Morgunblaðið - 06.10.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 29
Tangótónleikar í Salnum í kvöld
Morgunblaðið/Kristinn
Izumi Tateno píanóleikari, Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari og
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari á æfingu fyrir tangótónleik-
ana í Salnum í kvöld.
Tangó fyrir tríó
út á geisladisk og það má segja
að þetta séu útgáfutónleikar,“
segir Auður. Diskurinn er nú
þegar kominn út í Japan, hjá
King Records, einu stærsta út-
gáfufyrirtæki landsins, og er
væntanlegur í verslanir hér á
landi á allra næstu vikum. Hann
hefur nú þegar selst í yfir 10
þúsund eintökum í Japan og
hlotið frábæra dóma þar í landi,
að sögn Auðar.
TANGÓTÓNAR munu óma í
Salnum, Tónlistarhúsi Kópa-
vogs, í kvöld en þar leika þau
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleik-
ari, Bryndís Halla Gylfadóttir
sellóleikari og Izumi Tateno
pianóleikari tangótónlist eftir
Astor Piazzolla og Nazareth í
tilefni af útgáfu geisladisks
tríósins með tangótónlist Pi-
azzolla í Japan og á Islandi.
Tónleikarnir hefjast kl.
20.30.Þær Auður og Bryndís
Halla hafa komið fram saman
við fjölmörg tækifæri á undan-
förnum árum en samstarf þeirra
og japanska píanóleikarans
Izumi Tateno hófst sumarið
1998, þegar þau léku saman á
tónlistarhátíðinni í Oulonsalu í
Finnlandi. Á síðasta ári fór tríó-
ið í tónleikaferð um Japan og
næsta vor er þeim á ný boðið að
leika á Qölmörgum stöðum þar í
landi, auk þess sem þau munu
leika aftur í Oulonsalu næsta
sumar. Tateno er þekktur
píanóleikari í heimalandi sínu
og leikur reglulega á tónleikum
víða um heim. Hann hefur leikið
inn á fjölda geisladiska á síðustu
árum og er stofnandi og list-
rænn stjórnandi tónlistarhátíð-
arinnar í Oulonsalu.
„í Oulonsalu lékum við saman
ýmis verk og þar á meðal nokk-
ur tangóverk. Síðan fórum við í
tónleikaferð til Japans og höfð-
um alltaf tangóverk með á efnis-
skránni. Izumi fékk svo þá hug-
mynd að taka þau upp og gefa
Hróður tangósins fer
vaxandi um allan heim
Upptökurnar fóru fram í
Finnlandi í febrúar siðastliðnum
en þar í landi er sem kunnugt er
löng og sterk hefð fyrir tangóið-
kun. Aðspurð hvort tangó njóti
viðlíka vinsælda í Japan segir
Auður að reyndar fari hróður
tangósins vaxandi um allan
heim og verk Piazzolla séu sér-
staklega mikið leikin um þessar
mundir. Flest verkin sem þau
leika í kvöld eru í útsetningum
eftir José Bragato. „Verkin eru
svolítið sérstök að því leyti að að
þau eru flest í tríóútsetningum
fyrir fiðlu, píanó og selló. Eitt er
raunar fyrir pianó, annað fyrir
píanó og selló og eitt fyrir píanó
og fiðlu,“ segir Auður.
„Þetta er mjög áheyrileg tónl-
ist og falleg,“ heldur hún áfram
og útilokar ekki að viðstaddir
munu stíga dans í Salnum í
kvöld. „Við myndum að minnsta
kosti ekki stoppa það af,“ segir
hún.
OREIÐAI
INNHEIMUM
Bækur
Ljóð
TÓLF DRÁPU KVER
eftir Halldór Ásgeirsson, Silver
Press, 1999 - 81 bls.
ÖLL listsköpun er í eðli sínu skrán-
ing hvað sem sú fullyrðing segir um
listgildi verka. Eg hygg það vera
eitt af sérkennum nútímalistar að
gera ekki stóran greinarmun á ytri
veruleika og þeim innri hvað þessa
skráningu varðar. Módemískar
stefnur eru býsna líkar hvað þetta
áhrærir. Ef vel er gáð er ekki svo
trosnaður þráður milli dadaisma og
súrrealisma annars vegar og hug-
myndalistar seinni hluta aldarinn-
ar. Halldór Ásgeirsson er á þessum
hugmyndalistarslóðum í ljóðabók
sinni, Tólf drápu kveri. Hún á sér að
nokkru rætur í ísfirsku landslagi, er
myndskreytt af Jóni Sigurpálssyni
og sækir hugmyndina að titlinum til
Kristjáns Guðmundssonar sem
einnig gerir bókarkápu og gefur
bókina út.
Áberandi í þessari ljóðabók er
sjónarhorn myndlistarmannsins.
Svið ljóðanna teygir sig út í ýmis
Evrópuhom, til Amsterdam, París-
ar, Feneyja sem allt em helgistaðir
hugmyndalistamanna enda þótt áv-
allt sé komið til baka til orkustöðv-
arinnar á Isafirði. Ort er til minn-
ingar um gallerí og til heiðurs
Hreini Friðfinnssyni svo að eitt-
hvað sé nefnt. Það er ákveðinn
díónýsískur blær yfir öllu verkinu,
ölvun, jafnvel langþráð ruglun allra
skilvita. Á stundum em kvæðin eins
konar ósjálfráð skrift. Þau ein-
kennast af því að skáldið leitast við
að fanga augnablikið, stemmning-
una í kringum sig. í Eftirmála
verksins segir Halldór: „Svo undar-
lega sem það kann að hljóma þá
hefur þessi drápuárátta aðallega
sótt á mig undir áhrifum áfengis,
stundum í góðra vina hópi eða á
framandi stað við ókunnar aðstæð-
ur eða einfaldlega einsog skáldið
sagði: ljóðið kemur til mín.“
Af þessum sökum er til lítils að
ætla að leita hefðbundinna eiginda
Leikskáldafélag fslands
Hvetur til framleiðslu
á leiknu efni
A AÐALFUNDI Leikskáldafélags
Islands sem haldinn var á dögunum
komu fram eindregnar skoðanir fé-
lagsmanna um að hvetja sjónvar-
psstöðvarnar íslensku til aukinnar
framleiðslu á leiknu sjónvarpsefni
og voru eftirfarandi ályktanir sam-
þykktar þar að lútandi.
„Leikskáldafélag íslands lýsir
þungum áhyggjum sínum yfir
þeirri þróun sem blasir við í ís-
lensku sjónvarpi, þar sem fjölgun
sjónvarpsstöðva og aukinn útsend-
ingartími hefur leitt til þess að í
heild hefur hlutur íslensks dag-
skrárefnis minnkað stórlega frá því
sem var í upphafi.
Leikskáldafélagið beinir því til
stjórnvalda að kannað verði hvort
ástæða sé til að færa í lög ákveðin
skilyrði um hlutfall innlends efnis í
íslenskum sjónvarpsstöðvum.
I ályktuninni segir ennfremur.
„Sé miðað við Ríkisútvarpið-Sjónv-
arp, Stöð 2 og Sýn, nemur heildar-
hlutfall íslensks dagskrárefnis af
dagskrám allra stöðvanna innan við
15 af hundraði. Einungis RUY-
Sjónvarp heldur nokkurn veginn
sama hlutfalli og í byi-jun, eða um
27 af hundraði.
I ljósi þessa skorar Leikskálda-
félagið á sjónvarpsstöðvarnar, að
auka hlut innlends efnis í dagksrám
sínum, enda hæpið að kalla þær
sjónvarpsstöðvar íslenskar, sem til
dæmis sýna margfalt meira efni frá
Bandaríkjunum, en íslandi."
Skorar á RÚV að setja á
stofn leiklistardeild
Þá skorar Leikskáldafélag ís-
lands á stjórnendur Ríkisútvar-
psins að „setja hið fyrsta á stofn
leiklistardeild við Sjónvarpið, með
sérstakan fjárhagsramma, til að
tryggja vöxt og viðgang þessarar
vinsælustu tegundar íslensks dag-
skrárefnis," einsog segir í síðari
ályktun aðalfundarins. „Aðeins
með því móti verður slíkri dag-
skrárgerð tryggt það fjármagn sem
nauðsynlegt er og henni sköpuð sú
faglega umgjörð, sem hún þarf á að
halda, með stöðugri og markvissri
þróunarvinnu. RUV Sjónvarp hef-
ur alla tíð sinnt framleiðslu og öflun
á leiknu efni sem hluta af yfirgrips-
drápunnar sem raunar
var aldrei skýrt af-
markað form ellegar
vænta reglu á hugsun-
um og tilfinningum í
kvæðabálkinum.
Miklu nær væri að
lýsa honum sem óreiðu
í innheimum. Út frá
þeirri forsendu er
unnt að njóta verksins.
Myndlistargenið leyn-
ir sér ekki í kveðskap
Halldórs. I drápunni
Islandsbrot er þessi
sýn:
inn undir auga
blundarbirtan
rjómagul
hulinshjálmur
grásvörtský
í ágústnóttinni blíðu
fjöllinteiknasigblá
ogsigna
fyrirnýjumdegi
það heyrist í ánni
ogþaðerenginnfugl
Oft einkennist textinn af afhelg-
un og hátíðleikabresti og verður
stundum býsna persónulegur þar
sem hugflæðið er nánast birt órit-
skoðað:
Skáld vantar bensín út í blóð
ilr blóði beint í blús
.Halldór
Ásgeirsson
ogThorgamliskegg-
hundur!
ég sendiþérár-
naðarhugskeyti
eins fljótt, fljótt og næsti fugl
þegar ég sit í þeim ramma
stól
þar sem teygaður var átta
lítrafrostlögur
ítalskur merktur sem vín
og mörghundruð-
metramargmálið
flæddi í litum yfm pappírinn
oghananú!
Slíkri aðferðafræði
við bókmenntaskrif
fylgir að vísu sú hætta
að hún verði stefnu-
laus og sundurlaus og raunar er
ljóðabók þessi ekki alveg laus við þá
galla. Auk þess hefði að mínu mati
mátt betur hreinsa burt nokkra
málfræðihnökra og ritvillur. Mynd-
skreytingar Jóns Sigurpálssonar,
sem hann nefnir rekaristur, eru ein-
hvers konar afþrykkingar af reka-
viði þar sem æðar viðarins njóta sín.
Þessar myndir gefa bókinni raunar
eitthvert hald eða ramma.
Tólf drápu kver er hrjúft hug-
myndaverk laust við fullkomnunar-
áráttu en byggist á hömlulitlu hug-
flæði. Það er tilraun til að brjóta
upp ljóðmál og hefðir og hefur gildi
sem slíkt.
Skafti Þ. Halldórsson
miklu starfi Innlendrar dagskrár-
deildar (áður Lista- og skemmti-
deildar). ^
Þetta hefur leitt til þess að leikið
efni, sem ávallt er tiltölulega dýrt í
framleiðslu, hefur verið í stöðugri
og óhagstæðri samkeppni um
hverja krónu við annað og ódýrara
dagskrárefni, auk þess sem engar
forsendur hafa verið fyrir þeirri
faglegu þróunar og undirbúnings-
vinnu sem nauðsynleg er til að
standa vel að slíkri framleiðslu.
Þetta hefur löngu verið viður-
kennt í öllum nágrannalöndum
okkar, þar sem öflugar leiklistar-
deildir hafa verið stai’fræktar við
sjónvarpsstöðvarnar um áratuga
skeið. Leikskáldafélag íslands sér
engin rök fyrir því að framleiðsla
og þróun leikins sjónvarpsefnis á
íslensku lúti öðrum lögmálum en
samsvarandi efni á öðrum tungum-
álum, né heldur fyrir því að það
skuli þurfa að berjast fyrir tilveru-
rétti sínum gagnvart öðru innlendu
sjónvarpsefni," segir í niðurlagi
ályktunar Leikskáldafélags Is-
lands.
Svanurinn
kemur út á
Italíu
NÝLEGA tókust samningar um
útgáfu Svansins eftir Guðberg
Bergsson við il Saggiatore á íta-
líu og verður ítalska útgáfan sú
10. erlenda, en áður hefur bókin
komið út í Bretlandi, Þýskalandi,
Frakklandi, Spáni, Danmörku,
Svíþjóð og Tékklandi, auk þess
sem hún kemur út í Brasilíu og
Búlgaríu í haust. Svaninum hef-
ur hvarvetna verið vel tekið af
gagnrýnendum og var bókin
endurprentuð í Bretlandi,
Þýskalandi og Frakklandi sök-
um góðrar sölu. Bókaútgáfan il
Saggiatore mun gefa Svaninn út
á Italíu, en meðal annarra höf-
unda á útgáfulista il Saggiatore
eru t.d. Jorge Luis Borges, Willi-
am Faulkner, Simone de Beau-
voir og Umberto Eco.
Svanurinn kom út hjá Forlag-
inu árið 1991.
Tékkneski rithöfundurinn
Milan Kundera sagði m.a. um
Svaninn í vikuritinu Le Nouvel
ObseiTateur: „Eftir að hafa lesið
Svaninn var ég dögum saman frá
mér numinn og sem töfraður. í
þessari bók munið þið uppgötva
mikinn evi’ópskan rithöfund sem
af sérstakri næmni og á einstak-
an hátt túlkar tilvistarkreppu
ungrar stúlku.“
I spánska blaðinu La
Vanguardia skrifaði Gregorio
Román um Svaninn sem falleg-
ustu, grimmustu og dularfyllstu
skáldsögu sem hann hafði lesið
lengi og í Junge Welt var fjallað
um hana sem „fimm stjarna bók,
alveg stórkostlega".
Svanurinn hlaut Islensku bók-
menntaverðlaunin 1991 og var
bókin auk þess tilnefnd til Bók-
menntaverðlauna Norðurlandai’-
áðs árið 1993. Svanurínn er nú
fáanlegur í kiljuútgáfu.
LEIKLISTARNAMSKEIÐ - KVIKMYNDUN
dasana 22. okt. - 20. nóv.
Á námskeiöinu eru seröar marsskonar æfinsar sem
stuöla aö aukinni einbeitinsu 03 sterkari naerveru á
sviöi eöa fyrir framan kvikmyndatökuvél.
Æföar verða stuttar tvessja manna senur (sem nem-
endur skrifa sjálfir eöa finna eftir öörum leiöum) sem
svo eru kvikmyndaöar í námskeiöslok.
Námskeiöiö er krefjandi 03 opið öllum sem hafa áhusa
á aö leika os/eöa skrifa fyrir kvikmyndir 03 leikhús.
Fyrirlesarar: Uppl. 03 skránins í
E3ÍII Ólafsson síma 551 551 8
Óskar Jónasson Guðmundur
Takmarkaður fjöldi nemenda.
Leiklist
Kvikmyndun