Morgunblaðið - 13.02.2000, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 13.02.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 25 QPrótínframleiðsla Framleiösluferlið er þannig aö stiginn réttir úr sér um hríö og afrit af skipununum framleiöslulýsingin eða uppskriftin, birtist á öörum sameindum, svonefndum RNA. Þær eru eins konar mát sem notuð eru til að búa til ný prótín. V9 Dvergsmáar verksmiðjur Edl Þegar nýju prótínmátin eru tilbúin fara þau út úr kjarna frumunnar í umfrymið og tengjastsvonefndum ríbósómum, sem líkja má viö dvergsmáar prótín-verksmiöjur. í verksmiðjunum er uppskriftin lesin og amínósýrur tengdar : saman í prótín. D1JJ1 Kimisgrunnar (Núkleótíö-basar) A: Adenfn T: Týmín C: Cútósfn G: Gúanín Genin Genin, erfðavísarnir, eru undirstaða allra erfða. Gen er bútur úr DNA og þar eru upplýsingar sem aðrir hlutar frumunnar þurfa til að framleiða prótín er koma hvarvetna vió sögu í starfi líkamans. Tuttugu ólíkar amínósýrur eru byggingarefnið sem notað er í prótínin en þau mynda síðan innviði frumna og vefja. Ríbósóm Amínó sýrur Prótín Þeir fengu einkaleyfi og enginn dreg- ur þann rétt þeirra í efa. En ef ein- hver vísindamaðurinn finnur nýja og áður óþekkta tegund af mosa í ís- lenskum dal fær hann aðeins heiður- inn, hann hefur bara orðið fyrstur til að segja frá því sem náttúran hefur skapað án afskipta hans. Hann fær því ekkert einkaleyfi - en það gæti sá fengið sem hagnýtti sér mosann til að búa til nýtt töfralyf gegn vörtum. Reynt að stýra mörkuðum? Aðumefndur Venter lýsti því yfir í ársbyijun að starfslið hans (og tæki) væru nú búin að kortleggja um 90% af genamenginu og „97% af öllum genum mannsins“ væru nú til í gagnasafni fyrirtækisins. Hann seg- ist að vísu ekki ætla að liggja lengi á uppgötvunum/uppfinningum sínum, hann ætli að setja þær fljótlega á Netið. Hann bætir því þó við að hann muni kreíjast þóknunar af hendi þeirra sem vilja notfæra sér kort- lagninguna. Vikuritið Nature bendir á að gengi hlutabréfanna stjómist oft af yfirlýs- ingum af þessu tagi. Bréf í fyrirtæki Venter, Celera Genomics, hafi þann- ig hækkað við yfirlýsinguna um að 90% markinu væri náð, úr 187 dollur- um hvert bréf í 242 dollara á einum degi. Markaðsvirði Celera Genomics sé því orðið um 6,3 milljarðar dollara, um 450 milljarðar króna! Ritið segir í forystugrein að matið á því hve langt áleiðis fyrirtækið sé komið við kort- lagninguna sé að nokkra bundið for- sendunum sem hann gefur sér, um þær megi deila. Þá sé ekki verið að segja að árangurinn sé lélegur, ljóst sé að hann muni geta gagnast þeim sem keypt hafa sér rétt til að notfæra sér gögnin. „Venter viðurkennir samt sjálfur að mikið starf sé enn óunnið áður en nokkur skHjí hvert hlutverk ný-upp- götvuðu genanna er og áður en hægt verði að nota gögnin til að búa til eitt- hvað sem minnir á kort af genameng- inu,“segirritið. Viðvörun Nature Enn flækir það málið að Venter og menn hans segjast sjálfir hafa annast um 80% af kortlagningunni en af- ganginn, um 10%, hafi þeir einfald- lega tekið af Netinu, m.a. af síðum Genamengisáætlunarinnar. Hafi með þessu tekist að spara mikinn tíma en aðferðin hlýtur að rýra einkaleyfisréttinn sem hann gerir kröfu um, að sögn Nature. Venter segi að vísu að afrakstur starfsins hjá Celera muni, þegar búið verði að birta niðurstöðumar í vísindariti, verða aðgengilegur öllum vísinda- mönnum i heiminum. Skilyrði, sem hann setji um að samið verði um ákveðnar takmarkanir á notkuninni, valdi þó ótta um að menn sem ♦/////; Einkaleyfi á genum Umsvifamestu einkaleyfishafar á þessu sviði í Bandaríkjunum íárslok1999 Fjoldi Eigandi einkaleyfa Ríkisstjórn Bandaríkjanna 388 Incyte Pharmaceuticals 356 Kaliforníuháskóli 265 SmithKline Beecham 197 Genentech 175 Eli Lilly 145 Novo Nordisk 142 hyggjast nota gögnin í atvinnuskyni muni rekast á erfiðar hindranir. Einnig segir ritið að Venter ætti að hafa í huga nýjar tillögur Heilbrigð- isstofnunar Bandaríkjanna, NIH, sem kveða á um að forðast beri að einkaleyfi verði of íþyngjandi fyrir aðra en einkaleyfishafana. „Rekast hagsmunir íjárfesta og al- mennings á? Athafnasemi Celera á hlutabréfamarkaðnum eykur stöðugt hættuna á slíkum átökum: Hagnað- arvonin sem nú er bundin við gena- mengisfyrirtækin mun krefjast þess að beitt verði leyndarhyggju og einkaleyfum sem gætu orðið þung byrði, en opinberar stofnanir reyna með réttu að fá eins óheftan aðgang að grundvallarapplýsingum og frelsi til að nýta genaraðir og unnt er. Mik- ilvægt er að þróun í meðferð sjúk- dóma verði hröð og hagsmunir fjár- festa gætu þess vegna ekki einvörðungu rekist á hagsmuni vís- indamanna og rannsóknastofnana heldur alls almennings,“ segir Nat- ure. Venter hrdsar sigri Nýlega tókst að semja um sam- starf milli Venter og fulltrúa Gena- mengisáætlunarinnar og því standa vonir til að ekki verði um dýran tví- verknað að ræða í vinnu fyrirtækj- anna. Venter hefur auk þess unnið ákveðinn sigur í þeim skilningi að Genamengisáætlunin notar nú að mestu aðferðina sem hann mælti með við að kortleggja og greina genin. Hann sýndi fram á að aðferðin væri nothæf árið 1995. Þá tókst honum á einu ári að kortleggja allt genamengi örvera er nefnist Haemophilus influ- enzae og var það í fyrsta sinn sem genamengi heillar lífveru var greint. Venter fór þá leið að höggva allt genamengið í smábúta; þessu hefur verið líkt við að blaðabunka sé stung- ið í pappírstætara. Síðan var meng- inu safnað saman í réttri röð með að- stoð 300 ofurtölva, PE 3700 og upplýsingamar skráðar. Talsmenn Genamengisáætlunarinnar höfðu tekið hluta af menginu fyrir í senn, starfið við að raða bútunum saman á ný var þá ekki jafn umfangsmikið, en tölvubúnaður Venters reyndist, þvert á hrakspár, geta ráðið við stór- tæku aðferðina. Grunnurlagður Fyrir tveim áratugum var því vís- að á bug að hægt væri að kortleggja allt genamengi mannsins. Verkefnið væri einfaldlega flóknara en svo að það væri kleift með tækniþekkingu nútímans. Fjölbreytileikinn í sam- setningu DNA er svo mikill að töl- umar minna helst á lýsingar stjömu- fræðinga. Greina þarf þrjá milljarða samsetninga bókstafanna fjögurrra sem tákna ólík sambönd, A, C, G og T, í mislöngum keðjum og með end- urtekningum sem virðast í fyrstu ótejjandi. A níunda áratugnum var tölvan aftur á móti orðin svo öflug að menn sáu fram á að hægt yrði að láta hana annast þrældóminn. í desember sl. urðu síðan tímamót: Genamengi eins litninganna í mönnum, sem kenndur er við töluna 22, var kortlagt að mestu og því hægt að lýsa gerð hans. Stjómandi Genamengisáætlunar- innar, læknirinn Francis Collins hjá NIH, lýsti því hve stórkostlegt það hefði verið að sjá hvernig „heill litn- ingur úr manni lítur út“. Aðrir líktu þessu við þau merku tímamót þegar gervihnettir tóku myndir af bakhlið mánans í fyrsta sinn. Collins fann ár- ið 1989 genið sem talið er valda cystic fibrosis, arfgengum lungna- og melt- ingarfærasjúkdómi, og segir hann að kortlagning genamengisins sé „metnaðarfyllsta framtak“ sem menn hafi ráðist í og nú bendi allt til að það heppnist Tölvurnar og vélmennin í útstöðv- um Genamengisáætlunarinnar malla nú stöðugt í Bretlandi og Bandaríkj- unum, öðra hveiju senda þær frá sér hrinu af upplýsingum inn á Netið, bókstafarunur og litarúnir sem fylla upp í myndina af mannskepnunni. Sama er að gerast á rannsóknastöðv- um Celera Genomics, íslenskrar erfðagreiningar og fleiri fyrirtækja og stofnana. Mósaíkmyndin er að verða skiljan- legri þótt enn séu í henni fjölmargar glufur og að margra dómi muni líða áratugir áður áður en öll myndin verði skýr. Bjartsýnismenn segja að í vor eða sumar megi búast við að heildarmyndin, genamengi manns- ins, verði í stórum dráttum tilbúin. Grandvöllur 21. aldarinnar, ef marka má hlutabréfamarkaði - og vísinda- menn. Þú kemur flikur en borgar adeins Álfabakki 12 Háaleitisbraut 58-60 Smáratorgi Sírni 557-2400 Sími 553-1380 Sími 544-4090 Löttu okkur annast vcundomðilin 0/^ÐUR'',bb Námskeið Indíánamenning Sigurður Hjartarson , sagnfræðingur og kennari við MH, heldur 6 vikna námskeið um indíánamenningu. Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti: 1. vika: a) Forsaga indíána (Ameríku - uppruni - komuleiðir - komutími. b) Menningarþróun íTehuacán-dalnum ca 8500 f.Kr.-1500 e.Kr. c) Staða indíána um álfuna. d) Staða indíána í álfunni við komu Evrópumanna um 1500. 2. vika: a) Forþjóðir í Mexíkó (Olmeca, Teotihuacán o.fl.) b) Mayar, fyrri hluti. 3. vika: Mayar, einstök svæði og einstakir menningarþættir. 4. vika: Artekar - saga þeirra, menning og hrun. 5. vika: Forþjóðir í Suður-Ameríku - Chavín, Moche, Nazca, Tiahuanaco, Chimú, Inkar, fyrri hluti o.fl. 6. vika: a) Inkar, seinni hluti. b) Örlög indíána 1492-1999 Tími: Miðvikudagar 8. mars-12. apríl frá kl. 20-21:30 Staður: Menntaskólinn við Hamrahlíð Námskeiðsgjald: Kr. 7.900 Innritun í síma 568 5140
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.