Morgunblaðið - 13.02.2000, Page 8
8 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Halldór Ásgrímsson um breytingar á ráðherrum flokksins
'Markar tímamót í sögu
Framsóknarflokksins
Bætt ímynd og lífslíkur flokksins fara dálítið eftir því hvort gellurnar
líkjast gyðjunum þremur, eða gribbunum ...
Sýningar í Skotinu við Hæðargarð
Næst
verður það
steint gler
Lena Guðrún Hákonardóttir
Um þessar mundir
stendur yfir sýn-
ing á útskurðar-
munum í Skotinu, hús-
næði Félagsþjónustunnar
við Hæðargarð í Reykja-
vík. Árlega eru þarna
a.m.k. átta sýningar af
ýmsu tagi á handverki
sem eftirlaunaþegar hafa
unnið. Lena Guðrún Há-
konardóttir forstöðumað-
ur Félagsmiðstöðvarinn-
ar við Hæðargarð hefur
yfirumsjón með fram-
kvæmd þessara sýninga.
„Sýningin sem stendur
yfír núna er hluti af
verkum þeirra sem
stunda tréskurð hér í
félagsmiðstöðinni. Verkin
eru líka unnin utan fél-
agsmiðstöðvarinnar.
Tréskurður hefur verið mjög
vinsæl tómstundaiðja hér, sér-
staklega af karlpeningnum en
einstaka konur hafa þó tekið
þátt í námskeiðunum. Margir
karlanna eru mjög hagir í hönd-
unum og hafa kennt þeim leið-
beinendum sem séð hafa um
tréskurðinn ýmislegt sem þeir
kunnu ekki áður. Enda tekur
mörg ár að ná leikni í tréskurði,
sem er gömul og virt listgrein á
íslandi."
-Hvernig tréskurð er um að
ræða?
„Oftast er um smærri verk að
ræða, svo sem veggklukkur,
barómeter, prjónastokka, bréfa-
grindur og fleira. Verkefnin
miðast við að ekki sé hefðbund-
in smíðastofa á staðnum. Hins
vegar eru á sýningunni renndir
hlutir eftir menn sem hafa
smíðaaðstöðu heima hjá sér.“
-Hvernig sýningar hafíð þið
yfírleitt verið með?
„Bæði samsýningar á hand-
verki sömu tegundar og sýning-
ar á munum frá einstaklingum.
í haust var t.d. fyrsta sýningin
unnin upp úr gömlum ljósmynd-
um og þemað var Lífið í landinu
eftir 1944. Þar á eftir voru sýnd-
ir bróderaðir klukkustrengir af
ýmsum gerðum. Þá voru allir
veggir þaktir útsaumi. í jóla-
mánuðinum var brugðið út af
venju og leitað til forskólans að
Jörva sem er hér við hliðina.
Börnin þar á öllum deildum
teiknuðu og föndruðu alls kyns
efni sem tengdist jólum. Sú sýn-
ing mæltist mjög vel fyrir og
gladdi gesti hússins, enda koma
þessi börn til okkar a.m.k. tvisv-
ar á ári til að syngja fyrir okkur
og þiggja veitingar að launum
ásamt sínum kennurum. Næsta
sýning verður haldin í mars, þá
verður sýndur glerskurður
(steint gler), það er líka sam-
sýning á verkum fólks sem tek-
ur þátt í glerskurðarnámskeiði
hér við félagsmiðstöðina, þar
eru konur í meiri-
hluta.“
- Hvernig er hús-
næðið hjá ykkur með
tilliti til sýningarað-
stöðu?
„Það eru gangarnir og and-
dyrið sem eru notuð og við er-
um alveg ánægð með þá að-
stöðu. Sýningarnar eru hugs-
aðar þannig að þær séu nálægt
fólkinu - hluti af daglegu lífi
þess og starfi. Við höfum reynd-
ar komið okkur upp sérstakri
lýsingu í hluta húsnæðisins með
tilliti til sýninganna. Arkitektúr-
inn á húsinu býður einnig upp á
► Lena Guðrún Hákonardúttir
fæddist í Reykjavík 30. október
1946. Hún lauk prófi frá lýðhá-
skólanum í Aakart í skipulagn-
ingu og framkvæmd tómstunda
ásamt fararstjórn. Hún stund-
aði nám f upplýsingatækni og
fjölmiðlun og í barnamenningu
og fjölmiðlun við háskólann í
Lundi.
Hún hefur frá 1990 starfað fyr-
ir öldrunardeild Félagsþjónust-
unnar. Lena á tvær uppkomnar
dætur.
aðstöðu til sýninga, t.d. eru
glerskápar í innréttingunni sem
nýtast vel til þessara hluta.“
- Hver ákveður hvaða sýning-
ar eru?
„Það geri ég ásamt leiðbein-
endum á vinnustofu. Við leitum
víða fanga, t.d. má geta þess að
ljósmyndirnar sem voru stofn-
inn í Ijósmyndasýningunni eru í
eigu eldri konu sem býr í Hlíð-
unum. Hún heitir Jóna Oddný
Guðmundsdóttir og var áhuga-
ljósmyndari frá 15 ára aldri,
faðir hennar gaf henni þá litla
kassamyndavél til að taka á
myndir á alþingishátíðinni 1930.
Síðan hefur hún tekið myndir af
því sem vakið hefur áhuga
hennar í lífi og umhverfi.“
- Hvaða tómstundaiðja er vin-
sælust hjá ykkur þarna í félags-
miðstöðinni við Hæðargarð?
„Það er fyrst og fremst fél-
agsvistin, hún er mikið sótt af
fólki víða að, félagsvistin er ekki
bara vinsæl hér, heldur í öllum
félagsmiðstöðvum, sem eru
fjórtán samtals, hægt er að spila
félagsvist á einhverri þeirra alla
rúmhelga daga vikunnar.
I öðru sæti vinsældanna er al-
menn handavinna og föndur. Þá
kemur fólkið með það sem það
er að gera hverju sinni og fær
félagsskap og aðstoð. í þriðja
sæti vinsældalistans
er leikfimi, sem einnig
má sækja á alla fjór-
tán staðina, tvisvar í
viku á hverjum. Þess
utan er mýmargt í
boði, alls kyns sértæk
námskeið og klúbbar bundnir
áhugasviðum, farið er í leikhús,
á söfn og sýningar, í ferðalög og
fjölmargt annað. Þess má geta
að hér og víðast hvar á félags-
miðstöðvum er boðið upp á að-
stoð við böðun, líka fyrir þá sem
búa úti í bæ, akstursþjónusta er
í boði fyrir þá sem hennar
þarfnast.
Félags-
vistin er
vinsælust