Morgunblaðið - 06.10.1999, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Staldrað við,
skoðað
og spurt
✓
Bókastefnunni í Gautaborg er nýlokið. I
þessari fyrri grein þaðan staldrar Jenna
Jensdóttir við á umfangsmikilli sýningu
bóka og veltir fyrir sér gildi stefnunnar.
I stjórn Bókastefnunnar í Gautaborg sem fram fór dagana 16.-19.
september: Anna Einarsdóttir, Bertil Falck og Gunilla Sandin.
Sýningarsvæði fslands: Andrea Jóhannsdóttir ræðir við gesti.
Kuran
Swing á
Alafoss-
föt best
MENNINGARSAMKOMUR
vetarins á Alafossfót best í Mos-
fellsbæ hefjast með tónleikum
Kuran Swing fimmtudagskvöld-
ið 7. október kl. 22.15. Næstu
tónleikar verða 21. október og
bera yfirskriftina „Á írskum nót-
um“. 4. nóvember leika Guitar
Islancio lög úr ýmsum áttum,
þ. á m. útsetningar á íslenskum
þjóðlögum. Lokatónleikamir í
röðinni verða svo 18. nóvember
þar sem íram kemur tríó
Andreu Gylfadóttur, en með
henni eru gítarleikaramir Guð-
mundur Pétursson og Eðvard
Lámsson.
Kuran Swing er skipað þeim
Szymoni Kuran fiðluleikara,
Birni Thoroddsen gítarleikara,
Ólafi Þórðarsyni gítarleikara
og Bjarna Sveinbjörnssyni
kontrabassaleikara.
Tónlist Kuran Swing er í ætt
við Django Reinhard-sveifluna,
enda hljóðfæraskipan lík. Tveir
kassagítarar, kontrabassi og
fiðla.
Gítartónlist 20. aldarinnar
verður flutt á Kaffi Puccini.
Gitar Islancio
leikur á
Puccini
TRIÓ Gitar Islancio leikur á
djasskvöldi á Kaffi Puccini,
Vitastíg 10, í kvöld, miðviku-
dagskvöld, kl. 21.30. Tríóið er
skipað þeim Birni Thoroddsen,
gítar, Gunnari Þórðarsyni, gít-
ar og Jóni Rafnssyni, kontra-
bassa. Flutt verður gítartónlist
20. aldarinnar, djass, blús, latin
og þjóðlög. Á efnisskránni em
m.a. verk eftir Chick Corea,
Duke Ellington, Georg Gers-
hwin, Gunnar Þórðarson og
Björn Thoroddsen.
Judith Gans
með söngnám-
skeið í Ými
BANDARÍSKA sópransöng-
konan Judith Gans verður með
Masterclass í Ými dagana 8. og
9. október á
vegum Nýja
söngskólans
Hjartansmál.
Judith Gans
söng íslensk
einsöngslög
inn á geisla-
plötu við pí-
anóundirleik
Jónasar Ingi-
mundarsonar sem kom út sl.
vor. Hún hefur í þrígang haldið
tónleika hér á landi og verið
með söngnámskeið. Hún heldur
reglulega tónleika víðsvegar um
Bandaríkin ásamt því að kenna
söng í Texas og Kaliforníu.
ÞAÐ nærir hugann að ganga um hið
víðfeðma sýningarsvæði á Bóka-
stefnunni í Gautaborg 16.-19. sept.
sl., svo margt skemmtilegt og fróð-
legt er að sjá og heyra. I raun er
hér allt áhugavert af því bak við
hverja uppsetningu og gjöminga er
maðurinn sjálfur, sem lagt hefur
hugvit og orku í að gera allt sem
best úr garði.
Hinir afar fjölbreyttu munir, sem
til sýnis eru, auk bókmennta og ým-
issa menningarverðmæta, blandast
svo einkennilega heillandi tónlist,
dansi, söngvum og upplestri ljóða
eða smá sögukafla.
Við Kristín Bjarnadóttir eigum
það sameiginlegt að okkur finnst
ekki nauðsynlegt að skilja hin fram-
andi, ólíku tungumál við þessar að-
stæður. Það kemur allt til manns,
þjáningin, sorgin, tortímingin, gleð-
in, dýrðin að lifa og skapa. Allt kem-
ur þetta - afar sterkt - hreyfing,
látbragð og svipbrigði er vitundin
skynjar það og vinnur úr því.
Víst er að sýningarbásamir á
svæðinu eru jafn ólíkir og þeir eru
margir. Sumir vekja almennt meiri
eftirtekt og draga að sér. En greini-
lega langai' alla, sem þar vinna til
þess að hjá þeim sé staldrað við,
skoðað, spurt og það sem mestu
varðar, keypt.
Austurlenskir sýningarbásar
virðast gæddir dulmagni. Eins og
básinn frá Kóreu. Þar eru gólf lögð
rauðu teppi. Alls staðar getur að líta
fallega skrautmuni og smyrslbauka.
Skreyttar bækur sem eflaust
geyma efni úr Kóraninum. Stór há-
tíð, með austurlenskum smáréttum,
vökva og lágværri músík var fyrir
TOJVLIST
Salurinn, Kópavngi
EINLEIKSTÓNLEIKAR
Alain Lefövre lék verk eftir
Franz Liszt og umritanir Liszts
á verkum annarra tónskálda.
Sunnudagskvöld kl. 20.30.
FRANZ Liszt var ekki bara tón-
skáld og frábær píanóleikari. Mikil-
vægi hans í tónlistarsögunni liggur al-
veg jafnt í því, að hann var einn besti
„agent“ annarra tónskálda lífs og lið-
inna sem um getur. Það var sama
hvort það vora stór verk eða smá;
fyrir eitt hljóðfæri, söngrödd eða
heila hljómsveit, Liszt veigraði sér
ekki við að taka það sem hann lysti og
gera að píanómúsík, oft með miklum
tæknilegum tilþrifum. Hann var eins
og lifandi djúkbox, gat spilað hvað
sem var eftir hvem sem var með lítilli
fyrirhöfn. Ekki var þetta allt jafnt að
músíkölsku innihaldi, margt, og
kannski flest, frábær tónlist, en sumt
einskær sýndarmennska, þar sem
tæknilegar kúnstir sem píanóleikar-
inn þurfti að yfxrvinna í flutningi
verksins voru aðalatriðið.
Á fjörar Salarins í Kópavogi rak á
sunnudagskvöld fransk-kanadíska pí-
anistann Alain Lefévre. Hér á landi
er hann lítið þekktur, en ljóst má
vera af ferilsskrá hans, að hann er
þegar orðinn númer úti í heimi; er
gestaeinleikari með mörgum frægum
hljómsveitum, og annars borið níu
sinnum sigur úr býtum í Kanadísku
tónlistarkeppninni. Verkin sem hann
lék í Salnum vora Prelúdía og fúga
nr. 1 í a-moll eftir Bach umrituð af
Liszt, Tilbrigði Liszts um bassastef
gesti einn daginn. Fallegai’ stúlkur
sátu á gólfi og léku á hljóðfæri sín
lágt og stundum angurvært. Ásamt
því og hefðbundinni háttvísi og
klæðnaði gestgjafa virtist fólk svo
töfrað að örtröð var um stund.
Roskinn maður, sem stendur við
handknúna ljósritunarvél alla dag-
ana, framleiðh' fjölda ljósrita af
teikningum sínum. Beiðni í augum
hans og von hjálpa honum - hann
selur.
Það er ekki hégómi að finna
þægilega til þess að íslenski básinn
er næstum við hliðina á þýska
básnum, þar sem setningarathöfn-
in fór fram að morgni 16. sept.
Hinn þekkti, þýski rithöfundur
Martin Walser flutti setningar-
ræðuna. Þýskur barnakór söng,
svo falleg lög og fallega að við-
kvæmnin sagði til sín. Auk þess
talaði framkvæmdastjóri Bóka-
stefnunnar, Bertel Falek. Þeirri
stöðu hefur hann gegnt allt frá
byrjun - í 15 ár. Falck er ræðis-
maður Islands í Gautaborg. Starf
hans hér er mikilvægt. Ávallt er ís-
lenski básinn eftirtektarverður
fyrir stílhreint og listrænt útlit.
Frá byrjun hefur Anna Einars-
dóttir verslunarstjóri haft veg og
vanda af öllu því er viðkemur Is-
landi á stefnunni. Hún hefur einnig
setið í Norrænu undirbúnings-
nefndinni öll 15 árin. Þessa hlýju
og góðvild í andrúmi bássins hefur
hún einnig mótað. Til hennar er
leitað með spurnir um hvaðeina er
viðkemur bókastefnunni, það er
eins og orðið að venju að hún leysi
úr mörgu hér.
En allt hefur þetta þótt svo sjálf-
úr kantötu Bachs, Weinen, Klagen,
Sorgen, Zagen; eigin tónsmíðamar
Mefistóvalsinn og Funerailles, og
loks umritanir á óperatónlist tengda-
sonarins, Wagners, Ástardauða
Isoldar úr Tristan og Isold og Söngn-
um til kvöldstjörnunnar og forleikn-
um að Tannháuser.
Það varð alveg ljóst í fyrstu tökt-
um Bach-prelúdíunnar, að hér var á
ferðinni stórkostlegur píanóleikari.
Ásláttur hans var fallegur; hver ein-
asti tónn klingdi kristaltær frá
hljómborðinu, hrynjandin var yfir-
veguð og línur og hendingar Bachs
voru byggðar upp á afar músíkalskan
hátt. Það sem var að flutningnum á
fyrsta verkinu var að það var leikið of
sterkt. Tilbrigði Liszts við bassastef-
ið úr kantötu Bachs, Weinen, Klagen,
Sorgen, Zagen, eru giíðarmikið
harmljóð og ákaflega „píanísk" tón-
smíð. Liszt samdi tilbrigðin i minn-
ingu nýlátinnar dóttur sinnar og
verkið er ákaflega tilfinningalegt og
persónulegt. Upphafið er mögnuð
dramatík, þung undiralda og króma-
tík sem endar í viðkvæmnislegu og
veikburða stefi. Óbærilegar tilfinn-
ingar harmsins; sorg, tómleiki, reiði
og örvinglun, skera í merg og bein í
óskaplegum slætti sem jaðrar við
sturlun. I niðurlaginu er hamrað
orðalaust á orðunum Weinen,
Klagen, Sorgen, Zagen í hljóðnandi
og hnígandi tónstiga sem leitar loks
friðar og kyrrðar í hljóðlátu niður-
lagi. Alain Lefévre lék þetta verk
gríðarlega vel og náði upp magnaðri
stemmningu í músíkölskum leik sín-
sagt að ekki hefur verið í frásögur
færandi heima á Islandi. Á hinum
Norðurlöndunum er frammistaða
Onnu, hvað viðkemur bókmenntum,
vel þekkt.
Framkvæmdastjóri félags bóka-
verslana í Svíþjóð hafði aðsetur í ís-
lenska básnum, Tomas Rönström.
Hann er ritstjóri „En nordisk Litt-
eraturskatt, Nobolandstötten 25
Sr“, sem gefið er út af Norrænu
ráðherranefndinni 1999. Bókinni
var deilt út ókeypis á Bókastefn-
unni. I tilefni að því var myndarleg
veisla í íslenska básnum, látlaus og
hógvær eins og ritstjórinn sjálfur.
Bamatorgið hefur alltaf visst að-
dráttarafl. Þar gleymist tíminn við
skemmtilegar uppákomur og aðlað-
andi uppsetningu.
Bæklingur „Kvinnofolk Högskol-
um. Andstæðurnar voru djúpar,
dramatíkin mikil og leikur Lef evres
stórkostlegur.
Mefistóvalsinn er líkast til
þekktasta og vinsælasta verk Liszts.
Túlkun Lefévres á þessum stríðsfáki
píanóbókmenntanna var létt og leik-
andi. Fingrafimi hans er ótrúleg og
tæknileg úrvinnsla nánast fullkomin.
Eins og sönnum virtúós sæmir lék
Lefévre líka með tilþrifum, í anda
Liszts, og var sjálfur sem heltekinn
af tónlistinni. Þrátt fyrir sýningu í
tæknikúnstum og svolítið „show“ var
það sem upp úr stóð og eftir situr
frábærlega músíkalskur leikur
Lefévres, og þar skilur á milli þess
sem spilar af íþrótt og þess sem spil-
ar af list.
Annað harmljóð tónleikanna var
Funerailles, sem Liszt samdi í minn-
ingu ungverskra byltingarmanna
sem teknir voru af lífi af keisara-
stjórninni í Vín 1849. Þetta er fallegt
verk, með harmþrungnum undirtón,
en stilltara og viðkvæmnislegra en
Bachtilbrigðin. Aðalstef verksins ein-
falt og einlægt, liggur í bassarödd og
einfaldir hljómar í efri röddunum
taka undir, mjúkt og blíðlega. Enn
var leikur Lefévres samur, þetta
lýríska tregaljóð lék í höndum hans.
Þó var komið að verkum Wagners.
Umritun Liszts á Ástardauða Isold-
ar, úr óperunni Tristan og ísold, er
vel heppnuð; hún er píanísk, en
tækniæfingar bera hana ekki ofurliði.
Lefévre sýndi hér af sér undur blíðan
leik, áslátturinn var mjúkur og þýður
og fíngerð spilamennskan gjörólík
an Göteborg“ er athyglisverður og
gaman að kynna sér það sem þar er
tif fróðleiks.
Það er heldur lítið hægt að segja í
stuttu máli frá öllu því sem felst í
Bókastefnunni, ekki einu sinni því
markverðasta.
I seinni grein minni verður drep-
ið á fyrirlestra, pallborðsumræður
og skáldskap. Þá er það tungumála-
kunnáttan sem varðar mestu.
Skáldin okkar koma þar við sögu,
Gyrðir Elíasson og Þórarinn Eld-
járn, sem staðfesta vonir um áhrifa-
mikil, sönn og athyglisverð skáld í
framtíð okkar. Sagt verður frá Auði
Magnúsdóttur er flutti erindið;
„Den starka vikingkvinnan?". Og
einnig Onnu S. Björnsdóttur skáldi,
er las upp úr ljóðum sínum í „Spea-
kers Corner".
þeim kraftmiklu látum sem hann
sýndi af sér t.d. í Bachtilbrigðunum.
Niðurlag verksins fjaraði út með sí-
fellt dvínandi styrk og löng lokahend-
ingin var hreint frábærlega spiluð.
Söngurinn til Kvöldstjörnunnar úr
Tannhauser er af sama kyni, blítt og
þýtt kvöldljóð, þrungið undursam-
legri stemmningu. Wagner leikur
það snilldarbragð að framlengja
stemmninguna endalaust með því að
leyfa kadensum ekki að ljúka á
grannhljómi, heldur með svokölluð-
um gabbendi, sem leiðir tónlistina
inn í nýja hljóma og nýjar víddir, svo
kvöldstjörnunnar verði notið ögn
lengur. Unaðsleg spilamennska
Lefévres magnaði upp það yndi sem
þetta verk er. Það var sem píanóleik-
arinn kastaði álögum yfir salinn með
leik sínum, og seiddi áheyi-endur í
töfraheima. Umritun Liszts á for-
leiknum að Tannhauser er mikilúð-
legt verk, en þó langt frá því að geta
kallast mikiifenglegt. Hér fer tón-
skáldið á flug sem það ræður ekki
við. Umritunin er ofhlaðin tæknileg-
um þrekæfmgum, og fyrir vikið til-
gerðarleg og sneydd músíkölsku
samhengi. Yerkið naut sín engan
veginn í flutningi Lefévres, enda ekk-
ert kjöt að kjamsa á. Og vegna þess
hve músíkin er mikið aukaatriði í um-
ritun Liszts fór píanóleikarinn að fip-
ast og náði sér aldrei almennilega á
strik.
Eftir mikið og innilegt klapp lék
Alain Lefévre tvö aukalög, bæði eftir
Chopin, Vals í cís-moll op. 64 nr. 2 og
Byltingaretýðuna op. 10 nr. 12 í c-
moll. Frábær leikur hans og per-
sónuleg túlkun voru dásamlegt vega-
nesti út í haustnóttina.
Bergþóra Jónsdóttir
Listrænn Liszt