Morgunblaðið - 06.10.1999, Síða 32

Morgunblaðið - 06.10.1999, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ 4- MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 33 STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VERÐSAMANBURÐ- UR MILLI LANDA VAXANDI óánægju gætir víða með mismunandi vöru- verð eftir löndum. I smækkandi heimi er óviðunandi fyrir neytendur, að mikill verðmunur sé milli ríkja og taka verður tillit til þess, að almenningur hefur í dag mun betri aðstöðu til þess að fylgjast með verðlagi. í framtíðinni má því búast við, að fólk sætti sig ekki við það, sem einu sinni þótti sjálfsagt, að það væri „dýrt að vera Islendingur“. I Morgunblaðinu í gær er skýrt frá mikilli óánægju brezkra neytenda með verðlagsmál þar í landi og kemur óá- nægjan upp vegna samanburðar á verðlagi við önnur Vest- ur-Evrópuríki svo og við Bandaríkin. Niðurstaðan er, að verðlag er allmiklu hærra í Bretlandi en annars staðar, þótt samanburður Morgunblaðsins á nokkrum vörutegundum sýni þó, að Bretar megi vel við una í samanburði við það sem íslenzkir neytendur mega þola. Að sögn brezku neytendasamtakanna eru Bretar æv- areiðir og forsætisráðherrann, Tony Blair, er farinn að ræða um það opinberlega að verið sé að féfletta brezkan al- menning. Hér á landi er verðlag á öllum helztu nauðsynjum yfir- leitt hærra en í nágrannaríkjunum. Fákeppni er ríkjandi á ýmsum sviðum hér og á öðrum er alls engin samkeppni. Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur síðustu mánuði ít- rekað haldið uppi gagnrýni bæði á matvöruverzlanir og tryggingarfélög vegna verðlagsmála. Það segir mikla sögu, að forsætisráðherrar þessara tveggja ríkja skuli sjá sig knúna til að ganga fram fyrir skjöldu og taka upp málstað neytenda með þessum hætti. Með auknum samgöngum og greiðari og opnari viðskipt- um munu Islendingar eiga aukinn og betri aðgang að verzl- un um allan heim. íslendingar munu í æ ríkari mæli leita hagstæðara verðs á veraldarvefnum. Samkeppni mun því aukast erlendis frá og íslenzkir kaupmenn verða í framtíð- inni að keppa um viðskipti við nýjar aðstæður. Landsmenn sætta sig ekki öllu lengur við mun hærra verð hér en ann- ars staðar fyrir sömu vöru. KOSNINGAÚRSLIT í AUSTURRÍKI ÞRÁTT fyrir að endanleg úrslit liggi ekki fyrir í þing- kosningunum í Austurríki fyrr en um helgina er ljóst að Frelsisflokkur Jörgs Haiders er sigurvegari kosninganna. Frelsisflokkurinn bætti við sig verulegu fylgi og bendir flest til að hann verði næststærsti flokkur landsins, þó svo að ut- ankjörstaðaatkvæði hafi ekki enn verið talin. Stjórnarflokkarnir tveir, flokkur jafnaðarmanna (SPÖ) og kristilegra demókrata (ÖVP), missa þó nokkuð fylgi og þá ekki síst SPÖ, flokkur Viktors Klimas kanslara. Hefur fylgi við flokk jafnaðarmanna ekki verið minna frá stríðslokum. Urslit kosninganna eru fyrst og fremst til marks um þreytu og óánægju meðal kjósenda með samstarf þessara flokka. SPÖ og ÖVP hafa verið meginpólar austurrískra stjórnmála til hægri og vinstri en jafnframt setið saman í stjórn í þrettán ár. Slíkt samstarf meginflokka getur verið nauðsynlegt til að taka á erfiðum málum. Sú hætta er þá hins vegar jafnframt fyrir hendi að fylgi jaðarflokka aukist, þegar meginlínur stjórnmálaátaka riðlast með þessum hætti. Kannanir í Austurríki benda til að það hafí ekki síst verið helmingaskiptakerfí stóru flokkanna tveggja er kynt hefur undir óánægju kjósenda. Flokkur Haiders hefur að flestu leyti yfír sér ógeðfellt yf- irbragð, þó svo að hann hafi reynt að milda ásjónu sína á síðustu árum. Líkt og flokkar yst til hægri í Frakklandi, Ítalíu og Þýskalandi hefur Frelsisflokkurinn sett baráttuna gegn innflytjendum á oddinn. Að auki hefur Jörg Haider látið ýmis ummæli falla á síðustu árum sem túlkuð hafa ver- ið sem svo að hann sjái fátt athugavert við hlutverk Austur- ríkis á tímum Þriðja ríkisins. Hver svo sem endanleg úrslit kosninganna verða er Ijóst að óvissa mun einkenna austurrísk stjórnmál næstu árin. Fyrir kosningar höfðu leiðtogar ÖVP lýst því yfír að flokk- urinn myndi ekki eiga aðild að ríkisstjórn héldi hann ekki stöðu sinni sem næststærsti flokkur landsins. Óháð yfirlýs- ingum af þessu tagi verður erfítt fyrir núverandi stjórnar- flokka að halda áfram samstarfi í ljósi úrslitanna. Vilji menn útiloka Frelsisflokkinn frá stjórnarþátttöku eru aðrir kostir hins vegar vandfundnir. Framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins segir afkomu sauðfjárræktar slaka víða um lönd ISLENDINGAR neyta kindakjöts í minna mæli en áður á meðan neysla þeirra á öðrum kjötteg- undum hefur farið vaxandi. Kindakjötið er nú í auknum mæli selt á eriendum mörkuðum á lægra verði en fæst hér heima. Þá hafa aðrar af- urðir eins og ull og gærur lækkað í verði. Greiðslumai'k sauðfjárbúa getur ekki heldur gengið kaupum og sölum líkt og greiðslumark mjólkm’búa, en er þess í stað fast á ákveðnum bújörðum. Hagur sauðfjárbænda hefur því farið versnandi á undanförnum árum. Víkjandi innanlandsmarkaður Framleiðsla á kindakjöti á íslandi hefur verið að dragast saman síðan í byrjun níunda áratugarins. Árið 1985 var framleiðslan 12.215 tonn en 8.176 tonn í íyrra, eða um þriðjungi minni. I ár er hins vegar gert ráð fyrir um 200-300 tonna framleiðsluaukningu frá fyrra ári. Ekki er þó gert ráð fyrir að neysla aukist í kjölfarið, en frá sept- ember 1998 til ágústloka 1999 neyttu Islendingar um 6.800 tonna af kinda- kjöti. Bændum er því gert að selja um 25% af framleiðslu þessa árs á erlend- um mörkuðum. Gísli Karlsson, framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins, segir að um 2% samdráttur sé á kindakjöts- neyslu landsmanna milli ára. „Innan- landsmarkaðurinn er víkjandi," segir Gísli og bætir við að salan ýmist minnki eða standi í stað. Meðalneysla á kindakjöti var 43,4 kg á mann 1985 en í fyrra var hún 25,7 kg. Framleiðsla á öðrum kjöttegundum og sala hefur hins vegar aukist á þessum tíma. „Við erum sannarlega með bestu kjötafurðina sem er til í landinu því hún liíir á villtum fjallagróðri og geng- ur frjáls í náttúrunni. En samt vorum við síðastliðið ár að tapa markaðshlut- deild upp á 1,4% á innanlandsmark- aði,“ segii’ Aðalsteinn Jónsson, formað- ur Landssamtaka sauðfjárbænda, og bætir við að þetta gerist á sama tíma og kjötneysla í landinu sé að aukast. Hrein náttúruafurð Fjórðungur kindakjötsframleiðslu þessa árs verður seldur á erlendum mörkuðum. I íyira voru um 15%, eða 900 tonn ætluð til útflutnings og er því um að ræða 10% aukningu miili ára. Bændur bera sjáifir ábyrgð á allri dilkakjötsframieiðslu og ber þeim skylda til að fylgja reglugerðum land- búnaðarráðherra um útflutning. En ætlast er til að bændur flytji út um- framkjöt svo ekki safnist upp birgðir. Mun lægra verð fæst fyrir kindakjöt á erlendum mörkuðum en hér heima þar sem bændur fá um 250 kr. fyrir kílóið. Fyrir útflutningskjötið fást hins vegar um 160-185 kr. á kíló og er mis- munandi hvað sláturleyfishafar greiða fyrir útflutning. „Verð á erlendum mörkuðum er ekki það hátt að það borgi sig að framleiða sérstaklega fyr- ir þá,“ segir Gísli. Samningar við Evrópusambandið kveða á um að Islendingar megi flytja 1.350 tonn af kindakjöti tollfrjálst til ESB-ríkja á ári hverju. Þessi kvóti hef- ur ekki verið fullnýttur, en kjötið er markaðssett sem hrein náttúruafurð, laus við alla hormóna og fúkkalyf. Stærstu útflytjendur kindakjöts eru Kjötumboðið og SS og aðal- útflutningsmarkaðir hafa verið Bandaríkin, Danmörk, England, Svíþjóð, Belgía, Japan og Færeyjar sem hafa verið tryggur markað- ur því um 400 tonn hafa ver- _______ ið seld þangað ár hvert. Fjölbreyttir markaðir tryggja hins vegar ekki hátt verð því heimsmark- aðsverð á lambakjöti er lágt um þessar mundir. Þetta má m.a. rekja til mikils framboðs af nýsjálensku kindakjöti. En breytingar á tollalögum í Austur- Asíu og Bandaríkjunum hafa haft það í fór með sér að Nýsjálendingar hafa leitað í auknum mæli á Evrópumarkað. „Afkoma sauðfjárræktar, þrátt fyrir styrki á jaðarsvæðum Evrópubanda- lagsins, er slök og hún er afleit í Bandaríkjunum," segir Gísli. „Þetta er lélegt afkomuár fyrir sauðfjárbændur alls staðar og enn er að aukast það magn sem fer á markað í viðskipta- löndum okkar.“ Markaðsvon í Bandaríkjunum? Kjötumboðið hefur lagt töluverða áherslu á Bandaríkjamarkað sl. þrjú ár. Líkt og á öðrum erlendum mörkuðum Lausn í breyttum reglum um líf- ræna ræktun? Hlutverk sauðkindar- innar og mikilvægi hennar fyrir þjóðina hefur breyst frá fyrri tíð og lægra verð fæst fyrir afurðirnar en áð- ur. Anna Sigríður Ein- arsdóttir kynnti sér stöðu sauðfjárræktar og þann vanda sem við sauðf]árbændum blasir. 43,4 KjÖtSðlð, kíló á íbúa 33,8 10,7 6,6 6,3 Kindakjöt Nautgripakjöt Svínakjöt Alifuglakjöt 26,7 11,2 I 9,9 5,5 □ 25,7 12,2 11,8 | 6,4 14,2 12,8 9,2 1985 1990 1995 1998 Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson Þessi lönib virðast hafa litlar áhyggjur af stöðu sauðfjárræktarinnar. Sjóflutningar á fersku kjöti frá íslandi kannaðir hefur kjötið verið kynnt sem hrein nátt> úruafurð og það selt ferskt í heilsu- verslunum, þá hefur það verið selt bæði ferskt og frosið til hótela og veitinga- staða. Um 30 tonn af íslensku kinda- kjöti voru þannig seld í Bandai’íkjunum í fyrra og var markaðurinn vaxandi. Bryndís Hákonardóttir, útflutnings- stjóri Kjötumboðsins, segir markaðs- setninguna hafa tekist vel og að ís- lenska lambakjötið hafi unnið sér fastan sess í þeim verslunum sem það seldu. Ný tollalöggjöf tók hins vegar gildi í Bandaríkjunum nú í september og vai’ þar með lagður 9% tollur á innflutt lambakjöt til að vernda bandaríska sauðfjárbændur fyrir lágu verðlagi nýsjá- lensks lambakjöts. Vemdar- tollurinn gildir næstu þrjú árin, en fer stiglækkandi ár frá ári. Tollurinn verður því 6% á öðru ári og 3% síðasta árið. Nokkur lönd eru þó undanskilin þess- ari löggjöf, m.a. þróunarlönd og hefur Kjötumboðið leitað aðstoðar sendiráðs Islands í Washington til að sækja um undanþágu frá tollalögunum. Þetta er gert á þeirri forsendu að kjöt sem sé jafn hreint og það íslenska sé töluvert dýrara en bandarískt kindakjöt og ógni þar af leiðandi ekki innlendum mai’kaði. Bryndís segir toilalögin þó ekki hafa haft jafn mikil áhrif og búist var við. Kjötumboðið hafi haldið mai’kaðshlut- deild sinni óskertri, en hún hafi hins vegar ekki aukist líkt og hafi verið gert ráð fyrir. Hærra verð fæst á erlendum mörkuð- um fyrir ferskt lambakjöt en frosið. Þessu hafa þó fylgt þau vandkvæði að flytja hefur þurft kjötið með flugi, sem er dýrari flutningsmáti en skipaflutn- ingar. Kjötumboðið vinnur að sögn Bryn- dísar að lækkun þessa kostnaðar, en verið er að kanna möguleika á að flytja ferskt kjöt sjóleiðis í loftæmd- um umbúðum og gaspakkningum. Bryndís segir lofttæmdu umbúðirnar henta vel á nálægar hafnir, en gas- pakkningar á fjarlægari staði þar sem þær geri unnt að geyma kjötið mun lengur. Þessa aðferð hafi Ný- Sjálendingar notað lengi til að við- halda ferskleika kjötsins. Verðhrun á gæruni Þótt fjórðungur kindakjöts sé í ár seldur á erlendum mörkuðum fyrir lægra verð en fæst fyrir það heima, segir Aðalsteinn sauðfjárbændur samt hafa öllu meiri áhyggjur af verðhruni á gærum og verðlækkun á ull. Verð á gærum lækkaði um 75-80% milli áranna 1997 og 1998. Sláturhús KHB greiddi t.d. bænd- um 208,50 kr. fyrir kílóið af gærum 1997 en um 50 kr. ári síðar. „Samt var verðfallið á heimsmarkaði meira en þetta, sláturleyfishafar tóku það bara líka á sig,“ segir Ingi Már Aðalsteins- son, formaður Landsambands slátur- leyfishafa og kaupfélagsstjóri í Kaup- félagi Héraðsbúa. Hann bætir við að þetta sé þó engu að síður algjört verðhrun gagnvart bændum. Framkvæmdanefnd búvörusamn- inga bætti bændum þó í nokkru upp gæruna í fyrra með því að greiða 100 kr. með hverri gæru og er skv. upp- lýsingum frá Markaðsráði kindakjöts útlit fyi’ir að haldið verði uppteknum hætti í haust. Verðhrun á gærum má rekja til lækkaðs skinnaverðs á heimsmarkaði. Að sögn Bjarna Jónassonar, fram- kvæmdastjóra Skinnaiðnaðarins, stafar þetta að nokkru leyti af breytt- um efnahagsaðstæðum í Sovétríkjun- um fyrrverandi, en þar var jafnan góður markaður fyrir fullunnin skinn. í fyrra keypti Skinnaiðnaðurinn gærar af öllu slátraðu fé. Ekki hefur þó verið lokið við að vinna úr þeim gærum og á fyrirtækið því lager af gærum frá fyrra ári. Hve mikið magn af gæram Skinnaiðnaðurinn mun kaupa úr slátrun þessa árs er því enn óvíst. Saltaðar gærur voru fluttar út á áttunda áratugnum, en sá útflutning- ur lagðist af áratuginn á eftir. í ár er hins vegar útlit fyrir að breyting verði á, en Kjötumboðið sendi nýverið gám af sölt- uðum gærum til Spánar og segir Bryndís fyrirtækið hafa kaupendur að söltuð- um gærum í umtalsverðu ............ magni. Verð á söltuðum gærum er hins vegar töluvert lægra en verð á unnum gærum. Kjötumboðið greiðir t.d. 120 kr. fyrir gæruna og hver gæra vegur um 3,1 kg. Af þessum 120 kr. á hins vegar eftir að draga söltunar- og vinnslukostnað sem er að sögn Aðal- steins um þriðjungur þessa og því ljóst að kíióverðið sem skilar sér tii bænda er innan við 30 kr., „Menn voru að fá upp undir 650 kr. fyrir gæruna 1997, en þetta fer niður í 250 kr. á síðasta hausti. Horfurnar í haust eru síðan þannig að markaður- inn verði að greiða einhvers staðar á bilinu 40-100 kr.,“ segir Aðalsteinn. Hann bætir við að hann sé engu að síður vongóður um að gærur muni hækka í verði á ný. En á loðskinna- uppboði sem haldið var í Kaupmanna- höfn í byrjun september hækkaði skinnaverð um allt að 60%. í fyrra lækkaði ull einnig í verði, Nýsjálendingar sækja stífar á Evrópumarkað þótt ekki hafi verið um verðhrun að ræða h'kt því sem varð á gærum. Um 15% lækkun varð þó á ullarverði til bænda og hefur sú lækkun haldist að mestu óbreytt síðan. Ástæðu þessarar verðlækkunar segir Guðjón Ki’istinsson, fram- kvæmdastjóri Istex, vera lægð í ull- arverði alls staðar í heiminum. Mark- aðir hafi lokast með kreppunni í Asíu og áhrifa þess hafi síðan gætt annars staðar í kjölfarið. Guðjón segir t.d. vera mikinn samdrátt í ullariðnaði í Evrópu, sérstaklega í Bretlandi sem sé ásamt Bandaríkjunum og Kanada eitt stærsta útflutningssvæði ístex. „Ætli það megi ekki segja að þegar kreppir að þá er fatnaður það fyrsta sem fólk sparar við sig,“ segir Guðjón og bætir við að þá hafi flísfatnaður tekið hluta af markaði ullarinnar á síðustu árum. Ullarframleiðsla hér á landi er um 700 tonn á ári og fara um 70% hennar á erlenda markaði. Lífræn framtíð? Það er þó ekki bara ferska kjötið sem selst á hærra verði á erlendum mörkuðum, heldur líka kjöt sem er lífrænt vottað. Ekki er þó mikið um lífrænt vottaða sauðfjárrækt á Is- landi því fylgja þarf ströngum reglu- gerðum. En Bryndís segir nokkra ís- lenska bændur munu mæta skilyrð- um um lífræna ræktun á næstunni, en um sjö tonn af Iífrænu kjöti eru flutt úr landi árlega og selst það á um um 15% hærra verði en venjulegt lambakjöt. Að sögn Aðalsteins er þó verið að skoða hvort hægt sé að fá einhverja rýrnkun á reglum um lífræna vottun vegna legu landsins. Aðalsteinn segir ákveðna heimild verá til þessa í lög- um, en þetta hafi þó ekki tekist enn- þá og það sé bannið við notkun tilbú- ins áburðar sem þetta fyrst og fremst strandi á. „Þetta heftir nefnilega menn á svo stórum hluta landsins að ná að afla fóðurs ef ekki er heimilt að nota einhvern tilbúinn áburð við líf- ræna ræktun.“ Hreinum sauðfjárbúum hefur fækkað um tæp 300 síðan 1995 og töldust þau í fyrra vera 1.606. Greiðslumark sauðfjárbúa er bundið ákveðnum jörðum og geta bændur því ekki selt það frá jörðinni og snúið sér að öðrum búskap. Greiðslumarkið tryggir sauðfjárbónda ákveðið að- gengi að markaðnum sem og ákveðna greiðslu, sé hann á annað borð með sauðfé. Greiðslumark er þó ekki alltaf fast á ákveðnum jörðum. Sala þess var t.d. bönnuð á tímabilinu 1989-1991, en þá var hún leyfð til 1996 þegar hún var aftur bönnuð. Þeir samning- ar eru hins vegar lausir 2001 og segir Aðalsteinn marga bændur bíða þeirra. Að mati Gísla er ekki ólíklegt að sauðfjárbændur séu orðnir langeygir eftir tekjuauka í sauðfjárræktinni. „Ef það er nóg að gera annars staðar í þjóðfélaginu þá fara menn að horfa þangað,“ segir Gísli. En ríkið hefur leyst til sín að undanförnu greiðslu- mark þeirra sem hafa hætt, sem að sögn Gísla hefur ekki vera mikið magn. „Mér finnst stundum eins og bændur séu tregir til að eiga við- __________ skipti við ríkið og séu jafn- vel þeirrar skoðunar að það sé betra að bíða og sjá til, því þetta geti ekki orð- ið verra en það er.“ Marg- ——— ir sauðfjárbændur reyni því t.d. að vera með ein- hverja aðra starfsemi meðfram sauð- fjárræktinni s.s. ferðaþjónustu og handverk, á meðan aðrir sæki vinnu til aðliggjandi þéttbýlis. „Töluvert af bændum bíður eftir nýjum sauðasamningi og hvað hann beri í skauti sér,“ segir Aðalsteinn. „Það verður vonandi settur aukinn kraftur í að ganga frá nýjum samn- ingi og fá úr því skorið hvaða fjár- magn stendur til boða, því það er náttúrlega staðreynd að sauðfjár- ræktin stendur undir stórum hluta þessara dreifðu byggða. Þeir sem vilja hætta verða með einhverjum hætti að komast út úr greininni líka og nýr samningur hlýt- ur að ganga þannig frá þeim málum að þeir fari ekki eignalausir þaðan. En fyrst og fremst þurfum við þó að semja með það að leiðarljósi að sauð- fjárræktin geti lifað sem atvinnu- grein áfram.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Samtökum iðnaðarins og ASÍ hefur verið boðið að taka yfir rekstur Tækniháskóla Islands. TÆKNIHÁSKÓL- INN VERÐI SJÁLF- STÆÐ STOFNUN SAMTÖK iðnaðarins setja þau skilyrði fyrir samstarfí við Há- skóla íslands um stofnun og rekstur tækniháskóla að stofn- unin verði sjálfstæð og ekki undir stjórnskipulagi háskólans. Björn Bjarnason menntamálaráðherra hefur lýst því yfir að ekki komi til greina að kljúfa verkfræðideild frá Háskólanum en hann kveðst ekki sjá að sú afstaða geti komið í veg fyrir samstarf þessara aðila um tækniháskóla. Hann hefur jafnframt veitt Samtökum iðnaðai-ins og Alþýðusambandi íslands umboð til þess að kanna hvort þessir aðilar vilja taka að sér rekstur Tækniskóla íslands. Háskólaráð kemur saman á morgun og þar verður tekin afstaða til þess hvem- ig staðið verði að viðræðum við Samtök iðnaðarins um málið. Menntamálaráðherra segir að í þessu máli liggi fyrir að skapa víðtæka sam- vinnu milli sjálfstæðrar stofnunar tækniháskóla og Háskóla Islands. Mörg dæmi séu um það að aðilar starfi saman á þessu sviði eins og öðram. „En það er algert skilyrði af minni hálfu að menn kljúfi ekki verkfræðideildina frá Há- skólanum," segir Björn. Hann leggur áherslu á að náð verði niðurstöðu í þessu máli sem fyrst og ekki síðar en fyrir áramót. „Það er markmið sem ráðuneytið og verkfræð- inga- og tæknifræðingafélagið hefur haft að kraftarnir verði nýttir sem best til að byggja upp tækni- og verkfræði- menntun. Það er liður í þessari vinnu að kanna hvort ekki sé hægt að skapa betri samvinnu á milli aðila þannig að kraftarnir nýtist sem best. Það era mjög fámennir hópai’ sem verið er að kenna. En hvernig staðinn verði vörður um sérkenni tækninámsins annars veg- ar og verkfræðinámsins hins vegar er úrlausnarefni sem menn standa frammi fyrir og ég held að hljóti að vera hægt að leysa," sagði Bjöm. Samtök iðnaðarins telja að tæknihá- skóla væri betur borgið sem sjálfstæðri stofnun en undir stjórnskipulagi háskól- ans og hafa samtökin lýst áhuga á því að leggja fram fjármagn í stofnun skól- ans. Meginmarkmiðið með stofnun skólans er að efla tækni- og verkfræð- ingamenntun, útvega atvinnulífinu vel menntaða starfsmenn í þessum grein- um og skapa skilyrði til þess að aðlög- unarhæfni skólans sé sem mest þannig að skólinn hafi aðgang að nýjustu þekk- ingu á hverjum tíma. Háskólann skortir aðlögunarhæfni Sjónarmið samtakanna er það að að- lögunarhæfni háskólans er ekki nægi- leg. Stjórnskipulagið er með þeim hætti að háskólinn er oft seinn í ákvarðana- töku. Það taki t.a.m. of langan tíma fyr- ir stjórnendur háskólans að fella niður námskeið sem ekki er lengui- þörf fyrir og sömuleiðis að taka upp nýjungar sem þörf er fyrir. Hluti vandans felist í því að oft taki langan tíma að afla heim- ilda til að ráða nýja kennara til að sinna þessum nýjungum. Davið Lúðvíksson, sem hefur ásamt fleiram unnið að tillögum Samtaka iðn- aðarins að stofnun tækniháskóla sem sjálfseignarstofnunar, bendfr á að stærð Háskólans ráði því að stjórnend- Menntamálaráðherra hefur veitt Samtökum ----------------7----- iðnaðarins og ASI um- boð til að taka að sér —— y rekstur Tækniskóla Is- lands og viðræður eru að hefjast milli Háskóla Is- lands og Samtaka iðnað- arins um stofnun tækni- háskóla. Guðjón Guð- mundsson ræddi við að- ila sem tengjast málinu. ur hans geti oft ekki tekið einhliða ákvörðun um að ráða prófessor í einni deild Háskólans án þess að upp komi umræða um að ráða prófessora í öðram deildum hans. Háskólinn þurfi sömu- leiðis oft að fara þá leið að fastráða kennara í stað þess að lausráða þá. Eins konar kvótakerfi sé við lýði milli deilda sem leiði til þess að stjórnskipulagið sé þungt í vöfúm. Háskólinn er ríkisstofn- un og þar séu ákveðnar launa- og ráðn- ingarforsendur sem gera henni erfitt um vik að keppa við markaðslaun og þar með hæfustu starfsmennina. Þessi veikleiki í stjórnskipulagi einskorðist ekki við Háskóla íslands. Davíð bendir á að Háskólinn eigi aðild að Endur- menntunarstofnun þar sem ráðningar- málum er fyrirkomið á allt annan hátt. Kennarar taka þar að sér námskeið en era ekki fastráðnir. Sams konar fyrir- komulag hefur verið hjá Viðskiptahá- skólanum. „Við erum opnir fyrir því að ræða stjórnfyrirkomulag á tækniháskóla. Við höfum talið að einhvers konar sjálfs- eignarstofnun eða jafnvel hlutafélag geti verið fyrirkomulag sem menn ættu að skoða. Eitt sem hefur breyst í rekstrarumhverfi skólastofnana á Is- landi er það að um leið og byrjað er að gefa upp árlegan kostnað við hvern nemanda á tiltekinni námsbraut er hægt að reka skóla eins og hvert annað fyrirtæki," segir Davið. Hann segir að forsvarsmenn fyrir- tækja innan Samtaka iðnaðai’ins, sem hafa komið að þessu máli, hafi lýst því yfir mestum áhuga á því að tæknihá- skólinn verði til í samstarfi við verk- fræði- og raunvísindadeild Háskóla ís- lands. Það sem þyrfti að gerast til þess að koma málinu á hreyfmgu væri opið viðhorf forsvai’smanna Háskólans til stjómskipulags tækniháskólans og þar þyrftu menn að mætast á miðri leið. Davíð segir að Samtök iðnaðarins hafi undir höndum bréf frá mennta- málaráðherra þai’ sem hann fer þess á leit við samtökin að þau taki yfir rekst- ur Tækniskólans í samvinnu við Al- þýðusamband Islands. Þar með sé búið að leggja þá hugmynd til hliðar að verk- fræði- og raunvísindadeild taki skólann yfir. Samtök iðnaðarins hafi átt ágætt samstarf við ASI í skólanefnd Tækni- skólans og hugmyndir þefrra síðar- nefndu um tækniháskóla séu áþekkar hugmyndum Samtaka iðnaðarins. Háskólinn komi að málum Sigurður Brynjólfsson, prófessor í Háskóla Islands, sat í nefnd sem menntamálaráðherra skipaði til þess _að gera tillögur um samstarf Háskóla ís- lands og Tækniskóla íslands. Fyrstu tillögur hans vora þær að Tækniskólinn færðist undir Háskóla íslands og námið yrði þar sjálfstæðar einingar og skólinn gæti notað þau námskeið innan Háskól- ans sem tæknifræðingar teldu við hæfi fyrir sitt fólk og jafnvel einnig aðstöðu fyrir verklega kennslu. Síðan hefur . málið þróast jdfr’ í það að Samtökum iðnaðarins hefur verið boðið að koma með sjálfstæðan skóla, Tækniháskóla atvinnulífsins, inn á háskólalóðina, þannig að hægt væri að samnýta eða leigja af Háskólanum aðstöðu. Skólinn yrði sjálfstæður og ekki sjálfgefið að hann yrði undir stjórnskipulagi Háskól- ans. „Núna eru að fara í gang viðræður milli Samtaka iðnaðarins og Háskólans um formið á þessu samstarfi, þ.e. hvort skólinn yrði alfarið undir verkfræði- deild, alfarið óháður eða einhver blanda þarna á milli þó þannig að Háskólinn kæmi að þessari sjálfseignarstofnun á einhvern hátt,“ sagði Sigurður. Sigurður segir að í nefndinni hafi m.a. verið rætt um hvort halda beri námi tæknifræðinga og verkfræðinga ' algjörlega aðskildu. Hann segir að sam- kvæmt sínum tillögum eigi ekki að setja þessa tvo hópa i sömu námskeið en á hitt beri að líta að í Háskólanum sé kennd t.a.m. stærðfræði á mörgum stig- um fyrir mismunandi hópa. Tæknifræð- ingar hljóti að fmna stærðfræðinám- skeið innan Háskólans sem þeir telja við hæfi. Samkeyrslan yrði því meiri á raungreinagranni en á faglegum granni. „Það er viðtekin samstaða um það að þörf er fyrir bæði tæknifræðinga og verkfræðinga og við verðum að ein- beita okkur að því að halda þessu námi aðskildu svo ekki verði úr eitthvert miðjumoð,“ segir Sigurður. Erum lítil þjóð Valdimar K. Jónsson, deildarforseti verkfræðideildar, hefúr verið skipaður sem fulltrúi Háskólans í viðræðum við Samtök iðnaðarins um framtíð Tækni- skóla Islands. Hann segir að sín hug- mynd hafi alltaf verið skýr í þessu máli. „Eg hef alltaf sagt að við hefðum ekki efni á því að reka tvo tækni- og verk- fræðiskóla því þetta er tiltölulega dýrt nám. Heldur ættum við, þótt þetta séu tvær sjálfstæðar einingar, að reyna að samkeyra námið með vissum hætti. Sum námskeið væri hægt að kenna sameiginlega og hægt væri að nýta bet- ur verklega kennslu. Við eram lítil þjóð ' en hugsum eins og fimm milljóna manna þjóð og við höfum ekki efni á því að hugsa svona. Ég get verið sammála því að halda beri náminu aðskildu því tæknifræðinganámið er háskólastig verkmenntunai’ og mér finnst ekki hægt að loka fyrir það að iðnaðarmenn komist í framhaldsnám. En það er hægt - að keyra nokkur hagnýt námskeið sam- an,“ segir Valdimar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.