Morgunblaðið - 06.10.1999, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 06.10.1999, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR v MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 41 + Kenneth Dean Nelson fæddist í Cedar Rapids, Iowa, 12. nóvember 1941. Hann lést eftir löng og erfið veikindi á heimili sínu í Chot- eau, Montana, hinn 3. september síðast- liðinn. Foreldrar hans eru Clair og Harvey Nelson, Ced- ar Rapids, Iowa. Bróðir hans er Mich- ael Nelson, New York borg, New York, tvær systur hans eru Patricia Koch, Okla- homa borg, Oklahoma, og Linda Dreier, San Antonio, Texas. Kenneth bjó hér á landi á sjö- unda áratugnum. Eftirlifandi eiginkona hans, Eygló Hulda Valdimarsdóttir Nelson, er fædd í Sandgerði 23. nóvember 1949. Fjögur börn þeirra eru: 1) Ester Ellen Nelson Petterle, fædd í Cedar Rapids, Iowa, 25. júlí 1973. Maður hennar er Jos- eph S. Petterie, fæddur 31. mars 1968. Sonur Ester er Schad Christian, fæddur í North Platte, Nebraska, 21. júli 1993, og sonur Est- er og Joseph er Jos- eph S. II, fæddur í Sparks, Nevada, 8. september 1999. 2) Connie Lynn Nel- son, fædd í Gothen- burg, Nebraska, 11. nóvember 1976. 3) Kristy Dee Nelson, fædd í Billings, Montana, 2. október 1979. 4) Kenneth Dean Nelson II, fæddur í Billings, Montana, 27. mars 1981. Einnig lætur Kenneth Dean Nelson eftir sig soninn Harald Dean Nelson, fæddan í Keflavík 24. júní 1965, sem Kenneth átti með Bertu Guðbjörgu Rafnsdóttur, þáver- andi sambýliskonu sinni. Sambýliskona Haraldar Dean er Guðrún Hulda Gunnarsdótt- ir, fædd á Ólafsfirði 31. mars 1966. Börn þeirra eru Gunnar Lúðvík, fæddur á Akureyri 28. júlí 1988, og María Dögg, fædd í Reykjavík 15. janúar 1992. Utför Kenneth Dean Nelson fór fram í Choteau, Montana, hinn 9. september. um um bor-ð við þessar erfiðu að- stæður. Nelson var ákveðinn og sterkur persónuleiki, vel skipulagður, agað- ur og orðheldinn. Það sem hann sagði stóð eins og stafur á bók. Hann var hins vegar skapstór og lét menn hiklaust fá það óþvegið ef honum sýndist sem svo. Hann var ákafur föðurlandsvinur og tók því illa ef menn töluðu niðrandi til föð- urlands hans og reyndar hef ég það fyrir víst að síðar hafi hann á sama hátt staðið vörð um heiður Islands ef honum þótti á það hallað, enda unni hann bæði landi og þjóð. Sagði hann t.d. syni sínum, Haraldi Dean Nelson, sem var hjá honum rétt fyr- ir andlátið, að hefðu veikindi hans ekki hamlað því hefði hann viljað eyða ævikvöldi sínu í Reykjavík með vinum sínum á Islandi. Mikið vildi ég að honum hefði orðið að ósk sinni, því gaman hefði verið að hitta Nelson aftur eftir öll þessi ár. Mig langar í lokin að minnast þessa vinar míns með tveimur er- indum úr sálmi Valdimars Briem um leið og ég votta aðstandendum hans mína dýpstu samúð. Minningin geymir góðan dreng og sannan fé- laga: Kallið er koraið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. KENNETH DEAN NELSON Með nokkrum orðum langar mig að minnast gamals vinar míns og félaga, Kenneth Dean Nelson, sem nú er fallinn frá langt um aldur fram, 57 ára gamall, eftir langa og harða baráttu við erfiðan sjúkdóm. Ég kynntist Nelson vel á þeim ár- um sem hann dvaldist hér á landi en við vorum saman til sjós á togar- anum Hafliða frá Siglufu-ði seint á sjöunda áratugnum. Nelson hafði þá verið í sambúð með frænku minni, Bertu Rafnsdóttur, og eiga þau saman einn son, Harald Dean Nelson (1965). Nelson var ákaflega myndarlegur og hraustur maður, góður félagi og sannur vinur vina sinna. Til marks um hreysti hans og manndóm bjargaði hann einu sinni skipsfélaga okkar frá drukkn- un um hávetur í innsiglingunni á Isafirði sem var á þessum tíma ákaflega straumhörð og þröng, þannig að skip áttu þar mjög erfitt um vik ef eitthvað fór úrskeiðis. Skipsfélagi okkar féll útbyrðis í ís- kaldan sjóinn og Nelson stakk sér hiklaust á eftir honum og kom hon- KRISTINN RUNAR INGASON + Kristinn Rúnar Ingason fæddist í Keflavík 3. febrú- ar 1974. Hann lést 11. júlí siðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirkju 21. júlí. Elsku Kiddi. En hvað það er sárt að vita að þú sért dá- inn og að þér hafi liðið svona illa. Þú varst svo góður og fallegur strákur. Það var svo gaman að sjá þig síðastliðið haust því við höfðum ekki sést svo lengi. Þú leist svo vel út og það gekk svo vel hjá þér. En hvað það var leiðin- legt hvað síðasta kveðjan okkar var snubbótt. Þú hefðir getað leitað til mín eins og þú hafðir gert áður. Þakka þér fyrir stuðninginn sem þú veittir mér þegar ég þurfti mest á þér halda. Þú vildir alltaf hjálpa ef þú sást að einhver átti um sárt að binda. Þakka þér fyrir allar ótelj- andi góðu stundirnar sem við áttum saman í Rjúpufellinu og á Sogaveg- inum. Við gátum talað um allt sam- an. Það var svo gaman þegar þú eldaðii- fyrir okkur, þér fórst það svo vel úr hendi og þá naustu þín. Ég man sérstaklega þegar þú eld- aðir súpuna handa mér og bættir í hana hinu og þessu sem þú fannst, í skápnum til að gera hana betri. Ég man líka þegar við vorum nýbúin að kynnast og þú komst með kökur sem þú hafðir bakað til að gefa mér. Þá heillaðir þú mig alveg upp- úr skónum. Þú naust þín líka svo við að spila á trommur með strák- unum. Það var mjög gaman að fá að hlusta á ykkur æfa og spila á Hressó og í Rósenberg. Ég man þegar við biðum eftir strákunum tvö ein og þú spilaðir og bauðst síðan til að kenna mér. Þetta eru allt dýrmæt- ar minningar sem ég mun geyma í hjarta mínu. Ég votta ömmu, mömmu og systur þinni og öðrum ætt- ingjum og vinum mína dýpstu samúð og megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Elsku Kalli, Halli og Siggi, tíminn læknar öll sár. Ég bið Guð að blessa og vernda Indíönu og ófædda barnið þeirra. Elsku Kiddi, mér þótti mjög vænt um þig og sakna þín sárt. Ég bið Guð að umvefja þig kærleika sínum, þangað til við hittumst á ný. Þín Kristín Auður. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Hvíl í friði, gamli vinur. Sjáumst síðar. Magnús Steinar Sigmarsson (Maggi Steini). Mig langar til að minnast fyrrver- andi sambýlismanns míns og bams- föður, Kenneth Dean Nelson, sem lést hinn 3. september síðastliðinn, með eftirfarandi Ijóði Sigurbjöms Einarssonar: Mig dreymdi mikinn draum: Eg stóð með Drottni háum tindi á og horfði yfir lífs míns leið, hann lét mig hvert mitt fótspor sjá. Þau blöstu við. Þá brosti hann. „Mitt bam,“ mælti hann, „sérðu þar, ég gekk með þér og gætti þín, í gleði’ og sorg ég hjá þér var.“ Þá sá ég fótspor frelsarans svo fast við mín á langri braut Nú gat ég séð, hvað var mín vöm í voða, freistni, raun og þraut. En annað sá ég síðan brátt: Á sumum stöðum blasti við, að sporin vora aðeins ein. - Gekk enginn þá við mína hlið? Hann las minn hug. Hann leit til mín og lét mig horfa í augu sér: „Þá varstu sjúkur, blessað barn, þá bar ég þig á herðum mér.“ Elsku Halli minn og aðrir að- standendur. Ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð. Berta Rafnsdóttir. Frágangur afmælis- og minningargreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn íremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvu- pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A- 4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og dóttir, INGILEIF ÖRNÓLFSDÓTTIR, Básbryggju 51, varð bráðkvödd á heimili sínu mánudaginn 4. október. Jarðarförin auglýst síðar. Marinó Óskarsson, Stefanía Arna Marinósdóttir, Vilhjálmur Ragnarsson, Theódóra Marinósdóttir, Stefán Jónsson, Stefanía Guðmundsdóttir. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, stjúp- móðir, amma og langamma, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR frá Fagrahvammi, Hlíf II, ísafirði, lést laugardaginn 2. október. Jarðarförin fer fram frá jsafjarðarkirkju laugar- daginn 9. október kl. 14.00. Arndís Hjartardóttir, Guðbjörg Hjartardóttir, Einar Hjartarson, Svavar Einarsson, Kristján Einarsson, Guðmundur Einarsson, Hjördís Hjartardóttir, Sverrir Hjartarson, Bernharð Hjartarson, barnabörn og Finnbogi Bernódusson, Hafþór Gunnarsson, Elínóra Rafnsdóttir, Margrét Þórarinsdóttir, Matthildur Björnsdóttir, Ólöf Veturliðadóttir, Pétur Sigurðsson, Sólveig Hjartarson, barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BÖÐVAR HERMANNSSON, Þórsbergi 18, Hafnarfirði, lést af slysförum laugardaginn 2. október. Jarðarförin auglýst siðar. Jóhanna Margrét Sveinsdóttir, Magnús Jón Áskelsson, Brynja Haraldsdóttir, Herdís Hanna Böðvarsdóttir, Sigurður Sigurðarson, Ragnar Böðvarsson og barnabörn. «r + Ástkær sonur okkar og bróðir, BIRGIR ÞÓR HÖGNASON, Keldulandi 3, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 3. október, verður jarð- sunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 8. októ- ber kl. 13.30. Hadda Halldórsdóttir, Högni Jónsson, Esther Gerður Högnadóttir, Marteinn Karlsson, Þórunn Högnadóttir, Brandur Gunnarsson. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, RAKEL SÓLBORG ÁRNADÓTTIR, Fjóluhlíð 6, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 7. október kl. 13.30. Bragi Guðmundsson, Guðmundur R. Bragason, Ásta Gunnarsdóttir, Sigríður Á. Bragadóttir, Eyjólfur Guðjónsson, Þorsteinn Bragason, Malín Shirimekha, Daði Bragason, Inga Jóhannsdóttir og barnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.