Morgunblaðið - 06.10.1999, Page 61
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1999 61
MORGUNBLAÐIÐ
BlftlBCKC-
Kl. 9 og 11. ótextuð
^(fficeSPæe
'sjaWSSJ
ekkert á við
fyrsta skipti
Vinsælasta og fyndnasta grínmynd ársins.
Komdu og sjáðu hvað allir eru að tala um.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. SEDKinAL
Nmm
F/Rlfí
990 PUNKTA
fyfilfi
990 PUNKTA
rmu I Bló
Snorrabraut 37, simi
YÉRDUÍBÍÓ Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800
EYES WIDE SHUT
irk-k „ v
★ ★★
★ ★★
Rás2
katiu Hulmes
'amén Creek
tn-nu:rnSur Milllt mA hntru* kín
i• kíTtumn$nunt tri* hvlvili
-kir-k'
www.samfilm.is
www.samfllm.is
Listahátíð unga fólksins á næsta leiti
Á. Unglist fær listsköpun allra
menningarkima að njóta sín
... . ♦, tti... 1..1_:— KrYrvm a \nðf«rtíTRP.fnÍ. Þau ha
UNGLIST, listahátíð ungs fólks,
hefur verið árviss viðburður á
haustdögum í Reykjavík síðan árið
1992 og sett fjörlegan og listrænan
svip á borgarbraginn. Hátíðin
stendur yfir í tíu daga en einstakar
sýningar á hennar vegum
verða þó uppi fram í jóla-
mánuðinn.
Unglist er haldin í
tengslum við Hitt húsið,
upplýsinga- og menningar-
miðstöð ungs fólks í
Reykjavík en nokkur bæj-
arfélög úti á landi halda
einnig listahátíð ungs fólks
á sama tíma. Meginmark-
mið hátíðarinnar er að
leyfa listsköpun allra
menningarkima að njóta
sín en um leið að vera fyrir
byggjandi afl og halda
þannig á lofti markmiðum
Hins hússins.
hjá menningarsveit Hins hússins
sem auk Þórunnar Guðjónsdóttur,
Kristins Ingvarssonar og Steinars
Júlíussonar sér um að halda utan
um dagskrána ásamt hópi ungs
áhugafólks.
Hljómsveitin Múm skemmti á sundlaugarbakk-
anum í fyrra og spennandi verður að vita hvað
verður í boði í ár.
þemu eða viðfangsefni. Þau hafa
aðeins þessa einu filmu til að
vinna með og verða því að vanda
sig mjög mikið.“ Einnig er ákveð-
ið þema gefið þeim einstaklingum
eða hópum sem taka þátt í stutt-
myndamaraþoninu og á
síðasta ári var það „tál-
sýn“.
- Það er þá ekkert hægt
að svindla og vinna verk-
efnið fyrirfram?
„Nei,“ segir Ása ákveðin.
„Við erum aðeins þrjú sem
vitum hver viðfangsefnin
verða og þegar ungmennin
mæta í Sundhöllina fá þau
blað þar sem þau eru upp-
lýst og keppnisreglur. Þau
hafa síðan sólarhring til að
vinna verkefnið og ef þau
ná ekki að skila á tilsettum
tíma þá eru þau dottin úr
keppni."
Ræst í maraþoni
I ár kennir ýmissa grasa á lista-
hátíðinni sem verður sett í Sund-
höll Reykjavíkur fimmtudaginn 28.
október næstkomandi. Á setning-
unni verður m.a. rokkað í lauginni
þar sem Neo Geo hugmyndahóp-
urinn stendur fyrir neðanvatnstón-
leikum þar sem tónleikagestir
ættu að klæðast sundfötum og
skella sér út í til að njóta tónlistar-
innar sem best. Þá fara einnig af
stað ljósmynda-, myndlistar- og
stuttmyndamaraþon sem njóta sí-
fellt meiri vinsælda. „Við setning-
una geta ungmenni skráð sig í
maraþonið,“ segir Ása Hauksdóttir
í öllu þessu maraþoni er unnið
út frá ákveðnum þemum og þátt-
takendur fá aðeins sólarhring til að
klára verkefnin og verða því að
vera mjög hnitmiðaðir.
„í myndlistarmaraþoninu fá
ungmennin nokkurs konar að-
gangslykil; strekktan striga, 35
sinnum 40 sentímetra og ákveðið
þema þannig að allir sem taka
þátt vinna eftir sama hugtakinu. I
fyrra var það „mergð“ sem gaf
þátttakendum ýmsar frumlegar
og skemmtilegar hugmyndir,"
segir Ása og brosir. „Sama á við
um ljósmyndamaraþonið. Þá fá
þau tólf mynda filmu og tólf ólík
Vegleg verðlaun
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir
sigurvegara í maraþoninu og und-
anfarin ár hefur byggingamarkað-
urinn t.d. gefið verðlaun í mynd-
listarmaraþoninu; pensla, máln-
ingu og annað sem ungir, upp-
rennandi listamenn þarfnast. I ár
fær sigurvegarinn að auki nám-
skeið hjá Myndlistaskóla Reykja-
víkur. Hans Pedersen hefur
styrkt ljósmyndamaraþonið
rausnarlega undanfarin ár með
góðum gjöfum og einnig eru
spennandi verðlaun í boði fyrir
bestu stuttmyndina.
Afrakstur þátttakenda fær síðan
Setning Unglistar verður í Sundhöll Reykjavíkur en á síðasta ári
gerðu neðanvatnstónleikamir þar mikla lukku.
að njóta sín í sölum Hins hússins
en þar verður ýmislegt annað sem
gleðja mun auga og eyra á meðan
á hátíðinni stendur því dagskráin
er fjölbreytt og hefur undanfarin
ár endurspeglað vel það helsta sem
er að gerast í listsköpun ungs
fólks. Tiska, dans, tónlist, leiklist
og margt fleira er á döfinni á Ung-
list og eru öll þeim ungmennum
sem áhuga hafa á að taka þátt bent
á að hafa samband við Hitt húsið
og viðra þar hugmyndir sínar senl*®-
allar eru vel þegnar.
McCartney ánægður
með Lennon
BÍTILLINN Paul McCartney hefur ekkert
nema gott um það að segja að Liam Gallagher,
söngvari Oasis, og eiginkona hans og leikkonan
Patsy Kensit skírðu son sinn eftir John Lennon.
McCartney sagði það viðeigandi fyrir þennan
svarta sauð breskrar popptónlistar til að heiðra
Lennon.
„Mér finnst þetta fallegt nafn og virðingarvert
uppátæki. Það hefur aldrei farið dult að Liam er
mikill aðdáandi Johns," sagði McCartney í sam-
tali við dagblaðið Sun. „Ég býst við að þetta sé
eins og að skíra bamið sitt eftir knattspyniulið-.
inu Liverpool. Mér finnst þetta fallegt nafn, -
enda af hverju ætti mér ekki að finnast það?“
McCartney sagði að hann væri hættur að
syrgja eiginkonu sína, Lindu, sem lést úr
krabbameini í apríl í fyrra 56 ára að aldri. „Mér
líður betur. Það tók um ár og þá byrjaði ég bara
að hugsa um þetta i stað þess að syrgja. Síðasta
minning mín um hana er hversu tápmikil hún
var i anda.“
Lennon Gallagher, sonur Liams og Kensit,
fæddist sex vikum fyrir tímann 13. september
. síð^tlíðinn.
Þ e k k I n g
I Þin a þág u
TÖLVU-
NÁMSKEIÐ'
£
£
Tölvu- og
verkfræðiþjónustan
Grensásvegl 16
pöntunaraímid
§209000
feisiaf f