Morgunblaðið - 13.02.2000, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
J. Craig' Venter, umdeild-
ur stjórnandi genarann-
sóknafyrirtækisins Celera
Genomics.
Francis Collins, stjórn-
andi Genamengisáætlun-
arinnar fjölþjóðlegu,
Human Genome Project.
Stærðfræðingurinn Eric
Lander sem stjómar
stórri genarannsókna-
stofu MIT-háskólans.
Fyrsta skrefið
er partalisti
Rannsóknir á genum mannslíkamans eru taldar
geta umbylt lífí okkar og fyrirtæki sem þær stunda
eru að verða helsta umræðuefni fjárfesta í
heiminum.
FRAMFARIR í erfðavísindum og líf-
tækni valda ýmist vongleði eða ugg
eftir því hver tjáir sig. En hvað sem
því Iíður er það orðið útbreitt við-
horf að öldin sem er að hefjast verði í vísindum
kennd við líffræðina á sama hátt og eðlisfræð-
in réð ferðinni á 20. öld. Áhrifín af þessum um-
skiptum em þegar að verða ljós, jafiit á félags-
legum sem efnahagslegum sviðum. Margir
telja að afdrifaríkasta byltingin verði á sviði
rannsókna á erfðavísum, öðm nafni genum.
Alls er talið að gen mannslíkamans séu 100-
140 þúsund. Fyrsta skrefið er að staðsetja um-
rædd gen, fullgera genaröðina svonefndu en
næst þarf að greina hvert hlutverk þeirra er í
líkamsstarfseminni. Með genaröð er átt við
búta eða genaraðir af erfðaefninu DNA - sam-
eindakeðjum í litningunum, en þeir em 46 í
hverri frumu mannsins.
Fóstur og upplag
Eric Lander er upprunalega stærðfræðing-
ur en hefur snúið sér að erfðafræðirannsókn-
um. Hann stjómar nú rannsóknastöð MIT-
háskólans í Bandaríkjunum þar sem verið er
að Iesa genamengið. Safnað er upplýsingunum
í gagnabanka í samvinnu við fleiri rannsókna-
stöðvar í fjölþjóðlega samstarfsverkefninu
Human Genome Project eða Genamengisáætl-
uninni. Aðrar útstöðvar verkefnisins em í
Washingtonháskóla í Missouri, Baylor-
læknaháskólanum í Texas, genarannsókna-
stöð bandaríska orkumálaráðuneytisins í Kali-
foraíu og, síðast en ekki síst, Sanger-rann-
sóknastöðinni í Bretlandi.
„Þetta er aðeins partalisti,“ segir Lander í
samtali við tímaritið US News & World
Report „Ef ég léti þig hafa partalistann yfir
Boeing 777 og þeir væra 100.000 held ég ekki
að þú gætir sett vélina saman og þú myndir
áreiðanlega ekki skilja af hveiju hún getur
flogið."
A hinn bóginn er ljóst að greining á gena-
menginu gæti verið upphaf að auknum skiln-
ingfi á því að hve miklu leyti eiginleikar sér-
hvers manns séu einkum háðir erfðafræði-
legum þáttum og hveijir eigi fremur rætur að
rekja til annarra þátta.
Gömlu spurningunni, um hlutföllin milli
erfða og umhverfis, verður þó seint svarað til
fullnustu. í Njálu segir: „Fjórðungi bregður til
fósturs," og átt við að einn fjórði af háttum
mannsins sé kominn undir uppeldinu, hitt sé
meðfætt. Forfeðumir vom vissir í sinni sök.
Uppskriftimar að starfi líkamans
Líkamanum hefur verið líkt við aragrúa af
samtengdum verksmiðjum. Prótín og ensún
sem líkaminn framleiðir stöðugt þurfa upp-
skrift til að geta orðið til og sú uppskrift er
varðveitt í minnstu einingunum, sjálfum gen-
unum, sama er að segja um uppskriftina að
efnunum sem mynda rauð blóðkom, svo eitt-
hvað sé nefnt. Flestar frumur í okkur inni-
halda, hver fyrir sig, allt DNA-erfðaefnið sem
við emm gerð úr, sem gefúr okkur nokkra
hugmynd um stærðarmuninn á geni og frumu.
Rætt er um að hægt verði að beita svo-
nefhdum genalækningum í framtíðinni, flytja
erfðaeftii á milli frumna til að lagfæra þær
sem valda sjúkdómum, bæta þær. Enn sem
komið er hafa tilraunir í þá vem ekki heppnast
og umdeilt er hvenær hægt verði að búa til ný
lyf með erfðabreytingum.
Einfaldanir og misskilningur
Við upphaf líftækni- og erfðavísindaaldar-
innar er mikið um að óinnvígðir einfaldi hlut-
ina fyrir sér og misskilji orð fræðimannanna.
Ekki er það til að draga úr vandanum að
erfðavísindamenn kölluðu einu sinni gena-
mengið „hinn heilaga kaleik" og áttu þá flestir
við að þar væri að finna lykilinn að líkamleg-
um eigindum manna. Hver maður mótast þó
einnig af uppeldi, umhverfi og staðbundnum
aðstæðum, sem geta í sumum tilvikum verið
afgerandi þáttur, fremur en genin.
Deilt hefur verið á þá vísindamenn sem hafa
fullyrt að hægt verði að nota erfðafræðiþekk-
inguna til að leysa öll hugsanleg vandamál
mannsins, þeir sagðir gleyma vitundinni sem
mótist af svo mörgu öðra en Iíkamsstarfsem-
inni. Maðurinn sé ekki aðeins hold heldur lfka
andi. Munurinn á genamengi tveggja einstakl-
inga er hverfandi lítill, um 0,1% og þess má
reyndar geta að menn og simpansar em hvað
þessi efhi snertir næstum því eins, munurinn
aðeins um 1%.
Hlutverk genanna er í sumum tilfellum afar
óljóst, vísindamenn em ekki á eitt sáttir um
þau efni, en margir telja að ýmis gen séu óvirk,
liggi í dvala eða hafi jafiivel ekkert augljóst
hlutverk. Þótt búið sé að finna og einangra
gen sem er sökudólgur, þ.e. veldur sjúkdómi, á
eftir að rannsaka hvort það er allt genið eða
aðeins lftill hluti þess sem er tjónvaldurinn,
hvort það er eitt um hituna eða hvort um sam-
spil tveggja eða fleiri gena er að ræða og loks
hvemig aðrir þættir en genið hafa áhrif á
framvindu sjúkdómsins. Það sem sumum vís-
indamönnum finnst jafnvel allra snúnast, er
spurningin hvort eitt og sama genið getur
bæði haft góð og slæm áhrif og hvemig á þá
velja? Á að fiarlægja eða breyta geni sem er
skilyrði fyrir snilligáfu en getur einnig valdið
fötlun?
Spumingar af þessu tagi em þó enn við-
fangsefni framtíðarinnar, en ljóst er að þær
geta torveldað nýtingu erfðavísindanna til
lækninga.
Ein aðferðin til að hindra krabbamein gæti
verið að stöðva boðin sem krabbameinsfrumur
fá um að fjölga sér og forsendan fyrir því er þá
að menn viti hvar hægt er að breyta rás við-
burða í erfðaefninu, þar sem lífefhabúskapur-
inn fær skipanir sínar. Nokkrar tilraunir hafa
verið gerðar til að lækna m.a. bijóstakrabba
með aðferðum erfðafræðinnar en óljóst er um
árangur.
Gagn og gagnsleysi
Athyglisverðar deilur hafa farið fram á síð-
um breska tímaritsins Prospect um gagnsemi
erfðafræðinnar í baráttunni við sjúkdóma og
væntingar sem hún hefur skapað. Læknirinn
James Le Fanu fullyrti í fyrra að flest mikil-
vægustu lyf aldarinnar hefðu orðið til á nokkr-
um áratugum eftir seinni heimsstyijöld. „Lyf-
in sem nú er mest um að vísað sé á með lyfseðli
em öll afbrigði af efnasamböndum sem fundin
vom upp fyrir 1975,“ sagði Le Fanu.
Hann segir að erfðalækningar hafi orðið að
lausnarorði sem allir staglist á en fyrirferð
þeirra í umræðunum og fiárveitingum hafi
beinlínis dregið máttinn úr öðmm og hefð-
bundnari tegundum lækninga sem áður hafi
verið vaxtarbroddurinn. Enn sé raunveruleg-
ur árangur varla merkjanlegur af tilraunum
með erfðalækningar enda „era gen ekki mikil-
væg orsök sjúkdóma".
George Poste, sem starfar hjá lyfjafyrirtæk-
inu SmithKline Beecham, svaraði Le Fanu og
var hvassyrtur. Hann sagði Le Fanu vera úr
röðum þeirra sem óttist að álit og áhrif lækna-
stéttarinnar séu á undanhaldi. f reynd séu
skrif hans fyrst og fremst merki um helsta
vandann sem steðji að læknavísindunum næstu
árin, en það sé „hyldýpi þekkingarskortsins
sem blasi við þeim læknum sem hafa hlotið
menntun sína fyrir daga nútúnalæknavísinda
er byggjast á vísindatilraunum, þeim sem bera
ekkert skynbragð á sameindalíffræði og erfða-
fræði - en Le Fanu ræðst sérstaklega á hana.“
Poste minnir á fjölda greina í læknatúnarit-
um undanfarin ár um tengsl ýmissa sjúkdóma
við erfðafræðilega þætti. Erfðafræðin sé nú
helsta driffjöður nýrrar hugsunar og aðferða í
læknavísindum.
Hvað sem þessum deilum líður finnst flest-
um að þörf sé á nýjum landvinningum í læknis-
fræði, ekki síst vegna þess að ónæmi gagnvart
sýklalyfjum fer vaxandi, oft vegna ofnotkunar.
Ánnað sem bregðast þarf við er að bættar
samgöngur, ferðaþjónusta og alþjóðavæðing
valda því að hvers kyns sýklar og veirur sem
áður vom staðbundin berast nú hratt á milli
heimsálfa og má nefna alnæmisveimna sem
dæmi.
SUSHI
Vegna mikils áhuga á Sushi,
verður Heilsuhúsið með
Sushi-námskeið í
„Matreiðsluskólanum okkar"
í Hafnarfirði, dagana 22, 23
og 24. janúar kl. 20.00
Námskeiðið kostar kr. 4.900,- og er
innifalinn kassi með öllu til Sushi-gerðar
nema fiski og grænmeti. Miðar á nám-
skeiðið eru seldir í Heilsuhúsinu í Kringlunni
og er Sushi-kassinn afhentur um leið og
miðinn á námskeiðið er keyptur. Einnig má
hringja og greiða með kreditkorti og fá þá
kassann afhentan á námskeiðinu. Þar sem
aðeins komast 25 manns á hvort námskeið
er öruggara að tryggja sér miða sem fyrst.
Ék
náttúrulega!
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
NY sending Kjólar, dragtir
sundbolir
Hverfisgötu 50 O Sími 551 5222
SKATTFRAMTÖL - BÓKHALD
ÁRSREKNINGAR
Tökum að okkur gerð skattframtala fyrir einstaklinga,
rekstraraðila og fyrirtæki.
Einnig færslu bókhalds, virðisaukaskattsuppgjör, gerð
ársreikninga og launaútreikninga.
Fagleg, áreiðanleg og alúðleg þjónusta.
Viðurkenndur bókari (sbr. 43. gr. laga nr. 145/1994).
REKSTRARNETTÐ
Fákafeni 9,108 Reykjavík,
sími 588 3270, fax 568 7001.
www.rekstrametid.is