Morgunblaðið - 06.10.1999, Side 43

Morgunblaðið - 06.10.1999, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 43 + Jóhannes Bene- diktsson fæddist á Saurum í Dala- sýslu 6. mars 1950. Hann lést hinn 18. september síðastlið- inn og fór útför hans fram í Dala- búð í Búðardal 1. október. Mig setti hljóðan þegar bróðir minn hringdi í mig og til- kynnti mér að frændi okkar, hann Jóhannes Benediktsson, væri lát- inn. Ég fylltist miklum söknuði og settist niður og það runnu í gegnum huga minn ýmsar minningar frá liðnum árum. Við Jói ólumst eiginlega upp sam- an því foreldrar okkar bjuggu fyrst í sama húsinu og vorum við þá oft frekar eins og bræður heldur en frændur en fyrst og fremst vorum við vinir og sú vinátta hélst alla tíð. Ég minnist æskuáranna á Saur- um þar sem við undum okkur við leik og störf að ógleymdum öllum prakkarastrikunum sem okkur fyrigafst alltaf fljótt. Síðan liðu árin og við stofnuðum báðir fjölskyldur og heimili í Búðar- dal, og var ég tíður gestur á heimili hans enda stóð það mér alltaf opið og oft í þessum heimsóknum gátum við setið og spjallað um heima og geima, enda höfðum við mörg sam- eiginleg áhugamál sem voru meðal annars vinnuvélar og bílar. Jóhannes stofnaði síðan sitt eigið verktakafyrirtæki og átti ég þá því láni að fagna að starfa hjá honum um þriggja ára skeið. Hann hafði einstakt lag á að hafa vinnuandann í góðu lagi. Þess vegna var mjög gott að starfa með Jóa frænda og var oft slegið á létta strengi því Jói var létt- ur í lund og var þá oft stutt í glettni og glaðværð þar sem hann var staddur. Ég fluttist síðan til Reykjavíkur en leiðir okkar skildi samt ekki því við héldum alltaf sambandi þó að stundum liðu kannski mánuðir sem við hittumst ekkert en er við hitt- umst gáfum við hvor öðrum alltaf tíma til að ræða saman og það þurfti kannski ekki mörg orð til að vita hveming hvor öðrum leið og hvem- ig gengi. Og þó að maður vissi að hann ætti oft sínar erfiðu stundir var samt alltaf stutt í glettnina hjá Jóa, og var þá slegið á léttari strengi. Fjölskylda mín mun sakna Jóa frænda mikið eins og við vorum vön að kalla hann og þó sérstaklega Hermann sonur minn sem hélt mik- ið upp á Jóa frænda og alltaf á hverjum jólum fékk hann senda dagbók frá Jóa merkta fyrirtækinu og eru þær geymdar vel. Ég bið algóðan Guð að geyma hann. Og vernda og blessa fjöl- skyldu hans og vini og ég veit að honum líður vel á þeim stað sem við öll munum fara á að lokum. Ég kveð þig með söknuði, elsku frændi og vinur, og við fjölskyldan vottum Vil- borgu, börnum þínum, móður þinni og systrum þínum og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Guðbrandur Hermannsson og fjölskylda. Dauðinn er það eina sem við göngum að sem vísu í þessum heimi. Samt kemur hann okkur sí- fellt á óvart. Þessi dularfulli haust- maður er genginn úr garði áður en við vissum af komu hans og alltíeinu verður okkur ljóst að hann hefur haft einn heimilismann á brott með sér. Og alltaf spyrjum við agndofa: Hvers vegna hann? Hvers vegna núna? Þessar spurningar leita ekki endilega svai’s. Þær eru fremur tjáning sorgar og saknaðar, eins og til að fylla upp í tómarúmið sem hinn látni skildi eftir sig. Hann var alltaf kallaður Jói Ben. og ég hef þekkt hann frá því að við vorum smástrákar í Barnaskólanum á Laugum fyrir margt löngu. Ég man að hann var ærslafullur, uppátekt- arsamur og ekkert þægðarljós. Og hann var gæi. Góður gæi. Við vorum ekki ná- skyldir, en frændur engu síður og vinir. Um tíma vorum við svilar. Hann gerðist um- svifamikill athafna- maður í sinni heima- sveit og raunar náðu umsvif hans langt út fyrir sveitarmörk. Hann færðist stundum mikið í fang, en vann að settum markmiðum af þrautseigju og út- sjónarsemi. Hann lét til sín taka í málefnum lands og sveitar og hafði einarðar og oft frumlegar skoðanir á mönnum og málefnum. Grundvall- arviðhorf hans einkenndust af já- kvæðni og samstarfsvilja. Á erfiðri stund í lífi mínu barst mér bréf frá Jóa Ben. og var þá lið- inn langur tími frá því að við höfð- um síðast heyrst eða sést. Bréfið var skrifað með stóru letri og hafði að geyma boðskap sem var stór í sniðum eins og bréfritarinn. Þessu bréfi gleymi ég aldrei og gæti þess vel. Á þessari kveðjustundu er mér efst í huga þakklæti fyrir þessa uppörvandi hugulsemi frænda míns. Eins og venjulega hafði hann frum- kvæði og áræði til að gera það sem dugði. Jói glímdi lengi við erfiðan sjúk- dóm og varð að lokum að lúta í lægra haldi. Það er sannfæring mín að í þeirri glímu hafi hann hvergi skort kjark né þor. Það vinnast ekki allar glímur og við því er ekkert að gera. Ég sendi aðstandendum öllum einlægar samúðarkveðjur. Mig langar að lokum til að kveðja Jóa Ben. með þessu gullfallega kvæði eftir Jóhann S. Hannesson. Við spyrjum drottin særð, hvers vegna hann hafi það dularfulla verkalag að kalla svona vænan vinnumann af velli heim á bæ um miðjan dag. Og þó, með trega og sorg, skal á það sæst, að sá með rétti snemma hvílast megi í friði, er hafði, fyrr en sól reis hæst, fundið svo til, að nægði löngum degi. Benedikt Jónsson. Hann er farinn, horfinn, dáinn hann Jói Ben vinur okkar og við sitjum hljóð. Ótal blendnar tilfinn- ingar setjast að í huganum, tóm- leiki, reiði, sársauki og söknuður, mikill söknuður. Við vitum hins veg- ar, ef við skoðum djúpt og ærlega inn í hugarfylgsni okkar, að þær eru flestar sprottnar af eigingirni, við vildum einfaldlega hafa hann lengur hjá okkur. Enginn svarar lengur í símann „Tak - Jóhannes" og breyt- ir röddinni snögglega þegar hann heyrir hver er á hinum endanum. Þá vék framkvæmdastjórinn Jó- hannes fyrir persónunni og vinin- um, Jóa Ben. Var þá oftar en ekki fyrst spurt hvernig maður hefði það og hvemig lífið gengi, síðan gert góðlátlegt grín, án nokkurra meið- inga, og svo upphófust spádómar og spekúleringar um lífið og tilveruna. Upp komu fletir á mönnum og mál- efnum sem við höfðum ekki komið auga á sjálf. Og þegar samtalinu var lokið var hinn þröngi sjóndeildar- hringur okkar víðari en áður, við ríkari og höfðum margt nýtt um að hugsa. Mörg ár eru liðin síðan við kynntumst fyrst, þá hafði Jói svart skegg, reykti pípu og skildi hvorugt við sig. Fyrst var hann bflstjóri, síðan framkvæmdastjóri eigin fyr- irtækis, vann og bjó í Búðardal. Mikið vatn er runnið til sjávar síð- an þetta var. Jói var reyndar enn framkvæmdastjóri í eigin fyi’irtæki en pípan og svarta skeggið voru horfin og Jói kominn í Borgarnes. Þar bjó hann og hafði aðstöðu fyrir fyrirtæki sitt. Og þar tókum við upp gamlan þráð að nýju. Jói var ekki hár í loftinu en hins vegar stór og mikill persónuleiki sem rúmaði bæði Jóhannes - fram- kvæmdastjórann og Jóa Ben, vin- inn, gullmolann og ljósgeislann sem lýsti upp umhverfi sitt og tilveru okkar, beint inn í hjörtun, þótt hann fyndi ekki alltaf ljósið sitt sjálfur, eins og hann sagði, er þau mál bar á góma. Hjálpsemi hans var við- brugðið. Oftar en ekki kom hann okkur á óvart með óvæntri gjöf eða gjörð sem sýndi glöggt hversu næmur hann var á mannlegt eðli og líðan okkar er gengum með honum götuna og hversu vænt honum þótti um vini sína. Jói var dugnaðarforkur, vann langan vinnudag, og lét víða til sín taka. Hann var t.d. mikill sjálfstæð- ismaður og vann þar mikið starf á bak við tjöldin og markaði þar mun fleiri spor en margur vissi um. Hann var líka fastur fyrir og ef ákvörðun hafði verið tekin þá breytti því enginn, svona skyldi þetta vera, og ekkert meira um það að segja. Jói Ben, vinur okkar, er farinn. Hann veit núna, það sem hann lang- aði alltaf til að vita, hvemig hlutim- ir ganga fyrir sig hinum megin. Hann hafði sérdeilis góða nærvera og við söknum hennar en við trúum að hann hafi það betra þar sem hann er núna og því reynum við, í eigingirni okkar, að gleðjast með honum. Kæri vinur! Þegar við sát- um hér heima á Borgum, hnuggin yfir því að þú værir farinn, fundum við ljóð eftir annan Dalamann, sem okkur finnst segja svo margt. Við kveðjum þig með þessum línum, þökkum þér samfylgdina og hlökk- um óendanlega til að hitta þig aftur síðar. Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys, hnígur að ægi gullið röðulblys. Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd, og báran kveður vögguljóð við fjarðarströnd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái s\'efnsins fró. Kom draumanótt, með fangið fullt af friði og ró. Syngdu mig inn í svefninn, ljúfi blær. Sorgmæddu hjarta er hvfldin jafnan vær. Draumgyðjan ljúfa, Ijá mérvinarhönd og leið mig um þín töfraglæstu draumalönd. (Jón frá Ljárskógum.) Kæra Vilborg og aðrir aðstand- endur. Við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur og leiða í ykkar miklu sorg. Ljúflingur er fallinn frá, en minnumst þess hversu rík við eram, að hafa fengið að ganga með honum veginn, um stund. Bima, Brynjar (Binni) og fjölskylda, Borgum. Ástkær móðurbróðir minn, hann Jói Ben., er dáinn. Mig langar að reyna með örfáum orðum að minnast þín, elsku Jói. Ég ætla að vitna strax í grein sem þú skrifaðir í Morgunblaðið fyrir nokkram áram en þar sagðir þú að orðið „Kærleikur" væri stórt orð, og líklega eitt það mikilvægasta sem til væri í orðasafninu. Eg er þér sammála. Við eram allt of mikið að velta okkur upp úr smávægileg- um hlutum og gleymum yfirleitt kærleiknum. En kærleikur var eitt- hvað sem þú áttir mikið af. Einnig sagðir þú að þeim sem fyndist þeir hafa orðið undir í hinni marg- slungnu lífsbaráttu ættu að herða upp hugann því að það væra ljósar hliðar á öllum málum, maður þyrfti bara að koma auga á þær. Og þannig veit ég að þú varst, sást ljósu punktana í öllu og öllum. I lok þessarar blaðagreinar sem þú skrifaðir var þessi vísa: Þótt þig lífið leiki grátt og lítið veiti gaman, skalt þú bera höfuð hátt og hlæja að öllu saman. Það er svo margt sem flýgur í gegnum huga manns á svona stund- um. Allar gömlu og góðu minning- arnar um þig þegar ég og Óli vorum að leika okkur saman. Og alltaf gat maður spurt þig um allt og leitað JOHANNES BENEDIKTSSON svara því þú tókst manni alltaf sem jafningja. Eitt sinn er mig vantaði vinnu þá útvegaðir þú mér vinnu við að keyra malarflutningabíl í Reykjavík og það er svo margt ann- að sem þú hjálpaðir mér við. Fyrir allt það vil ég þakka. Oft var mér líkt við þig, ekki veit ég af hverju en mér þótti alltaf vænt um að heyra það og mun alltaf vera stoltur af því að hafa verið líkt við þig, manninn sem ég leit alltaf upp til. Og vonandi hef ég eitthvað af þeim kostum öllum sem prýddu þig. Þegar við afkomendur ömmu Steinu fóram í eyjasiglinguna um Breiðafjörðinn á 80 ára afmæli ömmu í lok ágúst í sumar, komst þú með mér, Óla, Karen og Sunnevu í bíl úr Borgarnesi og út í Stykkis- hólm. Við Öli tókum ferðina upp á myndband og nú er það myndband orðið mun dýrmætara en það var. Um kvöldið er leiðir skildust að nýju í Borgamesi þá faðmaði ég þig eins og ævinlega þegar við kvöddumst. Þessu hlýja faðmlagi gleymi ég aldrei og mun ávallt hafa minningu þína á sérstökum stað í hjarta mér. Að lokum get ég ekki látið hjá líða að minnast á pípulyktina sem fylgdi þér svo oft. Hún minnti mig alltaf á Benna afa á Sauram, en núna minnir hún mig á ykkur báða. Elsku Vilborg, Addbjörg, Biggi, Óli, Sunneva og Benedikt, guð blessi ykkur og okkur öll á þessum erfiðu tímum. Hvíl þú í friði, góði frændi og vin- ur. Það grétu allir englar á himnum í nótt. hamingjutárum, og ég upplifði það sem ég ætíð hef sótt, til þín, á liðnum árum. (Haraldur Reynisson) Sigurður Sigurbjörnsson frá Vígholtsstöðum. Vinur minn Jói Ben hefur kvatt þennan heim. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Hugurinn leitar allt til ársins 1963, þegar ég kynntist þér sem ungum dreng. Þú og ég unglingurinn náðum vel sam- an og alla tíð þar til leiðir nú skilja. Þú göfgaðir það sem þú umgekkst, gerðir öllum gott og vildir öllum vel. Þú hafðir þann mannkost að greiða götu lítilmagnans en menn með þessa góðu eiginleika sem þú hafðir era afar dýrmætir. Mig langar til að segja svo mikið um okkar samferða- tíma, en skortir orð. Þú kemur upp í huga mínum aftur og aftur en ég mun geyma minninguna um þig. Son Guðs ertu með sanni, sonur Guðs, Jesú minn, son Guðs, syndugum manni sonar arf skenktir þinn, son Guðs einn eingetinn. Syni Guðs syngi glaður sérhver lifandi maður heiður í hvert eitt sinn. (Hallgr. Pét.) Elsku Vilborg, böm, móðir og systur. Algóður Guð styrki ykkur í sorginni en björtu minningamar t ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, simi 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olsen, útfararstjóri Svarrir Einarsson, útfararstjóri Utfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhrínginn. www.utfararstofa.ehf.is/ munu lýsa ykkur veginn um hinn dimma dal uns birtir að nýju. Guð veri með þér, kæri vinur. Blessuð sé minning þín. £ Baldvin Guðmundsson. Þegar um nætur þögla stund, ég þreyi einn og felli tár og hjartað slegið und við und um öll sín hugsar djúpa sár. Þá er sem góður andi þrátt að mér því hvísli skýrt, en lágt: „Senn er nú gjörvöll sigruð þraut, senn er á enda þymibraut." (Kristján Jónsson.) Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Hvíl í friði, kæri vinur. Hulda, Rúnar og börn. Mig langar til með örfáum orðum að kveðja góðan vin og samferða- mann, Jóhannes Benediktsson. Ég kynntist honum þegar hópur bjart- sýnisfólks í Dölum tók sér fyrir hendur að setja á fjalirnar söngleik- inn Ævintýri á gönguför. Segja má að vinnan í kringum þetta hafi verþkv okkur sem þá voram ung og áköf hreint ævintýri. Mér féll strax vel við þennan ljúfa pilt sem alltaf virt- ist í góðu skapi á hverju sem gekk. Seinna átti ég eftir að starfa með Jóhannesi þegai’ hann starfaði í skólanefnd Grannskólans í Búðar- dal um árabil. Allt samstarf við Jó- hannes var mjög gott. Hann bar hag skólans mjög fyrir brjósti og fylgdist vel með skólanum. Énn átt- um við svo eftir að eiga samstarf á vettvangi stjómmálanna, þegar ég. tók sem fulltrúi Dalamanna sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Vestur- landi. Jóhannes studdi mig dyggi- lega í framboðinu, enda hafði hann hvatt mig mjög til að gefa kost á mér. Alltaf var Jóhannes léttur í við- móti og vildi gera gott úr öllu. Síð- asta samtal okkar var nú sl. vor þegar ég átti í nokkram vanda og hringdi í Jóhannes til að heyra hans álit. Eins og alltaf sagði hann mér sína skoðun, en lagði jafnframt áherslu á að mitt væri að taka ákvörðun. Þannig var Jóhannes, lá ekki á skoðunum sínum, en þröngvaði þeim ekki upp á neinn. Ég vissi að Jói átti við margt að stríða sjálfur, en hann bar ekkí^ áhyggjur sínar á torg. En Jóhannes var góður vinur og alltaf reiðubúinn að leggja öðram lið. Ég vil þakka Jóhannesi Bene- diktssyni samstarf og stuðning í leik, starfi og stjómmálavafstri og sendi Vilborgu og bömum þeirra Jóhannesar, móður Jóhannesar og systrum, innilegar samúðarkveðjur. Þrúður Kristjánsdóttir, skólastjóri Búðardal. itrt CyarSsKom ^ v/ Possvo^ski^kju^ai'ð y V Sími: 554 0500

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.