Morgunblaðið - 13.02.2000, Side 11

Morgunblaðið - 13.02.2000, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 11 lendingar, þ.e. að byggja fyrst upp atvinnuvegina, einkum þungaiðnað, en láta húsnæðismálin sitja á hakan- um. I þessum löndum var sjálfs- hjálpin einnig mikil og því varð hús- næði í einkaeign þar nokkuð algengt þrátt fyrir yfirlýst sameignarskipu- lag. Ef við skoðum félagslegar íbúða- byggingar og hvers vegna þær tíðk- ast í svo ríkum mæli í Norður- og Vestur-Evrópu má leita skýringar- innar í því að þessi lönd voru búin að byggja upp sitt atvinnulíf og gátu nú einbeitt sér að sértækum verkefn- um eins og húsnæðismálum sem skapaði fólkinu aukið öryggi. Einnig höfðu menn í stríðinu vanist því að leysa samhæfð stórverkefni. Þessi uppbygging var óháð pólitískri hug- myndafræði, til dæmis beitti íhalds- flokkurinn í Bretlandi sér fyrir félagslegum íbúðum á eftirstríðsár- unum og þegar Gaullistar komu til valda í Frakklandi héldu þeir áfram uppbyggingu leiguíbúða á vegum ríkisins." Verðbólgan ýtti undir einkaeign „Önnur ástæða sjálfseignarstefn- unnar er sú að ríkisvaldið á Islandi var tiltölulega veikt á þessum tíma og innlent ríkisvald kom seint til sögunnar. I nágrannalöndunum átti ríkisvaldið sér langa hefð og var mjög sterkt, ekki síst vegna þess að það hafði í gegnum aldirnar þurft að standa fyrir öflugum stríðsrekstri. Húsnæðismálin hér á landi koma ekki til kasta ríkisins fyrr en árið 1930 með verkamannabústöðunum. Skipulögð afskipti ríkisins af hús- næðismálum hefjast þó ekki fyrr en eftir seinna stríðið eða árin 1946- 1947. Svo líða næstum tíu ár þar til Húsnæðismálastjórn er stofnuð með lögum árið 1955. Starfsemi Húsnæðismálastjórnar byggðist á því að veita fólki tak- mörkuð lán en síðan varð það að bjarga sér sjálft með aðstoð vina og vandamanna. Bankarnir höfðu á þessum tíma ekki bolmagn til að veita langtímalán til húsnæðiskaupa og er það fyrst nú sem það er að hefjast að einhverju marki.“ Jón Rúnar segir fleiri ástæður koma til, eins og að Island sé fá- mennt land. „Við höfum einn þétt- býliskjarna sem getur staðið undir því að kallast borg. Þannig að ýmsir hlutir í sambandi við borgarskipu- lag og félagslega aðstoð þróaðist ekki hér vegna vöntunar á borgar- menningu eins og við þekkjum hana í nágrannalöndunum. Sjálfstæðisflokkurinn, sem oftast var í ríkisstjórn á eftirstríðsárunum, hafði einnig töluverð áhrif á að móta sjálfshjálparstefnuna meðal annars með því að stuðla að því að vinna við eigið húsnæði væri skattfrjáls. I Reykjavík var þó að mörgu leyti rekin félagsleg húsnæðisstefn, til dæmis með því að útrýma bröggun- um á tíu árum. Verðbólgan átti líka stóran þátt í að ýta undir einkaeign á húsnæði. Verðbólga var mikil hér á landi og menn nýttu sér það að þurfa ekki að borga lánin til baka. Steinsteypan var líka eina leiðin til að viðhalda verðmæti peninganna." Krafa um aukin rfkisafskipti Vendipunktur varð í húsnæðis- málunum árið 1980, að sögn Jóns Rúnars, þegar verðbólgan varð óviðráðanleg og verðtrygging var tekin upp. „Arið 1983, þegar kom til harkalegra efnahagsaðgerða, má segja að sjálfseignar- og sjálfs- hjálparaðferðin hafi gengið sér til húðar. Þá var haldinn tvö þúsund manna fundur í Sigtúni þar sem ástandinu í húsnæðismálum var mótmælt. Á fundinum kom fram krafa um aukin ríkisafskipti af þess- um málaflokki og hækkun húsnæð- islána til allra um 80%. Fyrstu við- brögð ríkisvaldsins voru að veita neyðarlán til þeirra sem verst voru settir en síðan var ákveðið að hækka verulega lán til húsnæðiskaupa. Þegar hér er komið sögu hefst leit að nýju húsnæðiskerfi. Á þessu sama ári varð Búseti til sem byggist á félagslegum sam- vinnuhugmyndum sem þá voru út- breiddar á Norðurlöndunum. Skapar öryggi að hafa fj ármuna-umsýsluna á einum stað „Sú niðurstaða Jóns Rúnars Sveinsonar, félagsfræðings, að markaðsvæðing hús- næðiskerfisins sé tímabær kemur í sjálfu sér ekki á óvart,“ segir Halldór J. Krist- jánsson, bankastjóri Landsbankans. „Hún er í samræmi við ályktun sljórnar Sambands íslenskra viðskiptabanka sem telur tímabært að taka upp nýtt fyrir- komulag á veitingu íbúðalána. Við- skiptabankarnir telja æskilegt að ríkið hverfi í áföngum frá smásölu og beinum samskiptum við lántakendur en taki þess í stað að sér endurfjármögnun íbúðalán- anna. Slík aðkoma ríkisins ásamt því að það beiti sér fyrir almennum aðgerðum, s.s vaxtabótum í þágu ibúðakaupenda, er eðlileg að minni hyggju. Hitt aðalatriðið í málinu er að viðskiptabankar og spari- sjóðir telja eðlilegt að þeir fái tækifæri til að veita viðskiptavinum sínum íbúða- lán en sú starfsemi fellur vel að almennri starfsemi við- skiptabanka og sparisjóða. Ibúðalánasjóður mundi í sjálfu sér hafa mjög mikil- vægu hlutverki að gegna í þeirri breytingu. í fyrsta lagi sem heildsölulánveitandi. Hægt er að hugsa sér að hann stundaði verðbréfasölu og keypti söfn lána með þeim skilyrðum sem opinberir aðilar leggja áherslu á og sem ætti þá að gilda í þessum viðskiptum. Ibúða- lánasjóður gæti gegnt heildsöluhlutverki með þvf að kaupa upp sölii heimilislána af viðskipta- bönkum og sparisjóðum og gefa síðan út safnbréf sem væru einvörðungu tryggð í safni einstaklingslána og annaðist eigia- tryggða verðbréfun (securitization) íbúða- lána í landinu með sambærilegum hætti og tíðkast á Norðurlöndunum og sérstaklega í Bandaríkjunum. Á þetta höfum við bent sameiginlega, viðskiptabankar og spari- sjóðir sem eðlilega þróun og í takt við það sem gerist annars staðar. Þess utan er rétti- lega á það bent í máli Jóns Rúnars að opin- berir aðilar hafa hlutverki að gegna hvað varðar félagsleg íbúðalán eða fjármögnun félagslegs húsnæðis og það er mikilvægt hlutverk sem allir þekkja. Við höfum bent á að það felst ákveðið öryggi í því fyrir einstaklinga og fjölskyld- ur að hafa umsýslu með fjármálum sínum á einum stað, það er í viðskiptabanka sínum. Á þetta höfum við lagt sérstaka áherslu til dæmis í Landsbankanum þar sem við hvetjum fjölskyldur og einstaklinga og reyndar fyrirtæki líka til þess að nýta sér heildarfjármálaþjónustu Landsbankans. Við höfum hafið veitingu heimilislána og samþættingu heimilis- lána og trygginga með eignaraðild að tryggingarfélagi til þess að viðskiptavinir okkar þurfi ekki að leita ann- að með viðskiptaþjónustu sína. Þetta eykur öryggi í viðskiptum og felur í sér verulega hagræðingu." Halldór J. Krisfjáns- son, bankastjóri Landsbanka íslands. Þj ónusta bankanna yrði dýrari „Það er eflaust rétt sem Jón Rúnar Sveins- son heldur fram að bankamir séu í stakk búnir til að taka við stærstum hluta lán- veitinga í húsnæðis- kerfinu. Bankarnir em fullir af peningum og em gráðugir í að lána. Reynslan af ibúðalánum Lands- bankans er sú að hann lánar hér á höfuðborg- arsvæðinu. Hinum fél- agslega þætti eða fbúðalánum á lands- byggðinni verður hins vegar ekki sinnt af bönkunum þannig að það sé með einhverju lagi,“ segir Páll Pétursson, félags- málaráðherra. „Það væri út af fyrir sig fræðilega mögu- legt að kljúfa starf- semi íbúðalánasjóðs. Láta bankana um að annast íbúðalán til hinna tekjuhærri hér á höfuðborgarsvæðinu en si'ðan yrði Ibúða- lánasjóður að lána dreifbýlinu og hinum tekjulægri. Láta bönk- unum eftir rjómann af markaðnum eins og þeir vafalaust vilja fá og sitja uppi Páll Pétursson félagsmálaráðherra. með það sem væri erfiðara og áhættusamara. Hins vegar ber að líta á að þjónusta íbúðalánasjóðs er miklu ódýrari en í bönkunum þann- ig að íbúðakaupendur mundu þurfa að borga meira fyrir lánin en þeir þurfa að gera nú.“ Nú hefur þróunin verið sú í ná- grannalöndunum að bankarnir hafa tekið við þessum þætti lánveit- inga, að hvaða leyti eru aðstæður öðravísi hér á landi? „ Við búum við ennþá hrikalegri byggðavanda en flest nágranna- löndin. Markaðsvæðing húsnæðis- kerfisins er þó ekki alfarið þróunin í nágrannalöndunum því Norski húsbankinn er með stórfellda starf- semi.“ Árið 1986 var svo frumkvæðið tekið af ríkisvaldinu í húsnæðismál- unum og aðilar vinnumarkaðarins notuðu lífeyrissjóðina til að búa til nýtt húsnæðiskerfí með því að lána félagsmönnum sínum gegnum sjóðakerfi ríkisins. Húsbréfakerfið hefur heppnast nokkuð vel Árin 1987-1988 verða pólitískar breytingar hér á landi og vinstri flokkarnir komast í stjórn. Þá er ákveðið að leggja lánakerfið frá ár- inu 1986 niður og húsbréfakerfið verður til. Jón Rúnar segir að þrátt fyrir pólitíska andstöðu við húsbréfakerf- ið í upphafi virðist sem menn hafi sæst á þetta fyrirkomulag sem sýni að það hafi heppnast nokkuð vel. Húsbréfakerfið íslenska sé að mörgu leyti líkt danska kerfinu nema hvað það danska sé rekið á einkagrundvelli en það íslenska á vegum ríksins. Hann segir jafnframt að þróunin á þessum árum sýni að uppbygging félagslegs húsnæðis hafi ekki orðið með þeim hætti að verkalýðsflokkar ráði ríkisvaldinu heldur miklu frem- ur vegna ítaka þeirra í verkalýðs- hreyfingunni. Þetta sjáist mjög skýrt á því að helstu stórfram- kvæmdir í húsnæðismálum hafa alltaf átt upptök sín í kjarasamning- um á almennum vinnumarkaði. „Við Islendingar fylgdum lengi sjálfshjálparstefnunni í húsnæðis- málum og vorum lengi að byggja upp ríkisafskipti af þessum mála- flokki. En nú erum við að festast 1 þessum miklu ríkisafskiptum af lánakerfinu þegar aðrar þjóðir eru að draga sig út úr þeim jafnframt því sem bankarnir og fjármálakerfið er að eflast," segir Jón Rúnar. „Ég tel að meginskýringuna á þessu fyrirkomulagi megi rekja til þess stjórnmálalega ástands sem hér ríkir. Við búum í þjóðfélagi þar sem stjómmálamenn sækjast eftir persónulegri stjóm á fjármálakerf- inu, sem sést á viðvarandi pólitísk- um stöðuveitingum í íslenska fjár- málakerfinu í stað þess að tekin sé upp fagleg stjóm fæmstu fagmanna á þessu sviði. Þetta er eina skýring- in sem ég sé á þessu ástandi því fjár- málamarkaðurinn er orðinn jafn þróaður og í nágrannalöndunum. Ég tel að á mjög skömmum tíma gæti bankakerfið tekið við stærstum hluta lánveitinga til húsnæðismála. Það er þó nauðsynlegt að hið op- inbera hlaupi undir bagga með tekjulægstu hópunum og öryrkjum eða öðrum sem ekki geta ráðið við markaðskerfíð. Sama á við um lán- veitingar til byggðarlaga sem standa höllum fæti. Ekki er líklegt að einkareknar fjármálastofnanir vilji lána þeim framkvæmdafé." Hvað er það sem einkennir góða stöðu okkar í húsnæðismálum? „Hún lýsir sér í vönduðu, rúm- góðu og nýlegu húsnæði,“ segir Jón Rúnar. „Hvað varðar rými erum við að meðaltali með rúmlega 50 fm á mann sem er jafn gott eða betra en víðast annars staðar í heiminum. Það að menn eiga sitt húsnæði sjálf- ir, en það eru um 80% íslensku þjóð- arinnar, veitir auk þess visst frelsi í því hvemig við högum húsnæðinu. Það er þó einn galli hér á fyrir þá sem versta stöðu hafa og hann er sá að leiguíbúðakerfið er veikt. Ég hef starfað að undanförnu með nefnd á vegum félagsmálaráðherra sem er að vinna að framtíðarlausnum á leigumarkaðnum. Þar er verið að velta fyrir sér eflingu félagslega leigumarkaðarins, þá einkum með félagasamtök í huga eins og félög námsmanna, aldraðra og öryrkja og húsnæðissamvinnufélög. Einnig er rætt um hvemig efla megi frjálsa leigumarkaðinn með því að skapa skattalegt og fjárhags- legt umhverfi fyrir slíkan leigu- markað svo hann megi dafna.“ Jón Rúnar segir að með þröngum leigumarkaði sé sú hætta fyrir hendi að hann yrði að hreinræktuðu félagslegu jaðarfyrirbæri þar sem saman söfnuðust tekjulægstu hópar samfélagsins. „Stækkun leigumark- aðarins táknar hins vegar aukið að- streymi ungs fólks sem er að byrja húsnæðisferil sinn og að fólk uni al- mennt hag sínum lengur en áður í leiguhúsnæði. Húsaleigubótakerfið hefur eflt leigumarkaðinn nokkuð og eftir fyrirhugaðar breytingar á því mun það þjóna þessu hlutverki talsvert betur.“ Skapa þarf samfelldan leigumarkað „Þá getur stofnun Félagsíbúða hf. utan um leiguíbúðakerfi Reykjavík- urborgar, ef vel tekst til, orðið merkur áfangi í þá átt að rjúfa sér- stöðu og „neikvæða stimplun" fél- agslegra leiguíbúða. Rökrétt fram- hald af því væri að fella smám saman eignaríbúðakerfi Reykjavík- urborgar inn í leiguíbúðakerfið með því að breyta einfaldlega svonefnd- um „endursöluíbúðum" í leiguíbúð- ir. Eftir nokkur ár, þegar leiguí- búðafjöldinn hefur svo aukist nokkuð, væri tímabært að fella nið- ur öll félagsleg skilyrði um úthlutun íbúðanna og gera þær þar með í reynd að almennum húsnæðisval- kosti. Þannig mætti ná þvi markmiði að skapa samfelldan leigumarkað í stað hins núverandi tvískipta, þar sem stundum virðist sem opinberir aðilar reki leiguíbúðir einkum öðr- um til viðvörunar og til þess eins að koma óorði á leiguhúsnæði almennt. Slík vel rekin leiguíbúðafyrirtæki í formlegri eigu sveitarfélaganna, sem störfuðu á sjálfstæðum grund- velli, myndu fljótlega öðlast það leiðandi stöðu á leigumarkaðnum að leigusalar á hinum almenna markaði yrðu að haga ákvörðun leiguverðs með tilliti til þessa.“ Líkari engilsöxum I bók sinni, Society, Urbanity and Housing in Iceland veltir Jón Rúnar einnig fyrr sér menningarlegum rótum sjálfseignarstefnunnar og segir okkur líkari engilsaxneskum þjóðum í þessum efnum. „Hjá þeim er sjálfseignarhúsnæði mjög út- breitt. í kringum 70% Breta eiga sitt eigið húsnæði. Það er til skemmtileg en umdeild kenning um þessa hluti og hún er sú að við Is- lendingar -séum líkari þeim engil- söxum sem settust að annars staðar í heiminum eins og í Bandaríkjun- um, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjá- landi. Húsnæðismál í Ástralíu hafa til dæmis þróast á líkan veg og hjá okkur. í Skandinavíu hafa húsnæðismál- in hins vegar verið óumdeildur hluti af velferðarkerfinu. í Svíþjóð talaði landsfaðirinn Per-Albin Hansson, sem var einn af fyrstu forsætisráð- herrum jafnaðarmanna, um þjóðar- heimilið (folkhemmet) þar sem allir þegnamir gætu notið lágmarksvel- ferðar. Sjálft húsnæðið hlaut að vera einn helsti grundvöllur slíks heimilis allrar þjóðarinnar. Hér á landi náðu hugmjmdir um húsnæð- iskerfið sem hluta af velferðarkerf- inu minni fótfestu og það gerðist mun seinna en í Skandinavíu." Meiri áhersla á umhverfis- og skipulagsmál Eru þá ríkisafskipti í húsnæðis- málum að hverfa og bankarnir að taka við þessum málaflokki? Þessu svarar Jón Rúnar neitandi. „Ég held að ríkið muni áfram gegna 1 stóru hlutverki við að fylgjast með og leggja vissar línur fyrir húsnæð- ismarkaðinn. Félagslegar aðgerðir munu halda áfram gagnvart vissum hópum og landssvæðum. Stærsta félagslega aðgerðin í húsnæðismál- unum nú er rekstur vaxtabótakerf- isins, sem er á ábyrgð ríkisins og jafnframt eru sterkar líkur á að húsaleigubótakerfið eflist á næst- unni. Eg held líka að við munum koma til með að tengja húsnæðis- málin á næstunni meira við um- hverfis- og skipulagsmál. Slíkrar þróunar gætir mjög víða, heimurinn stendur nú frammi fyrir meiri vexti borga og fólksflótti úr sveitum er meiri en nokkru sinni fyrr. Hér á landi hefur hlutfall höfuðborgar- svæðisins í lánum til nýbygginga á síðastliðnum áratug hækkað úr 70% í 80%. Hvað varðar lán til fasteigna- kaupa hafa allt að 90% þeirra farið til höfuðborgarsvæðisins. Hvernig þessi mikli vöxtur á Stór-Reykjavík- ursvæðinu þróast næstu áratugi er gífurlegt umhverfislegt og skipu- lagslegt viðfangsefni þar sem hús- næðið gegnir lykilhlutverki,“ segir Jón Rúnar að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.