Morgunblaðið - 13.02.2000, Page 2
2 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ofærð á Norðausturlandi og erfíðleikar suðvestanlands
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
Akureyringar beijast við að losa bíl í Höfðahlíðinni í gærmorgun.
Hundruð yfír-
gefinna bfla
töfðu mokstur
HUNDRUÐ yfirgefinna bíla töfðu
snjómokstur á höfuðborgarsvæðinu í
gærmorgun. Samgöngur komust
ekki í eðlilegt horf fyrr en leið á dag-
inn eftir að mikið óveður gekk yfír
höfuðborgarsvæðið í íyrrinótt. Þrátt
fyrir óveður og mikla ófærð er ekki
vitað til þess að fólk hafí lent í alvar-
legum hrakningum eða að slys hafi
orðið á fólki. Veður fór mjög versn-
andi á Norður- og Austurlandi í gær
og var þar víðast hvar ófært.
Björgunarsveitarmenn voru lög-
reglu til aðstoðar í fyrrinótt og í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík bárust á fjórða
hundrað beiðnir um aðstoð í fyrri-
nótt og fyrir hádegi í gær höfðu bor-
ist um 100 beiðnir. Aðstoðin fólst að-
allega í að koma fólki til síns heima
og aðstoða fólk sem hafði fest bíla
sína. Talsvert var um að fólk, sem
starfar á spítölunum, óskaði eftir að-
stoð við að komast úr og í vinnu. Lög-
reglunni hafði í gær ekki borist mikið
af tilkynningum um tjón á bifreiðum.
Snjómokstur gekk erfiðlega í sum-
um götum á höfuðborgarsvæðinu í
gær vegna fjölda bíla sem ökumenn
höfðu neyðst til að yfirgefa í ófærð-
inni í fyrrakvöld. Kallað var eftir að-
stoð kranabíla til að draga yfirgefna
bíla af götum. Starfsmenn við snjó-
mokstur lögðu höfuðáherslu á að
opna strætisvagnaleiðir og aðalgöt-
ur. Fólk átti víða í erfiðleikum við að
koma bflum frá húsum sínum og út á
götumar. Strætisvagnar í Reykjavík
fóru ekki að ganga fyrr en leið á
morguninn. Erfiðast gekk að koma á
eðlilegri strætisvagnaþjónustu í
Grafarvogi vegna ófærðar.
Aðeins var jeppafært á götum Ak-
ureyrar í gærmorgun og sátu fólks-
bflar víða fastir í úthverfum, að sögn
lögreglu. Lögregla hafði nóg að gera
við að aðstoða fólk víðs vegar um
bæinn og hjálpa fólki að komast til
vinnu.
Annars staðar á Norðurlandi var
þæfingsfærð og hafði lögregla í nógu
að snúast við að aðstoða ökumenn.
Morgunblaðið/Júlíus
Allmiklir snjóruðningar höfðu myndast við Miklubraut inn við Elliðaár
og voru stórvirk snjóruðningstæki þar við vinnu.
Morgunblaðið/Golli
Á sýningu sem nú stendur yfir í Perlunni gefur að líta ýmsan þann
tæknibúnað sem nýtist vel fötluðum og öldruðum.
Tæknin nýtist fötluð-
um sem ófötluðum
Yilja að stjórn-
völd breyti land
búnaðarstefnu
í PERLUNNI í Reykjavík stendur
yfir sýning á tækni sem þjónar fötl-
uðum en að sögn Friðriks Sigurðs-
sonar, framkvæmdastjóra Þroska-
hjálpar, er tilgangur hennar að
vekja athygli á því að eitt og annað í
nút ímatækni sem er til þæginda fyr-
ir þá sem ekki eru fatlaðir kemur
fötluðum að góðum notum.
„Mikið af þessari tækni er til þess
að við sem ekki erum fötluð þurfum
sem minnst að hreyfa okkur og
hugsa en hún kemur um leið'þeim
sem eiga í erfiðleikum með annað-
hvort eða hvorutveggja afar vel.“
Friðrik tekur fram að sýningin sé þó
langt í frá að vera bara fyrir fatlaða
því þar sé til að mynda einnig bún-
aður sem hentar öldruðum.
Að sýningunni standa þrettán að-
ilar sem eru hagsmunasamtök og
stofnanir sem vinna að málefnum
fatlaðra og var hún opnuð á föstu-
dag en lýkur í dag, sunnudag, kl. 18.
Að sögn Friðriks var sýningin ágæt-
lega sótt fyrri hluta dagsins ( gær,
laugardag, og segir hann að fólk
hafi mætt strax um tíuleytið þrátt
fyrir erfiða færð og Ieiðinlegt veður.
Sjálfstæðir fyrir-
lestrar í dag
í tengslum við sýninguna var í
gær haldin ráðstefna þar sem m.a.
var kynnt sú tækni sem notuð er fyr-
ir fatlaða hjá hinum Norður-
landaþjóðunum og í dag verða hald-
in þrjú sjálfstæð erindi um ýmis
málefni tengd fötluðum, til að
mynda fjallar eitt þeirra um starfs-
þjálfun og endurhæfingu, og hefjast
þau kl. 13.30. Fyrsta fyrirlesturinn
heldur Karl Guðmundsson, fatlaður
nemi í Lundaskóla á Akureyri, en
hann sljórnar tölvumúsinni með
augunum.
VERSLUNARRÁÐ íslands segir
það algjört forgangsmál að hags-
munaaðiiar sameinist í kröftugu
átaki um að þrýsta á stjómvöld að
breyta um stefnu í landbúnaðarmál-
um þannig að landbúnaður geti orðið
lífvænleg atvinnugrein hérlendis.
í skýrslu Verslunarráðs til Við-
skiptaþings 2000 er rætt um afleið-
ingar GATT-samningsins og stofn-
unar WTO, Alþjóðaviðskiptastofn-
unarinnar, í lok Úrúgvæ-viðræðn-
anna árið 1994 og sagt að íslensk
stjómvöld hafi lagt sig fram við að
viðhalda fyrri takmörkunum á mark-
aðsaðgangi með landbúnaðarvömr,
m.a. með setningu mjög strangra
heilbrigðiskrafna gagnvart innflutn-
ingi. Þá hafi tollalágmörk verið sett
mjög hátt þannig að hægt væri að
beita tollum sem raunverulegri að-
gangshindrun á hverjum tíma.
„Ljóst er að þessar varnaraðgerð-
ir stjórnvalda hafa heppnast vel þar
sem síðastliðin misseri hefur að með-
altali aðeins verið nýtt um 1% af
þeim 3-6% tollkvóta sem heimilt er
að flytja inn af ósoðnu kjöti á lág-
markstollum," segir í skýrslunni.
Þá er þar fjallað um tolla á iðn-
varning og sagt að þótt tollar hafi al-
mennt lækkað verulega síðustu ára-
tugi séu tollar enn viss sam-
keppnishindrun á sumum sviðum,
t.d. varðandi fatnað. „Mestur hluti
þess fatnaðar sem fluttur er til
landsins er framleiddur í Asíu. Mjög
algengt er hins vegar að fatnaður sé
seldur til íslands í gegnum þriðja að-
ila í Evrópu, oftast að frumkvæði
framleiðandans sem kýs að viðhafa
slíkt fyrirkomulag gagnvart einstök-
um markaðssvæðum heimsins. Þetta
verður hins vegar til þess að tvöfald-
ur tollur hefur lagst á vöruna komna
til íslands, þ.e., fyrst tollur inn í
Evrópusambandið og síðan tollur frá
viðkomandi aðildarríki ESB til ís-
lands, þar sem ísland er ekki hluti af
tollabandalagi ESB. Meðan ísland
er ekki aðili að ESB er ljóst að eng-
inn árangur næst í þessum málum
nema íslensk stjórnvöld lækki þessa
tolla inn til landsins, annaðhvort
einhliða eða í gegnum fríverslunar-
samninga."
----------------
Fresta varð
háskólaþingi
FRESTA varð háskólaþingi sem
halda átti í Háskólabíói í gær vegna
óveðurs. Ekki er ákveðið hvenær
þingið verður haldið. Innlendir og er-
lendir fyrirlesarar höfðu boðað komu
sína á þingið. Auk þess höfðu háskól-
ar, rannsókna- og vísindastofnanir,
nemendafélög og aðilar úr atvinnu-
lífinu unnið kynningarefni sem sett
hafði verið upp í anddyri Háskóla-
bíós. Unnið var að því í gær að taka
niður veggspjöld og fleira sem sett
hafði verið upp í tengslum við þingið.
A
► l-64
Aukin markaðsvæðing
húsnæðiskerfisins
tímabær
► Islendingum hefur tekist að ná
betri stöðu í húsnæðismálum en
flestum þjóðum heims. /10
Frumskógur
fæðubótarefna
► Eru fæðubótarefni jafn
ómissandi og lýsið eða snilldarlega
framsett blekking? /22
Genin og markaðurinn
►Fjölmörg fyrirtæki stunda nú
rannsóknir á genum og ætla að
fjármagna þær með greiðslum
fyrir not á þekkingunni. /24
Ég trúi á bækur
og bókaútgáfu
►Viðskiptaviðtalið er við Sigrúnu
Halldórsdóttur hjá PP-forlagi. /30
►1-32
Fiðrildi í blóðinu
► Höllu Margréti Árnadóttur
vegnar vel í vöggu óperu-
menningarinnar í borginni
Parma á ítah'u. /1&2-4
Smíðaði fyrstu
íslensku flugvélina
►Rætt við Gunnar Jónasson sem
ásamt félaga sínum smíðaði flug-
vélina sem hangir uppi í
flugstöðinni. /6
Orðstír deyr aldregi...
► KK-sextettinn er einhver sögu-
frægasta dægurhljómsveit lands-
ins en leiðtogi hennar hefur verið
spar á viðtölin - þar til nú. /12
FERÐALÖG
► l-4
Krít og Róm meðal
nýrra áfangastaða
►Sumarbæklingar ferðaskrifstof-
anna að koma út. /2
Enn stækkar
Hótel Höfðabrekka
►Tíu herbergja gistihús í bygg-
ingu. /4
D BÍLAR
► l-4
Reynsluakstur
► Peugot 406 býður þægindi og
mýkt. /2
Fjarri straumlínu og
nær notagildi
►Toyota kynnir fjölnotabflinn
Yaris Verso. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-24
Atvinnuauglýsingar
► Einnig rað- og
smáauglýsingar.
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir VMmak ídag 50
Leiðari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjömuspá 50
Reykjavíkurbréf 32 Skák 50
Skoðun 34 Fólk í fréttum 54
Viðhorf 37 Utv/sjónv. 52,62
Minningai' 37 Dagbók/veður 63
Myndasögur 48 Mannl.str. 26b
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 30b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6