Morgunblaðið - 06.10.1999, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fóðurverksmiðjan Laxá selur
um 500 tonn af foðri til Færeyja
Væntingar um meiri
sölu á næsta ári
Morgunblaðið/Margit Elva
Velheppnaðir tónleikar í Grímsey
VALGERÐUR Kristjánsdóttir,
framkvæmdastjóri Fóðurverk-
smiðjunnar Laxár á Akureyri,
væntir þess að á næstu misserum
muni sala á fiskfóðri sem framleitt
er í verksmiðjunni til Færeyja
aukast.
Unnið er að því þessa dagana að
framleiða fóður sem sent verður til
Funning Laks t.f. í Færeyjum í
næstu viku og mun Valgerður í
framhaldi af því halda utan í næsta
mánuði tii viðræðna við forsvars-
menn fyrirtækisins. Funning Laks
er með stæm fiskeldisfyrirtækjum
í Færeyjum. Annað stórt fiskeldis-
fyrirtæki, Faroesalmon t.f. í
Klakksvík hefur gert samning um
kaup á 500 tonnum af fiskafóðri af
Laxá á þessu ári.
Njótum velvildar
Valgerður sagði að vonir stæðu til
að á næstu árum yrði hægt að tvö-
til þrefalda sölu á fiskafóðri til
Færeyja og yrði markvisst unnið að
því. Hún sagði markaðinn í Færeyj-
um mjög stóran, en þar væri verið
að framleiða yfir 30 þúsund tonn af
fiski á ári. „Við finnum að íslend-
ingar njóta mikillar velvildar í
Færeyjum og íbúarnir vilja gjamar
eiga við okkur viðskipti, þannig að
við vonum að við náum góðum
samningum um sölu á okkar fóðri
þangað," sagði Valgerður.
A síðasta ári framleiddi Laxá um
3.300 tonn af fiskafóðri og gerði
Valgerður ráð fyrir að magnið yrði
svipað á þessu ári. Einn stór við-
skiptavinur hætti að skipta við fyr-
irtækið á árinu, en hann keypti um
8-900 tonn af fóðri. Með aukinni
sölu til Færeyja á Valgerður von á
að hægt verði að ná því upp þannig
að framleiðslan verði álíka mikil og
hún var í fyrra.
„Það er vaxandi markaður í
Færeyjum og við höfum verið að
undirbúa okkur fyrir að fara inn á
hann. Það tekur tíma en skilar sér
þegar fram líða stundir. Við seljum
um 500 tonn þangað á þessu ári en
vonum að salan geti orðið um 2.000
tonn á næsta ári ef allt gengur
upp,“ sagði Valgerður.
RÓMANTÍSKIR, glaðlegir og í
senn djassaðir tónar fylltu fé-
lagsheimilið Múla í Grímsey nú
nýlega. Þá fóni fram lokatón-
leikar þeirra Onnu Sigríðar
Helgadóttur söngkonu og Aðal-
heiðar Þorsteinsdóttur píanó-
leikara, en tónleikaför sína um
Norðurland hófu þær í síðustu
viku undir yfirskriftinni „íslensk
söng- og dægurlög fyrri ára.“
Þeim Öllu og Önnu Siggu var
vel tekið í Grímsey og ákaft
fagnað á tónleikunum. Þær léku
á Sauðárkróki, Kópaskeri, Húsa-
vík, Akureyri og Grímsey og að
sögn Önnu Siggu var aðsókn að
tónleikunum í heild sinni góð og
væru þær stöllur því ánægðar
með ferðina.
Þær Alla og Anna Sigga létu
ekki við það eitt sitja að halda
tónleika, heldur voru þær
einnig með tónlistarkynningu
fyrir börnin í Grunnskóla
Grímseyjar. Þær, ásamt vin-
konu sinni, Þórunni Þórarins-
dóttur kennara, kenndu börn-
unum örlítið um tónskáldið
Mozart og kynntu þeim óper-
una Töfraflautuna í máli og
tónum. Einnig kynntu þær
börnunum mannsröddina og
margskonar form á söng, m.a.
tveggja radda og keðjusöng.
Tónlistarkynningunni lauk með
fimmundarsöng í Miðgarða-
kirkju. Skólakrakkarnir sögðu
að tónlistartíminn hefði verið
rosalega skemmtilegur, en
myndin var einmitt tekin í tím-
anum.
Bæjarstjóri vill sjá frekari samvinnu Þórs og KA
Sameiginlegur draumur
að eiga lið í úrvalsdeild
Fimm menn
handteknir
vegna fíkni-
efnamáls
RANNSÓKNARLÖGREGLAN á
Akureyri handtók fimm menn á tví-
tugsaldri í gærmorgun vegna ííkni-
efnamáls en í fórum þeirra fundust
100 grömm af hassi. Við yfirheyrslu
viðurkenndi einn mannanna að eiga
efnið en þrír til viðbótar viður-
kenndu neyslu á hassi.
Daníel Snorrason, lögreglufull-
trúi hjá rannsóknardeild lögregl-
unnar, sagði að mennimir hefðu
verið stöðvaðir vegna ofsaaksturs á
bíl og leiddi það til þess að ökumað-
urinn var sviptur ökuleyfi tíma-
bundið. Þremur mannanna var
sleppt að lokinni yfirheyrslu en hin-
ir tveir voru enn í haldi seinni part-
inn í gær vegna rannsóknar á auðg-
unarbrotum, m.a. innbrotum og
fölsun ávísana.
Annar mannanna sem var enn í
haldi viðurkenndi innbrot í bif-
reiðaverkstæðið Múlatind í Ólafs-
firði í lok september en að öðru
leyti er málið enn í rannsókn. Fjór-
ir mannanna sem handteknir voru
hafa áður komið við sögu lögregl-
unnar vegna fíkniefnamála og ann-
arra mála.
FORMENN íþróttafélaganna Þórs
og KA á Akureyri voru boðaðir á
fund Kristjáns Þórs Júlíussonar
bæjarstjóra fyrir helgi þar sem hann
viðraði m.a. þá hugmynd að félögin
sendu fram sameiginlega keppnislið í
meistaraflokkum í handbolta og fót-
bolta. Málið var rætt á stjórnarfund-
um félaganna í vikunni og þar var
samþykkt að skipa viðræðuhóp til að
fara yfir hugmyndir bæjarstjóra.
„Kristján Þór sagðist hafa gert
formönnum Þórs og KA grein fyrir
þeim afstöðu sinni, að hlutirnir
gætu ekki gengið svona lengur. „Við
erum að halda úti liðum af vanmætti
og ljóst að þessi samkeppni sem við
eigum í er fyrirfram töpuð ef menn
ætla að haga sér með sama hætti og
þeir hafa gert. Þessi umræða um
hugsanlega sameiningu er mjög há-
vær í bænum, bæði meðal íþrótta-
manna og annarra áhugamanna og
íþróttafélögin verði að svai-a þessari
umræðu. Þau verða því að taka málið
til alvarlegrar skoðunar og ég er til-
búinn að koma að því verki með
þeim.“
Kristján Þór sagði að ekki væru
allir á sama máli og sjálfsagt hefðu
einhverjir eitthvað við það að athuga
að bæjarstjórinn hefði frumkvæði í
málinu.
Menn spili betur
úr Qármununum
„Málið snýst ekki um það, heldur
um það hvort íþróttahreyfingin ætl-
ar að halda á sínum málum með
sama lagi og hún hefur gert mörg
undanfarin ár, öllum sem að koma til
ama. íþróttahreyfmgin þarf að laga
sig að þeim veruleika sem hún þarf
að leika í, bæði varðandi skipulag
starfsins og fjármálalega þætti þessi.
Þar er ég að tala um að menn spili
betur úr þeim fjármunum sem hér
eru í umferð. Þetta svæði leyfir það
ekki fjárhagslega að halda úti tveim-
ur fótboltaliðum í úrvalsdeild. Það
hlýtur að vera sameiginlegur draum-
ur okkar allra að geta haldið úti liði í
úrvalsdeild en nú er staðan sú menn
hrópa húrra yfir því að KA tókst að
halda sæti sínu í 1. deild. Er það við-
unandi árangur - ég segi nei,“ sagði
Kristján Þór. Svala Stefánsdóttir,
formaður Þórs, sagði að félögin
hefðu ekki útilokað neinn möguleika
á þessu stigi en þau vildu jafnframt
sjá hvað bæjaryfirvöld væru tilbúin
að gera ef af slíkri sameiningu yrði.
„Við ætlum að skoða málið í róleg-
heitunum og það er því enn allt of
snemmt að segja til um hvað út úr
því kemur.“
Félögin tilbúin til viðræðna
Helga Steinunn Guðmundsdóttir,
formaður KA, sagði félagið tilbúið til
viðræðna en að svona mál væri ekki
hrist fram úr erminni. Því væri
nauðsynlegt að gefa því tíma, þar
sem þetta væri ekki síst mikið til-
finningamál. Hún sagði það vissu-
lega rétt að fjárhagurinn væri í járn-
um en að unnið hafi verið í þeim
þætti allt síðasta ár og væri farinn að
sjást árangur af því starfi.
Þór og KA hafa þegar hafið sam-
starf en meistaraflokkar kvenna í
handbolta og fótbolta eru reknir
sameiginlega undir merkjum beggja
félaga.
Vestnorrænar
þjóðir á tím-
um hraðfara
breytinga
VESTNORRÆNAR þjóðir á tím-
um hraðfara breytinga er yfirski’ift
ráðstefnu sem haldin verður á Fiðl-
aranum á Akureyri dagana 7. til 8.
október næstkomandi.
Ráðstefnan er skipulögð af Há-
skólanum á Akureyri og Stofnun
Vilhjálms Stefánssonar í samvinnu
við háskólana í Grænlandi og
Færeyjum. Meðal umræðuefna á
ráðstefnunni eru alþjóðleg áhrif,
staðbundin viðbrögð og möguleikai'
til sjálfbærrar þróunar, byggðaþró-
un og hlutverk háskóla í dreifbýli og
fjarskipti, fjölmiðlar og menning á
Vestnorræna svæðinu.
Ráðstefnan mun einnig fjalla um
möguleika þessara smáu samfélaga
til að viðhalda byggð og sérstakri
menningu í alheimsþorpinu þar sem
alþjóðavæðing skilyrðir framtíð
þjóða, ekki síst þeirra smáu.
Ráðstefnan fer fram á ensku, að-
gangur að henni er ókeypis og kaffi-
veitingar og hádegisverður er í boði
ráðstefnuhaldara. Skráning fer
fram hjá Ferðaskrifstofunni Nonna
á Akureyri, en Ingi Rúnar Eðvarðs-
son í Háskólanum á Akureyri veitir
nánari upplýsingar.
Lax- oq silungsá
tij leigu
Auglýst er eftir tilboðum
í lax- og silungsveiði
Fnjóskár
ánari upplýsingar gefur
ormaður veiðifélagsins,
Jón F. Sigurðsson,
arðarholti, Fnjóskadal,
601 Akureyri,
sími 462 6914.
Tilboðum skj^l einnig skila til hans
ifyrir 1. nóvember nk.
Stjórn veiðifélagsins áskilur sér allan
rétt til að taka pvaða tilboði sem er
eða hafna öNum.
í Suður-Þingeyjarsýslu,
frá árósum fram að
ármótum Bakkár.
Júdódeild
KA fær ÍSÍ-
bikarinn
BRYNJAR Helgi Ásgeirsson tók á
dögunum við ISÍ-bikarnum sem
Júlíus Hafstein fyrrverandi for-
maður Júdósambandsins afhenti til
minningar um föður hans, Ásgeir
Arngrímsson. Ásgeir lést af slys-
förum í desember á síðasta ári, en
hann var m.a. stjórnarmaður í Júd-
ósambandinu og í stjórn júdódeild-
ar KA.
Brynjar Helgi hefur æft júdó
með KA um árabil og er landsliðs-
maður í 66 kílóa flokki. Hann hefur
11 sinnum orðið íslandsmeistari í
íþróttinni, bæði í sveita- og einstak-
lingskeppni.
Dýrleif Skjóldal þakkaði fyrir
hönd júdódeildar KA þá virðingu
sem Ásgeiri var sýnd með því að
veita deildinni bikarinn í nafni
hans.
Morgunblaðið/Kristján
Brynjar Helgi Ásgeirsson tekur við bikarnum hjá Júlíusi Hafstein.