Morgunblaðið - 06.10.1999, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 06.10.1999, Blaðsíða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Matur og matgerð Haustsúpa „Nú er orðið fínt að vera meiddur á öxl,“ sagði kona nokkur við Kristínu Gestsdóttur, þegar hún mætti henni með hönd 1 fatla um dagínn. EN það er ekki axlarmein sem verður hér til umræðu heldur kjötsúpa, en hún virðist vera sannkallaður haustmatur, enda til ófrosið kjöt og mikið úrval af góðu íslensku grænmeti. Vinir og fjöldskylda hafa keppst við að bjóða okkur hjónum í mat eftir að hægri öxl mín og þar með höndin „féll úr leik“ - og oft fá- um við kjötsúpu, ég fékk meira að segja kjötsúpu á spítalanum og það mjög góða súpu. Mér fínnst kjötsúpa góð og hún hefur þann kost að hægt er að drekka hana úr bolla. A spítalanum sá ég sjúklinga berjast við stóra kjötbita með fitu og beinum, en ég slapp við þau vandræði þar sem ég var nýkomin úr aðgerð. Bein þyrfti helst að taka úr og skera fitu frá áður en kjötið er borið fram. Eg veit að mörg börn vilja ekki kjötsúpu, er þetta ekki ástæðan? Má ekki smækka þessa ólystugu súpu- kjötsbita og skera fituna frá áð- ur en kjötið er selt neytendum? Beinin þarf þó að sjóða með súp- unni til að fá kraft úr þeim en þau þarf ekki að bera á borð. Langt er síðan ég hætti að sjóða súpukjötið eins og það kemur frá framleiðendum, heldur sker kjötið í frekar smáa bita og fjar- lægi bein eftir að búið er að sjóða kjötið, þá er það auðvelt. Oftast er kjötið frosið og auðvelt er að snyrta til hálffrosið kjöt. Ef við skerum fituna frá flýtur heldur ekki fítubrák ofan á súp- unni. Ekki er sama hvernig grænmetið er soðið auk þess sem rófu- og hvítkálssoð bætir ekki súpuna nema í litlu magni sé, best er að sjóða rófur og hvít- kál sér og setja í súpuna í lokin. Hinar ýmsu tegundir græmetis þurfa mislanga suðu, íslenskt hvítkál t.d. þarf í mesta lagi 5 mínútur. Kjöt soðið í litlu vatni verður mun bragðbetra en ef það er soðið í miklu vatni, vatni má bæta í súpuna í lokin. Haustsúpa 1 kg súpukjöf sem búið er að fituhreinsa 1 '/2-2 I vatn, svo að rétt fljóti yfir kjötið 1 tsk. salt í hvern lítra vatns 1 lörviðarlauf 6 svört piparkorn (mó sleppa) 6 allrahandakorn (mó sleppo) 1 dl hrísgrjón 1 meðalstór laukur 2 meðalstórar gulrætur 2 stórar kartöflur 3 meðalstórar rófur (soðnar sér í saltvatni) smóbiti hvitkól (soðið með rófunum í lokin) sjóðandi vatn eftir þörfum í lokin 1. Skerið fitu frá kjötinu og fleygið. Látið beinin vera í en skerið eitthvað kjöt frá beinum. Raðið kjötinu og beinunum þétt ofan í meðalstóran pott, reynið að hafa bara eitt lag. Hellið sjóð- andi vatni svo að rétt fljóti yfir, setjið síðan salt út í. 2. Setjið piparkom og allra- handakom í litla grisju eða stykki og bindið fyrir, setjið út í soðið. Setjið þá lárviðarlaufið út í og sjóðið við hægan hita í 60-70 mínútur. 3. Afhýðið og saxið laukinn og þvoið gulrætur, skafið ekki ís- lenskar gulrætur, mest vitamín er við hýðið, skerið þær í sneið- ar, afhýðið kartöflur og skerið í þykkar sneiðar. Þvoið hrísgrjón. Setjið lauk, kartöflur, gulrætur og hrísgrjón út í súpuna og sjóð- ið áfram í 15 mínútur. 4. Afhýðið og skerið rófumar í bita, sjóðið í saltvatni í 15 mín- útur, sjóðið hvítkálið með síð- ustu 5 mínúturnar. Erlent hvít- kál þarf lengri suðu. 5. Fjarægið bein, grisjupoka og lárviðarlauf úr súpunni. 6. Hellið soðinu af rófunum og hvítkálinu og setjið hvort tveggja út í súpuna. Nota má 1 dl af soðinu saman við súpuna. 7. Takið kjötið upp úr súp- unni og takið kjötið af beinun- um, setið kjötið aftur í súpuna en fleygið beinunum. 8. Bætið sjóðandi vatni út í og athugið saltmagn. Hellið í skál eða berið fram í pottinum. Mikið úrval af nýjurn tískuejhum VIRKA Mörkin 3 - Sími 568 7477« Opið Mánud,—föstud. kl. 10-18 Laugard. kl. 10—16 til 20/12 í DAG VELVAKANPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Enn um ör- yggisbelti í hópferðabflum VIÐ, bílstjórar hjá Guð- mundi Tyrfingssyni á Sel- fossi, lásum í Velvakanda 28. sept. sl. bréf frá bílstjór- um Hópbfla þar sem þeir segja fyrirtæki sitt eina fyr- irtækið sem er með örygg- isbelti í sínum bflum. Okkur leiðast svoh'tið svona stað- hæfingar þegar þær eru ekki réttar. Við vitum að mjög margir hópferðabílar eru komnir með öryggisbelti og jafnframt allur bílafloti Hópferðabfla Guðmundar Tyrfingssonar á Selfossi sem rekur um 20 bfla. Slæm simaþjónusta Eg er ekki ánægð með símaþjónustu heilsugæsl- unnar í Kópavogi. Þegar nýja heilsugæslan í Kópa- vogi var opnuð í Smáran- um í vor var símaþjónustan flutt þangað. Þannig að ef maður ætlar að ná sam- bandi við heilsugæsluna í Fannborg er gefið sam- band þangað. Ég þurfti að ná sambandi við heilsu- gæsluna í Fannborg ný- lega og var mér gefið sam- band þangað en ég beið í 15 mín. í símanum áður en ég gafst upp og gekk þang- að. Það er ekki nógu gott ef fullorðið fólk nær ekki símasambandi þangað. Guðrún Guðlaugsdóttir. Góð dagskrá á Stöð 1 ÉG horfi sjaldan á Stöð 1 en ég settist niður sl. föstudagskvöld og horfði þar á frábæra mynd, ,Ást- in ein“, sem er framhalds- mynd og var seinni hlutinn sýndur á laugardagskvöld. Vil þakka fyrir frábæra mynd. Einnig var önnur mjög góð mynd sýnd á eft- ir henni. Vona að þeir komi oftar með svona fallegar myndir. Áhorfandi. Enn um orðið „giska“ KONA hafði samband við Velvakanda vegna fyrir- spumar í Velvakanda um orðið „giska". Sagði hún að á bls. 284 í íslenskri orða- bók Menningarsjóðs, væri þetta orð að finna: 1. giska, -aði s geta á: g. á e-ð geta sér e-s til, glöggva sig á e-u; á að g. um það bil. 2. giska -aði s telja e-ð stórkostlegt, fjarska e-ð. 3. gisk AO mjög, ákaflega, fram úr hófi; g. dýr. Dónaskapur hjá tollsfjóra GRÍMUR hafði samband við Velvakanda og sagðist hann hafa hringt í toll- stjóraembættið og ætlað sér að semja um skattinn sinn. Sagði hann að sá sem hann talaði við þar hafi verið bæði dónalegur og ósvifinn. Sagði Grímur að hann ætti að fá sér ein- hverja aðra vinnu en að svara í síma hjá hinu opin- bera, ekki síst hjá tollstjór- anum í Reykjavík. Tapað/fundið Lyklar í óskilum HLYNUR, sem er sex ára, er búinn að finna tvær lyklakippur á Tómasar- haga. Onnur er með einum lykli og hin með tveimur lyklum. Upplýsingar í síma 551 6976. Dalamenn 1, 2 og 3 - Skotthúfa við upphlut FTRIR um það bil tveim árum tapaði ég þrem bók- um; Dalamenn, fýrsta, ann- að og þriðja bindi eftir sr. Jón Guðnason. Þetta er ábúendatal Dalamanna frá 1703, heima og burtfluttra. Bækumar eru merktar Guðrún eða Rúna á Klúku. Einnig tapaði ég fyrir nokkrum árum handprjón- aðri skotthúfu með silfur- hólk. Þeir sem geta upplýst mig eða vita eitthvað um þessa hluti sem era mér mjög mikilvægir vinsam- lega hringi i síma 451 3124. Sigurrós G. Þórðardóttir Hafnarbraut 31, 510 Hólmavík. Gullmen týndist GULLMEN með bláum steini í festi týndist á göngu eldri borgara frá Glæsibæ og niður Laugar- dalinn sl. laugardag. Skil- vís finnandi hafi samband í síma 581 2311. Dýrahald Páfagaukur í óskilum BLAR páfagaukur er í óskilum á Boðagranda 7. Upplýsingar í síma 562 2771. Fífí er týnd - Kettlingar fást gefíns FIFI sem er brúngrá bröndótt iæða, týndist frá Hraunbraut í Kópavogi fyrir rúmum mánuði. Hún er ómerkt. Tveir átta vikna barnelskir kettlingar fást gefins, læður. Upplýs- ingar í síma 564 5616. Hvítur og blár páfagaukur týndist í Hafnarfírði HVÍTUR og blár páfa- gaukur, smávaxinn, týnd- ist í Hafnarfirði mánudag- inn 27. september. Þeir sem hafa séð hann hafi samband í síma 565 9240 eða 895 9240. Dísarpáfagaukur í óskilum GRAR karifugl með gulan haus fannst 23. september í Breiðholti. Upplýsingar í sima 552 4153. Láttu mig ekki trutla Þig- Ég er búinn að fá nóg af því að vera sáttasemjari. I dag voru hjá mér síamství- burar. Annar vill verða kaf- ari og hinn flugmaður. Víkveiji skrifar... AFSLÁTTUR fyrir ellilífeyris- þega á fargjöldum Flugleiða er nokkuð sniðugt fyrirbæri en all- mörg ár eru síðan fyrirtækið tók að bjóða hann. Felst hann í því að menn fá jafnmikinn afslátt og ald- ur þeirra, þ.e. 75% ef þeir eru 75 ára og svo framvegis. Þetta getur verið skemmtileg tilbreyting í ell- inni ef menn eru ferðafærir og sæmilega vel í álnum til að geta ferðast. Þessi afsláttur er reiknaður út frá hinu svonefnda Saga-Class gjaldi, þ.e. dýrasta fargjaldinu sem er til dæmis kringum 100 þúsund krónur til Kaupmannahafnar. Átt- ræður ferðalangur væri þá að greiða um 20 þúsund fyrir fargjald fram og tilbaka. Engin skilyrði munu fylgja þessum afslætti en þó er eins og Víkverja minni að af- slátturinn sé ekki veittur á háanna- tíma yfir sumarið. Þessii- ferðalang- ar fá ekki að sitja á Saga-Class far- rýminu heldur í almennu farrými. Maður í þessum virðulega ald- ursflokki nefndi við Víkverja á dög- unum að sér fyndist að hann mætti sitja á Saga-Class farrými úr því að fargjald hans væri reiknað út frá því, þótt um verulegan afslátt væri að ræða. Víkverji getur tekið undir það og spyrja má af hverju ekki er unnt að bjóða þessum öld- ungum sæti þar. Varla er þetta svo ógnar fjölmennur hópur í hverri vél að hann myndi fylla farrýmið. Þetta mættu Flugleiðamenn at- huga. xxx SJÓNVARPAÐ var frá umræð- um á Alþingi á mánudagskvöld þar sem forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína og þingmenn aðrir ræddu málin fram og aftur. Vík- verja finnst þetta varla vera sjón- varpsefni. Væri ekki betra að út- varpa þessum umræðum eingöngu og leyfa þeim sem viija njóta þess að fá annað efni í sjónvarpinu? Vissulega eru landsfeður og þing- menn margir, konur sem karlar, hinir áheyrilegustu ræðumenn og að þessu sinni var ánægjulegt að sjá þingsalinn þéttskipaðan en ekki auða stóla. Það má líka spyrja hvort ekki sé óþarfi að bæði út- varpa og sjónvarpa frá þessum um- ræðum, þeir sem á annað borð vilja heyra geta hlustað á útvarpið. Vilji menn ekki sleppa því að fá þessu efni sjónvarpað er þá kannski kom- in ein ástæða þess að fá aðra sjón- varpsrás. VÍKVERJI átti fund með augn- lækni sínum á dögunum sem ekki er í frásögur færandi. Fékk hann þar staðfestan grun sinn að sjónin væri örlítið að dala og hann myndi sjá betur frá sér við akstur, á fundum og slíkt ef hann fengi gler- augu. Þetta tók stuttan tíma og var ekki mikið mál en í leiðinni gerði augnlæknirinn annað. Hann mældi þrýsting í augum og skoðaði augn- botna (sem Víkverji veit nú varla hvað þýðir) sem lið í því að kanna hvort gláka væri í aðsigi. Þetta gera augnlæknar um leið og menn koma til þeirra hvort eð er. Þetta er for- varnaraðgerð eins og þær eiga að vera og hefur miklu meiri þýðingu en menn gera sér grein fyrir. Meðal annars af þeim sökum verða sjón- tækjafræðingar að bíta í það súra epli að fá ekki að mæla fyrir daprandi sjón; það er eitt og annað forvarnarstai’f sem fram fer í leið- inni hjá augnlækninum. Og nú bíður Víkverji bara spenntur eftir því hvort orð augn- læknisins rætast. Hann nefndi nefnilega að Víkverji myndi jafnvel sjá fyrir um óorðna hluti og að hann gæti skotið epli á mannshöfði úr mílufjariægð. Víkverji sem hefur aldrei skotið eitt né neitt!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.