Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.02.2000, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FYRIRLESTRAÞJÓNUSTA: * snaÐ párl yj/j/ lííiMíí J Flugleiðir fá viður- kenningu frá Oriando FLUGLEIÐUM var veitt sérstök viðurkenning fyrir brautryðjenda- starf félagsins í ferðamálum í Or- lando og markaðssetningu á Orlando í Evrópu sem áhugaverðum áfanga- stað en Flugleiðir voru fyrsta er- lenda flugfélagið til að hefja áætlun- arflug til Orlando fyrir 15 árum. Viðurkenninguna afhenti Richard Cunnion, flugvallarstjóri í Orlando, við opnun ferðakaupstefnunnar „Mid Atlantic Seminar" í Ráðhúsi Reykjavíkur síðastliðinn fimmtudag. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Richard M. Cunnion, markaðsstjóri Orlando, afhendir Sigurði Helga- syni, forstjóra Flugleiða, viðurkenningu. Nýr prófessor í heimspekideild • PÁLL Skúlason, rektor Háskóla Islands, hefur skipað dr. Guðrúnu Kvaran prófessor í heimspekideild og jafnframt forstöðumann Orða- bókar Háskólans. Þetta er í fyrsta sinn sem forstöðumaður Orðabókar- innar verður jafnframt prófessor. Guðrún er stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1963 og lauk kandídatsprófi frá Háskóla íslands 1969. Doktorsprófi í samanburðar- málfræði lauk hún frá Georg-August háskólanum í Göttingen í Þýskalandi árið 1980. Hún var ráðin sérfræðing- ur við Orðabók Háskólans 1978 og gegndi formannsstöðu árin 1994- 1998. Guðrún hefur skrifað fjölda greina um ýmis efni og unnið að útgáfu nokkurra rita. Hún er annar höfund- ur bókarinnar Nöfn Islendinga sem gefin var út hjá Máli og menningu 1991. Hún hefur tekið virkan þátt í ýmsum nefnda- og stjórnunarstörf- um um árabil. Guðrún hefur t.d. ver- ið formaður þýðingamefndar Gamla testamentisins í nokkur ár. Hún hef- ur ílutt þætti um íslenskt mál á veg- um Orðabókarinnar í yfir tuttugu ár. Guðrún er gift dr. Jakobi Yngva- syni prófessor og eiga þau tvö börn. Lj ósmyndagögn skráð á Raufarhöfn og Stöðvarfírði VINNA er að hefjast hjá íslenskri miðlun á Raufarhöfn og Stöðvarfirði við að skrá 87 þúsund handskrifaðar færslur úr skjalasafni Ljósmynda- safns Reykjavíkur í gagnagrunn. Um er að ræða gögn sem fylgdu ljós- myndum nokkurra þekktra atvinnu- ljósmyndara í borginni; nöfn og númer á brúðkaupsmyndum, ferm- ingarmyndum, passamyndum og fleiri myndum sem eru í vörslu safnsins. Til þessa hefur reynst tafsamt og jafnvel ómögulegt að rekja viðkom- andi myndir í safninu eftir gögnun- um en þegar upplýsingarnar verða komnar í gagnagrunn batnar þjón- usta safnsins á því sviði til muna. Sérstakt notendaviðmót var hannað vegna verkefnisins til þess að auka skilvirkni við skráninguna og tryggja að gögn séu rétt færð í grunninn. Gögnin verða skráð í fjarvinnslu- stöðvum Islenskrar miðlunar á Raufarhöfn og Stöðvarfirði. Um tíu manns munu sjá um innsláttinn á hvorum stað og er fyrirhugað að verkinu ljúki í lok febrúar. Um er að ræða átta fulla pappakassa af skjöl- um frá þekktum atvinnuljósmyndur- um sem ráku stofur í Reykjavík og á Akranesi; Ljósmyndastofunni Asis, frá Jóni K. Sæmundssyni, Óla Páli og Ólafi Arnasyni frá Akranesi. Gögnin ná yfir nær 30 ára tímabil frá 1950 til loka 9. áratugarins. Áður hafa verið skráðar 55 þúsund færsl- ur af sama tagi en með samningnum við íslenska miðlun tekst að ljúka þessari skráningarvinnu. Að sögn Sigurjóns Baldurs Haf- steinssonar, forstöðumanns Ljós- myndasafns Reykjavíkur, er fyrir- hugað að veita aðgang að gögnunum á vefsvæði safnsins. Yiðskiptavinir geta þá flett upp í gagnagrunninum á Netinu og pantað tilteknar myndir eftir nafni og númeri. Þegar fram líða stundir er einnig stefnt að því að afhenda myndirnar á rafrænu formi. Ræsting 2000 komin út FÉLAG ræstingarstjóra hefur gefið út blaðið Ræsting 2000 en það er gef- ið út í tilefni 10 ára afmælis félagsins sem var 1999. Meðal efnis í blaðinu eru greinar um Félag ræstingarstjóra 10 ára, um Græna svaninn - umhverfismerki Norðurlanda, umhverfisáhrif hreinsiefna, grein um að markaðs- hlutdeild ræstingarverktaka í Evr- ópu er margföld á við stöðu þeirra á íslandi, ennfremur grein um um- hverfi og ræstingar, uppmælingar ræstinga í fyrirtækjum og stofnun- um og greinar um ræstingar, Landsvirkjun og umhverfið. --------------------- Vid bjóöum upp á heildstæoa lausn a vinnslu fyrirlestragagna, allt frá aöstoð viö uppsetningu kynningarefnis i “Powerpoint” upp i það aö leigja eöa selja þau taeki sem þarf til aö koma kynningarefninu skemnitilega til skila. Láttu sérfrasöinga Hans Petersen aðstoða þig við að hressa upp á framsetningu og útlit fyrirlestursins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.