Morgunblaðið - 06.10.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 21
VIÐSKIPTI
Morgunverðarfundur íslenska útvarpsfélagsins, SÍA og ÍMARK
Fjölmiðlanotkun Islend-
inga frábrugðin notk-
uninni í Bandaríkjunum
Morgunblaðiö/Þorkell
AVE Butensky hefur langa
reynslu af markaðs- og auglýs-
ingamálum og er nú forstjóri The
Television Bureau of Advertising,
hagsmunasamtaka bandaríska
sjónvarpsiðnaðarins. Butensky
hélt nýverið fyrirlestur á morgun-
verðarfundi sem haldinn var á
vegum íslenska útvarpsfélagsins í
samvinnu við SÍA og ÍMARK. í
fyrirlestrinum kom m.a. fram að
sjónvarpsauglýsingar henta best
fyrir uppbyggingu ímyndar eða
það sem á ensku nefnist „brand-
ing“.
Butensky sagði sjónvarpsaug-
lýsingar lyfjafyrirtækja í Banda-
ríkjunum m.a. hafa aukist af þeim
sökum að slík fyrirtæki gætu nú
byggt upp ímynd með aðstoð aug-
lýsinga í sjónvarpi. „Eftir að slak-
að var á reglum lyfjaeftirlitsins í
Bandaríkjunum, áttu lyfjafyrir-
tæki meiri möguleika á að gera
sjónvarpsauglýsingar í hæfilegri
lengd. Sjónvarpið er besti miðill-
inn hvað varðar uppbyggingu
ímyndar, en það er það sem þetta
snýst allt um. Fyrir tveimur árum
var auglýsingafjármagn lyfjafyrir-
tækja 200 milljónir dollara á ári en
er nú um einn milljarður dollara."
Butensky tók auglýsingar
stjórnmálaflokka sem dæmi um
auglýsingar þar sem bakgrunnur
viðtakandans skiptir máli sem
breyta. „Auglýsendur verða að
gera sér grein fyrir því að það
skiptir miklu máli að velja réttan
tíma til að auglýsa. Sá sem horfir
á fréttir að staðaldri er líklegri til
að hafa myndað sér skoðun og
ákveðið hvað hann ætlar að kjósa.
Sá sem horfir á gamanmynd er
aftur á móti líklegri til að verða
fyrir áhrifum af auglýsingu stjórn-
málaflokks, eftir því sem
skoðanakannanir gefa til kynna.“
Fjölmiðlanotkun íslendinga
og Bandaríkjamanna ólík
I erindi sínu kom Butensky inn
á ýmsar tölulegar staðreyndir um
sjónvarp og auglýsingar í Banda-
ríkjunum og lagði jafnframt
áherslu á að ekki ætti að heim-
færa slíkar staðreyndir upp á ís-
lenskar aðstæður. „Bandaríkja-
menn nota sjónvarp mun meira en
dagblöð og að meðaltali horfir
hver einstaklingur á sjónvarp í
217 mínútur á dag en les dagblöð í
Slegizt um 38%
hlut í pólska flug-
félaginu LOT
London. Reuters.
ÞRJÚ stór flugfélög í Evrópu slást
um 38% hlut í pólska flugfélaginu
LOT, stærsta og eina arðbæra
flugfélaginu í Austur-Evrópu.
Flugfélögin þrjú - British Air-
ways, Lufthansa og Swissair -
hafa öll afhent pólsku stjórninni
innsigluð tilboð. Búizt er við að
pólska stjórnin taki ákvörðum inn-
an eins mánaðar. Lokaslagur
þeirra tveggja bjóðenda, sem
bjóða hæst, kemur líka til greina.
Rætt hefur verið um að selja
öðru flugfélagi og samstarfsaðila
hlut í LOT allan þennan átatug.
Starfsmenn LOT fá 10% hlut í fé-
laginu á næsta ári, áður en bréf í
því verða boðin út á verðbi’éfa-
markaði 2001.
Öll flugfélögin, sem bjóða í Lot,
eiga nú þegar samstai'f við félagið
á tilteknum leiðum, og öll virðast
standa jafnvel að vígi í tilboðs-
slagnum. Ekki er aðeins spurt um
peninga, því að félögin verða
einnig innt eftir því hvernig þau
geti orðið pólska félaginu að liði.
Framsæknastir
LOT er metið á 200-300 milljón-
ir dollara og er talið framsæknasta
flugfélag Austur-Evrópu. Það varð
fyrst allra til að losa sig við vélar
frá sovéttímanum og kaupa vest-
rænar flugvélar eingöngu - aðal-
lega Boeing 737 og fransk-ítalskar
ATR ski-úfuþotur.
Hagnaður LOT í fyrra nam
500.000 dollara. Einkavæðing LOT
er liður í víðtækari sölu ríkiseigna.
I ágúst buðu tveir í hlut í ríkis-
rekna pólska fjarskiptafyrirtækinu
TPSA, sem er metið á 3,5 milljarða
dollara.
um 29 mínútur. Rannsóknir sýna
að almenningur í Bandan'kjunum
leitar frétta og ýmiskonar þekk-
ingar fyrst og fremst úr sjón-
varpi,“ sagði Butensky.
I pallborðsumræðum eftir er-
indi Butenskys voru þessar stað-
reyndir gagnrýndar. Marteinn
Jónasson, framkvæmdastjóri
Dags og fulltrúi dagblaða á pall-
borði, tæpti á niðurstöðum könn-
unar er sýndi að um þrír fjórðu
hlutar íslendinga læsu dagblað
fyrir hádegi og fjölmiðlanotkun
Islendinga væri frábrugðin fjöl-
miðlanotkun í Bandaiikjunum. I
svari Butenskys kom fram að þró-
unin væri skemmra á veg komin á
Islandi en í Bandaríkjunum en
vissulega væri fjölmiðlanotkunin
öðruvísi á Islandi, samt á þann
veg að Islendingar nota meiri tíma
í að horfa á sjónvarp en að lesa
dagblöð.
Aðgangurað 57
sjónvarpsstöðvum
Nú eru að meðaltali um 2,8
sjónvarpstæki á meðalheimili í
Bandaríkjunum og aðgangur á
hverju heimili að um 57 sjónvarps-
stöðvum að meðaltali, að því er
fram kom í máli Butenskys. í
Bandaríkjunum fer nú stærstur
hluti auglýsingafjármagns fyrir-
tækja í sjónvarpsauglýsingar. Bu-
tensky segir þá þróun hafa tekið
um 50 ár.
„Sjónvarp í Bandaríkjunum er
um 53 ára gamalt og það er ekki
fyrr en þrjú síðustu ár að fjár-
magn sem fyrirtæki nota til að
auglýsa í sjónvarpi er orðið meira
en það sem fer í auglýsingar í dag-
blöðum. Nú er auglýsingafjár-
magn fyrirtækja í Bandaríkjunum
um 49 milljarðar dollara til sjón-
AMERICAN POWER CONVERSION
Ave Butensky hélt fyrirlestur á
morgunverðarfundi nýverið.
„Sjónvarp er frekar nýr miðill á
Islandi, að ekki sé talað um
samkeppni á þeim vettvangi."
varps og um 47 milljarðar dollara í
dagblöð á ári.“
1.200 starfsmenn í auglýs-
ingageiranum á íslandi
I máli dr. Guðfinnu Bjarnadótt-
ur fundarstjóra, kom fram að á Is-
landi væi-u starfsmenn 1 auglýs-
ingageiranum um 1.200 talsins.
Árið 1996 hefðu fyrirtæki notað
um 7,5 milljarða íslenskra króna
til auglýsinga en á tveimur árum
hefði aukning orðið 30% og árið
1998 var upphæðin orðin 9,7 millj-
arðar.
Butensky gerði að umtalsefni að
morgunsjónvai’p hefði mikið aug-
lýsingagildi í Bandaríkjunum og
þróunin hlyti að verða sú að á ís-
landi yrði til morgunsjónvarp.
„Staða íslands er sérstök, með
stórt morgunblað sem nær til yfir
60% heimila á hverjum degi. Sjón-
varp er aftur á móti frekar nýr
miðill á Islandi, að ekki sé talað
um samkeppni á þeim vettvangi,"
segir Butensky.
Mögulegur
samruni í iðnaði
CORUS
fliugar
að bjóða
í Viag
London. Reuters.
CORUS, nýtt enskt-hollenzkt
málmfyrirtæki sem varð til við
samruna British Steel og
Hoogovens, íhugar að bjóða í
álarm þýzku almenningsveit-
unnar Viag, sem kann að vera
metinn á tvo milljarða punda.
Viag er í þann veginn að
sameinast stærri keppinaut,
Veba, með samningi upp á
rúmlega 14 milljarða dollara.
Sala áldeildarinnar, VAW, er
talin liður í víðtækari áætlun,
sem miði að því að losa fyrir-
tækið við eignir sem standa ut-
an við kjama starfseminnar.
Að sögn Sunday Times í
London munu kaupin á VAW
afla Hoogovens fjölbreyttari
hóps viðskiptavina. I fyrra
framleiddi Hoogovens 429.000
tonn af áli, aðallega fyrir bíla-
iðnaðinn.
Sameiginlegt tilboð með
norður-amerísku fyrirtæki
Blaðið segir að Corus kunni
að fá norður-amerískt fyrir-
tæki í lið með sér, til dæmis
Alcoa-Reynolds eða verðbréfa-
fyrirtæki, til að gera sameigin-
legt tilboð.
Hoogovens og British Steel
stefna að því að ganga endan-
lega frá samruna sínum í
næsta mánuði og þá verður til
stærsta stálfyrirtæki Evrópu
og hið þriðja stærsta í heimin-
um.
Talsmaður Hoogovens sagði
að VAW væri eitt af nokkrum
fyrirtækjum, sem Hoogovens
hefði augastað á til að færa út
álstarfsemi sína.
Fór rafmagnid?
Treystir þú á tölvukerfið?
Ef starfsemin í þínu fyrirtæki reiðir sig á
tölvukerfið er eins gott að rafmagnið sé alltaf
til staðar. Eina vörnin við straumrofi eða
truflunum er varaaflgjafi. Við bjóðum mjög gott
Hefuröu hugleitt að...
• Þremur mánuðum eftir að tölvan þín var
tekin í notkun eru gögnin sem hún hefur
að geyma verðmætari en tölvan sjálf?
• 70% allra bilana í tölvubúnaði eru vegna
rafmagnstruflana?
• Varaaflgjafi er eina lausnin sem þú hefur
til að vernda bæði tölvuna og þau gögn
sem í henni eru fyrir rafmagnstruflunum?
úrval varaaflgjafa frá stærsta framleiðanda
heims, APC, sem henta m.a. fyrir netþjóna,
einmenningstölvur, búðarkassa, símstöðvar
ogfaxtæki. Frábært verð!
NYHERJI
Skaftahltð 24 • S:569 7700
http://www.nyherji.is