sjúklinga að vísinda-
siðanefnd skuli skipuð samkvæmt tUnefningu
læknadeUdar, lagadeUdar, líffræðistofnunar og
siðfræðistofnunar Háskóla íslands, Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðmga og Læknafélags ís-
lands. Ennfremur að heUbrigðisráðherra skipi
formann án tilnefningar. I þessu sambandi sagði
Þuríður að þingflokkurinn liti svo á að sú vísinda-
siðanefnd sem nú væri starfandi, samkvæmt
reglugerð, og skipuð væri af mismunandi ráð-
herrum gæti aldrei verið hlutlaus vísindasiða-
nefnd. Þá má geta þess að Vinstrihreyfingin -
grænt framboð hefur lagt fram tillögu tU þingsá-
lyktunar um aðgerðir vegna stríðsátakanna í
Kosovo og tiUögu tU þingsályktunar um sjálf-
bæra orkustefnu auk fjölda fyrirspuma tU ráð-
herra.
Fagna
landafund-
inum
LÚTERSKUR söfnuður í Nor-
egi hefur ákveðið að hefja á
laugardaginn hátíðarhöld
vegna Vínlandsferðar Leifs Ei-
ríkssonar.
A laugardag og næstu níu
daga mun söfnuðurinn fagna
því með söng, messuhaldi og
fyrirlestrum að eitt þúsund ár
eru liðin frá því að Leifur Ei-
ríksson kom til N-Ameríku.
í frétt AP-fréttastofunnar
segir að samkvæmt Islendinga-
sögunum hafi Leifur komið til
Norður-AmerUcu fyrir eitt þús-
und árum. Þá hafi fornleifa-
fundur í Nýfundnalandi í
Kanada árið 1968 leitt í ljós að
víkingar hafi sest þar að í
kringum árið 1000 en það er um
fimm öldum áður en Kristófer
Kólumbus kom þangað árið
1492.
Bannað að
reykja í Al-
þingishúsinu
HALLDÓR Blöndal, forseti Al-
þingis, hefur falið skrifstofu Al-
þingis að senda tölvupóst til
allra alþingismanna og starfs-
manna Alþingis þess efnis að
frá og með fimmtudagsmorgni
verði hvorki heimilt að reykja í
Alþingishúsinu né í öðrum
húsakynnum Alþingis sem opin
séu almenningi.
Halldór sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði
kynnt forsætisnefnd og þing-
flokksformönnum þessa
ákvörðun og óskað eftir því að
hún yrði kynnt starfsmönnum
og að einu viðbrögðin hingað til
hefðu verið jákvæð og góð.
Amerísku
undrakremin
frá
Institute • For • Skin • Therapy
ÞAU VIRKA
HVAB SEGJA ÞÆR SEM REYNT HAFA?
ANNA KARLSDÓTTIR 49 ára.
Amerisku undrakremin virka svo
sannarlega og eru satt að segja
miklu betri en ég þorði að vona
eftir að hafa prófað hinar og
þessartegundir í gegnum árin
og ekki þæródýrustu, án
sýnilegs árangurs.
Kremin eru létt, smjúga inn f
húðina.gefa einhvernveginn
hreina tilfinningu og eru ótrúlega
drjúg. Maður verður virkilega
sléttur og fínn f framan af
þessum snyrtivörum.
GUÐRÚN ANTONSDÓTTIR 24 ára.
Ég var satt aðsegja ansi illa
haldin af þólóttri húðum tíma,
Vandamálið var það mikiðað ég
þurfti aðlelta læknis og fara
sérstaka meðferð
En eftir meðferðina hef ég getac
haldið bólunum algjörlega niðr
með því aðnota bólumeðferðint
sem Amerisku undrakremir
bjóða upp á
Ég er rosalega ánægð með
þessarsnyrtivörur. Var meðansi
slæma þurrkbletti í andlitinu, þeir
eru nú alveg horfnir. Þetta eru
einu snyrtivörurnar sem hafa lag-
að þá og hef ég þó reynt
ýmislegt í þessum málum um
dagana.
Nú líður mér vel í húðinni.get
notað andlitsmálningu án þess
að hún hlaupi ( kekki og
sjálfsálitið hefur aukist til munal
ÞURlÐUR HALLGRfMSDÓTTIR 44 ára.
Áður fyrr átti ég við þó nokkur
húðvandamál að stríða og
prófaði ótal snyrtivörutegundir til
að reyna að ráða bót á afar
óþægilegum húðþurrki í andliti.
Eftir að óg fór að nota Amerísku
undrakremin, heyra þessi
vandamál sögunni tll. Húðin
hefur gjörbreyst, húðþurrkurer
horfinn, andlitið hefur sléttst.
Árangur er tvímælalaus, get ekki
annað sagt.
SIGURLAUG LÁRUSDÓTTIR 70 ára.
KYN NIN G AR AFS LÁTTU R
af CLEAR-UP STARTER KIT - Sér meðferð
fyrir bóluhúð. Fimm tegundir snyrtivara vinna
saman og ná hámarksárangri í baráttunni við
bólurnar! Nákvæmar leiðbeiningar á íslensku.
Aðstæður hjá mér eru þannig að
ég get ekki eytt miklum tlma í
andlitssnyrtingu, verð að vera
snöggaðhlutunum, 4 lítil börn og
nokkrir hundar sjá til þess. Amer-
Isku undrakremin hafa marga
kosti fyrir mig og mína viðkvæmu
húð.Maðurerfljótur aðskella
þeimá sig, þau liggjaekki utan á,
fara beint inn I húðina, þaðfinnst
greinilega og sést að þau gera
húðinni gott, þurrkblettir hafa
horfið eins og dögg fyrir sólu.
GUÐNÝ SIGURÐARDÓTTIR, 31 árs.
%
KYN NIN GARAFS LÁTTU R
af hinum einstöku VITAMINIC COMPLEX
vítamíndropum sem innihalda m.a. A-B-
C-D-E vítamín auk collagens sem eykur
teygjanleika húðarinnar Imynda má sér
hina áhrifamiklu VITAMINIC COMPLEX
vítamíndropa sem risaskammt af víta-
mínum og næringarefnum, sem smjúga djúpt inn í
húðina og hreinlega baða frumurnar næringu.
Vítamíndroparnir eru frábærir fyrir þurra og við-
kvæma húð. Má nota kvölds og morgna.
Snyrtivörur fyrir allar húðgerðir, ilmefnalausar, nátt-
úrulegar, ofnæmisprófaðar, meðog án ávaxtasýru.
Fást aðeins á völdum snyrtistofum í Kaliforníu.
Sölustaðir hér á landi eru:
Snyrtistofan MAJA, Bankastræti 14, Reykjavík, S. 551-7762
Snyrtistofan EVA, Ráðhústorgil, Akureyri, s. 462 5544
Snyrtistofan DANA, Hafnargötu 41, Keflavík, s. 421 -3617
BETRI LÍNUR, Bröttugötu 21, Vestmannaeyjum, s. 481 -2387
Heilsustúdíó VÖXTUR, Túnbrekku 2, Ólafsvík, s. 436-1335
og KOSMETA ehf Síðumúla17, Reykjavík, s. 588-3630
Sendum
vandaðan
upplýsinga bækling
ásamt
verðlista
ef óskaðer!
ehf
Síðumúla 17 • 108 R •
Simi: 588-3630 • Fax: 588-3731
Opið frá kl. 14:00-18:00
Netfang: kosmeta@islandia.is